Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1996, Page 11
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
myndbönd
jwj
jngar
skoska hreimnum. Hann hætti í
skóla 17 ára til að snúa sér að leik-
list og hefur smám saman fengið
stærri hlutverk. Hann hefur leikið í
sjónvarpi, m.a. í Cadfael, og lék að-
alhlutverkið í kvikmyndinni
Hackers.
Aðeins einu ári eftir að Kevin
MacKidd útskrifaðist úr leiklistar-
skóla hafði hann komið fram í
tveimur skoskum kvikmyndum,
Small Faces, þar sem hann lék ill-
menni myndarinnar, og Trainspott-
ing, þar sem hann leikur Tommy
sem passar ekki aiveg inn í hópinn.
Hann er sakleysislegur áhugamaður
um Iggy Pop og gönguferðir í nátt-
úrunni og hann notar ekki flkni-
efni, þ.e. ekki til að byrja með. Eftir
að kærastan hans yfirgefur hann fer
hann að neyta flkniefna, umhreytist
algjörlega og sakleysið hverfur.
Robert Carlyle hefur á síðustu
árum aflað sér virðingar í Skotlandi
með aðalhlutverkum í Priest og
mynd Ken Loach, Riff Raff, ásamt
aðalhlutverki í sjónvarpsseríu BBC,
Hamish Macbeth. Hann er í hlut-
verki Begbie sem er sannkallaður
brjálæðingur. Hann er ekki flkni-
efnaneytandi og er alltaf að angra
félaga sína með athugasemdum um
eitrið en drekkur síðan nokkra lítra
af bjór og kemur af stað blóðugum
slagsmálum.
Vinsæl tónlist
Tónlist spilar stórt hlutverk í
myndinni og hafa mörg lög úr henni
náð vinsældum, t.d. Mile End með
Pulp og Born Slippy með Und-
erworld. Ásamt Pulp og Underworld
eiga Iggy Pop, Brian Eno, Primal
Scream, Heaven 17, Sleeper, New
Order, Blur, Lou Reed, Ice MC,
Bedrock, Elastica og Leftfield lög í
myndinni en einnig syngur Ewen
Bremner eitt lag.
Paltrow í Emmu og síðan í Brassed
off með Töru Fitzgerald og Pete
Postlewaite.
Ewen Bremner lék Mark Renton í
leikhúsuppfærslum Trainspotting,
bæði í Edinborg og London, en fær
hlutverk Spud í myndinni. Spud er
einhver vonlausasti dópisti sem sög-
ur fara af en hann er viðkunnanleg-
ur og meinar alltaf vel. Ewen
Bremner hefur leikið mikið í leik-
húsum, sjónvarpi og kvikmyndum
Sick Boy fékk viðurnefni sitt
vegna þess að félögunum þótti hann
einfaldlega vera stórbilaður. Ólíkt
sumum hinna virðist hann geta
smeygt sér inn og út úr dópista-
heiminum án fyrirhafnar en per-
sónuleiki hans er fremur óyndisleg-
ur og virðist verri, ef eitthvað er,
þegar hann er án fikniefna. Johnny
Lee Miller, sem leikur Sick Boy, er
sá eini í hópnum sem ekki er skosk-
ur og þurfti því að ná stjórn á
hörm
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Eyjólfur Kristjánsson
Leikstjórinn Danny Boyle, fram-
leiðandinn Andrew MacDonald og
handritshöfundurinn John Hodge
sameinuðu krafta sína til að gera
Shallow Grave, hressilegan trylli,
sem sló eftirminnilega í gegn.
Danny Boyle hafði unnið mikið í
sjónvarpi, Andrew MacDonald hafði
verið aðstoðarleikstjóri í breskmn
kvikmyndum og sjónvarpi og John
Hodge var læknir. Þeir félagarnir
ákváðu að halda áfram vel heppn-
uðu samstarfi sínu og næsta verk-
efni þeirra var að gera mynd eftir
sögu Irvine Welsh (sem reyndar
kemur fram í myndinni í litlu hlut-
verki fíkniefnasala), Trainspotting,
um Mark Renton og félaga hans sem
eru ófrýnilegt samansafn undir-
málsmanna, lygara, geðsjúklinga,
þjófa og eiturly'fjasjúklinga. Myndin
er ekki í þessum sósíal-realíska stíl
sem myndir um svipað efni eru oft í
og Ken Loach hefur m.a. verið
þekktur fyrir. Myndin gerir i raun
miskunnarlaust grín að bæði sögu-
hetjum sínum og samfélaginu sem
umlykur þær og er súrrealísk at-
burðarásin oft með ólíkindum.
Fálegt safn furðufugla
Mark Renton er miðdepill sög-
unnar. Hann er sá eini þeirra félaga
sem einhverja von virðist hafa um
að geta skapað sér betra líf. Hann er
í hlutverki sögumanns í myndinni
og hnyttnar athugasemdir sögu-
mannsins skapa mikið af húmorn-
um í myndinni. Hann er leikinn af
Ewan McGregor sem einnig lék í
Shallow Grave. Fyrsta hlutverk
hans var í mynd Dennis Potters,
Lipstick on Your Collar, en það var
Shallow Grave sem skapaði honum
nafn í kvikmyndaheiminum. Eftir
Shallow Grave lék hann í Blue
Juice, sem nú er verið að sýna í Há-
skólaþíói, og The Pillow Book eftir
Peter. Greenaway. í kjölfar Train-
spottitig lék hann á móti Gwyneth
síðasta áratuginn og hefur nýlega
átt hlutverk í Judge Dredd, Naked
og As You Like It.
