Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1996, Blaðsíða 11
Þriðjudaginn 26. nóv- ember kemur út á myndbandi myndin Primal Fear með Richard Gere og Laura Linney í aðalhlutverkmn. Richard Gere leikur í myndinni Martin Vail, snjallan en hrokafullan lög- fræðing í Chicago sem leitast við að verja skjólstæðinga sem geta boðið upp á mikil slagsmál I réttinum og fjölmiðlaumfjöllun. Bæði virðast vera í boði þegar ungm- og sakleysisleg- ur altarisdrengur (Edward Norton) er sakaður um morðið á erkibiskup borg- arinnar og hann býðst því til að taka að sér vöm drengsins þótt sönnunargögn- in gegn honum virðist óyggjandi Fyrrverandi elskhugi sem andstæðingur koma eru m.a. dómarinn Miriam Shoat (Alfred Woodard úr Cro- oklyn, Passion Fish og How to Make an American Quilt) og rétt- arsálfræðingurinn Dr. Molly Arrington (Frances McDormand, sem hefur leikið í mörgum myndum, þ.á m. Mississippi Buming, Darkman, Short Cuts, Beyond Rangoon og þremur myndum Coen-bræðranna - Blood Simple, Raising Arizona og Fargo). Til að tryggja nákvæmni og trúverðugleika í myndinni var sóst eftir aðstoð lögfræðinga. Kvikmyndagerðarmennimir hittu nokkra lögfræðinga til að ræða persónuna Martin Vail og Laura Linney fékk að fylgjast með nokkrum réttarhöldum í morðmál- um í Chicago undir handleiðslu Jeanne Bischoff, umsjónarkonu sakadóms í Cook- umdæminu í Chicago. Ennfremur voru tveir sérfræðingar ráðnir sem ráðgjafar, John Redmond, sérfræðingur í réttarlæknisfræði, og Robert Breech, tæknilegur lögfræðiráð- gjafi. Þess má geta að John Redmond bregður fyrir í myndinni í atriði þar sem lögreglan er að gera húsleit í vistarvemm erki- biskupsins. Laura Linney er í hlutverki opinbera saksóknarans Janet Venable sem er falið að sækja málið. Til að bæta gráu ofan á svart í flóknu og tilfinninga- þrungnu réttardrama er sú staðreynd að Martin Vail er einnig fyrrverandi elskhugi hennar og lærifaðir og er því mikið keppnisskap í henni. Yfir þeim báðum vaka valdamiklir aðilar í stjóm- málalífi borgarinnar, þar á meðal sak- sóknari fylkisins, John Shaughnessy (John Mahoney úr sjónvarpsþáttimum um útvarpssálfræðinginn Frasier), sem var yfirmaður Martins Vail þegar hann vann hjá saksóknaraembættinu og er ákveðinn í að fá sakfellingu í þessu máli. Aðrar persónur sem við sögu Richard Gere í hlutverki Stjama myndarinnar er Richard Gere, sem er enn eitt af helstu karlkyns kyntáknunum í Hollywood þótt hárið sé orðið virðulega grásprengt. Hann hóf leikferil sinn í kvikmyndum fyr- ir átján árum í myndinni Days of Heaven sem færði honum ítölsku „óskars“-verðlaunin. í kjölfarið fylgdu myndir eins og Mr. Goodbar, Bloodbrothers, Yanks og American Gigolo. 1982 sló hann í gegn þegar hann lék í hinni vinsælu An Officer and a Gentleman. Þá komu myndimar Breathless, Beyond the Limit, The Cotton Club, Power, No Mercy, Miles From Home, Internal Affairs og 1990 lék hann á móti Juliu Roberts í metsölumynd árs- ins, Pretty Woman. Ennfremur hefúr hann verið með puttana í framleiðslu myndanna Final Analysis, Mr. Jones og Sommersby ásamt því að leika í þeim. Síðustu myndir hans fyrir Primal Fear voru Intersection, Rhapsody in August og First Knight. Leikstjóri myndarinnar er Gregory Hoblit og hún er framleidd af Gary Lucchesi. Gregory Hoblit hefur ekki leikstýrt kvikmynd áður en hann hefur hlotið alls níu Emmy verðlaun fyrir leikstjóm og framleiðslu fyrir sjónvarp, þ.