Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1996, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1996, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoóarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasóluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. r Odýrari og öruggari Byggingarsaga fyrirhugaðs flugvallar í Vatnsmýrinni verður örugglega þymum stráð. Margir nágrannar flug- vaflarins og aðrir Reykvíkingar eru ósáttir við ráðagerð- ina. Þeir telja aðflug og flugtök eiga betur heima á svæð- um, þar sem þéttbýli er minna og færri mannslíf í veði. Ráðagerðir flugráðs og samgönguráðuneytisins um að grafa upp mýrina fýrir hálfan annan mifljarð króna og leggja þar alveg nýjar flugbrautir verða áreiðanlega tfl- efni mikiflar sundrungar á höfuðborgarsvæðinu. Þeir, sem ósáttir eru við staðinn, munu láta í sér heyra. Núverandi leifar af flugvelli Breta í mýrinni hafa að mestu fengið frið í skoðanaskiptum fólks, af því að allir vita, að sá flugvöllur er á síðasta snúningi. Ekki hefur tekið því að amast við því, að hann sé notaður til bráða- birgða meðan verið sé að finna og byggja nýjan stað. Flestir hafa bent á Keflavíkurflugvöll sem eðlflegan arftaka Reykjavíkurflugváflar. MfllilandaflugvöUurinn er afar vel tækjum búinn, mun betur en innanlandsflug- völlurinn. Auk þess er hann vannýttur og getur hæglega bætt á sig innanlandsflugi eins og hann er núna. Keflavíkurflugvöllur er nú betur undir það búinn að taka við innanlandsflugi en nýr flugvöllur í Vatnsmýr- inni verðUr, þegar búið er að verja hálfúm öðrum millj- arði til að grafa upp mýrina og leggja þar nýjar flug- brautir. Forskotið syðra er yfir tveir milljarðar. Ekki má heldur gleyma, að erfitt verður að stunda innanlandsflug á verktíma fyrirhugaðs flugvallar í Vatnsmýrinni. Framkvæmdir munu margfalda slysa- hættu á svæðinu. Henni verður helzt mætt með því að flytja innanlandsflug til bráðabirgða á Keflavíkurvöll. í stað þess að búa til bráðabirðgaaðstöðu fyrir tíma- bundið innanlandsflug frá Keflavíkurflugvelli er skyn- samlegra að reisa þar varanlega stöð fyrir innanlandsflug við hlið millilandastöðvarinnar og tengja þær saman með yfirbyggðum gangi. Það er hagkvæm framtíðarlausn. Ef Keflavíkurflugvöflur tekur við innanlandsflugi, mun aukast umferð á Reykjanesbraut. Það mun breyta forsendum í reiknilíkönunum, sem nú eru notuð til að reikna arðsemi í framkvæmdum við veginn. Tvöföldun brautarinnar verður hagkvæmari en nú er talið. Tvöföld Reykjanesbraut, lýsing hennar allrar og raf- hitun stuttra hálkukafla, sem hingað til hafa valdið slys- um, hafa samanlagt ekki aðeins gildi fyrir flugið, heldur einnig fyrir allt atvinnulíf á suðvesturhomi landsins, tengja betur höfúðborgarsvæðið og Suðumesin. Tvöföld Reykjanesbraut með öflu tilheyrandi og við- bótarstöð á Keflavíkurvelli verða alls mörgum hundmð- um milljóna króna ódýrari en samanlagður kostnaður af nýjum flugbrautum á Reykjavíkurvelli, nýjum flugvall- armannvirkjum og nýrri flugstöð í Nauthólsvík. Vel lýst, hálkulaus og tvöföld Reykjanesbraut gefur kost á reglum um 110-130 km hámarkshraða, sem stytt- ir leiðina frá Reykjavík niður í