Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 1 l"\7'
★ ’r
»mn_ helgina
Sögusvuntan í Möguleikhúsinu:
Minnsta tröll í heimi
Það eru alltaf að bætast nýjar
sögur í Sögusvuntuna hennar Hall-
veigar Thorlacius. Nú á sunnudag-
inn verður Sögusvuntan stödd í
Möguleikhúsinu við Hlemm og þar
mun verða sögð sagan Minnsta
tröll í heimi eftir Hallveigu. Þetta
er einföld saga með einfalda leik-
mynd sem ætluð er fyrir yngstu
áhorfendurna og foreldra þeirra,
afa, ömmur, frænkur og frændur.
Börnin eru mikilvæg
Sögumar í Sögusvuntunni
byggjast oftast
beint
eða
óbeint
á sög-
í Sögusvuntunni bregöur fyrir
mörgum fslenskum kvikindum úr
þjóðsögunum.
unum sem Hallveig heyrði ömmu
sína segja í bernsku og þar bregð-
ur fyrir ýmsum íslenskum kvik-
indum úr þjóðsögunum. Hallveig
skrifar þessar brúðuleikhússögur
sjálf, býr til brúður og leikmyndir
og leikur oftast ein. Markmiðið
með sýningunum er fyrst og fremst
að skemmta áhorfendum með
spennandi sögum sem þau eiga að
ganga inn í - í orðsins fyllstu
merkingu. Ætlunin er að áhorfend-
ur fari heim með þá tilfinningu að
þeir hafl komið einhverju merki-
legu til leiðar en að sögn Hallveig-
ar fá böm alltof sjaldan tækifæri
til að finna hvað þau eru mikil-
væg. Hallveig leggur áherslu á ná-
lægð við áhorfendur, alveg eins og
þegar amma hennar var að segja
þeim systkinunum sögur í gamla
daga.
Minnsta tröll í heimi fjallar um
agnarlitla tröllastelpu í einum
svuntuvasanum og seinheppinn
músastrák, sem heitir Leifur
heppni, í öðrum. Þau lenda í mikl-
um vandræðum sem áhorfendur
hjálpa þeim að leysa. Sýningin tek-
ur 40 mínútur og hentar vel sem
fjölskyldusýning. Henni er ætlað
Ahorfendur taka mikinn þátt í sýningunni og f lok sögunnar finnst þeim
aö þeir hafi komiö einhverju merkilegu til leiöar.
það hlutverk að gefa foreldmm og
bömum tækifæri til að gera eitt-
hvað saman sem öllum þykir
skemmtilegt.
Minnsta tröll í heimi byijar kl.
15.00 en Sögusvuntan verður að-
eins í þetta eina skipti í Möguleik-
húsinu.
-ilk
Tónar, myndir, lióð
í tilefni af siðustu sýningar-
helgi málverkasýningar þeirra
Þórs Ludwigs og Gerhards R.
Zellers í Norræna húsinu munu
skáldin Ari Gísli Bragason og
Nína Björk Ámadóttir lesa úr
ljóðum sínum og tónlistarmað-
urinn Guðni Franzson mun
leika tónverk. Þetta ætla þau að
gera á sunnudaginn í sýningar-
sal Norræna hússins.
Málverkasýningu þeirra Þórs
og Gerhards hefur einnig fylgt
gjömingavaka og lýkur henni
nú um helgina. Að gera sig sýni-
legan er þema gjömingavökunn-
ar. Allir eru velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
-ilk
Nfna Björk og Ari Gfsli munu lesa úr Ijóöum sínum á sunnudaginn.
Norræna húsið:
Hampus og eggið
Það er ávallt sérstök dagskrá fyrir böm í Nor-
ræna húsinu á sunnudögum frá klukkan 14.00.
Að þessu sinni verður sýning á brúðuleik-
húsi tmdir stjóm Evu Ljungar frá Hels-
ingborg í Svíþjóð.
Sýningin er ætluð börnum á aldr-
inum 3 til 6 ára og er hún byggð upp
á einfaldan og leikrænan hátt. Leik-
ritið, sem flutt verður, heitir
Hampus og eggið en það var Eva
sjálf sem samdi það og hún gerði
leikbrúðumar líka. Eva blandar
saman íslensku og sænsku í sýn-
ingunni og ætti að vera auðvelt
fyrir áhorfendur að fylgjast með
framvindu sögunnar.
