Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Síða 5
JDV FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
Ný leið til að koma frumsömdum Ijóðum á framfæri:
Gefur út lióðageisladisk
Ein sérstæðasta geislaplatan sem
kemur út á þessu hausti nefnist
Hugurinn heima og hefur að geyma
ljóð, söngtexta og lög eftir Hallgrím
Óskarsson, verkfræðing og deildar-
stjóra á markaðssviði Flugleiða.
Hann segir ástæðuna fyrir því að
hann valdi ekki hefðbundnar leiðir
til að koma frá sér ljóðum sínum
vera markaðslegs eðlis:
„Ég hafði hugleitt að gefa út ljóða-
bók en gat ekki séð fyrir mér að fólk
færi út í bókabúð til að kaupa ljóö
eftir einhvem Hallgrím Óskarsson
svo að ég varð að leita annarra
leiða,“ segir Hallgrímur um tilurð
disksins. „Mér datt þá í hug að gera
geisladisk þar sem ljóðin yröu flutt
við undirleik. Til að gera hann að
enn frekari söluvöru fékk ég Pál
Óskar Hjálmtýsson og Stefán Hilm-
arsson til að syngja nokkur lög við
textana mína. Það má því segja að
það sé ákveðin markaðshugsun að
baki því að ég valdi þetta form.“
Hallgrímur segir enn enga
reynslu vera komna á það hvort það
sé söluvænlegt að fara leiðina sem
hann valdi til að koma ljóðum sín-
um á framfæri. Til þess er of stutt
um liðið siðan diskurinn kom út.
„Upphaflega markmiðið fyrir mig
var að koma efninu frá mér og í
hendumar á vissu fólki og það hef-
ur tekist. Ég hef líka heyrt lögin
leikin í útvarpi þannig að einhverj-
ir hafa lagt við eymn,“ segir hann.
Á plötunni em sex lög og tíu ljóð
með undirleik. Hallgrímur semur
sjálfur nokkur laganna ásamt text-
um og ljóðum. Þrjú systkini hans
koma við sögu á plötunni, þau
Fanney, Ásta og Gunnar sem syngja
og leika á fiðlu, slagverk og tromm-
ur. Að auki taka Gunnlaugur
Briem, Eva Ásrún Albertsdóttir og
Guðrún Gunnarsdóttir þátt í gerð
Hallgrímur Óskarsson - leist ekki á að senda frá sér Ijóðabók og kaus að
koma verkum sínum á framfæri á geislaplötu í staðinn.
plötunnar ásamt Joni Kjell Seljeseth
sem útsetti bæði lög og undirleik
við ljóðin.
Hcillgrímur Óskarsson segist hafa
byijað að yrkja ljóð um átján til
tuttugu ára aldurinn. Þau ljóð og
textar sem hann valdi á diskinn era
hins vegar flest um eins til tveggja
ára gömul. „Eldra efnið er þannig
að því verður væntanlega flestu eytt
áður en langt um líður,“ segir hann.
En ætlar hann að fara sömu leið
næst þegar hann kemur hugverkum
sínum á framfæri?
„Ég gef að minnsta kosti ekki út
Ijóðabók í hefðbundnu formi," svar-
ar hann. „Ætli ég leiti ekki annarra
og enn óhefðbundnari leiða en að
gefa út geislaplötu.“ -ÁT
Dúettinn Tromp
dregur upp Myndir
„Við fómm suður eina helgi í sumar og tókum upp þrjú lög og eftir það ákváðum við að halda áfram og taka upp
lög á heila plötu. Við enduöum með tíu,“ segir Ragnar K£irl Ingason um tilurð plötunnar Myndir með dúettinum
Trompi. Trompið skipar auk hans sextán ára söngkona, Harpa Þorvaldsdóttir.
Ragnar Karl segir að tónlistarstefnan á Myndum sé einkum melódískt popp með smá
undantekningum. Hann fékk Jens Hansson og Björgvin Gíslason til að sjá um und-
irleik með sér á plötunni. Þá kom Hjörtur Howser, píanó- og hljómborðsleikari, við
sögu í tveimur lögum og Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson í fimm.
Dúettinn Tromp hefur unnið saman frá því í febrúar. „Ég heyrði Hörpu syngja
og leist svo vel á það sem ég heyrði að ég hafði samband við hana skömmu síðar
og bauð henni að vinna með mér,“ segir Ragnar Karl.
Bæði eru þau frá Hvammstanga. Hann býr hins
vegar á Blönduósi og hún stundar nám á Akureyri
þannig að minna er um að þau komi fram saman
en æskilegt hefði verið.
Platan kom út fyrir rúmum mánuði og segir
Ragnar Karl að hún hafi fengið ágætisviðtökur
nyrðra. Þá hafa lög af henni nokkuð hljóm-
að í útvarpi. „En heföi mann grunað að
slíkt plötuflóð væri í vændum sem brast á
i nóvember hefði maður kannski hug-
leitt að fresta útgáfúnni fram á vorið
eða sumarið," segir hann. „Slagur-
inn um athygli kaupenda og hlust-
enda virðist vera ótrúlega harður
að þessu sinni.“
Ragnar Karl segir allt óá-
kveðið um framhald á sam-
starfi dúettsins Tromps. „Ég
reikna þó með því að við
eigum eftir að gera eitthvað
saman í framtíðinni," segir
hann. „En aðstæðumar em
þannig eins og sakir standa
að við eigum frekar óhægt
um vik að koma fram sam-
an.“
-ÁT
HLJÓMPLjÍTU
lAiœ'i
Kvartett Krístjönu Stefáns - Ég verð heima um jólin:
Jólastemning með djassívafi ★★★
Það gefur ekki alltaf góða raun
að vera að fikta við hefðbundnar
útsetningar á þekktum jólalögum
og hafa margir farið flatt á því.
