Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Fréttir
Áhöfh Sólfells EA vísaði fiskverðsdeilu til úrskurðamefndar:
Undirmönnunum gert að hirða
pokann sinn og skipinu lagt
- skipverji segir menn rekna fyrir að kæra til úrskurðarnefndar - nefndin dæmdi okkur úr leik, segir útgerðarmaður
J ° J ==i SífSan atti að taka við heiði
„Það var bara hringt um borð og
okkur sagt upp. Mönnum var mjög
brugðið því þetta er mjög erfiöur
tími núna. Það verður erfítt hjá ein-
hverjum um jólin,“ segir skipverji
af nótaskipinu Sólfelli frá DalvSk
sem sagt var upp fyrirvaralaust í
fyrradag. Alls var 10 af 14 skipverj-
um sagt upp en áhöfnin hefur und-
anfarið átt í stappi við útgerð sína
um verð á síld og fór málið til úr-
skurðamefndar sjómanna og út-
gerðarmanna. Skipið hefúr verið
gert út frá Reyðarfirði að undan-
fómu en á að fara norður til Dalvík-
ur í framhaldi af uppsögnunum.
DV ræddi við nokkra skipverja í
gær og var þeim mjög bmgðið við
þessar aðgerðir útgerðarinnar. Und-
irmennimir á Sólfelli verða launa-
lausir frá næstu helgi en yfirmenn
sem sagt var upp em með nokkrar
vikur í uppsagnarfrest. Flestir
mennimir eru fjölskyldumenn
„Þetta er auðvitað mjög erfitt fyr-
ir mannskapinn og það liggur ekki
atvinna á lausu fyrir menn,“ segir
annar skipveiji.
Viðmælendur DV úr áhöfninni
sögðustekki þora að ræða mál þetta
undir nafni af ótta við að fá hvergi
skipsrúm. Mál áhafnar Sólfells fór
fyrir úrskurðarnefndina i endaðan
október og hljóðaði úrskuröurinn
upp á að skipverjum bæri að fá 11
krónur fyrir kílóið.
„Við vomm ekki sáttir við það að
vera boðnar 9 krónur og 4 krónur
Tíu af fjórtán skipverjum Sólfells hefur veriö sagt upp en áhöfnin hefur undanfarió átt í stappi viB útgerB sina um
verB á síld og fór máliB til úrskurBarnefndar. SólfelliB hét áBur Sighvatur Bjarnason VE. DV-myna uu
fyrir kílóið. Þegar við sögðum út-
gerðarmanninum það og sögðumst
ætla með það í úrskuröamefnd þá
sagði hann að það væri í lagi með
það,“ segir fulltmi sjómannanna.
Eftir því sem DV kemst næst var
gert samkomulag við áhöfnina fyrir
nokkm um að útgerðin greiddi sam-
kvæmt úrskurðinum hluta aflans.
Aðgerðir ríkisstjórnar i fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum:
Fagna mest 65 milljónum til lög- og tollgæslu
Síöan átti að taka við „heiðurs-
mannasamkomulag" um að lægra
verð tæki gildi og þá í trássi við úr-
skurð nefndarinnar. Ekki kom þó
til þess því nú hefur sjómönnunum
verið sagt að taka pokann sinn.
Það er Útgerðarfélag Dalvíkinga
sem gerir skipið út. „Menn héldu að
það fylgdi úrskurðamefndinni eitt-
hvert öryggi en síðan kemur bara í
ljós að menn em reknir ef þeir vísa
til hennar málum,“ segir hann.
Valdimar Bragason, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Dal-
víkinga, staðfesti í samtali við DV
að undirmönnum á Sólfelli hefði
verið sagt upp störfum. Hann sagði
um að ræða 10 menn sem myndu
láta af störfum. Hann segir uppsagn-
imar afleiðingu af úrskurðamefnd-
inni.
„Úrskurðamefndin úrskurðaði
okkur úr leik. Það var búinn sá
kvóti sem tengist skipinu og enginn
grundvöllur til að gera út á því
verði sem okkur er gert að greiða.
Þetta er því bein afleiðing af starfi
hennar," segir Valdimar.
Hann vildi ekkert tjá sig um það
„heiöursmannasamkomulag" sem
DV hefur heimildir fyrir að gert
hafi verið milli áhafnar og útgerðar.
Þá sagði hann að útgeröin hefði
greitt samkvæmt úrskurðinum en
ekki væri grundvöllur fyrir frekari
síldveiðum. Valdimar segir aö skip-
inu verði nú lagt fram yfir jól.
___________________________-rt
Stuttar fréttir
- segir Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður
„Mér finnst skipta mestu að ríkis-
stjómin skuli hafa tekið á þessu
með jafn umfangsmiklum hætti og
raun ber vitni. Kallað hefur verið
eftir stefnu lengi og nú liggur hún
fyrir. Ég fagna mjög þeim 65 millj-
ónum sem bætast strax á næsta ári
við til þess að efla lög- og tollgæslu
og til þess að efla meðferðarúrræði
fyrir ungmenni í áhættuhópum.
