Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Viðskipti
Kaupgaröur í Mjódd:
Útburðardómi
áfiýjað til
Hæstaréttar
Eigendur Kaupgarös í Mjódd
hafa ákveðið að áfrýja útburð-
ardómi til Hæstaréttar sem Hér-
aðsdómur Reykjavíkur felldi ný-
lega. Arnarborg hf., sem leigir
Kaupgarði húsnæðið undir starf-
semina, höfðaði mál gegn Kaup-
garðsmönnum vegna ágreinings
um yfirtökugjald. Arnarborg
krafðist þess að leigusamningi
yrði rift sem gerður var til 8 ára
í september í fyrra. Eigendur
Kaupgarðs telja sig ekki þurfa að
greiða þetta yfirtökugjald.
Allianz og
Landsbankinn í
samvinnu
Nýverið hóf útibú Landsbank-
ans í Langholti, í samvinnu við
þýska líftryggingarfélagið Alli-
anz, að veita viðskiptavinum fé-
lagsins á íslandi lán gegn veði í
fasteigna og söfnunarlíftrygg-
ingu. Þetta er í fyrsta sinn sem
íslenskt fjánnálafyrirtæki býður
slík lán.
Eingöngu vextir lánsins eru
greiddir mánaðarlega allan láns-
tímann, allt að 25 árum, en höf-
uöstóll láns er afborgunarlaus
með uppgreiðslu að fullu í lok
lánstíma. í lok lánstíma greiðist
lánið upp með útborgaðri söfnun-
arlíftryggingu frá AUianz, eða að
öðrum kosti við fráfall lántaka.
Hámarks veðsetning er 70% af
markaðsverði fasteignar.
Staðlaráð á
Internetið
Staðlaráð íslands, STRÍ, hefur
ákveðið að bjóða upp á nýja og
bætta þjónustu við viðskipta-
menn sina þar sem kappkostað
verður að uppfylla þarfir hvers
og eins. Vefsíður eru komnar á
Intemetið með margvíslegum
upplýsingum um STRÍ. Einnig er
aðgangur að íslenskri staðlaskrá
og Staðlatíðindum. Slóðin til
STRÍ er:
http://www.stri.is
Saltverksmiðjan:
Samið við ís-
lensk sjéefni
DV, Suðurnesjum:
Fulltrúar íslenskra sjóefna hf.
lögðu nýlega fram tilboð til Hita-
veitu Suðumesja um gerð kaup-
leigusamnings um saltverksmiðj-
una á Reykjanesi. Stjóm hitaveit-
unnar samþykkti að fela Júliusi
Jónssyni, forstjóra hitaveitunn-
ar, að ganga til samninga við ís-
lensk sjóefni. Aö sögn Júlíusar er
verið að tala um að leigja verk-
smiðjuna með kauprétti að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Stefht er að því að ganga frá
samningum fyrir miðjan mánuð.
Hlutafé Bláa
lónsins aukið
DV, Suðurnesjum:
Á aðalfundi Bláa lónsins ný-
lega var rætt um hlutafjáraukn-
ingu félagsins um allt að 350
milljónir að nafnviröi. Sú upp-
hæð mun fara í framkvæmdir
við nýjan baðstað við Bláa lónið.
Hann er um 750 metra frá núver-
andi lóni. í fyrsta áfanga verður
byggð fullkomin búningaaðstaða
með öllu tilheyrandi ásamt veit-
inga- og fundaaöstöðu. Kostnaður
við fyrsta áfanga er áætlaður
800-900 milljónir króna.
