Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1997, Qupperneq 3
JL*T LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 41 Honda flytur inn vélar frá Banda- ríkjunum Frá og með næsta hausti mun Honda flytja inn vélar frá Banda- ríkjunum til Japans. Að sögn Nabuhiko Kawamoto, stjómar- foi-manns Honda, er ætlunin að nota 3ja lítra V6-vélamar í lúxus- bíla sem smíðaðir yrðu í Japan. Innflutningurinn er hugsaður sem liður í því að samkeyra fram- leiðslu Honda í hinum ýmsu lönd- um heims. Þessar „innfluttu“ V-6 vélar verða væntanlega notaðar í nýjan bíl eða bíla sem Honda hefur í hyggju að kynna í Japan á seinni hluta ársins en að sögn hefur Honda í hyggju að kynna fimm eða sex nýja bíla á árinu 1997. Þá mun Honda hafa í hyggju að byrja að selja sportlega fjölnota- bílinn CR-V á Bandaríkjamarkaði á næstunni. Japan: Nissan ætlar að framleiða meira á heimamarkaði Japanski bílaframieiðandinn Nissan sagði fyrir áramótin að hann hygði á aukningu í bíla- framleiðslu á heimamarkaði á þessu nýbyrjaða ári. Reiknað er með aukningu um 6,8%, upp í 1,72 milljónir bíla á árinu 1997, en framleiðslan minnkaði mn 6,0% á árinu sem var að líöa. Nissan reiknar með aukinni sölu á heimamarkaöi sem nemur 3,7 af hundraði, upp í 1,18 milljón bíia, en saian dróst saman um 0,3% á árinu 1996. Þá er reiknað með auknum útflutningi sem nem- ur um 3,3%, upp í 600.000 bíla. Áætlað er aö framleiðsla Niss- an i öðrum löndum en Japan muni aukast um 3,6%, eða upp í 1,11 milljónir bíla, en engin aukn- ing var á framleiðslunni á ný- liðnu ári.. Bandaríkin: GM hættir að nota Geo Sjö árum eftir að General Motors byrjaði að nota nafnið Geo á innflutta bíla sem framleiddir voru í samvinnu við GM hefur verið ákveðið að hætta að nota það. Haldið verður áfram að nota Metro, Prizm og Tracker undir merkjum Chevrolet. Að sögn talsmanna GM er þetta gert vegna þess að ekki er lengur þörf á því að nota Geo til aö draga að nýja kaupendur. Þetta er einnig gert til að einfalda framboð bíla frá GM en mikill fjöldi nafna og tegunda hefur ruglað kaupend- ur í ríminu. Japan: Nissan ætlar sér 30% árið 2010 Nissan í Japan ætlar sér að auka markaðshlutdeild á heima- markaði upp í 25% á árinu 2000 og upp í 30% frá og með árinu 2010, að sögn stjómarformanns Nissan, Yoshikazu Hanawa. Þetta er nokkur aukning ef horft er til þess að þessi næst- stærsti bílaframleiðandi í Japan mun þurfa að horfa upp á mark- aðshlutdeild sem nemur 21% á ár- inu sem var að líða. Ein helsta ástæðan til þess að markaðshlut- deild Nissan minnkaði á liðnu ári var að kynntar vora færri gerðir nýraa bíla á árinu 1996 en oft áður. Á þessu nýbyrjaða ári hefur Nissan í hyggju að ná til fleiri kaupenda með því að senda frá sér átta nýjar gerðir bíla, þar á meðal bíla sem ætlað er að mæta auknum þörfum kaupenda varð- andi fristundir og útiveru. Eins er ætlunin að leggja meiri áherslu á bila með vélar með beinni inn- sprautun eldsneytis, eins og Mitsubishi og Toyota hafa gert að undanförnu. bílar Beti jr búi Kynningarakstur: Renault Twingo, 60 ha. inn, með afl meii ri vél Renault Twingo er sá sem mér hefur þótt hvað skemmtilegastur smábíla. Ástæðurnar eru nokkrar: Hann