hálftima. Það þykir mjög gott í alþjóðlegum samanburði, þótt það sé að vísu lengra en tíu mínútumar að flugstöðinni í Nauthólsvík. Frá Breiðholti eða Garðabæ mun ekki taka lengri tíma að komast á Keflavíkurvöll en í Nauthólsvík. Að vísu má brúa Kópavog, en það mun hafa í för með sér illindi við íbúa á Kársnesi. Samgöngusamanburðurinn er ekki eins mikið Vatnsmýrinni í vil og oft er fúflyrt. Meira öryggi og minni kostnaður gera gott betur en að vega upp styttri leið. Því er rétt að afskrifa Vatnsmýrina og hefjast handa við flugstöð á Keflavíkurvelli. Jónas Kristjánsson Einsetning í skolum er e.t.v. fyrsta skrefiö til aö skapa þann aga og festu sem skortir í íslenskt samfélag og skól ana, segir greinarhöf. m.a. Skólabyggingar í Reykjavík: Sex ráðhús á fimm árum!!! Samkvæmt grunn- skólalögum skal ein- setja alla grunnskóla landsins. Fræðsluráö og byggingamefnd skóla og leikskóla hafa lagt fram drög að flmm ára áætlun að uppbyggingu og einsetningu allra skóla borgarinnar. Fræðsluráð og borgarráð hafa sam- þykkt ytri ramma áætlunarinnar, þ.e.a.s. að á næstu fimm árum verji borgin um milljarði á ári til skólabygg- inga. Samkvæmt samningi við ríkið fá sveitarfélögin 20% af kostnaði við ein- setningu endur- greidd frá Jöfnun- arsjóði sveitarfé- laga næstu fimm árin. Ákvörðun um einstakar bygging- ar eða viðbyggingar við eldri skóla ligg- ur ekki fyrir. Kjallarinn Sigrún Magnúsdóttir form. Fræðsluráðs í Reykjavík leiðir til að reyna að minnka byggingar- magnið og að halda byggingarkostnaði í lágmarki. Þessi sam- líking sýnir vel hvílíkt stórátak einsetning allra skóla í borginni er. Markviss vinnu- brögö Borgaryfirvöld settu á laggimar fyrir einu og hálfu ári byggingar- nefnd skóla og leik- skóla. Nefhdin ákvað fljótlega eftir að hún tók til starfa að ráða ráðgjafa til að fara yfír alla skóla borgarinnar með tilliti til einsetn- „Það er bjargföst trú mín aö með einsetnum skóla og lengdum skóladegi, með góðu hádegishléi nemenda, verði mikil breyting til batnaðar fyrir börn og foreldra þeirra í Reykjavík.u Einsetning er stórátak í þessum drögum er áætlað byggingarmagn skól- anna rúmlega 30 þús. fermetrar. Það jafngildir byggingarmagni sex ráðhúsa. Ráðhúsið við Tjörnina í Reykjavík er rúmlega fimm þús. fermetrar meö bílakjallaranum. Við höfúm sem sagt sett fram áætl- un um að byggja rúmlega eitt ráð- hús á ári fýrir gmnnskólaböm í Reykjavík. (í fermetrum talið.) Ráðhúsið var byggt á fjórum ámm og varð mjög dýrt í byggingu og markaði djúp spor í fjárhag borg- arinnar. Við ætlum hins vegar aö gæta allrar ráðdeildar og skoða allar ingar. Jafnframt fór fram mikil vinna hjá borgarskipulagi borgar- innar varðandi mannfjöldaspá í hverfunum með tilliti til fjölda skólabama. Sl. vor héldum við fundi í öllum hverfum borgarinn- ar með skólastjómendum og stjórnum foreldrafélaga og kynnt- um þessa rýmisathugun grunn- skóla borgarinnar og mannfjölda- spána. Þá standa núna yfir fundir með skólastjórum allra grunnskólanna um drögin að fimm ára áætlun- inni. Fræðslustjóri, sviðsstjóri þjónunarsviðs og undirrituð sitja þessa fundi. Síðan verða haldnir fundir með öllum foreldraráðum og foreldrafélögum. Forgangsröðun