Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Blaðsíða 34
V
42
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1997
Fólk í fréttum
Gústaf Bjarnason
Gústaf Bjamason, landsliðsmað-
ur í handknattleik og liðsmaður
Hauka í Hafnarfirði, Ásbúðcirtröð 9,
Hafnarfirði, skoraði tuttugu og eitt
mark í einum og sama landsleik Is-
lendinga og Kínverja á fimmtudags-
kvöldið. Þar með setti hann marka-
met hjá íslenska landsliðinu og
bætti sautján marka met Hermanns
Gunnarssonar frá 1966.
Starfsferill
Gústaf fæddist í Vestmannaeyjum
16.3. 1970, ólst upp i Reykjavík til
fjögurra ára aldurs, í Grindavik
næstu tvö árin og á Selfossi frá 1977.
Hann hóf ungur að stunda íþróttir á
Selfossi og keppti í handknattleik,
knattspymu, frjálsum íþróttum og
sundi. Gústaf lék með meistara-
flokki Selfoss í handknattleik frá
sautján ára aldri en hefur leikið
með meistaraflokki Hauka i Hafnar-
firði frá 1994 og er því nýbakaður
bikarmeistari með liðinu. Hann hef-
ur leikið sextíu leiki með íslenska
landsliðinu frá 1991 og tekið þátt í
tveimur heimsmeistaramótum og
einu ólympíumóti.
Gústaf Bjarnason.
Gústaf stundaði nám
við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands, við Iðnskólann í
Reykjavík og lærði múr-
verk hjá G-Verk á Sel-
fossi. Hann hefur starfað
við félagsmiðstöðina Vit-
ann í Hafnarfirði frá
1994.
Fjölskylda
Kona Gústafs er Hild-
ur Loftsdóttir, f. 5.1.1974,
húsmóðir. Hún er dóttir
Lofts Gunnarssonar, rafvirkja hjá
ísal, sem er búsettur í Hafnarfirði,
og k.h., Erlendsínu Helgadóttm-,
húsmóður og matráðskonu við
Flensborgarskólann.
Sonur Gústafs og Hildar er Daní-
el ísak, f. 20.3. 1996.
Systkini Gústafs em Guðbjörg, f.
14.6. 1966, húsmóðir á Selfossi; Sig-
urjón, f. 13.8. 1967, sölustjóri hjá
S.G. á Selfossi; Hulda, f. 11.4. 1973,
nemi við KHÍ.
Foreldrar Gústafs em Bjarni Sig-
urjónsson, f. 27.8.1945, sendibílstjóri
f Reykjavík, og María Gústafsdóttir,
f. 11.9. 1948, fulltrúi hjá
bifreiðadeild Pósts og
síma, búsett í Hafnarfirði.
Ætt
Bjarni er sonur Sigurjóns,
fangavarðar á Eyrar-
bakka, Bjamasonar, sjó-
manns í Hafnarfirði, bróð-
ur Benjamíns hagfræð-
ings, Sigríðar Sæland ljós-
móður og Bjöms, föður
Guðlaugar, kaupkonu í
Hafnarflrði. Bjami var
sonur Eiríks á Halldórsstöðum á
Vatnsleysuströnd og Sjónarhóli í
Hafnarfirði, Jónssonar, sjómanns í
Reykjavík, Teitssonar. Móðir Eiríks
var Vilborg Eiriksdóttir, b. á Húsa-
tóftum á Skeiðum. Móðir Bjarna
var Sólveig Benjamínsdóttir, b. á
Hróbjargarstöðum í Hítardal, Jóns-
sonar, og Katrínar Markúsdóttur, b.
á Þrándarstöðum í Kjós. Móðir Sig-
urjóns var Sigríður Jónsdóttir.