er ótrúlega rúmgóður. Hann liggur mjög vel og er lipur og liðleg- ur í snúningum. Fjöðranin er af- bragðs góð. Það er gaman að keyra hann. Þegar bíllinn kom fyrst fram var hann bylting í útliti og hönnun. Sumum þótti hann ljótur, öðram ekki. Allir voru sammála um að hann væri nýstárlegur. Framleið- andinn hafði einsett sér að gera ódýran bíl en góðan, með því meðal annars að nota sem mest af hlutum sem til voru fyrir og með því að vera ekki með neitt aukavesen í þessum bíl. Hann var t.a.m. aðeins fáanlegur í fjórum litum en innrétt- ingin alltaf eins á litinn. Samlæsing- ar eða rafknúnar rúðuvindur voru ekki í boði og aðeins útispegillinn fjær með innistýringu. Ökumaður átti að geta náð auðveldlega til þess sem var nær honum. Mælaborðið var í skjá fyrir miðj- um bíl og tölritað; sami skjárinn sýndi mismunandi upplýsingar sem ökumaður framkallaði með því að ýta á endann á þurrkurofastilknum. Aftursæti var hægt að hafa mis- munandi aftarlega eftir stærð far- þega sem þar voru og fá þannig út misstórt farangursrými þar aftan við, eða halla baki þess hvors um sig á þijá mismunandi vegu; enn fremur að leggja framsætin alveg niður og mynda hvílu móti aftur- sætunum. Eða leggja aftursætið al- veg niður og nota allt rýmið aftur í undir flutning. Huröirnar á Renault Twingo eru stórar sem auöveldar umgengni um aftur- sætin. Stæröin getur hins vegar valdiö nokkrum óþægindum ef þröngt er lagt. Twingoinn er nú kominn með rafknúnar rúðuvindur og rafstýröa úti- spegla, hvoru tveggja stjórnaö af bretti innan á hurö. Ágæt millihröðun Frá upphafi hefur bílnum helst verið fundið það til foráttu að vélin væri dálítið máttlaus. Það var að vissu marki rétt en þó ekki beinlín- is til óþæginda. Það þýddi að vísu ekkert að ætla sér að rífa hann af stað á ljósum en ef gírum var beitt óhikað hafði hann ágæta millihröð- un og hélt ferð ágætlega. Hámarks- hraði var skráður 147 km/klst., meðaleyðsla 6,7 1. Meðaleyðsla hjá undirrituðum á svona bíl sem bíla- leigubíl erlendis reyndist 6,2 lítrar. Nú hefur vélin verið endurbætt og gefur 60 hestafla orku við sama snúning, 5250 sn.min. Hámarks- hraðinn hefur aukist samkvæmt bókinni í 151 km/klst., meðaleyðsl- an lækkað í 6 lítra. Jafnframt er vél- in 25 kg léttari sem þýðir að bíllinn er léttari sem því nemur og þar með auðveldari fyrir vélina. Renault hefur einnig aukið búnað í Twingo þannig að nú er hann kominn með fjarstýrða samlæsingu sem virkar á báðar hurðir og hler- ann aftan á. Hann er með rafknún- ar rúðuvindur í báðum hurðum og rafstýröa útispegla. Það var skemmtileg lífsreynsla að vera á honum í jólaumferðinni í Reykjavík á Þorláksmessunni. Það sannreyndist þar sem áður hafði komið í ljós úti á Mallorca að Twingo er alls staðar hægt að leggja. í fyrsta lagi er hann svo nett- ur að hann þarf mjög lítið rúm. I öðru lagi leggur hann ágætlega á, er með beygjuradíus upp á 4,87 m og er prýðilega léttur í stýri. í þriðja lagi er svo auðvelt að bakka þessum bíl og vita upp á hár hvar afturhomin era. Það er jafnvel verra að átta sig nákvæmlega á framhomunum því þau era algjörlega í hvarfi frá öku- manni. Eitt getur hann þó vitað: það er afar stutt fram á þau. Ekki