Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1996, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1996
%yndbönd™
Hvemig brygðist þú við?
og níu tilnefn
ingar. Með
nýlegri
myndum
hennar
eru The
Bridges
of Madi-
son
nefningu. Liam
Neeson er borinn
og barnfæddur í
Belfast í Norður-
írlandi og aflaði
sér vinsælda í
leikhúslífinu
þar. Fyrsta
Meryl Streep og Liam Neeson leika foreldra unglings sem allt eins hefði getaö framiö morö.
Stórleikaramir Meryl Streep og
Liam Neeson leiða saman hesta sína
í mynd Barbet Schroeder, Before
and After, þar sem þau leika Caro-
lyn og Ben Ryan, foreldra unglings
sem hefði getað framið morð. Sonur-
inn, Jacob Ryan, hverfur skyndilega
eftir að illa leikið lík unnustu hans
finnst. Ben og Carolyn reyna að
komast að því hvað raunverulega
gerðist, en hugsunin um að Jacob
gæti verið morðingi og að fólk gæti
litið á hann sem slíkan er þeim erf-
ið. Bæði reyna að vemda son sinn
og koma honum til hjálpar, en fara
mismunandi leiðir að því. Faðirinn
leggur allt í sölurnar til að koma í
veg fyrir að sonur hans sé dæmdur
fyrir morðið, hvort sem hann hefur
framið það eða ekki. Hann brýtur
lögin til að vemda son sinn og reyn-
ir að eyðileggja möguleg sönnunar-
gögn. Carolyn tekur annan pól í
hæðina. Hún kýs að treysta syni sin-
um, vill fara að lögum og gera rétt.
Hún vill reyna að vera syni sínum
stoð og stytta í erfíðu máli, fremur
en að leiðast út í athafnir, sem gætu
eftir allt saman aðeins komið hon-
um í koll, en þannig lítur hún á til-
burði eiginmanns síns.
Meryl Streep sýndi
strax áhuga
Myndin er gerð eftir samnefndri
metsölubók eftir Rosellen Brown, en
handritið var skrifað af Ted Tally,
sem m.a. skrifaði handritið að Si-
lence of the Lambs og fékk ósk-
arsverðlaun fyrir, en hann skrifaði
einnig handritið að The Juror, sem
kemur út á myndbandi um sama
leyti og Before and After. Meryl
Streep frétti af verkefninu áður en
handritið var einu sitmi skrifað og
sýndi strax áhuga á að leika í mynd-
inni. Liam Neeson kom einnig
snemma að myndinni. Hann heyrði
af henni áður en hann lék í
Schindler’s List, sem gerði hann að
stjörnu. Edward Furlong var svo
ráðinn til að leika hið mikilvæga
hlutverk sonarins. Hann hafði enga
reynslu í kvikmyndaleik þegar hann
hreppti eitt af aðalhlutverkunum í
Terminator H og varð stjama á
einni nótt. Hann hefúr ekki leikið í
stórmyndum síðan heldur hallað sér
að óháðri kvikmyndagerð og leikið í
myndum sem American Heart, A
Home of Our Own, Little Odessa og
The Grass Harp.
Fimmta mynd Schroeder
vestan hafs
Leikstjóri myndarinnar, Barbet
Schroeder, er franskur að uppruna
og stofnaði þar eigið kvikmyndafyr-
irtæki 22 ára gamall, en fyrirtækið
framleiddi m.a. fyrir leikstjóra eins
og Eric Rohmer, Wim Wenders,
Jean-Luc Godard og Rainer Wemer
Fassbinder. 1969 leikstýrði hann
sinni fyrstu mynd, More, en eftir að
hafa leikstýrt nokkmm kvikmynd-
um og tveimur heimildarmyndum í
Frakklandi kom hann til Bandaríkj-
anna til að vinna að kvikmynd með
rithöfundinum Charles Bukowski og
myndin Barfly leit dagsins ljós árið
1987. Before and After er fimmta
mynd hans í Bandaríkjunum, en
hinar em Single White Female,
Reversal of Fortune, en fyrir hana
var hann tilnefndur til óskarsverð-
launa fýrir bestu leikstjóm, og Kiss
of Death.
