Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 11
FOSTUDAGUR 8. NOVEMBER 1996 lyndbönd 25 Nick ofTime: . kapphlaupi Aðalsögnhetjan í Nick of Time er Gene Watson. Hann er endur- skoðandi og ósköp venjulegur maður sem lifir þægilegu og við- burðasnauðu lífi, en líf hans tek- ur snögglega stakkaskiptum þeg- ar hann er staddur með dóttur sinni á járnbrautarstöð í Los Angeles. Þar er þeim rænt af kuldalegum persónum sem kynna sig sem Mr. Smith og Ms. Jones og þau segja Gene að hann verði að fremja morð á næstu 90 mínútum, ella drepi þau dóttur hans. Skotmarkið er stjórnmála- maður og allar tilraunir Gene til að gera yfirvöldum viðvart gætu orðið til þess að dóttir hans væri drepin. Hver sem er gæti verið vitorðsmaður og hann getur eng- um treyst. Skrifstofublókin er þar með komin í aðstöðu sem hana hefði aldrei órað fyrir og verður að taka á sig hlutverk hetjunnar. Spumingin er hvort hún geti staðið undir því hlut- verki og í hönd fara æsilegar 90 mínútur. í rauntíma Þegar handritshöfundurinn Patrick Sheane Duncan var að vinna að sögunni, fékk hann þá hugmynd að hafa myndina í rauntíma, þannig að sá tími sem líður meðan myndin rúllar sé sambærilegur við tímann sem líður í sögunni. Þetta hefur nokkrum sinnum verið reynt og frægasta dæmið er kannski Hitchcock-tryllirinn Rope frá 1948. Leikstjórinn verður að halda saman samfelldri sögu án þess að nota tímastökkin sem venjulega er að finna í kvik- myndum. Hann getur ekki látið persónurnar koma út af brautar- stöð I einni senu og labba inn á hótel í þeirri næstu. Svæðið, sem sagan gerist á, verður því að vera tiltölulega lítið. Myndin fer að mestu leyti fram i Westin Bonaventure hót- elinu í miðborg Los Angeles, ör- stutt frá Union Station járn- brautarstöðinni, þar sem Gene Watson og dóttur hans er rænt. Hótelið hefur áður verið notað i kvikmyndum og skemmst er að minnast In the Line of Fire. Til að auka spennuna gerðu kvik- myndagerðarmennimir nokkrar breytingar á hótelinu. Gegnsætt gler var sett í glugga á skóburst- unarstað og blómabúð og klukk- ur voru settar upp hér og þar til að minna á tímakapphlaupið. Annað stílbragð sem leikstjór- inn notar er að gefa myndinni yfirbragð heimildamynda. Eng- inn farði var notaður á leikar- ana og notaðar voru handvélar til að kvikmynda, þannig að myndin fengi hrátt og raunsætt yfirbragð. Myndin er því ekki alltaf í fúllkomnum fókus, ljósið er ekki alltaf eins og best væri á kosið, o.s.frv. Allt var þetta með ráðum gert til að ná tilætluðu andrúmslofti. Fjölhæfur leikari Johnny Depp leikur aðalsögu- hetjuna og er þetta fyrsta hlut- verk hans í hasarmynd. Hann byrjaði feril sinn í rokksveitinni Kids í Flórida, og vegna stað- bundinnar velgengni flutti sveit- in til Los Angeles. Stuttu seinna var hljómsveitin lögð niður og Johnny Depp sneri sér að kvik- myndaleik að ráði vinar síns. Hann komst fljótlega í feitt þeg- ar hann fékk hlutverk i Night- UPPAHALDSMYNDBANDIÐ MITT Emilíana Torrini Ég á mér margar uppáhaldsmyndir og finnst erfitt að gera upp á milli þeirra. Fyrstar ber að nefna Godfather myndimar. Ég elska nefni- lega ítölsku mafiuna eins og hún var í gamla daga. Það er eitthvað svo mikill „elegans“ yfir henni og ég er veik fyrir öllum mynd- um sem tengjast henni eins og til dæmis The Untouchables og Goodfellas. Mér finnst líka allar Star Wars myndimar frá- bærar. Þær hafa fylgt mér alla ævi og ég á þær meira að segja flestar. Ekki má ég gleyma að nefna mynd- irnar City of the Lost Children og The Nightmare Before Christmas en þær eru í svakalegu uppá- haldi hjá mér. Tón- listin í þeirri síðamefndu er líka svo frábær. Ég horfi rosa- lega mikið á myndbönd. Mér finnst svo gott að hlamma mér niður með popp og góða spólu þegar ég kem heim eftir vinnu. Adrenalínið er ein- hvem veginn á fúllu, til dæmis þegar ég kem heim eftir sýningu á Stone Free og þá finnst mér gott að ná mér niður yfir góðri mynd heima í sófa. Svona í lokin vil ég lika taka fram að mér finnst Prúðu- leikararnir frábærir. -ilk . mmmmrn íi0tilÍf0Xi . • I 5 Johnny Depp í hlutverki endurskoöandans á járnbrautarstöðinni meö dótt- ur sinni. . ’-l ------— mare on Elm Street og í kjölfar- ið