Þetta er það sem menn hafa talið
brýnast," segir Dögg Pálsdóttir hrl.
sem fór fyrir tveimur nefndum sem
skipaðar vom til þess að skila tillög-
um og leggja fyrir ríkisstjórnina.
„Þessar tillögur voru unnar í sam-
starfi við lögreglu og tollayfirvöld
og ég er ekki í nokkmm vafa um að
þær eiga eftir að skila árangri," seg-
ir Dögg.
Stefna ríkisstjómarinnar miðar
að því að efla forvamir, einkun þær
sem beint er að einstaklingum sem
em í áhættuhópum gagnvart notk-
un fikniefna, áfengis og tóbaks; að
hefta aðgengi bama og ungmenna
að efnunum; að auka öryggi al-
mennings meö fækkun fikniefna-
tengdra brota; að efla andstöðu í
þjóðfélaginu gegn notkun bama og
ungmenna á fikniefrium, áfengi og
Tillögur rfkisstjórnarinnar tll a&gerBa í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum voru kynntar á1
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigBisráöherra, Porsteinn Pálsson dómsmálaráBherra og Dogg Palsdottir h£v ° pQK
inum. y
tóbaki og síðast en ekki síst að efla
meðferðarúrræði fyrir ungmenni
sem orðið hafa fikninni að bráð.
Gert er ráð fyrir að stofnað verði
Áfengis- og vimuvamaráð sem leysa
muni Áfengisvarnaráð af hólmi. Þá
hefur verið ákveðið að ganga til
samstarfs við Reykjavíkurborg um
verkefnið ísland án ólöglegra fikni-
efna árið 2002. Loks hefur dóms-
málaráðherra lagt fram frumvarp
til laga um breytingu á almennum
hegningalögum sem auðvelda á yfir-
völdum að taka á fikniefnamálum.
-sv
Eignir bæti menntun
Sjálfstæðismenn í borgarstjóm
Reykjavíkur leggja til að 15%
tekna af eignasölu fari til að efla
þróunarstarf og vísindakennslu í
grunnskólunum.
Ekki til tölvusmokkur
Ríkið getur ekki tekið sér lög-
sögu yfir Internetinu. Það er ekki
til neinn tölvusmokkur sem það
getur sett yfir netið til að verja
þegnana, segir Friðrik Skúlason í
Degi- Tímanum.
Herferð gegn hentifánum
Alþjóöa flutningasambandið
hefur skipað fulltrúa á íslandi og
hefur hann umsjón með hentifá-
naútgerð skipafélaga hér á landi.
Eimskip er með 10 skip undir
hentifánum en eitt undir íslensk-
um fána, segir i tilkynningu frá
samtökunum.
Vilja ekki svara í símann
Tveir yfirmenn hjá Slökkvilið-
inu hafa afsalað sér yfirmanna-
stöðum til að þurfa ekki að svara
í síma hjá Neyðarlínunni, segir
Alþýðublaðið.
Ríkisútvarpiö hf.
Ríkisútvarpinu verður breytt
hlutafélag og staða útvarpsstjóra
lögð niöur samkvæmt frétt í Degi-
Tímanum. Þetta er sögö vera nið-
urstaða nefndar sem útvarpsstjóri
skipaði sl. haust.
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því a&
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já 1 Nei 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Er tekið of vægt á
barnaníðingum?
Öll skotin foru rétta leið
Úrslit leikja í NBA í nótt:
New York-Miami.............75-99
Atlanta-Boston............105-95
Cleveland-Toronto..........93-74
Minnesota-Sacramento .... 89-96
Millwaukee-Chicago .... 104-107
Portland-Indiana...........93-98
Golden State-Denver .... 114-99
LA Clippers-Charlotte .... 96-89
LA Lakers-Seattle.........110-96
Júgóslavinn Sasha Danilovic hjá Mi-
ami Heat var með hittnina í lagi í Madi-
son Square Garden í nótt, öll sjö 3ja
stiga skotin rötuöu rétta leiö, alls 21
stig.
Shaquille O’Neal var gríðarlega sterk-
ur þegar LA Lakers lagði Seattle, skor-
aöi 32 stig og tók 16 fráköst. Detief
Schrempf gerði 27 stig fyrir Seattie.
Barros skoraði 25 stig fyrir Boston en
þau dugðu skammt gegn Atianta þar
sem Mutombo skoraði 21 stig.
Milwaukee hékk í Chicago en Michael
Jordan sá til þess aö sigurinn lenti rétt-
um megin er hann skoraði 40 stig fyrir
Chicago.
Indiana sigraði Portiand í jafnri viður-
eign. Miller var stigahæstur hjá Indiana
með 40 stig en Anderson gerði 29 stig
fyrir Portland.
Sprewell skoraöi 28 stig fyrir Golden
State í auðveldum sigri á Denver.
-JKS