Hvergi er íhaldssemin meiri en í
jólalögunum og því er það fyrir
hvem og einn sem hættir sér i
breytingar ferð út á hálan ís. En
stundum heppnast að gefa þess-
um þekktu lögum nýja og fallega
áferð og það hefur Kristjana Stef-
áns ásamt kvartett sínum gert
með smekklegum djassútsetning-
um á plötu sinni Ég verð heima
um jólin þar sem nokkur þekkt jólalög em virkilega áheyrileg í flutn-
ingi kvartettsins. Útsetningar era eins látlausar og þær geta orðið þeg-
ar djassinn er annars vegar og kjarninn í lögunum tapar sér aldrei.
Kristjana hefur fallega og góöa rödd sem hún beitir smekklega í lögum
á borð við Ég verð heima um jólin, Þorláksmessukvöld og Hvít jól, svo
að dæmi séu tekin, og tríóið er samstillt í ágætri spilamennsku þar
sem þó aldrei em tekin völdin af söngnum. Það er kannski fyrst í sið-
asta lagi plötunnar, þjóðlaginu Hátíð fer að höndum ein, sem er aðeins
spilað, að geta tríósins kemur fyrst í ljós og fara þeir félagar Vignir
Þór (píanó), Smári (bassi) og Gunnar (trommur) ákaflega vel með
þessa fallegu þjóðvísu.
Tvö lög skera sig nokkuð frá heildinni. Fyrst ber aö nefna sérlega
fallegt lag, Góða nótt, sem þau Kristjana og Páll Óskar syngja, lag sem
vinnur á við hverja hlustun og er söngur þeirra frábær. Aftur á móti
er hið þekkta klassíska spænska stef, Romance Espagnale, nokkuð á
skjön á plötimni, ágætlega raddað og sungið af Kristjönu, Emilíönu
Torrini og Sofflu Stefánsdóttur en þetta er alls ekki rétta aðferðin við
að flytja þetta fallega stef.
í heildina er Ég verð heima um jólin skemmtileg plata sem lætur
ekki mikið yfir sér en er góð hlustun við kertaljós um jólin.
Hilmar Karlsson
I Will Believe in You ★★★
Páll Rósinkrans
1 f
.»Ar<,
Söngvarinn Páll Rósinkrans
hefúr sent frá sér sólóplötu sem
nefhist I Believe in You. Á for-
síðu geislaplötunnar stendur
heitið Christ Gospel Band sem
virðist eiga að vera heiti hijóm-
sveitarinnar sem leikur undir
hjá honum. Þetta heiti segir
nokkuð um innihald disksins
sem er trúarleg rokktónlist í
bland við gospel, fremur en
gospeltólnist, svona eins og mað-
ur ímyndar sér gospel yfirleitt.
Margt er hér vel gert og hressilega. Má nefna lagið Don’t Try to Work
It out með góðri hrynjandi og allblúsað. Önnur slík em Working on
the Building, Glory, Glory og Are You Sure með sínum ekki óþægi-
lega endasleppu versum (í músík en ekki texta).
Vandaður og kraftmikill söngur Páls virðist njóta sín vel í þessari
kristilegu sambúð viö tónlistargyðjuna. Hann hefur samiö tvö rokklög
sem hér má fmna og em bæði vel ffambærileg, þótt hið síðara hugn-
ist undirrituðum betur við nánari kynni. Margir ágætir hljóðfæraleik-
arar og bakraddasöngvarar aðstoða við gerð I Believe in You og eiga
þeir ekki síður en Páll þátt í mjög svo ásættanlegri útkomu.
Ingvi Þór Kormáksson
KK 8 Magnús Eiríksson - Ómissandi fólk
Gálgahúmor
Það var vel til fundið hjá
Magnúsi Eiríkssyni og Kristjáni
Kristjánssyni, KK, að leiða sam-
an hesta sína og hljóðrita plötu.
Músíklega hafa þeir verið á
svipaðri línu, með blúsinn ým-
ist í forgrunni eða bakgrunni og
ættu því að geta snarað af
hnyttnum og áheyrilegum diski.
Sú varð líka raunin.
Ómissandi fólk er ein eftirtekt-
arverðasta platan sem út er gef-
in á þessu hausti. Lagasmíðam-
ar em skemmtilega fjölbreyttar
í einfaldleika sínum. Platan hefst á laginu Óbyggðimar kalla sem er í
cajunstíl, eitt sárafárra laga í þeim eðla stíl sem hefur verið gefið út
hér á landi. Hér og þar bregður fyrir notalegum gamaldags kántríáhrif-
um. Eitt lag er meira að segja hreinræktað bluegrass. En hver sem
stfllinn er er það samt tilfínningin sem er í fyrirrúmi. Platan er ákaf-
lega hrá og einfóld í uppbyggingu og það á stóran hlut að máli að gefa
henni sjarmann.
En lögin yrðu sem hvellandi bjalla ef ekki kæmu til textar þeirra
Magnúsar og KK. Óborganlegur gálgahúmorinn nýtur sín prýöUega í
lögum eins og Leynigluggagægir, Apótek og Foldarkráin. Hér og þar er
síðan slegið á alvarlegri nótur, svo sem í Steiktum engli og titillaginu.
En engu breytir hvort yrkisefnin em alvarleg eða grábrosleg. Lögin og
textamir hitta í mark, hnyttin, hrá og áheyrileg. Ásgeir Tómasson
★★★'Í