Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Síða 6
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 T>V zo gifíi helgina VEITINGASTAÐIR A. Uansen Vesturgötu 4, Hf., sími 565 1693. Opið 11.30-22.30 alla daga. A nœstu grösum Laugavegi 20, sími 552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22 v.d„ 18-22 sd. og iokað ld. Amigos Tryggvagötu 8, sími 511 1333. Opið 17.30-22.30 virka daga og sd, 17.30-23.30 fd.ogld. Argentína Barónsstíg lla, sími 551 9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. Asía Laugavegi 10, sími 562 6210. Opið 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„ 11.30- 23.30 fd. og ld. Askur Suðurlandsbraut 4, sími 553 8550. Opið 11-22 sd.-fid„ 11-23.30 fd. ogld. Banthai Laugavegur 130, sími 552 2444. Opið 18-22 mán. til fim. og 18-23 fös. til sun. Café Opera Lækjargötu 2, sími 552 9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld„ 11.30- 1 v.d. Caruso Þingholtsstræti 1, sími 562 7335. Opið sun.-fim. 11.30-23.30. Fd. og ld. 12.-2. Carpe Diem Rauðarárstíg 18, sími 562 3350. Opið 11-23 alla daga. Hard Rock Café Kringlunni, sími 568 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„ 12-23.30 sd. Hornið Hafnarstræti 15, sími 551 3340. Opið 11-23.30 alla daga. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sxmi 551 1440. Opið 8-23.30 alla daga. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30 v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug- velli, sími 552 2322. Opið í Lóninu 0-18, í piómasal 18.30-22. Hótel Oðinsvé v/Óðinstorg, sími 552 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„ 12-15 og 18-23.30 fd. og ld. Hótel Saga Grilíið, sími 552 5033, Súlnasalur, sími 552 0221. Skrúður, sími 552 9900. Grillið opið 19-22.30 alla daga, Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14 og 18-22 alla daga. Humarhúsið Amtmannsstíg 1, simi 561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1 ld. og sd. Italía Laugavegi 11, sími 552 4630. Opið 11.30- 23.30 alla daga. Jónatan Livingston Mávur Tryggvagötu 4-6, sími 561 5520. Opið 17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld. Kínahofið Nýbýlavegi 20, sími 554 5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45 fd„ ld. og sd. Kína-húsið Lækjargötu 8, sx'mi 551 1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„ 17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd. Kínamúrinn Laugavegi 126, sími 562 2258. fd„ ld„ sd. 11-23. má.-fi. 11-22.00. Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2, sími 551 1855. Opið 10-01 sd.-fi. og 11-4)3 fd. og ld. Kringlukráin Kringlunni 4, sími 568 0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld. Lauga-ás Laugarásvegi 1, sími 553 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar. La Primavera Húsi verslunarinnar, sími 588 8555. Op. 12.00-14.30,18-22 v.d„ 18-23.00 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd. Las Candilejas Laugavegi 73, sími 562 2631. Opið 11-24 alla daga. Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími 551 4430. Opið mán.-miðvd. 11.00-23.30, fim.-sd. 11.00-0.30. Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími 562 1988. Opið 11.30-23.30 alla daga. Marhaba Rauðarárstíg 37, sími 662 6766. Opið alla daga nema md. 11.30- 14.30 og 17.30- 23.30. Naustið Vesturgötu 6-8, sími 551 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„ 12-14 og 18-03 fd. og ld. Opera Lækjargötu 2, sími 552 9499. Opið 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld. Notre Dame efri hœð Ingólfskaffl, Ingólfsstræti, sími 896 4609. Helgar frá kl. 18. Pasta Basta Klapparstíg 38, sími 561 3131. Opið virka daga frá 11.30 til I. 00 og um helgar til 3.00. Perlan Öskjuhlíð, sími 562 0200. Opið 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld. Potturinn og pannan Brautarholti 22, sími 551 1690. Opið alla daga 11.30- 22. Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9, sími 588 0222. Opið alla daga frá kl. II. 30.-20.30. nema Id. frá 11.30.-16. Lokað á sunnudögum. Samurai Ingólfsstræti la, sími 551 7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23. Siam Skólavörðustíg 22, sími 552 8208. Opið 18-22 v.d„ 18-22.30 fd. og ld. Lokað á md. Singapore Reykjavíkurvegi 68, sími 555 4999. Opið 18-22 þd.-fimmtud. 18-23 fd.-sd. Sjanghæ Laugavegi 28, sx'mi 651 6513. Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd. Sjö rósir Sigtúni 38, sími 588 3550. Opið 7-23.30 alla daga. Skólabrú Skólabrú 1, sími 562 4455. Opið frá kl. 18 alla daga. Opið í hádeg- inu. Steikhús Harðar Laugavegi 34, sími 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„ 11.30- 23.30 fd. og ld. Thailand Laugavegi 11, sími 561 8111 og 551 7627. Opið 18-22 alla daga. Tilveran Linnetsstíg 1, sími 565 5250. Opið 11-23 alla daga. Veitingahúsið Esja Suðurlands- braut 2, sími 568 9509. Opið 11-22 alla daga. Verdi Suðurlandsbraut 14, sími 581 1844. Opið md.-fd„ 11.30-22 og fd.-sd. 11.30-23. Vxð Tjörnina Templarasundi 3, sími 551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30 md.-fd„ 18-23 ld. og sd. Viðeyjarstofa Viðey, sími 568 1045 og 562 1934. Opið fimmtud - sunnud. Kaffistofa opin 14-17. Veitingasalur opinn 18-23.30. Vitabar Bergþórugötu 21, sími 551 7200. Opið 15-23.30 v.d„ 12-02 aðra. Nýjasta verk Úlafs Hauks Símonarsonar frumsýnt: Fólk skellihlær og grætur - segir Þórhallur Sigurðsson leikstjóri Kennarar óskast heitir nýjasta leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar og í kvöld verður það frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins. Um er að ræða alvarlegt og dramat- ískt verk með hnyttnum texta og skrautlegum persónum. „Einkenni Ólafs er að þó hann fjalli um alvarleg mál gerir hann það á þann hátt að áhorfendur skellihlæja en gráta kannski um leið. Það er kannski þess vegna sem hann nær svona vel til almenn- ings,“ segir Þórhallur Sig- urðsson en hann er leikstjóri verksins. Tvö verk Ólafs Hauks á stóra svið- inu Verk Ólafs Hauks falla svo sannarlega vel í kramið hjá landanum. Til marks um það má geta þess að nú hafa hvorki meira né minna en þrjátíu þúsund manns séð Þrek og tár en leikritið hefur verið sýnt á stóra sviðinu í rúmt ár. Ólafur Haukur hefur því afrekað það að vera höf- undur tveggja leikrita sem sýnd eru á stóra sviði Þjóð- leikhússins i einu. Það mun vera einsdæmi. Ólafur Haukur skrifaði einnig leikritin Bílaverk- stæöi Badda, Hafið og Gaura- gang en þau nutu ekki síður vinsælda áhorfenda. Öll þessi verk hafa verið sett upp und- ir stjóm Þórhalls. „Átta sinnum hef ég sett upp verk eftir Ólaf og við vinnum vel saman viö þau. Ólafur er viðstaddur allar æf- um leið ingarnar og verkið tekur sí- felldum breytingum á æf- ingatímanum. Viö héldum þannig áfram allan tímann að vinna að sýningunni. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt en það er alltaf sérstaklega gaman að vinna með nýtt, íslenskt verk,“ segir leikstjórinn. Borgarbúar og sveitamenn „í þessu verki er fyrst og fremst fjallað um fólk í litlu samfélagi úti á landi. Ákveðniratburðir koma upp á yfírborðið þegar fólk að sunnan kemur til að kenna í skólanum. Þeir sem fyrir era í plássinu þurfa þar af leiðandi að endurmeta stöðu sína. Ólafur fjallar hér um fólk og viðbrögð þess við því sem upp kemur i verkinu,“ segir Þórhallur. Leikendur í Kennurum óskast eru þau Sigrún Edda Bjömsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn Ámason, Hjálmar