Eigendur Bláa lónsins eiga eft-
ir að samþykkja hlutafjáraukn-
inguna. íslenskir aðalverktakar
eiga stærstan hluta, eða 42%, og
Hitaveita Suðurnesja kemur
næst með 20% hlut. -ÆMK
DV
Spástefna Stjórnunarfélagsins fyrir 1997:
Forráðamenn fyrirtækja
óttast verðbólguskrið i
Væntingar fyrirtækja 1997
- samkv. spástefnu Stjórnunarfélags íslands -
Stjórnunarfélag íslands Þjóöhagsstofnun
3,5%
1,5
1
0,5
0
Verðbólga | Hagvöxtur |
ir> rS' "1
1IÉ34 “~T
m fl •&
v
SFÍ ÞHS SFÍ ÞHS
Forráðamenn fyrirtækja eru
svartsýnni en Þjóðhagsstofnun hvað
verðbólguþróun varðar á næsta ári
en spá jafnframt meiri hagvexti en
hagfræðingar stofnunarinnar. Þetta
er meðal þess sem kom fram á
Spástefnu Stjómunarfélags íslands
á Hótel Loftleiðum í gær. Þar kynnti
Sigurður Ágúst Jensson niðurstöð-
ur könnunar sem gerð var hjá for-
svarsmönnum um 70 stórfyrirtækja.
Niðurstöðurnar voru bornar saman
við horfur Þjóðhagsstofnunar í efna-
hagslífi næsta árs auk samanburðar
á spám fýrir þetta ár.
Eins og sést á meðfylgjandi grafi
gera fyrirtækin ráð fyrir 3,1% hag-
vexti á næsta ári á meðan Þjóðhags-
stofnun spáir 2,5% hagvexti. Á
þessu ári er hagvöxturinn mældur
upp á 5,5%. Það er talsvert frá spám
þessara aðila fyrir ári síðan. Þá
spáðu fyrirtækin 2,8% hagvexti á
árinu og Þjóðhagstofnun 2%.
Verðbólga á næsta ári verður
3,5% að mati fyrirtækjanna. Þetta
er eins og áður sagði mun svart-
sýnni spá en hjá Þjóðhagsstofnun
sem reiknar með 2% verðbólgu, þ.e.
hækkun neysluvísitölunnar á næsta
ári. Fyrir þetta ár spáðu fyrirtækin
3,2% verðbólgu og Þjóðhagsstofnun
2,5%. Svo virðist sem stofhunin hafi
hitt naglann á höfuðið því áætlun
gerir ráð fyrir 2,5% verðbólgu á
þessu ári.
Fyrirtækin reikna með meiri
launahækkunum á næsta ári en
Þjóðhagsstofnun. Á Spástefhunni
kom fram að meðaltekjur á mann
hækki um 5,7% á næsta ári en Þjóð-
hagsstofnun spáir 3,5% launahækk-
unum. Á þessu ári hafa meðaltekjur
hækkað um 6,5%. Það er næst spá
fyrirtækjanna í fyrra sem reiknuðu
með 5,8% hækkun launa á árinu en
Þjóðhagsstofhun var hófsamari með
4,2% hækkim.
Þegar atvinnuleysisspár eru skoð-l
aðar gera fyrirtækin ráð fyrir 3,5%:
atvinnuleysi á næsta ári að meðal-
tali. Þjóðhagsstofnun er svartsýnni
hvað þetta varðar og spáir 4% at-j
vinnuleysi. Á þessu ári hefur at-
vinnuleysi verið að meðaltali 4,2%J
Það er skammt frá því sem fyrir-
tækin spáðu í fyrra sem voru með
4,4% atvinnuleysi en Þjóðhagsstofh-
un spáði 4,8%.
Flestir forráðamenn fyrirtækjanna
telja að jafhvægi náist í ríkisbú-
skapnum til aldamóta með skipulags-
breytingum og aukinni sjálfsábyrgð
stofoana. Sem leiðir út úr efhahags-
þrengingum nefndu flestir lítil ríkis-
afskipti, sköpuð yrðu jöfn skilyrði án
þátttöku hins opinbera. Margir
nefndu einnig alþjóðavæðingu.
Að mati fyrirtækjanna eru ferða-
þjónusta, stóriðja og frekari úr-
vinnsla sjávarafurða helstu vaxtar-
broddar í atvinnulífi íslendinga. Um
langtímahorfur í íslensku efnahags-
lífi sögðu flestir þær vera í meðal-
lagi, að það takist að halda í við ná-:
grannaþjóðir. -bjb!
