Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1996, Síða 8
FÖSTUDAGUR 25. OKTÓBER 1996 T>V
m* helgina
Dýrin í Hálsaskógi á Akureyri:
Öll dýrin í skóginum eiga
að vera vinir
Þaö er algjör óþarfi að kynna
Dýrin í Hálsaskógi fyrir íslending-
um. Allir þekkja þau og vita að öll
dýrin í skóginum eiga aö vera vin-
ir. Hver kynslóðin af annarri hef-
ur á undanfomum áratugum lært
hluta leikritsins
og flesta
söngvana
sem Kristján
frá Djúpalæk
þýddi á ís-
lensku.
Thorbjorn
Egner var
mikill ís-
landsvinur.
Hann
hreifst mjög
af sýningu
Þjóðleik-
hússins á
Dýrunum í
Hálsaskógi
sem Klem-
_ . . . enz Jónsson
Bakaradrengurinn og
Hérastubbur. leiKstyroi
fyrstur
manna hérlendis. Egner líkaði
‘ sýningin svo vel að hann ánafnaði
Þjóðleikhúsinu sýningarrétt á öllu
verkum sínum í hundrað ár.
Höfundarlaun í sérstakan
sjóð
Nú hefur Þjóðleikhúsið veitt
Leikfélagi Akureyrar leyfi til sýn-
ingar á verkinu og renna höfund-
arlaun fyrir sýningamar í sér-
stakan Egnersjóð sem er í vörslu
Þjóðleikhússins. Listamenn geta
sótt um styrki til námsferða I sjóð-
inn.
í sýningu Leikfélags Akureyrar
eru það þeir Aðalsteinn Bergdal
og Skúli Gautason sem leika
mýsnar frægu, Lilla klifurmús og
Martein skógarmús. Guðmundur
Haraldsson leikur Mikka ref,
Þórey Aðalsteinsdóttir og Sigurð-
ur Hallmarsson eru bangsahjónin
og Auður Jónsdóttir leikur
Bangsa litla. Guðbjörg Thorodd-
sen leikur Ömmu skógarmús, Jón-
steinn Aðalsteinsson Hérastubb
bakara og Marta Nordal bakara-
drenginn.
Þeir Jón Rafnsson bassaleikari
og Kristján Edelstein gítarleikari
hafa stjórn tónlistarinnar í sýn-
ingunni með höndum. Að sjálf-
sögðu eru íkornabömin líka tón-
elsk. Sunna Brá Stefánsdóttir,
íkornastelpa, leikur á fiðlu og
íkornastrákamir Jón Heiðar Jó-
hannesson og Grétar Orri Krist-
insson leika á trompet og flautu.
Leikstjóri Dýranna í Hálsaskógi
er aö þessu sinni Ingunn Jensdótt-
ir og er leikritið sýnt i Samkomu-
húsinu. Sýningar verða um helgar
í vetur, klukkan 14, og á þriðju-
dögum og fimmtudögum, kl. 15.
-ilk
Lilli klifurmús og Marteinn skógarmús.
Þrír listamenn
koma saman
í Listasafni Kópavogs verða
opnaðar þrjár sýningar á morg-
un. Þær verða allar opnaðar
klukkan 15 og öllum lýkur þeim
sunnudaginn 10. nóvember.
Fyrsta ber að nefna sýningu
Hrólfs Sigðurðssonar listmál-
ara, sem hefur málað íslenskt
landslag í nær hálfa öld. Hann
var í hópi þeirra listamanna
sem kusu að halda tryggð við
landslagsmálverkið á miklum
umbrotatímum í myndlist.
Konan í hópi þessara þriggja
listamanna heitir Sigrid Valt-
ingjoer. Hún ætlar að sýna trér-
istur og á það sameiginlegt með
Hrólfi að hafa landslagið að
meginviðfangsefni. Hún einfald-
ar form þess og umbreytir uns
eftir standa eins konar tákn
mitt á milli abstraktforma og
þekktra forma úr náttúrunni.
