Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Qupperneq 24
76
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Árangur íslenskra nemenda hefur
mikið verið í umræðunni.
Kennarar
verðlauna sig
og nemendur
„Kennurum er í rauninni frjálst
að verðlauna sig og nemendur
sína með léttum prófum. Aðhalds-
leysið leiðir til spillingar í náms-
stefnu og námsmati."
Birgir Sigurðsson rithöfundur, í
DV.
Blórabögglar
„Fólk þarf alltaf að finna ein-
hvern blóraböggul og það er bent
á kennara sem þá seku.“
Eiríkur Jónsson, form. Kennara-
sambandsins, í Alþýðublaðinu.
Sjóferð án sjóveiki
„Þetta var eiginlega eins og
Gullfossferð - án þess að verða
sjóveikur."
Karólina Lárusdóttur myndlistar-
maður um viðtökur við sýningu
hennar, í Morgunblaðinu.
Frost um allt land
965 mb lægð á Norðursjó hreyfist
norður, en hæðarhryggur fyrir vest-
an land hreyfist hægt austur á bóg-
inn. Við Hvarf er að myndast lægð
sem mun þokast norðaustur.
Veðrið í dag
í dag verður norðankaldi, en læg-
ir er líður á daginn, fyrst vestan-
lands. Léttskýjað sunnan- og vestan-
lands og léttir einnig til norðvestan-
lands síðdegis, en minnkandi élja-
gangur á Norðaustur- og Austur-
landi. Frost 1 til 10 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðankaldi og síðar hæg breytileg
átt og léttskýjað. Frost 1 til 8 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.42
Sólarupprás á morgun: 10.56
(CUIIU
Síðdegisflóð í Reykjavík: 13.08
Árdegisflóð á morgun: 1.58
Veórið kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -2
Akurnes heióskírt -2
Bergstaöir skýjaö -3
Bolungarvík alskýjaö -4
Egilsstaöir skýjaö -4
Keflavíkurflugv. léttskýjaö -2
Kirkjubkl. léttskýjaö -3
Raufarhöfn snjóél -3
Reykjavík léttskýjaö -2
Stórhöföi léttskýjaö -2
Helsinki þokumóða 2
Kaupmannah. rigning 5
Ósló rigning 3
Stokkhólmur rign. á síö.kls. 4
Þórshöfn skúr 5
Amsterdam léttskýjaó 7
Barcelona rign. á síö.kls. 8
Chicago léttskýjaó -6
Frankfurt rign. á síö.kls. 8
Glasgoui skýjaö 5
Hamborg súld á síó.kls. 7
London heöiskírt 4
Los Angeles Madrid skýjaö 7
Malaga heióskírt 6
Mallorca skýjaö 10
París alskýjaö 7
Róm heiöskírt 1
Valencia þokumóóa 7
New York Orlando þokumóóa 12
Nuuk rigning 2
Vín skýjaö 1
Washington Winnipeg
Ummæli
Uppvaxandi kynslóðin
„Við sem erum uppvaxandi
kynslóð eigum til dæmis enga
möguleika á þvi að hasla okkur
völl innan sjávarútvegs, nema
sem launamenn hjá einhverjum
sem fengu úthlutað kvóta við upp-
töku kerfisins eða að okkur tæm-
ist arfur.“
Dagur B. Eggertsson háskólastúd-
ent, i Alþýðublaðinu.
Notum vöðvana ef þarf
„Við fórum áfram á baráttunni
og notum vöðvana ef með þarf.“
Bjarki Sigurðsson handbolta-
kappi, í Morgunblaðinu.
Fánar
Elsti fáni sem vitað er um er
talinn frá 3000 f.Kr. Hann fannst
árið 1972 i Khabis 1 íran. Hann er
úr málmi, 23x23 cm að stærð, og á
honum er mynd af erni, tveimur
Ijónum og gyðju, þremur konum
og nauti. Elstu þjóðfánar sem nú
eru í notkun eru taldir vera fánar
Danmerkur, Möltu, Japans, Sri
Lanka og Mali.
Stærsti fáni i heimi, bandaríski
fáni hinn mikli, var fyrst sýndur
almenningi í Evansville í Indiana
2. mars 1980. Hann er 125x64 metr-
ar að stærð og vegur 7 tonn með
öllum búnaði. Fáninn var dreginn
upp á Verrazano Narrows brúnni
í New York 4. júlí 1981. Stærsti
fáninn sem dreginn hefur verið að
húni er brasilíski þjóðfáninn,
70x100 metrar að stærð, í höfuð-
borginni Brasiliu.
