Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1996, Side 4
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1996 33 "V
%ónlist
hátt/lágt
- hljómsveitin Nada Surf
Þeir sem ekki þekkja hljóm-
sveitina Nada Surf hafa líklega
gerst sekir um að fylgjast ekkert of
mikið með íslenska listanum síð-
astliðnar vikur (hvort sem það er
glæpur eður ei). Hinir sem hafa
fylgst með vita sem er að lagið
Popular sem hljómsveitin flytur
sat fyrir stuttu á toppi listans og
hefur náð þónokkrum vinsældum
ytra. Lagið er að finna á plötu sem
kom út fyrr á þessu ári og ber
nafnið high/low.
Verðlaunar sig sjálft
Prímusmótorar hljómsveitar-
innar eru þeir Matthew Caws gít-
arleikari og Daniel Elliot bassa-
leikari en trommarinn Ira Elliot
var ráðinn þegar upptökm- á plöt-
unni voru hálfnaðar sökum þess
að fyrri trommuleikarinn hætti.
Matthew og Daniel voru cills ekki
óvanir hljómsveitarbransanum
áður en Nada Surf byrjaði, höföu
meira að segja spilað saman og
síðan rekið hvor annan úr ýmsum
bílskúrssveitum. Nada Surf varð
hins vegar til þegar Matthew
komst að þeirri niðurstöðu að það
að vera í góðri hljómsveit launaði
sig sjálft og lagði frægðardraum-
inn á hilluna. Kaldhæðnin við
þessa ákvörðun er að sjálfsögðu
velgengi hans og Nada Surf síðan,
en Matthew snýr sér víst undan og
neitar að svara þegar hann er
spurður um merkingu nafnsins.
Popp-pönk
Útkoman úr samstarfi Matthews
og Daniels er popp-pönkuð plata
þar sem lögð er mikil áhersla á
textagerð ýmiss konar (eins og
kemur best fram í laginu Popular).
Textaáhrif koma frá aðilum eins
og Leonard Cohen og bókum um
hegðunarvenjur frá 1960, til að
nefna dæmi. Textinn við umrætt
lag er einmitt tekinn úr bók um
hegðunarvenjur en í því nefnir
Matthew ýmislegt sem má og má
ekki gera í heimi unga fólksins,
allt til þess að verða vinsæll.
Nada Surf hefur vakið verðskul-
daða athygli enda kominn tími til
að blanda meira saman áhrifum
úr ýmsum áttum.
-GBG
IjigÍfSf
Þaö er engan bilbug að
finna á öldnu kempunum í
Rolling Stones. Þrátt fýrir að
samanlagður aldur fjórmenn-
inganna sé nú oröinn 211 ár þá
hyggjast þessir eilíföarung-
lingar halda í átta mánaða
langa tónleikaferð um gervöll
Bandaríkin til að kynna nýja
plötu sína sem nú er í vinnslu.
Talsmenn Rolling Stones
segja aö þessi fyrirhugaöa ferö
veröi síst íburðarminni en
Voodoo Lounge tónleikaferöin
í fyrra. Þar spiluðu þeir á 127
stööum. Sennilega hafa þeir þó
ekki þurft að kvarta undan
tímakaupinu því að taliö er að
á þeirri tónleikaferð hafi
hljómsveitin náð inn um
tveim og hálfum milljarði ís-
lenskra króna.
-JHÞ
Faithless slá í gegn
Faithless hafa heldur betur sleg-
ið í gegn með lag sitt Insomnia,
bæði hér heima og erlendis. Lagið
hefur komist hátt á tíu evrópska
vinsældalista og útgáfufyrirtæki
sveitarinnar, Arista Records, er
farið að undirbúa innrás Faithless
inn í Bandaríkin. Til stendur að
gefa breiðskífu Faithiess, Rever-
ence, út í lok febrúar en smádiskur
með laginu Insomnia er þegar kom-
inn út vestanhafs. Svo er bara að
sjá hvað nýtt lag sveitarinnar,
Salva Mea (Bjargaðu mér) gerir.