Erfiðasta og viðkvæmasta málið varðandi þessa uppbyggingu skól- anna er hverjir verða einsettir á næstu árum og hverjir verða síð- astir í þessari fimm ára áætlun. Það er einkum tvennt sem við höf- um haft að leiðarljósi. Byrja að byggja við þá skóla sem búa við mestu þrengslin, hafa fæsta fer- metra per nemanda og hins vegar að hinkra með þá skóla þar sem mannfjöldaspáin gerir ráð fyrir töluveröri fækkun á næstu árum. Það er alveg ljóst að þetta er afar vandasamt verk og ákvarðan- ir um byggingar í eldri hverfum geta sett þarna strik í reikninginn. Þannig er erfitt að spá um hvaða áhrif uppbyggingin í Kirkjutún- inu á lóð Eimskips hefur varð- andi skólabyggingar í Laugames- hverfinu svo ég taki eitt dæmi. Innra starfið Ég vil taka það skýrt fram að lokum að þó að það sé nauðsyn- legt að ytri ramminn sé góður, skólahúsið, er það fyrst og fremst innra starfið sem skiptir máli um framtíð barna okkar. Þess vegna er það mjög nauðsynlegt að allir vinni saman að því að finna ein- faldar og ódýrar lausnir varðandi byggingarnar til að eiga frekar fjármagn og krafta til að byggja upp metnaðarfullt skólastarf í borginni. Það er bjargföst trú mín að með einsetnum skóla og lengdum skóladegi, með góðu hádegishléi nemenda, verði mikil breyting til batnaðar fyrir börn og foreldra þeirra í Reykjavík. E.t.v. er það fyrsta skrefið til að skapa þann aga og festu sem skortir í íslenskt samfélag og skólana. Sigrún Magnúsdóttir Skoðanir annarra Framfærsla láglaunafólks „Of stór hópur hefur dregist svo mikið aftur úr að hann nær ekki að rétta hlut sinn sjálfur. Þetta er pólitískt úrlausnarefni og nægir ekki að vísa vand- anum til sveitarfélaganna einna. Þau horga nú þegr ar miUjarð á ári til framfærslu láglaunafólks. Oft hefrn- verið gripið til sérstakra efnahagsúrræða til að koma fyrirtækjum á réttan kjöl. Fyrir síðustu kosningar var talaö um ráðstafanir fyrir verst stöddu heimilin. í batnandi árferði á einmitt að gera þau sjálfbjaga aflur - svo hér búi ein þjóð.“ Stefán Jón Hafstein í Degi- Tímanum 5. nóv. Pólitísk stórtíðindi „Morgunblaðið vill ekki gera Þorsteini Pálssyni upp skoðanir. En ef skilja má orð hans á þann veg, að hann sé samþykkur því i grundvallaratriðum, að útgerðin greiði gjald fyrir réttinn til þess að nýta sameiginlega auðlind þjóðarinnar allrar en að hann leggi hins vegar áherslu á, að þetta gjald sé lágt, eru það engu að síður pólitísk stórtíðindi. Þá er alveg augljóst, að breyting er að verða á afstöðu eins helsta forystumanns Sjálfstæðisflokksins til máls- ins.“ Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 3. nóv. Mikilvægi Ríkisútvarpsins „Nefskattar, sem settir hafa verið á, hafa sjaldnast verið afnumdir og tekjunum, sem komið hafa inn til ríkisins, hefur oftar en ekki verið ráðstafað í annað þegar til fjárlagagerðar kemur. Með afnotagjöldum er sjálfstæði Ríkisútvarpsins betur tryggt og því þannig gert betur kleift að sinna sínu margþætta hlutverki. Mikilvægi Ríkisútvarpsins verður æ ljós- ara þegar mál skipast hjá einkareknu íjölmiðlunum eins og nú gerist." Ásta R. Jóhannesdóttir í Alþbl. 5. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.