Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Qupperneq 17
MANUDAGUR 7. APRIL 1997
17
DV
Fréttir
íslenskir fjárfestar:
Lögðu ekki
í sveppina
- ískem leitar nýsköpunarverkefna á Suðurnesjum
DV, Suðurnesjum:
íslenskir áhættufjárf'estar höfn-
uðu því að taka þátt í að fjármagna
fyrirtæki á vegum ískem ehf. sem
framleiða átti sérstaka sveppi fyrir
Evrópumarkað vegna þess að þeir
töldu ekki tryggt að verksmiðjan
risi á íslandi.
ískem hefur unnið hörðum
höndum að því að undanfömu að
fá fjárfesta til að fjármagna verk-
smiðju þessa en sveppirnir, sem
hún á að framleiða, eru ræktaðir í
Bandaríkjunum og notaðir til að
eyða skordýrum í akuryrkju og
gróðurhúsaræktun. Þeir eru skað-
lausir en sé þeim dreift í hæfilegu
magni sýkja þeir skordýrin svo
þau drepast. Ráðgert var því að
afla leyfa fyrir þessum sveppum í
Evrópu og kanna hagkvæmni þess
að reisa verksmiðju til að fram-
leiða þá á íslandi.
Samkvæmt upplýsingum frá
ískem ehf. er meginverkefni félags-
ins að fá fjárfesta til að festa fé sitt
í iðnaði sem nýtir innlenda orku
ekki síst gufuorkuna á Suðumesj-
um og er aðaláherslan lögð á efna-
iðnað ýmiss konar. Eigendur ískem
ehf. eru hitaveita Suðumesja, Sam-
tök iðnaðarins, Iðntæknistofnun,
Landsvirkjun, Markaðsstofa iðnað-
arráðuneytisins og bandaríska fyr-
irtækið Technology International
Exchange. Talsverður fjöldi verk-
efna er nú í skoðun hjá ískem.
ÆMK
Gjafir til heilsugæslunnar á Suðurnesjum:
Ómetanlegt aö eiga slíka aö
- sagði Anna Margrét Guðmundsdóttir
Gefendur og nokkrir starfsmenn í heilsugæslunni.
DV-mynd ÆMK
REYKJAVÍKURBORG
auglýsir eftir
FORSTÖÐUMANNI
LJÓSMYNDASAFNS
REYKJAVÍKUR-
BORGAR
Laus er til umsóknar staöa forstöðumanns Ljósmyndasafns
Reykjavíkur. Starfið felst í stjórnun og rekstri safnsins í um-
boði menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar.
Hlutverk forstööumannsins
Forstöðumaður ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri safnsins
og starfsmannastjórnun, hann ber ábyrgð á Ijósmyndaeign
safnsins og hefur yfirumsjón með framkvæmd safnstefnunnar.
Þetta felur í sér skráningu, forvörslu, örugga varðveislu Ijós-
myndaefnis, heimildaöflun um það, viðskipti vegna þess, sýn-
ingahald, innlend og erlend samskipti. Þá er safninu ætlað að
afla samtímaheimilda í myndum um starfsemi Reykjavíkur-
borgar sérstaklega og vera borgarstofnunum til ráðuneytis í
Ijósmyndaefnum.
Kröfur geröar til umsækjenda:
Stjórnunarhæfileikar og reynsla, þ.á.m. af fjármálastjórn.
Menntun er tengist viðfangsefnum safnsins er nauðsyn-
leg, æskilegt er að hún sé á háskólastigi.
Þekking og reynsla af safnstarfi æskileg.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Lipurð og hæfni í samvinnu og samskiptum.
Kunnátta í erlendum tungumálum.
Borgarráð skipar forstöðumann að fenginni tillögu
menningarmálanefndar Reykjavíkur.
Kjör verða samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri menningar-, uppeld-
is- og félagsmála.
Undirmenn eru starfsmenn Ljósmyndasafnsins.
í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu umsækjandi
mætir öllum ofangreindum kröfum.
Skrifleg umsókn sendist framkvæmdastjórn menningar-, upp-
eldis,- og félagsmála á skrifsofu borgarstjóra í Ráðhúsi
Reykjavíkur, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 2. maí nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að
auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum
borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja.
DV, Suðurnesjum:
„Þetta eru mjög höfðinglegar gjaf-
ir og ég vil fyrir hönd stjómar
þakka þessum einstaklingum, fé-
lagasamtökum og fýrirtækjum sem
hafa i gegnum tíðina stutt við bakið
á sjúkrahúsinu og heilsugæslustöð-
inni. Þaö er ómetanlegt fyrir okkur
að eiga slíkan bakhjarl sem bæjar-
búar hafa verið í gegnum tíðina,"
sagði Anna Margrét Guðmundsdótt-
ir, formaður stjómar Sjúkrahúss og
Heilsugæslustöðvar Suðurnesja,
þegar hún tók á móti glæsilegum
gjöfum frá 8 aðilum 17. febrúar sl.
Olíusamlag Keflavíkur og ná-
grennis gaf Heilsugæslustöðinni
GSM-sima. Sjúkrahúsið fékk raf-
magnsseríur frá Rafhúð R.Ó. Sorop-
timistaklúbbur Keflavíkur gaf hæg-
indastól og myndbandstæki. Styrkt-
arfélag Sjúkrahússins gaf baðkar og
lyftibekk. Lionsklúbbur Keflavíkur
gaf tæki sem notað er fyrir sérfræð-
inga í háls-, nef- og eymaaðgerðum.