skaðar verðið Ég hef áður sagt um Twingo að þetta sé sá smábíll sem ég myndi eiga ef smábíll væri mér nóg. Ég er enn við sama heygarðshomið. Og ekki skaðar að verðið á honum er ágætlega hagstætt, aðeins 960 þús- und krónur. Að vísu gæti ég óskað mér þess að í honum væri líkn- arbelgur, þó ekki væri nema einn, en stjómvöld hafa ekki enn séð ástæðu til þess að koma til móts við bílainnflytjendur/kaupendur og lækka álögur til þess að auðvelda Aftursætisbakiö er tviskipt og hægt aö halla hvoru um sig fram á setuna eöa báöum og síðan hvoifa bekkn- um fram í heilu lagi ef nota þarf allt rúmiö aftur í undir farangur. Einnig má velja um þrjár stillingar á bak- halla og þannig fá ágætt hvíldar- rými. Aftursætinu í Twingo er hægt aö renna fram og aftur, eftir því hve far- þegar í því eru rúmfrekir. Velja má um þrjár stillingar. Meö sætiö í öft- ustu stööu og bökin uppi er farang- ursrúmiö ekki stórt en þegar þaö er komiö í fremstu stööu, sem til aö mynda dugar flestum börnum fram undir unglingsár, er dágott rými fyr- ir aftan þaö. Óölumi laiidómmmum áUiun ár& friðar! iPákkwn mðáldptin d UóaridL ári. Furðulega stór að innan Sem fyrr er gaman að aka Twingo. Fjölgun hestaflanna um fimm er kannski engin ógnar breyting en samt veit maður af því að þama hefúr eitthvað gerst. Enn sem fyrr má fá ágætan frísk leika út úr vél- inni með því að nota gírana. Með því móti má virki lega njóta ökuhæfni þessa litla bíls sem er svo furðu- lega stor mn- an að Nokkrar tolur um enn dag heyrir maður upp- hróp- anir hjá þeim far- þegum sem ekki hafa komið inn í hann áður. Undirritaður hafði Renault Twingo, 60 ha., með höndum frá Þorláksmessu fram yfir jóladagana. Renault Twingo er dæmigeröur einrýmisbíll og nokkuö framúrstefnuiegur í útliti, einkum framan frá séö. Lítiil utan en ótrúlega stór innan. DV-myndir: Hilmar Þór kaup á þessum öryggistækjmn, sem þó er sannað mál að draga verulega úr slysum þó enn séu þau ekki full- komin. En vonandi færist sá dagur stöðugt nær að ríkisvaldið sjái sér hag i því að draga úr útgjöldum sín- um af slysa- og sjúkrakostnaði fram- tiðarinnar með því að slá af aðflutn- ingsgjöldum af búnaði á borð við líknarbelgi og læsivarðar bremsur. Að einu leyti bættist við reynslu mína af Twingo í þetta skipti: ég fékk bæði glerísingu og síðan snjó ofan á hana í þetta skipti. Bíllinn var á nýjum, sóluðum Norðdekk- hjólbörðum, ónegldum, og stóð sig í hvoru tillitinu sem var mjög vel, bæði í hemlun og átaki og eins gagnvart skriki. Hvort tveggja fékk sérstakan jólaplús, billinn og dekk- in. S.H.H. Twingo 60 ha.: 4 strokka, 8 ventla, 1149 cc, 60 hö. v. 5250 sn.mín., snúningsvægi 93 Nm v. 2500 sn.mín. Rafeindastýrð fjölinnspýting. Meðaleyðsla skv. meginlands- staðli: Borgaakstur 7,5; lang- keyrsla 5,1; jafnaðareyðsla 6. 5 gíra handskipting. Framhjóladrif. Bremsur: Diskar framan, skálar aftan. Lengd-breidd-hæð: 3433-1630- 1423 mm; hjólahaf 2340 mm. Sporvídd, framan/aftan: 1416/1374 mm. 2 dyra, 4 manna. Hleri að aftan. Hjólastærð: 145/70R13. Beygjuradíus: 4,87 m. Eigin þyngd: 815 kg. Verð: kr. 960 þúsund. Umboð: Bifreiðar og landbúnað- arvélar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.