Blessuð veröldin
Flugeldar og knöll
Stærsti flugeldur sem fram-
leiddur hefur verið var Universe
I, part II, sem skotið var upp á
Toya-hátíðinni í Hokkaido í Japan
15. júlí 1988. Hylkið vó 700 kíló og
þvermál þess var 139 sentímetrar.
Við sprenginguna breiddist út
skrauteldakróna í fimm litum,
1200 metrar í þvermál.
Lengsta flugelda- og knallsýn-
ing sem sett hefur verið á svið var
í Malasíu 20. febrúar árið 1988.
Sýningarsamstæðan var 5723
metrar að lengd og í henni voru
3,35 milljón knöll og 666 kíló af
púðri. Sýningin stóð í niu og hálfa
klukkustund.
Jóhann G. Jóhannsson, myndlistar- og tónlistarmaður:
Að nálgast tónlistina eins og myndlist
„Eg var að ljúka þátttöku i sam-
sýningu sem hét Myndlist + 4 og
svo var ég þátttakandi í myndlist-
arkynningu í Keflavík sem var á
vegum verslunarinnar Persónu.
Nú tekur við sýning í veitingahús-
inu Argentínu í tilefni Jólaævin-
týris Argentinu. Öll málverkin
sem ég sýni þar eru máluð á þessu
ári. Ég hef verið í samstarfi við
Argentínu í nokkum tíma í sam-
starfsverkefninu List og Lyst og
undir þessu nafni var haldin sýn-
ing í fyrra, bæði vor og haust, sem
tókst mjög vel og var þar tengd
saman matarlyst og myndlist,"
segir Jóhann G. Jóhannsson sem
þessa dagana er að undirbúa sýn-
ingu sína í veitingahúsinu Argent-
inu.
Maður dagsins
Jóhann G. Jóhannsson, sem er
ekki síður þekktur tónlistarmaður
en myndlistarmaður, stendur
einnig í stórræðum á því sviði:
„Ég hef verið við nám í Tónlistar-
skóla Kópavogs í tölvutónlist.
Þetta nám gjörbreytir allri tónlist-
arsköpun hjá mér og gefur mögu-
leika að nálgast tónlistina eins og
myndlist, það er að segja að ég get
unnið útsetningar og vinnslu á
Jóhann G. Jóhannsson.
þeim lögum sem ég er með í huga
til að sjá hvemig þau virka. Það er
oft að farið er í stúdíó og unniö
eitthvað. Síðan kemur í ljós að þaö
hefði verið betra að vinna lagið
öðruvísi en upptökukostnaður
leyfir ekki slíkt þannig að oft hef-
ur verið gefið út efni sem betur
hefði verið að þróa en í tölvur em
til forrit sem bjóða einmitt upp á
mjög skemmtilega möguleika í að
þróa tónverk."
Jóhann sagðist verða fimmtug-
ur á næsta ári og þá stæði nú ým-
isleg til: „Það er ætlun mín á
þessu afmælisári mínu að einbeita
mér að stórri sýningu sem ég held
annaðhvort í lok ársins eða næsta
ár. Þar ætla ég að tengja saman
með óvenjulegum hætti myndlist
og tónlist, flytja tónverk við
ákveðna ph-amída sem ég er að
vinna í myndlistinni. Þá veröur
gefið út á geislaplötu eitthvað af
eldra efni mínu og svo hef ég full-
an hug á að gefa út nýtt efni.“
Jóhann sagði aðspurður að það
hefði orðiö breyting á myndlist
hans frá því hann hélt sína fyrstu
sýningu: „Maður gerir sér varla
grein fyrir þeim breytingum nema
skoðaður sé ferillinn. Það sem ég
hef aðallega verið að glíma við
núna eru hugræn áhrif frá ís-
lenskri náttúru og má til gamans
geta að á síðustu myndum mínum
finnst mér merkilegt eftir á að
tvær myndfr í sjö mynda seríu
sem verður til sýnis í Argentínu
gætu nánast verið málaðar undir
áhrifum frá þeim umbrotum sem
urðu í Grímsvötnum en þær voru
málaðar fyrr, eða í byrjun sept-
ember. Ég get ekki útskýrt af
hverju ég fór að mála umbrot og
eldgos, þetta varð bara til hjá mér.