Meryl Streep er löngu orðin goð-
sögn í kvikmyndaheiminum. Hún
hefur hlotið tvenn óskarsverðlaun
County, The River Wild, House of
the Spirits, Death Becomes Her og
Postcards from the Edge. Hún sýndi
strax leikhæfileika á unglingsárum
sínum og kom fram í skólaleikrit-
um. Eftir að hafa útskrifast úr Yale
leiklistarskólanum hóf hún glæsileg-
an feril á sviði áður en hún fékk
fyrsta kvikmyndahlutverk sitt í Jul-
ia. Næsta kvikmyndahlutverk henn-
ar aflaði henni óskarsverðlaunatil-
nefhingar, en það var í Deer Hunter,
en fyrstu óskarsverðlaun sín fékk
hún fyrir hlutverk sitt í Kramer vs.
Kramer. Enn var hún tilnefnd fyrir
leik í The French Lieutenants Wom-
an og hlaut svo sín önnur ósk-
arsverðlaun fyrir Sophies Choice.
Aðrar myndir sem hún hefur hlotið
tilnefningar fyrir eru Silkwood, Out
of Africa, Ironweed og A Cry in the
Dark. Næst fáum við að sjá hana í
Marvins Room, með Diane Keaton,
Robert De Niro og Leonardo
DiCaprio.
Liam Neeson er i hinu aðalhlut-
verkinu, en ferill hans tók stórt
stökk eftir frammistöðu hans í stór-
myndinni Schindler’s List, en fyrir
hana fékk hann óskarsverðlaunatil-
kvikmyndahlutverk hans var í
Excalibur, en í kjölfarið fylgdu mörg
sjónvarpshlutverk, bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Meðal fyrstu
kvikmynda hans voru The Bounty,
A Prayer for the Dying og The
Mission, en nýlegri eru Suspect,
Darkman, Under Suspicion og Hus-
bands and Wives, en von er á hon-
um í Michael Collins, nýjustu mynd
Neil Jordan um sögufrægan írskan
uppreisnarleiðtoga.
-PJ
The Ballad of Sad -
Cafe
The Ballad of Sad Cafe er bresk
mynd sem sæk-
ir efnivið sinn í
bandarískar
þjóð- og munn-
mælasögur.
Leikstjóri er
Simon Callow,
sem einnig hef-
ur fengist nokk-
uð við að leika í
kvikmyndum,
framleiðandi er
Ismail (
Merchant, en samstarf hans við [
leikstjórann James Ivory hefur skil- \
að úrvalsmyndum á borð við
Howard’s End og Remains of the
Day. |
Myndin gerist í rykugu þorpi í
suðurríkjum Bandaríkjanna mitt á
kreppuárunum og fjallar um ungfrú
Amalíu sem er áberandi persóna í
þorpinu. Hún er virt fyrir heimala-
gað öl og þekkt fyrir tíu daga
stormasamt hjónaband sitt og Mar- j
vis May, en hann situr í fangelsi j
þegar myndin hefst og bíða allir f
þorpsbúar með öndina í hálsinum -j
eftir því að hann sleppi úr fangelsi. (
Með aðalhlutverkin fara Vanessa |
Redgrave, Keith Carradine og Rod J
Steiger.
Bergvík gefur út The Ballad of ;
Sad Cafe og er hún leyfö öllum ald- j
urshópum.
UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Magnús Scheving
#.
M
Líklega er myndbandið með Mr.
