Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Síða 8
8
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
í
!
;
í;
ŒNWOOS
Ávaxta- nn ’éé
Ávaxta- og
arænmetisDressa d
^KENWOOD* í
* ^ Kaffikanna 10 bolla%#
f;KENWOOD!*k
Djúpsteikinaar- J#
y.« POttur, 1L f*
*>kenwood;*
Hárblásari jf-*
„ *KENWOOD**
Rafmagnshnífur
'l< ENWOODV
Rafmagnspanna
Ihi;
ámmm
Tveir týndu lifi og tugir slösuðust í sprengjutilræði í París í gær:
Farþegar ruddust al-
blóðugir út úr lestinni
Frönsk stjórnvöld hafa gripið til
gifurlegra öryggisráðstafana eftir að
tveir menn týndu lífi og sjötíu og
níu særðust, þar af sjö alvarlega, í
sprengjutilræði á jarðlestastöð í
miðborg Parísar síðdegis í gær.
Verksummerki benda til að alsírsk-
ir bókstafstrúarmenn hafi verið að
verki, þótt enn hafi enginn lýst
ábyrgð tilræðisins á hendur sér.
Sprengjan sprakk í fjórða vagni
RER úthverfahraðlestar sem var að
koma inn á Port Royal jarðlestastöð-
ina laust eftir klukkan 18 að staðar-
tíma í gær. Sprengjan var innan í 15
kílóa gaskút sem hafði verið fylltur
með nöglum, ekki ósvipað þeim sem
alsírskir bókstafstrúarmenn notuðu
i sprengjutilræði í fyrra þegar átta
fórust og á annað hundrað slasaðist.
„Við heyrðum mikla sprengingu.
Okkur var sagt að fara út en við
náðum ekki andanum vegna reyks.
Mikill ótti greip um sig,“ sagði einn
farþeganna í lestinni.
Lögreglan fann brot úr gaskútn-
um á staðnum og lík annars fómar-
lambanna var illa útleikið eftir
naglana. Um helmingur hinna slös-
uðu hafði verið á brautarpallinum.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
fordæmdi árásina og kallaði hana „vil-
limannslegt hryðjuverk". Hann hét
því að stjómvöld og þjóðin öll myndu
gera það sem í þeirra valdi stæði til að
beijast gegn hryðjuverkum.
„Ég sá fólk ryðjast út úr lestinni
með andlit og föt alblóðugt. Fyrsti
lögregluþjónninn kom eftir um eina
mínútu og fyrsti sjúkrabíllinn inn-
an tíu mínútna," sagði Bandaríkja-
maður sem býr í París og átti leið
hjá þegar sprengjan sprakk.
Sprengingin varð á mótum
tveggja fjölfarinna gatna, Boulevard
Montpamasse og Boulevard Saint-
Michel, aðeins tveimur biðstöðum
frá lestarstöðinni þar sem átta lét-
ust i sprengjutilræði í fyrrasumar.
Stjómvöld gripu þegar til mikilla
öryggisráðstafana og settu aftur í
gildi neyðaráætlun sem felur í sér
hert eftirlit vopnaðra sveita við
miðstöðvar almenningssamgangna,
í opinberum byggingum og á götum
úti. Þá var landamæraeftirlit tekið
aftm- upp í gærkvöldi en það hafði
svo gott sem verið lagt af vegna
samþykkta Evrópusambandsins.
Reuter
Björgunarmenn flytja særöan farþega burt frá Port Royal jarðlestastööinni í miðborg Parísar þar sem sprengja um borö í lest varð tveimur mönnum að bana
og særöi tæplega áttatíu. Enginn hefur enn lýst tilræðinu á hendur sér en allt bendir til aö alsírskir bókstafstrúarmenn hafi staðið fyrir því. Símamynd Reuter
Móðir lét
nöldrið í sér
„Það er kominn tími til að fara
á fætur!“ „Búðu um og taktu til í
herberginu þínu!“ „Ertu búinn að
læra?“ „Ertu búinn að þvo þér í
framan og bursta tennuraar?"
„Engan derring!"
Þetta eru nokkrar af 23 fyrir-
skipunum sem einstæð móðir í
Kalifomíu í Bandaríkjunum er
búin að lesa inn á geisladisk þar
sem hún var orðin þreytt á að
tuða sífellt í 11 ára syni sínum
taka upp
á geisladisk
með litlum árangri. Hún spilar þó
ekki diskinn nema hún sé alveg
að springa. Að sögn móðurinnar
hlýðir þá sonurinn þar sem hann
vill ekki hlusta á skipanimar aft-
ur og aftur.
Þar sem það var dýrt að láta
gera geisladiskinn ákvað móðirin
að láta aðra foreldra njóta góðs af
og er þegar búin að selja nokkur
hundruð diska.
Reuter
Persónuleikakort, framtíðarkort, samskiptakort.
Gagnleg og falleg jólagjöf.
Stjörnuspekistöðin
Kjörgarði - Laugavegi 58-sími 561-7777
Sendum í póstkröfu
Nauöungarsala á lausafé
Eftir kröfu Sameinaða lífeyrissjóðsins fer fram nauðungarsala á Linden
byggingarkrana, byggingarmóti og vinnuskúr, tal. eign Nýbýlis hf.
Nauöungarsalan fer fram þar sem munirnir eru staðsettir að Tröllaborgum,
Grafarvogi, Reykjavík fimmtudaginn 12. desember 1996 kl. 11:00.
Greiösla viö hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Flóttamenn geta engum treyst:
Hermenn nauðga
fjölda kvenna
Uppreisnarmenn í Saír herða
sókn sína í austurhluta landsins og
segja að næsta markmið sitt sé að
ná hafnarborginni Kisangani á sitt
vald. Flóttamenn sem hafa flúið til
Úganda og heimildarmenn innan
Úgandahers segja uppreisnarmenn
hafa tekið bæinn Bunia í norðaust-
urhluta Saír á mánudagskvöld. Upp-
reisnarmenn lýstu því yfir að bær-
inn Walikale hefði einnig fallið
þeim í hendur en það hefur ekki
verið staðfest. Útlendingar hafa flú-
ið bæina og svæðin um kring af ótta
við morð og misþyrmingar.
Að sögn flóttamanna létu stjóm-
arhermenn í Saír greipar sópa um
Bunia, misþyrmdu íbúum og nauðg-
uðu fjölda kvenna áður en þeir yfír-
gáfu bæinn sem skæruliðar náðu á
sitt vald á mánudagskvöld.
Skæruliðar hafa nú á sínu valdi
borgir á um 550 kílómetra löngu
svæði frá norðri til suðurs við aust-
urlandamæri Saír. Hætta þykir á að
átökin breiðist út fyrir landið. Rú-
anda og Úganda eru í raun í stríði
við Saír og bardagar geisa í
Búrúndi milli stjórnarhersins, þar
sem tútsar eru í meirihluta, og
skæruliða hútúa.
Nú þegar meira en tvær vikur
eru liðnar frá því að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna samþykkti að
sendur yrði fjölþjóðaher til Saír
hafa aðeins um 200 Kanadamenn
Meðan allt er í báli og brandi í
heimalandinu er Mobutu, forseti
Saír, í Frakklandi að jafna sig eftir
skurðaðgerð. Símamynd Reuter
komið til svæðisins. Þeir eru langt
frá þeim stöðum þar sem aðstoðar
er þörf. Alls hafa um 500 þúsund
flóttamenn snúið heim til Rúanda
en ágreiningur er um hversu marg-
ir séu eftir í Saír. Reuter