En það er eins í myndlistinni og
tónlistinni, hugmyndir detta í
mann og það er ekki fyrr en eftir
á sem maður gerir sér grein fyrir
hvað var verið að kljást við. -HK
Fimm leikir í 1.
deild í hand-
boltanum
Það verða örugglega margir
áhugamenn um íþróttir límdir
við sjónvarpsskerminn í kvöld
en leikin verður síðasta umferð í
riðlakeppninni í Meistaradeild
Evrópu og verða tveir leikir
sýndir á sjónvarpsstöðinni Sýn.
íþróttir
Á innlendum vettvangi er það
handboltinn, en fimm leikir eru
í 1. deild hjá körlum í handbolt-
anum í kvöld. í Garðabæ leika
Stjaman og HK, tveir leikir eru í
Hafnarfirði, Haukar taka á móti
Fram í íþróttahúsinu, Strand-
götu í Hafnarfirði, og í
Kaplakrika fá FH-ingar í heim-
sókn efsta lið deildarinnar, Aft-
ureldingu, á Selfossi keppa
heimamenn við Gróttu og í Vest-
mannaeyjum eigast við ÍBV og
KA. Allir leikirnir hefiast kl.
20.00. Einn leikur er í 1. deild
kvenna, á Akureyri keppa ÍBA
og Fylkir kl. 20.00.
Gamalt og nýtt
í gönguferð
í kvöld stendur Hafnargöngu-
hópurinn fyrir gönguferð frá
Hafharhúsinu kl. 20. Gengið
verður eftir strandstignum inn í
Rauðarárvík og upp að gömlu
Gasstöðinni viö Hlemm. Þaðan
verður farið kl. 20.30 niður
Laugaveg og bankastræti, eftir
Austmstræti og Aðalstræti og
inn á Vesturgötu. Gönguferðinni
Utivera
lýkur við Hafnarhúsið. Á leið-
inni verða skoðaðar götuskreyt-
ingar og litið í búðarglugga. Þá
verður litið á auglýsingar í Raf-
skinnu í Skemmuglugganum og
kaffikerlingamar i gamla
Kaabershúsinu. Að lokum verð-
ur stansað við jólabjölluna fyrir
framan Raforku. Allir eru vel-
komnir 1 ferð með Hafnargöngu-
hópnum.
Bridge
Danmörk spflaði gegn Indónesíu í
undanúrslitum Ólympíumótsins í
bridge í opnum flokki og áhorfendur
hafa sjaldan orðið vitni að annarri eins
dramatík. Fylgst var með leiknum á
sýningartöflu og Danir voru 11 impum
undir í leiknum þegar kom að síðasta
spilinu. Indónesarnir höfðu ekki náð
góðum árangri á NS-spilin, norður
hafði opnað á einu grandi, austur
hindrað á þremur hjörtum og sögnum
lauk á þremur gröndum suðurs. Sagn-
ir gengu þannig á sýningartöflrmni,
norður gjafari og allir á hættu:
* ÁK1082
* 64
•f ÁD5
* Á97
N
V A
S
é 8
G1062
*
* D654
Norður Austur Suður Vestur
Koch Lasut Auken Manoppo
1 * pass 2 Grönd pass
3 * 3* 34 pass
4 u pass 4 Grönd pass
5 ♦ pass 5 Grönd pass
6* pass 7* p/h
Tvö grönd voru áhugi á meira en út-
tekt og þrjú lauf lýstu jafnskiptri hendi
og meira en lágmarki. 3 spaðar lofuðu
spaða og einspili í laufi, fiögur hjörtu
voru spurnarsögn og 4 grönd lofuðu
hjartaásnum. Fimm tíglar spmðu
áfram og 5 grönd lofuðu tígulkóngi og
trompdrottningu. Mikil fagnaðarlæti
brutust út í salnum þegar Auken stökk
í 7 spaða því Danir græddu 16 impa á
ákvörðuninni. En þegar skorblöðin
voru borin saman kom í ljós að mistök
höfðu orðið við skráningu skýrenda og
leikurinn endaði hnífiafn.
ísak Öm Sigurðsson.
♦ G
* KG108753
♦
* 973
* D9
* G63