Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1996, Side 36
ÞrefctMur
1* vinningur
________Vertu inðbúinjn) vinningi
@@(20)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FOSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996
Helgarblað DV:
Jólin á
götunni
Helgarviðtalið er að þessu sinni
við Einar Lárus Pétursson en hann
hefur átt við áfengis- og fikniefna-
vanda að stríða og eytt aðfangadags-
kvöldi á götunni. Einar Lárus er á
áfangaheimili á Akureyri og hefur
náð tökum á lífi sínu.
Sagt er frá vöskum kórbömum
sem taka að sér að syngja jólakveðj-
ur fyrir utan heimili, fjallað er um
kynþokkafulla karlmenn og sýndar
svipmyndir frá fimmtugsafmæli
Hemma Gunn. Menningarumfjöll-
unin er að sjálfsögðu á sínum stað,
fréttaljós og margvíslegt annað efni.
-GHS
Dalborgin fékk
ekki að fara
DV, Akureyri:
Dalborg EA, rækjutogari frá Dal-
vík, sem átti að halda frá St. John á
Nýfundnalandi í gærkvöldi, var
meinað að fara þaðan og hafa borist
óstaðfestar fregnir um að skipið
hafi verið kyrrsett. Skipið átti að
fara á veiðar í 2-3 daga en koma síð-
an heim fyrir jól eftir langa vera á
miðunum í Flæmska hattinum en
skipið hefur landað í St. John.
Konráð Alfreðsson formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar sagði í
morgun:
„Það er greinilega eitthvað þama
á ferðinni sem þarf að lagfæra, en
ég veit ekki nógu mikið um málið
til að láta hafa neitt eftir mér um
það í fjölmiðlum.“______-gk
Fjárlagaumræðan
í dag hefst á Alþingi 2. umræða
um fjárlagafrumvarpið. Fyrir utan
bandormsfrumvarpið verða helstu
átakapunktamir um þann niður-
skurð og frestun framkvæmda sem
ákveðin hefur verið til að draga úr
þenslu á næsta ári. -S.dór
Fíkniefnalögreglan að upplýsa gríðarstórt flkniefnamál:
20 kíló af hassi
tekin og átján
manns í haldi
Fikniefnalögreglan í Reykjavík
er um það bil að leysa gríðarstórt
fikniefhamál þar sem lagt hefur
verið hald á mesta magn fikni-
efna fyrr og síðar. í morgun voru
átján manns i haldi eftir „heljar-
aðgerðir" gærdagsins - 20,5 kíló
af hassi höfðu fundist, tæplega
500 alsælutöfiur, 270 grömm af
amfetamín, nokkur hundruð þús-
und krónur í peningum og mikið
magn af öðrum vamingi sem ver-
ið var að henda reiður á í morg-
unsárið.
Málið hófst með handtöku
tveggja Hollendinga, pars sem
var aö koma til landsins í fyrra-
kvöld með 10 kíló af hassi í far-
angri sínum. í kjölfar þessa
hófust mjög umfangsmiklar hús-
leitir og handtökur fjölmargra ís-
lendinga. Björn Halldórsson, yfir-
maður fíkniefnadeildarinnar,
sagði við DV í morgun að hol-
lenski maðurinn, sem er á fimm-
tugsaldri, virtist hafa mikil ítök
hér á landi og margir sem tengj-
ast honum. Parið fékkst úrskurð-
að í gæsluvarðhald til 9. janúar
og sagði Bjöm að búast mætti við
að einnig yrði farið fram á úr-
skurð yfir ýmsum úr hópi hinna
16 íslendinga sem einnig sátu í
haldi í morgun.
Bjöm sagði að allur hans
mannafli hefði lagt nótt við dag
síðustu sólarhringa vegna máls-
ins. Hann vildi ekki upplýsa með
hvaða hætti lögreglan hefði fyrst
komist á snoðir um þetta um-
fangsmikla mál en toUgæslan á
Keflavíkurflugvelli hefði vissu-
lega fundið hassið á HoUending-
unum. Síðan hefði verið farið í
ótal húsleitir og framangreindur
fjöldi íslendinga handtekinn.
Grunur leikur á að fjórir þeirra
hafi átt og eða hafi staðið að inn-
flutningi á öUu því mikla magni
af fikniefnum lagt var hald á eft-
ir að Hollendingamir voru hand-
teknir. -Ótt
Snjómoksturstæki að ryðja snjó af samgönguleiðum í Siglufiröi. Færð á landinu er góð nema á fjaMvegum á Vest-
fjöröum. Mokað var í morgun í A-Barðastrandarsýslu og á Dynjandisheiði og athuga átti færð á Hrafnseyrarheiði í
dag. Hláka er nú á Norðurlandi, éljagangur og hálka er á Öxnadalsheiði og í Víkurskaröi og spáð er kóinandi veðri.
DV-mynd ÞÖK
Húsbréfaviðskipti:
Grunur um
80 milljóna
veðsvik
Fasteignasala á höfuðborgarsvæð-
inu og nokkrir aðrir aðUar eru grun-
aðir um 80 miUjóna króna veðsvik í
húsbréfaviðskiptum við Húsnæðis-
stofhun frá október í fyrra ffarn á
þetta ár. LögfræðideUd stofnunar-
innar hefur sent málið tU RLR tU op-
inberrar rannsóknar. Um er að ræða
16 húsbréfalán og samkvæmt heim-
Udum DV eru þau vegna húseigna
um aUt land. í flestum tUvikum vom
þetta verðlitlar eignir en verðmæti
þeirra á kaupsamningum var hins
vegar sagt aUt annað og meira. -bjb
Þýfi fannst
Lögreglan lagði hald á þýfi í hús-
leit í íbúð við FannarfeU í Breið-
holti í gær.
í íbúðinni fundust tölvur, hljóm-
flutningstæki og myndavélar sem
tengist líklega fleiri en einu inn-
broti. Maður og kona voru handtek-
in í íbúðinni og em grunuð um að
vera viðriðin þjófnaðinn. Málið er í
rannsókn hjá lögreglu. -RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Hvöss norð-
austanátt
Á morgun snýst hann í
hvassa norðaustanátt með kóln-
andi veðri um land aUt í fyrra-
málið. Sums staðar verður
stormur eða rok um landið
norðvestanvert. Snjókoma
verður um landið norðan- og
austanvert en éljagangur á
Vestfjörðum þegar líður á dag-
inn. Sunnanlands og vestan má
einnig gera ráð fyrir éljagangi.
Veðrið í dag er á bls. 44
SM0BY ELDHUS
með öliu fyrir börnin
Heildverslunin Bjarkey
Ingvar Helgason