Bean það myndband sem ég held
einna mest upp á. Ég horfi nánast
aldrei á myndbönd svo það er varla
mark á mér takandi. Ég er að horfa
á þetta fjórar myndbandsspólur á
ári en held að ég hafi þó tekið
myndbandið með Mr. Bean oftar en
einu srnni. Hann er frábær. Ég hef
aldrei eytt miklum tíma fyrir fram-
an sjónvarpið, það er svo margt
skemmtilegra hægt að gera. Þeg-
ar aðrir skella sér niður fyrir
framan sjónvarpið er ég yfirleitt
að vinna. Ég kenni leikfimi á
kvöldin og vinn oft fram eftir. Kem
heim um eða eftir miðnætti, fæ
mér að borða og fer svo að sofa -
enginn tími fyrir sjónvarps-
gláp. Aftur á móti reyni ég
að vera duglegur að
mæta í bíó, þó svo ég af-
reki það ekki nema einu
sinni í mánuði. Ég reyni
að sjá allar myndir sem
mig langar til að sjá í
bíó. Síðast sá ég Striptea-
se með Demi Moore en
mér fannst hún ansi lé-
leg, þrátt fyrir að Demi
sé auðvitað glæsilegur
kvenmaður. Ég er bara ekki af
þeirri tegund manna sem hlunkar
sér fyrir framan imbann með popp
og kók. Reyndar borða ég mikið
popp, svona einn poka á dag, en það
er önnur saga.
-ilk
Down Periscope Dare to Love
Hinn vinsæli gamanleikari Kels-
ey Grammer, sem gerði garðinn
frægan í Staupasteini og er nú með
eigin seríu,
Frasier, sem
nú er vin-
sælasta gam-
anserían í
bandarísku
sjónvarpi, leik-
ur aðalhlut-
verkið í Down
Periscop, John
Dodge, sem
lengi hefur alið
manninn í
bandaríska flotanum. Dodge hefúr
ávallt látið sig dreyma um að fá að
stjóma kafbát. Hann verður þvi að
vonum ánægður þegar hann fær til-
kynningu um að nú fái hann loks
eigin kafbát. Ánægjan breytist þó
fljótt í sketfmgu þegar hann lítur
farkostinn augum í fyrsta sinn því
þar er á ferðinni eldgamall dísilknú-
inn ryðkláfúr sem ætti fyrir löngu
að vera kominn í brotajám og ekki
er áhöfnin sem hann fær burðugri.
Auk Kelsey Grammer leika í
myndinni Lauren Holly, Rip Tom,
Brace Dem, Harry Dean Stanton og
Rob Schneider. Leikstjóri er David
S. Ward.
Skífan gefúr Down Periscope út
og er hún leyfð öllum aldurshópum.
Aðalhlutverkið í Dare to Love
leikur Josie Bisset, sem aðdáendur
hinnar vinsælu sjónvarpsseríu Mel-
rose Place eiga JOSIE I
ekki í vandræð-
um með að
þekkja. Leikur
hún lögmanns- ” '* ^
dótturina
Jessicu Wells
sem verður fyr-
ir sálrænu
áfalli við bróð-
urmissi. Hún
missir tökin á
lífi sínu og for-
eldrar hennar sjá hana hverfa dýpra
og dýpra í kviksyndi geðveikinnar.
Nýtt lyf vekur vonir þeirra um að
hægt verði að kveikja lífslöngun
dótturinnar, þannig að hún geti náð
stjóm á lífi sínu á ný. Jessica er
samt svo illa farin að nú fara í hönd
langir og erfiðir tímar við að byggja
hana upp. Jessica á erfitt með að
treysta fólki og er orðin óhæf til að
þiggja hjálp og ást foreldra sinna.
Foreldrarnir gera sér grein fyrir því
að ef þeir nái ekki til Jessicu nú þá
sé hún þeim að eilífu glötuð ...
Chad Lowe og Jill Eikenberry
leika foreldrana. Þess má geta að
myndin er byggð á sannri sögu.
Leikstjóri er Armand Mastroianni.
Skífan gefur út Dare to Love og er
hún bönnuð börnum innan 12 ára..