Síðastan en ekki sístan ber að
telja Gunnar Ámason en hann
mun sýna figúratíf verk. Náttúr-
an er undirtónn í list Gunnars
en nú hefur hann aukið í verk
sín ýmsrnn hlutum og fyrirbær-
um úr daglegu lífi.
Sýningarnar verða opnar alla
virka daga nema mánudaga frá
kl. 12 til 18.
-ilk
Mantra II, trérista eftir Sigrid.
Anna Jóa og náttúruöflin
Anna Jóa heitir listamaður einn sem opna mun sýn-
ingu á morgun. Anna Jóa verður í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu með sýninguna sína í galleríi Höfðaborgar-
innar. Jafnframt opnuninni, sem verður klukkan 16.00,
verður Anna Jóa með óformlega sýningu i vinnustofu
sinni í Hafnarhúsinu.
í myndum sínum nýtir Anna Jóa sér möguleika
myndmálsins og íslensk náttúruöfl til tjáningar sterkra
tiifinninga. Öll verkin sem verða á sýningunni vom
unnin í Paris.
Anna Jóa útskrifaðist frá Myndlista- og handiðaskóla
íslands vorið 1993 og stimdaði því næst 2ja ára fram-
haldsnám við l’Ecole Nationale Supérierue des Arts
Décoratifs í París þar sem hún mun verja lokaritgerð
sína í nóvember. Ritgerðin ber yfirskriftina Fjallið í ís-
lenskri málaralist.
Anna Jóa hefur áður haldið tvær sýningar. Þegar er
hafinn undirbúningur að fjórðu sýningunni sem opnuð
verður í París snemma á næsta ári.Aðgangur að sýn-
ingu Önnu Jóu í Höfðaborginni er ókeypis og allir eru
velkomnir.
-ilk
Akrýl, olía,
vatnslitir
ogkol
Sýning á verkum eftir Ólaf Oddsson verður opnuð á
morgun í Lundi. Ólafur er menntaður sem verkfæra- og
mótasmiður. Hann hefur stundað myndlistamám í
Myndlistarskólanum í Reykjavik, myndlistardeild Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og myndlistarbraut í Tóm-
stundaskólanum. Ólafur hefur áður haldið sýningar í
Listhúsinu í Laugardal, á Listasýningu í Ráðhúsi
Reykjavíkur og i Eden í Hveragerði. Verk Ólafs eru
unnin í akrýl, olíu, vatnsliti og kol.
Sýningin í Lundi mun standa til 3. nóvember og er
opin frá kl. 14.00 til 18.00.
-ilk
Úr séríunni Útrás. Koi og krít á pappír
Ein mynda Ólafs
IAESSUR
Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Árni Bergur
Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguösþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta á sama
tíma. Dr. Siguijón Ámi Eyjólfsson
messar. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Rangæingakór-
inn syngur í messunni ásamt kór
kirkjunnar. Prestur sr. Sigurður
Haukur Guðjónsson. Messukaffi
Rangæinga eftir guðsþjónustima.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Aitar-
isganga. Bamaguðsþjónusta á sama
tíma.
Dómkirkjan: Laugardagur: Setning
afmælishátíðar Dómkirkjunnar kl.
16. Séra Hjalti Guðmundsson setur
afinælishátíðina. Sunnudagur: Hátíð-
armessa kl. 11. Herra Ólafur Skúla-
son, biskup íslands, prédikar, séra
Bjalti Guðmundsson og séra Jakob Á.
Hjálmarsson þjóna fyrir altari.
Baraahátíð í kirkjunni kl. 14. Opið
hús í Dómkirkjunni og Safnaðar-
heimilinu. Helgistrmdir í Dómkirkj-
unni ki. 16 og 17. Bænaguðsþjónusta
kl. 14. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Bamaguðsþjónusta kl. 11 í umsjón
Ragnars Schram. Guðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18. Sr. Hreinn Hjart-
arson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson.
