Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Page 17
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
Fréttir
17
Minnisvarðinn sem reistur var til minningar um ástvini Ólafsfirðinga sem
jarðsettir hafa verið annars staðar en í kirkjugarði bæjarins. DV-mynd HJ
ÓlafsQöröur:
Minnisvarði
um ástvini
annars staðar en í kirkjugarði bæj-
arins. í reitnum er stór steinn sem
listamaðurinn Páll Guðmundsson
frá Húsafelli hjó í. í kringum stein-
inn er hlaðinn garður og fallegri
lýsingu hefur verið komið fyrir.
Göngustígur liggur að reitnum en
það var landslagsarkitekt hjá
kirkjugörðum ríkisins sem hannaði
staðinn. Kostnaður við framkvæmd-
imar nema nærri hálfri milljón
króna. -HJ
Einsetinn skóli á
Akranesi árið 2002
DV, Ólafsfirði:
Minnisvarði um látna ástvini var
vígður við hátíðlega athöfn í Ólafs-
fjaröarkirkjugarði fyrir nokkru.
Það var sr. Sigríður Guðmarsdóttir
sóknarprestur sem vígði minnis-
varðann. Hann fékk nafnið Hug-
arró. Þessi minnisvarði var reistur
að frumkvæði RÚNAR, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð í Ólafsfirði,
til minningar um ástvini sem hvíla
DV, Akranesi:
Skólanefndin á Akranesi sam-
þykkti á síðasta fundi sínum að
leggja það til við bæjarstjórn Akra-
ness að þegar verði hafinn undir-
búningur að nauðsynlegum fram-
kvæmdum við grunnskólana í bæn-
um þannig að unnt verði að ljúka
einsetningu skólanna síðari hluta
árs 2001 eða á árinu 2002.
Nefndin telur eðlilegt að byrjað
verði á verkefninu í Brekkubæjar-
skóla þar sem þar fauk kennslustofa
og síðan verði hugað að fyrir aðra
þjónustu en þá sem þegar er fyrir
hendi í Grundaskóla. Skólanefndin
leggur til framkvæmdaáætlun og
miðar við að hægt sé að sækja um
20% hlut í jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga vegna framkvæmdanna.
Gert er ráð fyrir að árið 1997
verði hafin hönnun og undirbúning-
ur að Brekkubæjarskóla og 1998 og
1999 hefjist framkæmdir. Árið þar á
eftir hefjist hönnunar- og undirbún-
ingsvinna við Grundaskóla. Fram-
kvæmdir verði á árinu 2000 og 2001.
-DVÓ
Jóladagar í Reykjanesbæ
- átak í ferðaþjónustu
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er átak þjónustufyrirtækja
í Reykjanesbæ fyrir jólin sem felst
meðal annars í því að kynna íbúum
á Keflavíkurflugvelli þá þjónustu
sem hægt er að fá í bæjarfélaginu.
Viðtökur hafa verið mjög góðar. Ég
tel þetta vera byrjunina á nýrri þró-
un í samskiptamálum við íbúa á
Vellinum til frambúðar," segir Jó-
hann D. Jónsson, ferðamálafulltrúi
Suðumesja.
í Reykjanesbæ er i gangi átak
sem nefnist, Jóladagar í Reykjanes-
bæ, verslum heima. Jóhann segir að
búið sé að kynna vel fyrir varnar-
liðsmönnum að þeir séu ævinlega
velkomnir í Reykjanesbæ. SBK hf.
hefur haldið uppi fríum strætis-
vagnaferðum frá Keflavíkurflugvelli
til Reykjanesbæjar og bömum vam-
arliðsmanna, yngri en 15 ára, er
boðið frítt í sundstaðina i Reykja-
nesbæ einn laugardaginn. Jóhann
segir að mikið sé um fjölskyldufólk
á Vellinum, fólk sem vinni þar en sé
ekki í hernum.
-ÆMK
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 511 2200
Venturer
— Kr. 9.900 srpr.
Venturer
Iffll Hr. 1S.30D slpf.
AKAI
AKAI
Umteðssteiiii um W allcVESTUfllAJIO: Hljómsýn.Akranesi. Kauplélag EjuMisg). Birgimsi. Blógslurvellir. Hellissandi. (ujni Halliriiusson, Erundarliili. VISIFIRIIR: Ralbúii Jinasar Þórs, Patreksliiúi. Púllínn. Isaliiii. NOROURIAND KF Sleingiinisljaiðai. Hólmavik. (f V Húnvelninga,
Hvamnrsianga. Kf Hunvelninga. Bliiduísl. Skagliröineabuú. Sauúáikiúkí. (fA. Oalvik. Hliúmvei. Akuievil. Oiyggi. Húsavlk Hil. Raulaibúln.AUSIUfltANO: (f Héiaúsbúa. fgilsslDÍuui. (f Vopnfitúínga. iligualiili. I! Htiaisbia. SeviisMi. (F iasiiiisliaiiai. físiiúlsliiii. IASK. Ojúpavngi.
(ASl Húln Hnaliiii. S00U0LAND: (I Amesinga .Hvolsvelli. Moslell. Hellu. firveik. Sellnssi. Raúiúiás. Sellossi. (F Amesinga. Selfossi. Rás. Þoiláksbúfn. Oiimnes. Vesimannaeyjum OfYKJANfS: Rafbmg. Erindavit lallagnaiiiuusl. Sig. Iigvaissnai. taiii. Ralmætii. Hainailiiii.
Áskrifendur fá 10%
aukaafslátt af
aW milíi hirrnns
Smáauglísingar
smáauglýsingum DV
fÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ
550 5000