Ungir og
upprennandi leikarar
Mark Renton og félagar hans eru ófrýnileg samansafn undirmálsmanna, lygara, geðsjúklinga, þjófa og eiturlyfjasjúk-
linga.
hjá
mér. Hún er
klassísk. Ég
er búinn að
sjá hana
nokkrum
sinnum en
það er þó orð-
ið svolítið
síðan síðast.
Það er því al-
veg kominn
„Mér dettur í hua
mynd með Kevin
Kostner, Field of
Dreáms. Það er mynd
sem ég hef tekið
oftast því ég hef
virkilega gaman af henni.
Ég er örugglega búinn að
sjá hana 3-4 sinnum. Mér
finnst handritið sérstaklega
vel gert. Þetta er skemmti-
lega sagá og þó að það sé
ekkert voðalega mikið lagt í
myndina skilar hún öllu
því sem hún þarf að
skila.
Svo er náttúr-
lega Casa-
blanca með
Hump-
hrey
Bogart
í
miklu
uppá-
haldi
tími á að maður taki
hana aftur.
Það kemur oft
fyrir að ég tek
myndband oftar en einu
sinni en það líður þó
alltaf dálítill tími á
milli. Maður kemst í
kontakt við ákveðna
hluti sem maður ella
missir af ef maður horf-
ir bara á myndina einu
sinni og maður er
gnrýnni á
lana í annað
sinn. Ég leigi
mér þó
ekki oft
spólur
því ég er
í þannig
vinnu að
ég er að
vinna
flest kvöld
flestar
helgar. Ég
læt mér
því yf-
ir-
leitt
sjónvarpið
nægja en maður
tekur þó alltaf tarnir."
-ingo
Girl 6 er ný mynd frá Spike Lee
en eftir hann liggja margar frábær-
ar myndir, má
þar nefna Do & ,
the Right W'
Thing, Jungle
Fever, Mo Bett-
er Blues og
Malcolm X.
Girl 6 er gam-
anmynd þar
sem Lee gerir
óspart grín að
„kynlífslín-
unni“. Theresa
Randle leikur
unga en hæfileikaríka leikkonu sem
fær ekkert betra hlutverk en að
svara í símann hjá símakynlífsþjón-
ustu. Og þar sem hún er ákveðin og
heldur í heiðri vísdóminn um að
maður eigi ekki að einbeita sér að
gera frábær hluti á hverjum degi
heldur því að gera hversdagslega
hluti frábærlega vel, einsetur hún
sér að gera sitt besta í vinnunni. Og
það er ekki að spyrja að því, hún
verður sú vinsælasta í faginu.
Theresa Randle er ung og efnileg
leikkona, en í öðrum hlutverkum
eru meðal annarra Madonna, Ron
Silver, Quentin Tarantino, Naomi
Campell, Peter Berg og John Turt-
urro.
Skífan gefur út Girl 6 og er hún
bönnuð börnum innan 12 ára. Út-
gáfudagur er 27. desember.
Ciying Freeman Empire Records
Réttlæti, græðgi og hefnd er þem-
að i Crying Freeman, en nafnið er
gælunafn á aðal-
persónunni, sem I
Mark Dacascos I
leikur. I byrjunj
myndarinnar
fylgjumst við með |
þegar ung kona, I
Emma O’Hara, I
sem stödd er í I
San Francisco, j
verður vitni að |
aftöku glæpa-
mannsins Sonny|
Shimizaki og
tveggja lífvarða hans. Áður en
morðinginn hverfur af vettvangi
kynnir hann sig sem Crying Freem-
an. Síðar kemst Emma að þvi að
Crying Freeman er morðingi hinn-
ar öflugu hreyflngar sem kallar sig
Syni drekans. Faðir þess myrta sver
þess dýran eið að hann muni ekki
unna sér hvíldar fyrr en morðingi
sonar hans sé fundinn. Sá veit að
vitni var að morðunum og hefur
hann leit að Emmu sem hann
hyggst nota sem tálbeitu.
Myndform gefur út Crying Free-
man og er hún bönnuð börnum
innan 16 ára. Útgáfudagur er 30.
desember.
íh« t} fl>» k|t iMtmUi
Empire Records er fjörug gaman-
mynd sem greinir frá sérlegá við-
burðaríkum degi
í lífi nokkurra af- j
greiðslumanna og
afgreiðslustúlkna
I versluninni
Empire Records.
Verslunarstjór-
inn, sem leikinn
er af Anthonu la
Paglia, verður að
hafa sig allan við
að stjórna sínu
fólki sem er villt
og vill leika sér,
Eins og nærri má geta er mikið um
tónlist í mynd sem gerist i plötu-
verslun og í myndinni eru leikin lög
með mörgum þekktum hljómsveit-
um. Má þar nefna The Cranberries,
Toad the Wet, Sprucket, Cracker,
Gin Blossoms og fleiri hljómsveitir
sem unga kynslóðin dýrkar.
Auk LaPaglia leika í myndinni
Rory Cochrain, Robin Tunney, Jo-
hnny Withworth, Rene Zellweger og
nýjasta stórstjarnan Liv Tyler. Leik-
stjóri er Alan Moyle (Pumpkin Up
the Volume).
Warner-myndir gefur út Empire
Records og er myndin leyfð öllum.
Útgáfudagur er 30. desember.