Grafarvogskirlqa: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjón Hjartar og Rúnu
og kl. 12.30 í Rimaskóla í umsjón Jó-
hanns og Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14.
Sigurður Skagfjörð syngur einsöng.
Eftir guðsþjónustuna verður fundur
með foreldrum fermingarbarna úr
Rimaskóla. Fulltrúar bekkjardeilda
draga um fermingardag. Prestamir.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14.
Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón-
usta kl. 14. Cecil Haraldsson.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl.
11. Messa kl. 14. Fermingarböm og
foreldrar þeirra komi til messu.
Prestar sr. Kjartan Örn Sigurbjöms-
son og sr. Halldór S. Gröndal.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskól-
inn, heimsókn í Vídalínskirkju f Garða-
bæ. Lagt a_f stað með rútu frá kirkjunni
kl. 10.20. Áætlaður komutími heim aft-
ur kl. 12.50. Messa kl. 11, sr. Kristján
Bjömsson, sóknarprestur á Hvamms-
tanga, prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Kórar Hvamms-
tanga- og Grindavíkurkirkju syngja.
Messan er liður í vinatengslum milli
sókna Kjalamessprófastsdæmis og
Húnavatnsprófastsdæmis. Sóknar-
nefndin, sóknarprestur og samstarfs-
fólk í safnaðarstarfi.
Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudaga-
skólinn í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.
Umsjónarmaður séra Þórhildur Ól-
afs. Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla
kl. 11. Umsjónarmaður séra Þórhall-
ur Heimisson. Guðsþjónusta kl. 14.
Fermingarböm úr Óldutúnsskóla
sýna helgileik og lesa ritningarorð og
bænir. Öldutúnsskólakórinn syngur
ásamt kór kirkjunnar. Prestur: séra
Gunnþór Ingason.
Hallgrfmskirkja: Fræðslumorgunn
kl. 10. Kennimenn í Hallgrímslrirkju:
dr. Einar Sigurbjömsson. Bamasam-
koma og messa kl. 11. Fermdur verð-
ur Bryan Allan Smith, Njálsgötu 59.
Sr. Karl Sigurbjömsson. Ensk messa
kl. 14. Sr. Karl Sigurbjömsson.
Hjallakirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 með heimsókn frá Kristi-
legu skólahreyfingunni (KSS). Mikill
söngur og fluttur verður helgileikur.
Sr. Guðmundur Karl Brypjólfsson
skólaprestur prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti.Bamaguðs-
þjónusta kl. 13. Poppmessa kl. 17. Sr.
Kristjón Einar Þorvarðarson.
Hveragerðisprestakall: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í Hveragerðiskirkju.
Jón Ragnarsson sóknarprestur.
Kópavogskirkja: Bamastarf í safn-
aðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðs-
þjónusta fellur niður vegna fram-
kvæmda f kirkjunni.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Helga Soffia Konróðsdóttir.
Messa kl. 14. Sr. Tómas Sveinsson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups. Messa kl. 11. Prestur sr.
Tómas Guðmundsson: Kór Langholts-
kirkju (hópur IV) syngur. Kaffisopi
eftir messu. Bamastarf kl. 13.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Laugameskirkju syngja.
Bamastarf á sama tíma. Guðsþjón-
usta kl. 14 í Sjálfsbjargarhúsinu, Há-
túni 12. Ólafur Jóhannsson.
Mosfellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14.
Bamastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja:Bamastarf kl. 11. Opið
hús frá kl. 10. Sr. Frank. M. Hall-
dórsson. Frostaskjól: Bamastarf ki.
11. Húsið opnað kl. 10.30. Sr. Halldór
Reynisson. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Frank M. Halldórsson. Árlegur basar
og kaffisala Kvenfélagsins að lokinni
guðsþjónustu.
Oháði söfauðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Bamastarf á sama tíma. Kaffi
eftir messu.
Seljakirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Áltaris-
ganga. Sr. Irma Sjöm Óskarsdóttir.