á m. fjögur fyrir framleiðslu á Hill Street Blues. Meðal annarra verð- launasjónvarpsþátta, sem hann hefur unnið við, eru L.A. Law og NYPD Blue. Meðal mynda, sem Gary Lucchesi hefur framleitt, eru Jennifer 8 og Virtuosity en hann var áður forstjóri framleiðslu- sviðs hjá Paramount Pictures þar sem hann hafði yfirumsjón með framleiðslu margra stórmynda, svo sem Ghost, Indi- ana Jones and the Last Crusade, Fatal Attraction, The Hunt for Red October, Coming to American, Naked Gun, The Untouchables og The Godfather Part DL Myndin er gerð eftir samnefndri skáldsögu Williams Diehls en hún er fyrsta bókin í trilógíu um Martin Vail. Önnur og þriðja bókin heita Show of^ Evil og A Reign in Hell en áður hefur hann skrifað Sharkeys Machine, Chameleon, Hooligans, Thai Horse og 27. -PJ lögfræðingsins ásamt skjólstæöingi sínum sem Edward Norton leikur. X>W FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 Wyndbönd 2S UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT Herbert Guðmundsson Ef ég á að nefna eitt- hvert myndband svona al- veg í hvelli þá dettur mér helst í hug Disclosure með Demi Moore og Michael Douglas. í þeirri mynd er góður söguþráður og hún er vel gerð. Ég kaupi hins veg- ar lítið af mynd- böndum þó að ég geri mik- ið af því að leigja mér myndir. Þegar ég geri það verða myndir úr perluflokknum oft fyrir valinu. Það er helst að ég kaupi myndir um ísland til að hafa með mér til Svíþjóðar þar sem ég bý. Síðast keypti ég myndbandið við Island er land þitt. Eftir að Islendingam- m úti í Sví- þjóð voru búnir að horfa á það fóru þeir næst- um því að gráta og vildu fara heim. Þetta er svona þjóð- rækni hjá manni. Ef ég ætti hins vegar að nefna einhverja mynd sem mig lang- ar til að sjá þá myndi ég segja Ben Hur. Ég man eftir því að þegar ég sá hana sem strákur þá var það í fyrsta skipti sem ég táraðist í bíó. Ég held nú samt að það sé hæpið að maður bregðist eins við í dag. -JHÞ The Santa Claus Margir hafa fylgst með hinni vinsælu sjónvarpsseríu Handlag- inn heimilisfaðir, en þar leikur Tim Allen heimilisfoð- urinn og hefur orðið mjög vin- sæll í þessu hlutverki. Hann hafði ekki mikið leikið í kvikmynd- um þegar hann tók að sér að leika jólasveininn í The Santa Claus, en hann veðjaði á réttan hest því myndin náði mikl- um vinsældum í Bandaríkjunum. Hér var hún sýnd í kvikmynda- húsum um jólin í fyrra og það fer þvi vel á að gefa hana út á mynd- bandi nú fyrir þessi jól. I myndinni leikur Allen heimil- isfoður sem erfir jólasveinaemb- ættið og hversu mikið sem hann reynir að sporna við þeirri þróun að hann líkist jólasveininum meir og meir dugir ekkert. Hann verður að sætta sig við örlög sín. Auk Allens leika Judge Reynold og Pet- er Boyle stór hlutverk í myndinni. Sam-myndbönd gefur út The Santa Claus og er hún leyfð öllum aldurshópum. Útgáfudagur er 21. nóvember. Tár úr steini Ein besta kvikmynd sem íslend- ingar hafa gert á síðari árum er Tár úr steini sem leikstýrt er af Hilmari Öddssyni. I myndinni er sagt frá stormasömu lífi tón- skáldsins Jóns Leifs. Hann fluttist ungur til Berlínar til að læra tón- smíðar, þar giftist hann konsertpíanistanum Annie Riethof og eignaðist með henni tvær dætur. Faðir Annie var efnaður gyðingur sem studdi Jón með ráðum og dáð, en þegar stríðið skall á með tilheyrandi hörmungum kollvörpuðust allar framtíðaráætlanir Jóns og fjöl- skyldu hans. Með hlutverk Jóns Leifs fer Þröstur Leó Gunnarsson, en meðal annarra leikenda eru Bergþóra Aradóttir, Ruth Ólafsdóttir og Jó- hann Sigurðarson. Stjörnubíó gefur út Tár úr steini og er hún leyfð öllum aldurshóp- um. Útgáfudagur er 26. nóvember. August Anthony Hopkins er einn af stórleikurum heimsins og eins og fleiri kollega hans hefur hugur hans staðið til að ur verða af í raksturinn og hann einnig aðalhlut- verkið. August er byggð á hinu fræga leikriti Antons Tsjekhovs, Vanja frænda. Það er' komið fram í ágúst árið 1896. Hinn lífsreyndi og harðgerði prófessor Alexander Blathwaite er kominn ásamt glæsilegri eiginkonu sinni, Helen, í heimsókn til dóttur sinn- ar sem býr í Wales, ásamt móður- bróður sínum, Ieuan. Blathwaite hefur aldrei farið leynt með lítils- virðingu sína á sveitafólkinu sem þarna býr og þetta er í fyrsta sinn sem hann leyfir eiginkonu sinni að vera með í förinni. Nærvera hennar á síðan eftir að valda um- róti meðal karlmannanna á staðn- _ um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.