Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1996, Page 28
V I K
Lvrra
til m kik
% >
Vinningstölur í e
3.12/96 V
16) (18) (19'
KÍN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FrjalstfohaÖ dagblað
MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 1996
Kvótaveðsetningin:
Framsóknar-
menn gefa
** eflir
Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins mun í dag fjalla um frumvarpið
til veðsetningarlaga. Þar í er grein-
in um veðsetningu aflaheimilda.
Nokkrir þingmenn flokksins ásamt
nokkrum þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins stöðvuðu þetta frumvarp á
síðasta þingi. Nú era allar líkur á
að framsóknarmenn samþykki
framvarpið.
„Ég tel að þær breytingar sem
gerðar hafa verið á frumvarpinu
séu ásættanfegar og komi í veg fyr-
ir að aflaheimildir séu veðsettar,"
sagði Magnús Stefánsson alþingis-
maður. Hann var einn harðasti and-
-K-—stæðingur frumvarpsins á síðaasta
þingi.
Þær breytingar sem Magnús vitn-
ar til eru þær að í stað þess að leyfi-
legt sé að veðsetja aflaheimildir
beint verður nú að veðsetja fiski-
skipið með þeim kvóta sem því hef-
ur verið úthfutað. Þann kvóta verð-
ur ekki hægt að leigja né selja án
þess að aflétta þinglýstu veði á bátn-
um.
-S.dór
^ Jólabækurnar:
Tilboð þegar
hafin
Nú þegar jólabókaflóðið er að
hefjast má búast nokkurri sam-
keppni milli verslana. Að sögn for-
svarsmanna Bónusverslananna
voru 80 vinsælustu bækurnar boðn-
ar í gær með 15-40% afslætti og
verða titlar í boði í samræmi við
sölulista fjölmiðlanna. „Kannski
verður afslátturinn meiri, við vitum
aldrei hvað gerist i þessum bransa
en í dag er þetta viðmiðunin.“ sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson, verslunar-
:Sfjóri hjá Bónusi. Ólafur Sveinsson
hjá Bókaverslunum Eymundsson
sagðist ekki eiga von á að tilboðin
yrðu með sama móti og um sl. jói.
„Þetta var orðið svolítið öfgakennt
og menn sáu eftir það tímabil að
það var ekki skynsamlega að því
staðið. Hins vegar hljóta bókaversl-
anir að bregðast við þó ekki sé hægt
að segja núna með hvaða hætti það
verður." Ólafur sagði einnig að
bókatilboð yfir allt árið hefðu verið
mjög að aukast þannig að ekki væri
lengur einblínt á jólamarkaðinn.
„Það eru núna að koma út á fimmta
hundrað titlar þannig að það er
óþarfi að einblína á 15-20 metsölu-
titla. Hjá Hagkaup fengust þær upp-
lýsingar að ekki væri enn búið að
^""útfæra jólabókasöluna í ár.
-ggá
Maðurinn sem situr inni á Akureyri vegna barnaklámmálsins:
Kom vel fyrir og þekktur
fyrir vinskap við börn
- fyrri kærur urðu ekki að ákærumálum vegna sönnunarskorts
Maðurinn, sem situr nú inni á
Akureyri vegna barnakláms, flutti
norður úr Stykkishólmi árið 1992
þegar kæra kom fram á hendur
honum fyrir meinta kynferðislega
misnotkun gagnvart bömum. Þetta
ár fékk bamavemdarnefnd í Stykk-
ishólmi kæru í hendur frá fyrram
sambýliskonu umrædds manns.
Hann var þá granaður um að hafa
misboðið dóttur hennar kynferðis-
lega. Ásakanirnar vora vegna
meints athæfis mannsins áður en
hann flutti til Stykkishólms. Máliö
var rannsakað og komu siöan fleiri
kærur til nefndarinnar vegna
grans um svipað athæfi gagnvart
bömum þar. Sýslumaðurinn í
Stykkishólmi sendi síðan erindi til
ríkissaksóknara þar sem þess var
óskað að hann gæfi umsögn um
hvort efiii væru til að rannsaka
málið frekar. Mið var tekið af fram-
burðum sem fram voru komnir við
rannsókn bamarvemdaryfirvalda.
Samkvæmt upplýsingum DV var
greinilega mjög á brattann að
sækja hvaö varðaði sönnunarbyrði.
Ríkissaksóknari ákvað því að ekki
væru efhi til frekari aðgerða gegn
manninum.