Lionessuklúbbur Keflavíkur gaf
15.000 krónur til kaupa á leikföng-
um og dagmæður gáfu leikfóng til
minningar um Svövu Ásbjörnsdótt-
ur dagmóður sem lést 1995. Maria
Magnúsdóttir gaf skrautritaðan
texta, Spor, til minningar um móð-
ur sina, Ölmu Sigurðardóttur. Verk-
inu hefur verið komið fyrir í sjúkra-
húsinu. -ÆMK
Félag leikskólafulltrúa sveitarfélaga:
Samstarfsvettvangur
leikskólafulltrúa
Félag leikskólafulltrúa sveitarfé-
laga var stofhað á dögunum. Stofn-
félagar vora allir leikskólafulltrúar
landsins og deildarstjórar leikskóla-
deilda. Þessir aðilar hafa starfað
óformlega saman um árabil. Félagi í
nýja félaginu getur hver sá orðið
sem hefur yfirumsjón með leik-
skólamálum í sveitarfélagi og upp-
fyllir ákvæði í lögum um leikskóla-
kennaramenntun.
Tilgangur félagsins er að vera
samstarfsvettvangur leikskólafull-
trúa á íslandi. Ennfremur er félag-
inu ætlað að standa fyrir ýmiss kon-
ar fræðslu um leikskólamál. Stjóm
Félags leikskólafulltrúa sveitarfé-
laga skipa Sesselja Hauksdóttir,
leikskólafulltrúi Kópavogs, en for-
maður og meðstjómendur eru Sól-
veig Ásgeirsdóttir, leikskólafulltrúi
Mosfellsbæjar, og Guðríður Helga-
dóttir, leikskólafulltrúi Reykjanes-
bæjar. -sv
BRYNJOLFUR JONSSON
Fasteignasala ehf., Barónsstíg 5,101 Rvk.
Jón Ól. Þórðarson hdl., lögg. fasteignasali.
Fax 5111556
SÍMI5111555
HAMRABORGFalleg, mikiö endurnýjuð
100 fm íbúö. Bílageymsla. Góö sameign.
Stórar svalir. Hagstætt verð. Skipti á
minna.
3ja herb.
URÐARHOLT MOS.Sérlega rúmgóö
og björt nýleg íbúö með sólverönd og sér-
garði. Hagstætt verö, áhvílandi 5,4. m.
hagstæö lán.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR -
NYTTNýleg falleg íbúö meö vönduðum
haröviöarinnréttingum og bílskýli. Verð 8,5
m. Áhv. 1,6 m.
ENGIHJALLISérlega glæsileg 80 fm
útsýnisíbúð. Lækkaö verö. Áhv. 1,3 m.
Laus strax.
MELÁS - GBÆGIæsileg 3ja herbergja
90 fm neðri sérhæð ásamt bílskúr í tvíbýli.
Falleg lóö. Áhv. 4,2 m.
2ja herb.
FURUGRUND - NYTTSérlega falleg
55 fm íbúö á annarri hæö i litlu fjölbýli.
Verö 4,9 m. Áhv. 1,0 m. Laus strax.
Lyklar á skrifstofunni.
AUSTURBRÚN50 fm mjög falleg
útsýnisíbúö á þessum vinsæla staö. M
Verö 4,9 m.
ÞANGBAKKISérlega falleg 63 fm íbúö
á 3ju hæð í góöu lyftuhúsi. Snyrtileg
sameign. Verö 5,4 m. Laus strax.
Einbýli - raöhús
VIÐ SUNDIN - 2 IB.Mjög vandað
nýlegt hús 300 fm alls með góöri
aukaíbúö á jaröhæö og bílskúr. Ákveöin
sala. Hagstætt verö. Skipti á minna.
GRETTISGATAViröulegt gamalt tim-
burhús, 105 fm. á einni hæö. Réttur til aö
hækka húsiö. Hagstætt verö, Áhv. 3,4
m. byggsj.
ENGJATEIGURStórglæsileg og
stílhrein lúxuxíbúð ca 122 fm Eign I
algjörum sérflokki fyrir vandláta.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
VESTURGATANýleg, 175 fm
útsýnisíbúð á tveim hæöum. Tvennar
svalir. Lækkaö verö 9,9 m. Áhv. 5,5 m.
byggsj.
4ra herb. og stærri
KAPLASKJOLSVEGURGóö 75 fm
DVERGABAKKI - NÝTTSérlega fall- efri hæö I þríbýli við Vlðimel. Skjólgóöur
eg, björt og mikið endurnýjuð 105 fm. íbúö garður. Verö 6,6 m.
á annarri hæð. Verö 7,3 m. Áhv 2,7 m.
Nýbyggingar
FIFULINDMjög glæsilegar og vandaðar
3ja, og 4-5 herb. íbúöir fullfrágengnar
með innréttingum, án gólfefna, til
afhendingar nú þegar. Hagstætt verö.
Frekari upplýsingar og teikningar á
skrifstofunnl.
LAUTARSMÁRlGlæsilegar 2ja herb.
60 fm. og 3ja herb. 81 fm. íbúöir til
afhendingar strax. Verö frá 5,6 m. Nánari
upplýsingar og teikningar á skrifstofun-
ni.
BAKKASMÁRI -FOKHELT-Vel
staðsett parhús um 200 fm. ásamt bilskur
til afhendingar strax. Frábært útsýni.
Hagstætt verö. Teikningar á skrifsto-
funni.
DOFRABORGIRFokhelt 150 fm ein-
býlishús meö 28 fm bílskúr. Hagstætt
verö. Teikningar á skrifstofunni.