Hjálmarsson, Gunn- ar Eyjólfsson og Harpa Am- ardóttir. Þá er bara að skella sér á frumsýningu í kvöld en kunnugir halda því fram að enginn verði fyrir vonbrigð- um. -ilk Gunnar Eyjólfsson og Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverk- um sínum. Nýi kennarinn mættur á svæðið og sá gamli tekur á móti með heitu kaffi. DV-mynd ÞÖK Dagur harmónikunnar Leikin verður létt tónlist af flytjendum á öllum aldri í Dans- húsinu í Glæsibæ við Álfheima á sunnudaginn. Um er að ræða há- tíðahöld í tilefni dags harm- ónikunnar. Böm og unglingar munu leika nokkur lög og Stórsveit Harm- ónikufélags Reykjavíkur líka und- ir stjóm Karls Jónatanssonar. Einnig leika Matthías Kormáks- son (15 ára), Ólafur Þ. Kristjáns- son, Karl Jónatansson og Sveinn Rúnar Bjömsson. Að lokum mun Léttsveit Harmónikufélagsins leika nokkur lög. Boðið verður upp á kaffiveit- ingar og gestum gefinn kostur á að stíga léttan dans undir dun- andi harmónikutónlist Léttsveit- ar H.R. Það verður sem sagt fjör í Glæsibæ á sunnudaginn. -ilk Gefum flöskunni frí í dag Bindindisdagur - allra hagur. í dag er Bindindisdagurinn. Hann er áskorun til allra lands- manna um að gera daginn að áfeng- islausum degi. Hann er dagur fjöl- skyldnanna í landinu þar sem áfengisneysla er látin víkja fyrir fjölskylduheill. Hann er auk þess dagur Scunúðar með þeim sem misst hafa ástvini sína vegna áfengis- og annarrar fikniefnaneyslu, bæði í slysum og með öðrum hætti. Þeirra verður minnst með blysfór sem hefst á Hlemmi klukkan 17.30 og lýkur henni á Ingólfstorgi. Lúðrasveit mun leika fyrir göng- unni og Helgi Seljan, fyrrverandi al- þingismaður, mun flytja stutt ávarp í göngulok. Hópur fermingarbama tekur þátt í göngunni með blys í hendi og kærleika í hjarta og munu þau vafalaust setja sitt mark á blys- förina. Allir em hvattir til að taka þátt í göngunni og sýna þannig hug sinn i verki til þessara mála. Fjölskylduskemmtun Á morgun verður svo fjölskyldu- skemmtun í Vinabæ í tilefni Bind- indisdagsins. Skemmtunin þar hefst kl. 14.00 og verður þar margt til gamans gert. Á dagskrá er leikþátt- ur, söngur, töframaður og fleira skemmtilegt. Kynnir verður Mókoll- ur og mun aðgangur verða ókeypis. Gefum nú flöskunni frí og helgum daginn fjölskyldunni og hamingju hennar en kjörorð Bindindisdagsins er: Bindindisdagur - allra hagur. -ilk Gallsrí Fold: 4! itamenn með litlar myndir Samsýning 48 listamanna verður opnuð á morgun í gallerí Fold. Sýn- ingin nefnist 8 plús 40 gera 48 en átta karlar og 40 konur taka þátt í henni og sýna litlar myndir. Myndirnar em 170 talsins og hafa hafa ekki verið sýndar áður. Listamennimir fengu það veganesti að halda stærð mynd- anna innan ákveðinna marka og stiúa verði þeirra í hóf. Sýningin mun standa til 8. desember og er opin daglega frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnudaga frá kl. 14.00 til 17.00. -ilk Syngjandi bæjarstjóri DV, Akranesi:_______________________ Glæsileg skemmtiatriði og létt- ar veitingar munu einkenna kvöldið í kvöld í Kirkjuhvoli á Akranesi. Um er að ræða sérstakt hátíðarkvöld til styrktar rekstri Kirkjuhvols. Þeir sem koma fram eru Hörpusystur, sem syngja nokkur lög, Valgerður Dan og Þor- steinn Gunnarsson, sem verða með leiklestur, og Anna Halldórs- dóttir og Sólarmegin flytja lög af nýjum diski. Þá mun Melasveitin, með Gísla Gíslason í broddi fylk- ingar, leika nokkur létt lög með gestasöng en Melasveitin hefur vakið mikla athygli. Gísli bæjar- stjóri hefur ekki síður vakið at- hygli fyrir gítarspil og góðan söng og það þykir Skagamönnum ekki amalegt. Bæjarstjóri sem syngur, spilar og semur gamanvísur er ekki á hverju strái.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.