Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Page 9
FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997
Hitt húsið:
Hljómsveitm geðþekka ÓJónsson
og Gróni mun koma fram á síðdeg-
istónleikum í Hinu Húsinu í dag.
Þetta munu vera fyrstu tónleikar
sveitarinnar í sex mánuði og má
þess vegna eiga von á mörgum nýj-
um tónum frá þessum rokkabillí-
hetjum.
Þess má einnig geta að þeir
ÓJónsson og Grjóni-menn gáfu út
frábæra sjötommu plötu síðastliðið
haust sem bar nafnið Kvartett
ÓJónsson og Grjóni.
Tónleikamir í Hinu húsinu hefj-
ast klukkan 17.00 og er aðgangur að
þeim ókeypis. -ilk
Tónlistarmessa í
Vídalínskirkju
Tónlistarmessa með léttu ívafl verður í Vídalínskirkju í Garðabæ á
sunnudagskvöldið. Hljómsveit, skipuð fjórum valinkunnum hljóðfæra-
leikurum, mun sjá um allan undirleik. Það eru þeir Gunnar Gunnars-
son sem leikur á píanó, Sigurður Flosason saxófónleikari, Tómas R. Ein-
arsson á kontrabassann og Matthías M.D. Hemstock sem leikur á
trommur.
Hinn landsfrægi söngvari, Þorvaldur Halldórsson, ætlar að syngja
einsöng en það er séra Bjarni Þór Bjamason héraðsprestur semimun
þjóna fyrir altari. Þá mun Kór Laugameskirkju koma í heimsókn og
syngja nokkur lög.
Þetta er athöfn ætluð allri fjölskyldunni og byrjar hún klukkan 20.30
en frá klukkan 20.00 mun hljómsveitin leika létt lög. Að tónlistarmess-
unni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
-ilk
Leikmynda- og búningahönnuðir:
Samsyníng i Galleri Horninu
Á morgun verður opnuð samsýn-
ing félagsmanna í Félagi leikmynda-
og búningahönnuða í Gallerí Hom-
inu að Hafnarstræti 15. Sýningin er
ætluð til kynningar á verkum fé-
lagsmanna en rétt til aðildar að fé-
laginu eiga allir þeir sem eiga höf-
undarrétt að leikmynd í atvinnu-
leikhúsi, kvikmynd eöa sjónvarpi.
Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 11.00 til 23.30 og stendur til
miðvikudagsins 12. febrúar. Á milli
kl. 14.00 og 18.00 verður sérinngang-
ur galleríisins opinn en á öðrum
tímum er innangengt frá veitinga-
staðnum. -ilk
Obó, hom
Listvinafélag Hallgrímskirkju held-
ur óvenjulega tónleika með samleik á
óbó, hom og orgel á sunnudaginn.
Þessir tónleikar verða í Hallgrims-
kirkju en það em þeir Daði Kolbeins-
son óbóleikari, Joseph Ognibene
homleikari og Hörður Áskelsson, org-
anisti Hallgrímskirkju, sem munu
leika fjölbreytta tónlist.
Verkin sem þeir félagar hafa valið
til flutnings eru flest upprunaleg fyrir
aðra hljóðfæraskipan en tónlistin
spannar tímann frá barokki til róm-
antíkur. Daði og Joseph hafa áður
leikið með Herði á tónleikum i Hall-
grimskirkju hvor í sínu lagi en koma
nú í fyrsta skipti fram sameiginlega.
Fyrirhugað er að hljóðrita þessi verk
til útgáfu á geisladiski.
Tónleikamir hefiast klukkan 17.00
og eru allir velkomnir.
-ilk
Ein persónan úr leikritinu.
Sýningar á leikriti Karls Ágústs
Úlfssonar, í hvítu myrkri, hefjast á
ný um helgina á Litla sviði Þjóðleik-
hússins. Sýningar hafa legið niðri
um nokkurra vikna skeið, meðal
annars vegna meiðsla eins leikar-
anna. í hvítu myrkri var frumsýnt
snemma hausts á liðnu ári. Þetta er
sterkt og áhrifamikið verk sem
hlaut feiknalega góðar viðtökur og
aðsókn.