Tryggingarfélögin:
Stórauknar lánveitingar
til fyrirtækja og heimila
Lánveitingar tryggingarfélaganna
hafa vaxið hröðum skrefum undan-
farin ár. Þannig jukust þær um 38%
frá júní 1995 til loka júní á þessu
ári. Verðbréfaeign tryggingarfélag-
anna hefur að sama skapi aukist.
Þetta kemur m.a. fram í Hagtölum
mánaðarins sem Seölabankinn gef-
ur út.
Aukninguna frá 1990 má sjá nán-
ar á meðfylgjandi grafi. Stærstur
hluti þeirra upphæða er vegna lána
til fyrirtækja og heimila, einkum
vegna bílakaupa.
Seðlabankinn tók saman yfirlit
um efnahag tryggingarfélaga frá
1990 til miðs árs 1996. Af eignum fé-
laganna hefur mest aukning orðið í
innlendu lausu fé og munar miklu
um innstæður á innlendum gjald-
eyrisreikningum. Upplýsingar bár-
ust frá 11 tryggingarfélögum.
Erlendar eignir tryggingarfélaga
hafa minnkað og námu 732 milljón-
um um mitt þetta ár. Innstæður í
sjóðum og bönkum námu tæpum 6
milljörðum. Ásamt útlánum og
verðbréfaeign upp á 30,6 milljarða
námu eignir félaganna eOefu því
rúmum 37 milljörðum króna. Á
sama tíma námu vátryggingar-
skuldir 29 milljörðum.
Útlán og verðbréfaeign tiyggingarfélaga
35.000 milljónir kr. - 31 des. 1990 til 30. jún. 1996 -
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
Frá 1990 hafa útlán og verðbréfa- 12,4 milljörðum í 30,6 milljarða eða
eign tryggingarfélaganna aukist úr um 146 prósent. -bjb
Síldarvinnslan á toppnum
Hlutabréfaviðskipti eru eitthvað
farin aö glæðast eftir kyrrð síðustu
vikna. Um Verðbréfaþing og Opna
tilboðsmarkaðinn fóru tæpar 152
milljónir króna í síðustu viku. Mest
var keypt af bréfum Síldarvinnsl-
unnar eða fyrir tæpar 50 milljónir
króna. Næst mestu viðskiptin, upp
á um 26 milljónir, voru með hluta-
bréf Vinnslustöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum. Töluverð viðskipti
urðu einnig með bréf Þormóðs
ramma, tæpar 17 milljónir, og ÚA-
bréf, 14 milljónir. Viðskipti i öðrum
félögum voru óveruleg og dreifðust
viða.
Núna á mánudaginn urðu við-
skipti upp á 40 milljónir, þar af fyr-
ir 19 milljónir í Grandabréfum og
6,3 milljónir i bréfum Flugleiða.
Þingvísitala hlutabréfa hefur
gengið í sveiflum, var 2215 stig þeg-
ar viðskiptum lauk á mánudag.
Óverulegar breytingar hafa orðið á
þingvísitölu húsbréfa.
Pundið hélt áfram að hækka í
síðustu viku. 1 fyrstu skráningu
Landsbankans í gærmorgun var
sölugengi pundsins komiö í rúmar
113 krónur en talið að það myndi
lækka lítillega í næstu skráning-
um.
Meginskýring hækkunar á pundi
er vaxtahækkun í Bretlandi sem
ákveðin var til að sporna gegn
þenslu og verðbólguskriði. Þetta
hefur leitt til gengishækkunar
gagnvart flestum gjaldmiðlum. Á
meðan njóta íslenskir útflytjendur
til Bretlands góðs af þróuninni en
breski iðnaðurinn tapar.
Nokkur lækkun varð á þýska
markinu í síðustu viku en gengi
dollars og jens hefur lítið breyst.
Heimsmarkaðsverð á áli lækkaði
sl. mánudag niður fyrir 1.500 doll-
ara tonnið í kjölfar lækkunar á kop-
ar. í síðustu viku steig álverðið
jafnt og þétt, fór hæst í 1.536 doll-
ara. Spekingar á markaðnum spá:
áframhaldandi lækkun álverðs
næstu daga. -bjb