Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1997, Side 2
30
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1997
Range Rover dfsil turbo int. '97,
ssk., dökkgrænn, ek. 5 þús. km,
leöurinnr., álfelgur, ABS o.fl. Skipti.
Verö 5.350.000. Hs. 557 6061.
Subaru Legacy Outback ’97, ssk.,
vínr./grár, álfelgur, ABS o.fl. Glæsil.
bíll. Verö 2.750.000. Gott stgrverö.
Einnig dökkbl., beinsk.
MMC Lancer GLXi 4x4 ’94, 5 g.,
vínr., ek. 64 þús. km, rafm. í öllu,
skipti. Verö 1.190.000.
Isuzu Trooper 2,6 MPi ’90, 5 g.,
grár, ek. 120 þús. km, álfelgur, 31“
dekk, gott eintak, einn eigandi,
skipti. Verö 1.290.000.
Grand Cherokee Laredo V8 ’94,
ssk., grænn, ek. 60 þús. km.
Verö 2.980.000. Eigum einnig
Limited ’93-’96.
Golf Grand ’96, blár, spoiler, ál-
felgur. Corolla XLi ’96, ek. 9 þús.
km, 3 d., spoiler.
Opið mánud. til föstud kl. 10-19
laugardaga kl. 12-16.30.
Vetrarakstur og búnaður
Snjór og kuldi dag eftir dag getur
tekið á taugarnar hjá mörgum bíleig-
andanum þegar hann kemur að bíln-
um sínum á kafi í snjó og með frosn-
ar læsingar á hveijum morgni.
Þegar hélt áfram að snjóa í vikunni
sem er að líða hefur mörgum eflaust
orðið hugsað til þess á miðvikudaginn
„að öskudagur á sér átján bræður" og
enn gæti verið von á snjó. Það væri
kannski við hæfi að athuga bílinn bet-
ur og gera hann færari til að takast á
við snjó og hulda, að ekki sé talað um
hálku og ófærð.
Við höfum áður fjallað um ýmislegt
sem hægt er að gera til að létta sér
umgengni við bíla þegar svona viðrar
og skal sitthvað af því rifjað upp hér
vegna áskorana frá lesendum.
Þegar allt er frosið
Ef allar læsingar eru frosnar og
ekkert gengur að þíða þær með
blæstri getur þrautalendingin verið
að fara út með heitt vatn í könnu eða
fótu og hella yfir læsinguna á farþega-
hurðinni.
Við hitann á hún að hrökkva upp
svo hægt er að komast inn í bílinn þá
leiðina. Það gerir minna til þó að hún
frjósi aftur því hitinn frá miðstöðinni
þíðir læsinguna á hinni hurðinni
strax og byrjað er að keyra og þá er
hægt að ganga eðlilega um þeim meg-
in.
Skafið rúðurnar varlega
Þegar snjór og ís hylur allar rúður
getur þurft að grípa til snjósköfunnar
til að hreinsa þær. Til eru nokkrar
gerðir af snjósköfum, ýmist með
málmbrún eða brún úr plasti til að
skafa með ísinn og gúmmíkanti á
hinni brúninni til að hreinsa.
Beitið ekki of miklu afli og ef skaf-
an er með málmbrún þarf að beita
henni rétt tii að skemma ekki rúðuna,
gúmmíkantana eða skrautlistana sem
umlykja hana.
Hreinsið rúðuþurrkurnar
Mjög mikiivægt er að hreinsa rúðu-
þurrkurnar og þá sérstaklega þurrku-
blaðið um leið og rúðan er hreinsuð.
Brjóta þarf íshröngl úr þurrkunni
með því að slá henni nokkrum sinn-
um á rúðuna og beygja hana tvisvar
eða þrisvar á milli handanna til að
hún lagi sig örugglega að bogmyn-
daðri rúðunni.
Notið ekki sterk leysiefni til að
hreinsa tjöru af þurrkublaðinu því
við það harðnar gúmmíið og þurrku-
blaðið hættir að skila sínu verki eðli-
lega. Notið frekar létt hreinsibón eða
smurefnið WD-40 til að hreinsa
gúmmiið. Við það mýkist gúmmíið og
endingin verður lengri.