Eva er fyrrum leikskólakennari
og hefúr því starfað með bömum
allt sitt líf. Eftir að hún hætti störf-
um hefur hún æ meira snúið sér að
leikbrúðugerð og semur hún sjálf allt
efhið. Leikbrúður hennar em litríkar,
margvíslegar aö gerð og lögvm og á ein-
faldan hátt skapar hún persónur, gjaman úr
efnisbút eða sjölum. Þetta gerir hún fyr-
ir framan bömin þannig að þau taka
þátt í söguþræðinum.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis.
-ilk
Hér
er brúöa
eftir Evu Ljungar en brúöurn-
ar hennar eru einkar litrikar
og margvfslegar aö gerö og
lögun.
Hátíð hjá Mótorsmiðjunni
Mótorsmiðjan er samvinnuverkefiii
íþrótta- og tómstundaráös Reykjavík-
ur og Félagsmálastofiiunar Reykjavík-
ur og er sérhæfð félagsmiðstöð fyrir
unglinga á aldrinum 13 til 18 ára. Und-
anfarið hefúr verið listaverkasýning á
vegum Mótorsmiðjunnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur. í dag lýkur henni en þar
eru til sýnis málverk og önnur lista-
verk unnin af unglingum Mótorsmiðj-
unnar. Sýningin ber yfirskriftina
Hvemig líður mér? Ég vildi ég gæti
sagt það með orðum. í listaverkum
þessum kemur glögglega í ljós hvem-
ig unglingnum líður en hann getur
ekki komið þeim tilfinningum frá sér
öðravísi en í gegnum málverkin eða á
annan miður góðan hátt.
Þessir þrír voru á listaverkasýningunni f Ráöhúsinu um sföustu helgi.
Hátíð í Borgarleikhúsinu
Á sunnudaginn verður svo sérstök
hátíðardagskrá í tengslum við sýning-
una í Borgarleikhúsinu. Þar verða
Sniglar með mótorhjólasýningu á um
35 mótorþjólum og verður hún opin
almenningi frá klukkan 16.00 til 19.00.
Sjálf hátíðardagskráin mun byrja að
mótorhjólasýningunni lokinni og þar
mun Bubbi Morthens koma fram og
taka nokkur lög fyrir viðstadda.
Klukkan 20.00 byrjar svo leiksýn-
ingin Fagra veröld eftir Karl Ágúst
Úlfsson. Miðaverð er 2.000 krónur en
það var Lionsfélagið Þór sem keypti
sýninguna til fiáröflunar fyrir Mótor-
smiðjuna. Allur ágóði mun renna til
Mótorsmiðjunnar. -ilk
MiSSUR
■ Árbæjarkirkja: Barnaguðsþjónusata
kl. 11. Stúdentamessa kl. 14. Altaris-
ganga. Guðrún Karlsdóttir guðfræði-
nemi prédikar. Sr. Þór Hauksson
bjónar fyrir altari. Prestarnir.
Askirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
í messu. Ámi Bergur Sigurbjömsson.
í: Bessastaðasókn: Guðsþjónusta kl.
14. Leikskólaböm taka þátt í athöfin-
inni. Vænst er þátttöku foreldra leik-
| skólabarna. Sr. Bragi Friðriksson.
j Breidholtskirkja: Fjölskylduguðs-
S þjónusta kl. 11. Bamakóramir
syngja. Samkoma Ungs fólks með
| hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.
Foreldrar hvattir til þátttöku með
bömunum. Guðsþjónusta kl. 14.
i Ræðumaður Jón Baldursson læknir.
| Gideonfélagar kynna starf Gideonfé-
3 lagsins. Pálmi Matthíasson.
■■ Digraneskirkja: Messa kl. 11. Altar-
isganga. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur
sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn
syngur. Bamasamkoma kl. 13. Bíl-
ferð frá Vesturbæjarskóla. Guðsþjón-
usta kl. 14 með fermingarbömum og
.. foreldmm þeirra. Prestur sr. Jakob
|3 Á Hjálmarsson.
tEHiheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 14.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
Ikl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Bamaguðsþjónusta á
sama tíma í umsjón Ragnars Schram.