Endurhljóðblandanir
Það tekur venjulega ekki nema
tvo til þrjá sólarhringa að endur-
hljóðblanda lag en venjulega tekur
það helmingi lengri tima að gera
upprunalega útgáfu. Sjaldnast
fá þeir sem endurhljóðblanda
lög tekjur af smáskífusölu.
Reyndar eru miklar deilur
um hvernig hátta eigi
þessum málum og standa
deilumar milli hljóm-
plötufyrirtækja og
þeirra sem standa í end-
urhljóðblöndun.
Evita endurgerð
Þegar endurhljóðblandan-
ir eru á dagskrá ... Tónlistar-
mennirnir Pablo Flores og Javier
Garcia hafa þegar tekið til sig og
endurhljóðblandað tvö lög úr kvik-
myndinni Evita sem Madonna leik-
ur aðallhlutverkið í. Um er að ræða
Don’t Cry for Me Argentina og Bu-
enos Aires.
Annars hefur kvikmyndinni
Evitu verið vel tekið og er
Madonna afar lukkuleg með árang-
urinn.
Ný plata frá Tangerine
Dream
Þýska framúrstefnuhljómsveitin
Tangerine Dream hefur gefið út
nýja plötu og ber hún heitið Go-
blins’ Club. Fyrsta smáskífan af
plötunni, Toward the Evening Star,
hefur verið töluvert spiluð í út-
varpi erlendis.
Gamall
rokksmellur
Margir halda að það
hafi verið Quiet Riot
sem gerði lagið Come
on Feel the Noise vin-
sælt i byrjun síðasta
áratugar en það er ekki
rétt. Að sjálfsögðu var
það hin geðþekka þung-
arokkshljómsveit Slade
sem það gerði.
Listamaðurinn
- áður þekktur sem Prince - með þrefalda plötu
Eftir að hafa gefið út frekar
slappa plötu til að uppfylla samn-
ing sinn við Wamer Brothers er
listamaðurinn sem var áður þekkt-
ur sem Prince laus allra mála þar á
bæ. Undir vemdarvæng útgáfuris-
ans EMI virðist listamaðurinn hins
vegar fá fullt frelsi til sköpunar og
stutt er síðan fyrsta útgáfa hans
þar á bæ leit dagsins ljós. Breið-
skífan nefnist Emancipation eða
Lausn úr höftum (skv. ensk-ís-
lenskri orðabók) og er þreföld.
Fyrsta smáskífan af plötunni var
gamalt Stylistics lag sem heitir Bet-
cha By Golly Wow! en það var fyrst
spilað á útvarpsstöðvum daginn
eftir að listamaðurinn losnaði und-
an ánauð Wamer, nánar tiltekið
þann 13. nóvember á þessu ári.
Meirihlutinn af öðm efni á plöt-
unni er eftir listamanninn en það
var allt samið á þeim mánuðum
sem liðu milli útgáfu síðustu Wam-
er-plötunnar og þessarar.
Geysilega mikið hefúr verið lagt
í kynningu þessarar plötu enda
hafa komið ýmis snilldarverk frá
Prince í gegnum tíðina eins og að-
dáendur vita líklega manna best.
Vangaveltur era uppi um hvort of
mikið hafi verið lagt í þessa kynn-
ingu þvi enginn vissi af andláti
ungbarns listamannsins fyrr en
mánuði eftir að það átti sér stað og
í millitíðinni kom hann fram í við-
tali og sagði sjálfan sig aldrei hafa
verið hamingjusamari. En þrátt
fyrir harmleikinn kom platan út og
EMI-menn eru ánægðir með sinn
mann.
Svo fellur það hins vegar undir
dóm hlustenda hvernig listamann-
inum hefúr tekist til við svo stór-
felldar lagasmíðar eftir að vera
laus undan höftum. -GBG