Hreinsið allan snjó af
bílnum
Það er mikilvægt að hreinsa allan
snjó af bílnum áður en ekið er af stað.
Það er sjálfsögð venja að hreinsa allar
rúður vel, ljós og númeraplötur. En
það á ekki að láta staðar numið þar.
Laus snjór á þaki bílsins getur verið
ökumanninum sjálfum og öðrum í
umferðinni til ama.
Ef skilinn er eftir snjór á þaki bíls-
ins getur hann runnið fram af þakinu
og byrgt ökumanni útsýni ef hann
þarf að hemla skyndilega, einkum ef
bíllinn er byijaður að hitna og snjó-
lagið næst bílnum er byrjað að
bráðna.
kantana. Þannig hrinda þeir frá sér
vatni og raka og frjósa síður.
Forðist raka inni í bíln-
um
Fátt er hvimleiðara en að rúðumar
í bílnum hrimi að innan þegar billinn
hefur staðið óhreyfður um stund.
Ástæðan er oftast sú að raki mynd-
ast í bílnum vegna þess að við berum
með okkur bleytu og snjó sem bráðn-
ar þegar bíllinn hitnar en verður að
raka sem sest innan á rúðumar og
frýs þegar kólnar.
Hægt er að draga úr rakamyndun
með því að skilja eftir smárifú á
sögðu að hreinsa rúðuna vel að innan
með hreinsilegi og pappír eða tusku.
Gott getur verið að hafa gamalt lítið
handklæði í bilnum þegar veðrabreyt-
ingar eru örar og nota það til að
strjúka móðuna burt áður en ekið er
af stað.
Notið afturrúðuhitara í
hófi
Flestir bílar eru með afturrúðu-
hitara sem eru örfinir þræðir innan á
afturrúðunni. Þegar rafstraumi er
hleypt á þræðina hitna þeir og bræða
ís og eyða móðu.
Afturrúðuhitarinn er rafmagns-
frekasta tæki bílsins og það á að nota
í hófi, bæði til að spara rafmagnið og
eins til að auka endingu þráðanna.
Sem betur fer em flestir nýir bílar
með tímarofa á hitaranum, sem kem-
ur í veg fyrir ofnotkun, en aðrir ekki
og þá þarf að gæta þess að slökkva.
Góð regla er að slökkva á aftur-
rúðuhitaranum þegar þræðimir eru
sýnilega famir að virka. Þótt slökkt sé
á hitaranum er rúðan orðin það heit
að hún heldur áfram að eyða móðunni
þótt búið sé að slökkva.
Mikilvægt er að gæta þess að
þurrka afturrúðuna að innan ávallt
langsum eftir vírunum en ekki þvert
á þá því með tímanum slitnar hlifðar-
húðin yfir þeim og of harkaieg hreins-
un getur orðið til þess að skemma
þræðina. Það þar ekki nema örfina
rispu í þráðinn til þess að hann hætti
að leiða rafmagn og þar með hættir
hann að hitna.
Lausamjöll á þaki bílsins getur far-
ið að rjúka um leið og ekið er af stað
og bíllinn sem á eftir kemur getur lent
í óvæntum „skafrenningi” sem byrgir
útsýnið og getur þar með valdið
hættu.
Smyrjið alla gúmmí-
kanta og læsmgar
Til að koma í veg fyrir að hurðir og
læsingar frjósi þarf að smyrja þær
reglulega.
Margar gerðir af lásaúða eru til á
bensínstöðvum og í bílabúðum. Úðið
reglulega inn í læsingamar því smur-
efnið ýtir rakanum frá og kemur í veg
fyrir að þær fijósi. Geymið úðabrús-
ana í vasanum eða inni í hita til þess
að úðaefnið virki vel og geti þítt
frosna læsingu ef á þarf að halda.
Gúmmíkantamir safna á sig raka
þegar bíliinn hitnar og kólnar á víxl.
Smyrja þarf kantana reglulega og það
er hægt að gera með sérstökum si-
líkon-stiftum sem fást í bílabúðum, til
dæmis Bilanausti, eða setja létt bón
eða WD-40 í tusku og strjúka yfir
glugga en það er þó ekki alltaf hægt
þegar skafrenningur er því að ekki
þarf nema smárifu til að fylla bílinn af
snjó.