Prestamir.
Grafarvogskirkja: Bamaguðsþjón-
Iusta kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og
Rúna. Bamaguðsþjónussta í Rima-
skóla kl. 12.30 í umsjón Jóhanns og
Ólafs. Guðsþjónusta kl. 14. Prestam-
Grensáskirkja: Bamasamkoma kl.
| 11. Messa kl. 11. Prestur sr. Guðlaug
If? Helga Ásgeirsdóttir.
Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudaga-
skóli í Hvaleyrarskóla kl. 11. Umsjón-
armenn, séra Þórhallur Heimisson,
Bára Friðriksdóttir og Ingunn Hildur
Hauksdóttir. Sunnudagaskóli í Hafn-
1 arfjarðarkirkju kl. 11 fer að þessu
sinni fram í Ljósbroti Strandbergs.
Umsjónarmenn séra Þórhildur Olafs,
Natalía Chow og Katrín Sveinsdóttir.
S Helgistund í Ljósbroti Strandbergs
5 kl. 14. Prestur sr. Gunnþór Ingason.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Hallgrímskirkja: Bamasamkoma og
J messa kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jóns-
son. Ensk messa kl. 14. Sr. Tbshiki
Toma prédikar. Sr. Karl Sigurbjöms-
son.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Helga Soffla
i; Konráðsdóttir.
Hjallakirkja: Messa kl. 11. Dómpró-
J fastur, sr. Guðmundur Þorsteinsson,
. setur sr. Irisi Kristjánsdóttur inn £
embætti aðstoðarprests við Hjalla-
kirkju. Sr. fris prédikar og þjónar fyr-
] ir altari ásamt sóknarpresti, sr.
I Kristjáni Einari Þorvarðarsyni.
: Bamaguðsþjónusta kl. 13 í umsjá sr.
írisar Kristjánsdóttur. Poppmessa kl.
17. Prestamir.
I Hveragerðiskirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Jón Ragnarsson sóknar-
| prestur.
Innri-Njarðvíkurkirkja: Sunnu-
dagaskóli kl. 11.05.
Kálfatjarnarsókn: Kirkjuskólinn
byijar að nýju í dag, laugardag, i
Stóm-Vogaskóla kl. 11 í umsjá sr.
Bjama, Sesselju og Franks.
j Kópavogskirkja: Bamastarf í safn-
s aðarheimilinu Borgum kl. 11. Böm
úr Víðistaðakirkju koma í heimsókn.
I Guðsþjónusta kl. 11. Þorgils Hlynur
Þorbergsson guðfræðingur prédikar.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
; Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
| biskups: Messa kl. 11. Prestur sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Kór Langholts-
kirkju syngur. Bamastarf kl. 13 í
umsjá Lenu Rósar Matthíasdóttur.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11.
Væntanleg fermingarböm aðstoða.
Bamastarf á sama tíma. Guðsþjón-
usta kl. 14 í Sjálfsbjargarhúsinu, Há-
túni 12. Ólafur Jóhannsson.
Mosfcllskirkja: Messa kl. 14.
| Bamastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Baraastarf kl. 11. Opið
hús frá kl. 10. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Frostaskjól: Bamastarfkl. 11.
Húsið opnað kl. 10.30. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Halldór Reynisson.
: Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Kjartan Jónsson kristniboði
prédikar og kynnir kristniboðið.
Bamastarf á sama tíma.
Sefjakirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Altarisganga.
Sóknarprestur.
] Seltjamameskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Bamastarf á sama tfma.
Stokkseyrarkirkja: Bamaguðsþjón-
usta kl. 11.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sunnudagaskólinn fer
S hann fram í Innri-Njarðvíkurkirkju
kl. 11.05. Strætó fer frá kirkjunni kl.
11. Baldur Rafn Sigurðsson.
Vídalínskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
SunnudagaskóU á sama tíma í safh-
aðarheimilinu. Sr. Bjami Þór Bjaraa-
son héraðsprestur messar. Sunnu-
dagaskóU i Hofsstaðaskóla kl. 13.
Tónlistarmessa með léttu ívafi kl.
20.30. Sr. Bjami Þór Bjamason þjón-
ar fyrir altari. Sr. Bragi Friðriksson.