fylgdu hlutverk í myndum eins og Slow Burn og Platoon. Þaðan lá leiðin í hina vinsælu sjónvarpsþætti 21 Jump Street. Eftir nokkur misseri sneri hann aftur á hvíta tjaldið í myndinni Cry Baby, en það var frammi- staða hans í Edward Scissor- hands sem ávann honum frægð og viðurkenningu. í kjölfarið fylgdu margs konar óvenjuleg hlutverk í óvenjulegum mynd- um eins og Benny & Joon, Whats Eating Gilbert Grape, Arizona Dream, Ed Wood og Don Juan Demarco. Nýjasta mynd hans er vestri Jim Jarmusch, Dead Man, sem sýnd hefur verið við góðan orðstír á kvikmyndahátíðinni undanfar- ið. Næsta verkefni Johnnys Depps er að leikstýra og leika aðalhlutverkið í mynd eftir handriti sem hann skrifar með bróður sínum, D.P Depp, eftir sögu Gregorys McDonalds og heitir myndin The Brave. í hlutverki óþokkans er sá þrautreyndi leikari Christopher Walken. Sá hefur átt langan og gifturíkan feril sem sennilega náði hæstu hæðum þegar hann fékk óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki i Deer Hunter. Hann hefur leikið í ótal myndum, en er kannski þekkt- astur fyrir hlutverk sín í Annie Hall, The Dead Zone, A View to a Kill, At Close Range, The Mila- gro Beanfield War, True Rom- ance, Batman Returns og Pulp Fiction. Nýlega kom út á mynd- bandi Things to Do in Denver When Youre Dead, þar sem hann lék mafíuforingja. -PJ Rumble in Bronx If Lucy Fell Vampíra í Brooklyn Jackie Chan er leikari og slags- málahundur sem notið hefur óhemju vin- sælda I Austur- löndum fjær og hefur hróður hans borist vestur rnn haf. Rumble in the Bronx er fyrsta bandaríska kvikmyndin sem Chan leik- ur í og náði hún talsverð- um vinsældum í Bandaríkjunum og má segja að með þessari mynd hafi Jackie Chan tryggt vinsældir sínar í Vestur- heimi. Rumble in the Bronx er í anda Kung Fu mynda þar sem Bruce Lee fór fremstur í flokki mikilla slags- málagarpa. Jackie Chan leikur ferðamann frá Hong Kong sem kem- ur til New York í þeim tilgangi að vera viðstaddur brúðkaup frænda síns. Þegar hann fer að hjálpa til í verslun, sem er í eigu frændfólks hans, lendir hann fljótt í illdeilum við mótorhjólagengi sem kemst Qjótt að því að Jackie Chan er sýnd veiði en ekki gefin. Skífan gefur út Rumble in the Bronx og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 13. nóvember. *twffœ itvnwtwiA If Lucy Fell er rómantísk gam- anmynd með hinni ágætu leik- konu, Sarah Jessica Park- er, í aðalhlut- verki en auk hennar leikur stórt hlutverk í myndinni of- urmódelið Elle McPher- son. Þriðja hlutverkið leikur svo Eric Schaeffer en hann er jafhframt leikstjóri myndarinn- ar. Myndin fjallar um sálfræðing- inn Lucy og vin hennar, Joe, sem gerðu eitt sinn með sér það samkomulag að ef þau yrðu ekki búin að finna hina eina sönnu ást þegar þau væru orðin þritug mundu þau fleygja sér fram af hinni frægu Brooklyn-brú. Nú nálgast þrítugsaldurinn og bæði eru þau i vafa um að þau hafi fundið hina einu sönnu ást, bæði eru í sambandi en án þess að telja sig vera nógu ástfangin. Á meðan tíminn líður biður Brooklyn-brúin á sínum stað. Skífan gefur If Lucy Fell út og er hún leyfð öllum aldurshóp- um. Útgáfudagur er 13. nóvem- ber. Brooklyn í New York er yfirleitt ekki hverfi sem hægt er að tengja, við vampírur en eins og nafn myndarinnar, Vampíra í Brooklyn, gefur til kynna þá er þar að finna eina slíka og þar sem Eddie Murphy leikur hana þá er ekki um neina venju- lega vampíru að ræða. Murphy leikur vampíruna Max- millian sem á að sjálfsögðu heima í Suðaustur-Evrópu, eins og allar al- vöru vampírur, en hann hefur grun um að í New York leynist kona sem uppfyllir allar óskir hans og reynist hann sannspár. Auk Eddies Murphys leika í myndinni Angela Basset, sem leikur hina einu sönnu ást, Maxmillian og Kadeem Hardison, sem leikur lán- lausém hjálparkokk vampírunnar sem er alltaf að týna ýmsum líkams- hlutinn á hinum óheppilegustu stöð- um. Leikstjóri er Wes Craven sem er þekktur leiksfjóri hryllings- mynda og var hann upphafsmaður Martraðarinnar á Elm-Street, svo dæmi sé nefiit. ClC-myndbönd gefa út Vampíru í Brooklyn og er hún bönnuð bömum innan 16 ára. Útgáfudagur er 12. nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.