Áður en kærurnar komu fram
var maðurinn talinn koma mjög vel
fram í alla staði - hann var vel lát-
inn og vinsæll hjá flestum, þægileg-
ur í samskiptum og laðaði að sér
fólk, eins og einn viðmælandi DV í
Stykkishólmi komst að oröi. Hann
hafði hænt að sér böm, unnið
traust þeirra og haft ofan af fyrir
þeim og fengið þau til aö koma
heim til sín með því að bjóða þeim
að skoða myndbönd og fara í tölvu-
leiki. Hann fór einnig með þeim í
einstaka ferðir út fyrir bæinn.
Eftir að granur vaknaði síðan
um að maðurinn hefði verið að
misnota böm kynferðislega urðu
ibúar í bænum mjög uggandi. Síð-
an leið ekki á löngu áður en maöur-
inn hafði sig á brott úr Stykkis-
hólmi.
Áður en kærurnar voru lagðar
fram kviknaði í íbúð mannsins sem
var á neðri hæð í tvílyftu húsi.
Nánast allt brann sem brunnið gat,
þar á meðal verðmæt tölva manns-
ins og mikið magn af myndefni.
Hluti af hörðum diski í tölvunni
eyðilagðist hins vegar ekki og held-
ur ekki hluti af myndböndunum.
Við skoðun kom síðan í ljós að ekk-
ert af efninu, hvorki úr tölvunni né
myndböndunum, reyndist óeðlilegt.
Niðurstaða rannsóknar RLR og
lögreglu í Stykkishólmi varð sú að
eldurinn hefði kviknað í vegna
skammhlaups í rafkerfi. Eftir að
maðurinn flutti til Akureyrar vora
bamaverndaryfirvöld þar í bæ
vönið við manninum vegna þeirra
kæraefna sem fjallað hafði verið
um í Stykkishólmi.
Samkvæmt upplýsingum DV var
sakarferill mannsins áður en hann
flutti til Akureyrar nánast hreinn
að undanskildum framangreindum
kærum sem hvorki urðu að ákær-
um né dómi.
Fram að bamaklámsmálinu á
Akureyri hefur umræddur maður
engan sakarferil þar í bæ frá því að
hann flutti þangað.
-Ótt
Bruni í Súðavík
Slökkviliösmenn aö störfum er húsiö númer 3 við Holtagötu brann í gærmorgun. Húsiö, sem er stórt kanadískt
einingahús, hefur veriö í byggingu og voru framkvæmdir að komast á lokastig. Líkur benda til aö eldurinn hafi
komiö upp í lagnakjallara sem er undir húsinu en kvöldiö áður voru iönaöarmenn aö vinna viö pípulagnir.
DV-mynd Höröur
Húsbruni í Súðavík:
Eldurinn
blossaði upp
aftur og aftur
Eldur kom upp í húsinu að Holta-
götu 3 í Súðavík aðfaranótt þriðju-
dagsins. Húsið, sem er stórt
kanadískt einingahús, hefúr verið í
byggingu og voru framkvæmdir að
komast á lokastig.
Kvöldið áður voru iðnaðarmenn
að vinna við pípulagnir í húsinu og
líkur benda til að eldurinn hafi kom-
ið upp í lagnakjallara sem undir hús-
inu er og hafi verið búinn að krauma
þar í margar klukkustundir.
Guðjón Kjartansson, eigandi húss-
ins, sagði í samtali við blaðið að fiöl-
skyldan hefði gert ráð fyrir að flytja
í húsið um jólin eða áramótin. Boð
um eldinn bárust i gegnum neyðar-
númerið 112 kl. 07.59 en íbúar í ná-
grenninu, sem vora á leið til vinnu,
urðu eldsins varir.
Slökkvilið Súðavíkur kom fyrst á
vettvang og var þá mikill reykur og
hiti I húsinu. Beðið var eftir aðstoð
Slökkviliðs ísafjarðar áður en húsið
var opnað. Eriiðlega gekk að slökkva
eldinn sem blossaði upp aftur og aft-
ur. Ljóst er að húsið er mikið
skemmt af hita, reyk og vatni, þó eld-
ur hafi ekki verið mjög mikiil.
-HKr.
r PAÐ MÁ ÞÁ
l 3ÓKA FLÓÐ\
Veörið á morgun:
Hlýnar
vestan til
í fyrramálið fer að þykkna
upp og hlýna með suðaustanátt
vestan til á landinu en um land-
ið austanvert verður hæg suð-
vestlæg átt og léttskýjað. Undir
kvöld verður dálítil slydda eða
rigning allra vestast. Austan og
norðan til verður talsvert frost
en vestan til hlánar sennilega
síðdegis.
Veðrið í dag er á bls. 76
□pel e
-Þýskt ebalmerki
Opel Combo
Næsta sending væntanleg
í lok desember
Verð kr. 1.075.000.-
án Vsk.
Bílheimar ehf.
Sævarhöfba 2a S(mi:525 9000