Sögusvið verksins er einangrað
sjávarpláss þar sem aðkomufólk
verður innlyksa í aftakaveðri eitt
DV-mynd Pjetur
vetrarkvöld. Þegar nóttin líður fara
skuggar fortíðarinnar að sækja á.
Leikendur eru Kristbjörg Kjeld,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurð-
ur Skúlason, Þröstur Leó Gunnars-
son, Magnús Ragnarsson og Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir. Höfundur
leikmyndar og búninga er Stígur
Steinþórsson en Ásmundur Karls-
son hannaði lýsingu. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson.
Verkið verður sýnt á sunnudag-
inn og hefst það klukkan 20.30.
-ilk
Tónlistin í
r
Operukjallaranum
í Óperukjallaranum er iðulega nóg
um að vera um helgar. Tónlistin
blómstrar þar og svo mun einnig vera
nú um helgina. í kvöld mun rauð-
vinsjass- og swingsveitin So What
leika á Óperubamum sem er á efri
hæðinni en útvarpsmaðurinn kunni,
Gulli Helga, verður í diskótekinu á
hæðinni fyrir neðan. Annað kvöld
verður hljómsveit hússins, Óperu-
bandið, ásamt Björgvini Halldórssyni
á neðri hæðinni frá miðnætti til lok-
unar og Gulli Helga verður í diskótek-
inu. -ilk
Tk
t
um helgina
23
LEIKHIIS
Þjóðleikhúsið
Litll Kláus og Stóri Kláus
sunnudag kl. 14.00
Kennarar óskast
fóstudag kl. 20.00
Villiöndin
laugardag kl. 20.00
Þrek og tár
sunnudag kl. 20.00
Leitt hún skyldi vera
skækja
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
í hvítu myrkri
sunnudag kl. 20.30
Borgarleikhúsið
Fagra veröld
laugardag kl. 20.00
Trúðaskólinn
sunnudag kl. 14.00
Dómínó
laugardag kl. 20.00
Svanurinn
sunnudag kl. 17.00
Barpar
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
Stone Free
föstudag kl. 20.00
föstudag kl. 23.00
Leikfélag Akureyrar
Undir berum himni
laugardag kl. 20.30
Hermóður og Háðvör
Birtingur
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
Loftkastalinn
Áfram Latibær
sunnudag kl. 14.00
sunnudag kl. 16.00
Á sama tíma að ári
sunnudag kl. 20.00
Sirkús Skara skrípó
laugardag kl. 20.00
Nemendaleikhúsið
Hátíð
laugardag kl. 20.00
Skemmtihúsið
Ormstunga
föstudag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Höfðaborgin
Gefln fyrir drama...
föstudag kl. 20.30
Kaffileikhúsið
Einleikir Völu Þórs
föstudag kl. 21.00
sunnudag kl. 21.00
Tjarnarbíó
Poppleikurinn Óli H
föstudag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Minnsta tröll i heimi
sunnudag kl. 15.00
Yndislegt að koma aftur
i
- segir Borghildur Olafsdóttir listamaður
„Salurinn hefur aldrei verið fal-
legri og húsið er mjög vel gert upp.
Þetta er einn fallegasti salur f
Reykjavlk núna og það er yndis-
legt að vera komin hingað aftur,“
segir Borghildur Ólafsdóttir lista-
maður.
Hún ætlar að opna sýningu í Ás-
mundarsal í Listasaftii ASÍ við
Freyjugötu á morgun klukkan
16.00 en svo skemmtilega vill til að
hún hélt fyrstu einkasýningu sína
þar fyrir fjórtán árum. Hún þekk-
ir húsið líka vel af því að hún
kenndi þar í sjö ár þegar Myndlist-
arskólinn í Reykjavík haföi þar
aðstetur. Borghildur stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og Listaskóla Edinborgar.
Á sýningunni, sem er níunda
einkasýning hennar, verða verk
unnin á síðasta ári i leir, gler,
steinsteypu og tré. Opið verður
aUa daga nema mánudaga á milli
klukkan 14.00 og 18.00 og mun sýn-
ingin standa til 9. febrúar.
-ilk