Gott ráð er að setja gömul dagblöð
á gólfið undir gúmmímottumar. Þeg-
ar snjórinn bráðnar sest rakinn í dag-
blöðin og þegar þau blotna er þeim
einfaldlega hent og önnur þurr sett í
staðinn.
Hreinsið rúðurnar að
innan
Núna þegar sólin er farin að skína
lengri stund dag hvem er lika betra
að hafa rúðurnar hreinar að innan.
Miklar hitabreytingar skiija eftir
óhreinindi innan á rúðunum og ef
reykt er í bílnum eru rúðurnar fljótar
að fá á sig slikju sem myndar mikið
ljósbrot þegar horft er á móti sól.
Þegar móða er innan á rúðu má alls
ekki strjúka hana af með hendinni.
Með því smyijum við út óhreininda-
laginu innan á rúðunni og gerum út-
sýnið enn verra. Betra er að hafa
hanska á hendinni en best er að sjálf-
Hreinsið dekkin reglu-
lega
Loks skal það ítrekað enn og aftur
að hreinsa hjólbarðana á bilnum
reglulega með tjöruhreinsandi efni.
Þegar tjaran sest á yfirborð dekkj-
anna virkað hún eins og besti skíðaá-
burður og veggrip dekkjanna minnk-
ar eða það hverfur nánast.
Dekkjahreinsir í úðabrúsa ætti að
vera í hverjum bíl og þegar götur hafa
verið saltbornar í nokkra daga er
komin svo mikil tjara á dekkin að
hreinsa þarf þau. Besta ráðið er að
úða yfir dekkin og hafa gamla upp-
þvottaburstann við höndina og bursta
létt yfir yfirborð slitflatarins á dekk-
inu. Við það losnar tjaran og dekkið
verður aftur samt og fært um að
takast á við snjóinn.
Hægt er að nota hreinsiethi á borð
við white spirit eða terpentínu til að
hreinsa Ijöruna en umsjónarmenn
DV-bíla hafa besta reynslu af inn-
lenda dekkjahreinsinum sem efna-
gerðin Sámur framleiðir. -JR
Fiat Punto 75 SX ’95, græns-
ans., ek. 50 þús. km, rafm. í
öllu, dráttark., ástsk., einn eig.
Verö 810.000
Tilboð 750.000
Nissan Primera 2,0 SLX ’92,
rauöur, ek. 91 þús. km, ssk.,
rafdr. I öllu, sumard. álf., ástsk.,
einn eigandi. Verö 1.080.000
Tilboö 960.000.
Subaru 1800 STW GL ’85,
Ijós. blár, gott lakk, ek. 169 þús.
km, góöur i snjóðinn.
Verö 280.000.
WV Passat 2,0 CL Variant |93,
rauður ek. 76 þús. km,
dráttarb., einn eigandi,
reyklaus dekurbíll.
Verö 1.190.000.
Istraktor
SMIÐSBÚÐ 2, GARÐABÆ, SÍMI 565 65 80
Sérpantanir
Aukahlutir- Varahlutir
Jeppabreytingar
j/ía&er BFCoodrich
MMC Pajero Wagon ’87,
7 manna, blár/grár, 5 g.,
álfelgur, ek. 208 þús. km.
Visa/Euro.
Verö 790.000.
Tilboö 570.000.
Ford Ranger Super Cab
STX ’92, upph., 31“
álfelgur, plasthús, 5 g.,
ek. 99 þús. km. Bílalán.
Verö 1.470.000.
Tilboö 1.250.000.
Nissan Primera SLX ’92,
ssk., r/ö, álfelgur, spoiler,
ek. 99 þús. km. Bílalán.
Verö 1.070.000.
Tilboö 890.000.
Hyundai Pony GLSi ’92,
rauöur, ssk., r/ö, topp-
lúga, ek. 69 þús. km.
Visa/Euro.
Verö 690.000.
Tilboö 590.000.
MMC Lancer GLX sed-
an ’87, ssk., r/ö, hvítur,
Visa/Euro.
Verö 330.000.
Tilboö 195.000.
UPPÍTÖKUBÍLAR
Vagnhöföa 23
Sími 587-0-587