Móðir Bjarna er Guðbjörg Eiríks-
dóttir, trésmiðs á Eyrarbakka, bróð-
ur Ástgeirs, afa Guðna Ágústssonar
alþm. Eiríkur var sonur Gísla, b. í
Bitru í Flóa, bróður Guðrúnar,
ömmu Vilhjálms frá Skáholti. Gísli
var sonur Guðmundar, b. á Löngu-
mýri, Ambjömssonar, bróður Ög-
mundar, foður Salvarar, langömmu
Tómasar Guðmundssonar. Móðir
Eiríks vair Ingveldur Eiríksdóttir.
Móðir Guðbjargar var Guðrún, syst-
ir Kristjóns, afa Braga Kristjónsson-
ar bóksala og Jóhönnu rithöfundar,
móður rithöfundanna Illuga, Hrafns
og Elísabetar, Jökulsbama. Guðrún
var dóttir Ásmundar, b. á Apavatni,
EiríkssonEir, b. á Gjábakka, bróður
Jóns, langafa Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta. Eiríkur var sonur
Gríms, ættföður Nesjavallaættar-
innar, Þorleifssonar. Móðir Ás-
mundar var Guðrún Ásmundsdótt-
ir, b. á Vallá, Þórhallssonar, og
Helgu Alexíusdóttur, b. á Fremra-
Hálsi, Alexíussonar. Móðir Helgu
var Helga Jónsdóttir, ættföður
Fremra-Hálsættarinnar, Ámasonar.
María er dóttir Gústafs, sjómanns
í Vestmannaeyjum, Runólfsonar, og
Huldu Hallgrímsdóttur frá Seyðis-
firði.
Afmæli
Agnes Kragh
Agnes Kragh húsmóðir, Seljahlíð,
Hjallaseli 55, Reykjavík, er níræð í
dag.
Starfsferill
Agnes fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún var í Landakotsskóla
og stundaði siðan nám við Kvenna-
skólann í Reykjavík. Hún lærði hár-
greiðslu og snyrtingu og vann við
það fram að giftingu er húsmóður-
störfin tóku við.
Agnes er systir í Oddfellow-regl-
unni. Hún hefur starfað í Sinawik
og starfað með Rauða krossinum í
tuttugu ár.
Fjölskylda
Agnes giftist 6.6.1936 Júlíusi Páls-
syni, f. 3.10. 1903, d. 15.8. 1982, sím-
virkjameistara. Júlíus var sonur
Páls Gislasonar í Kaupangi og Stef-
aníu Guðmundsdóttur.
Böm Agnesar og Júliusar em
Hanna Fríða Kragh, f. 2.4. 1933, hús-
móðir i Reykjavík, í sambúð með
Sveini Jónssyni, og á hún tvo syni
frá fyrrv. hjónabandi; Páll Júlíus-
son, f. 20.9. 1936, verslunarmaður í
Reykjavík, í sambúð með Mai
Wongphoothon og eiga þau tvö börn
auk þess sem Páll á tvö börn frá
fyrrv. hjónabandi; Hans Kragh Júlí-
usson, f. 13.1. 1938, rafeindavirki og
forstjóri Radíóbæjar, kvæntur Guð-
rúnu Alfonsdóttur framkvæmda-
stjóra og eiga þau tvær dætur.
Systkini Agnesar: Hans Kragh, f.
24.12. 1908, d. 1978, símamaður í
Reykjavík og þekktur knattspyrnu-
maður á sínum yngri árum, var
kvæntur Hólmfríði Ólafsdóttur;
Sveinn Kragh, f. 11.9. 1910, d. 1996,
lengst af vélstjóri hjá REifmagns-
veitu Reykjavíkur, var kvæntur Sig-
ríði Þorsteinsdóttur og era böm
þeirra tvö; Gunnar Kragh, f. 9.10.
1919, d. 1996, lengst af bifreiðastjóri
hjá Landsvirkjim, var
kvæntm Sigurlín Gunn-
arsdóttur.
Foreldrar Agnesar
voru Hans M. Kragh, f.
1.5. 1862, d. 1934, síma-
maður í Reykjavík, og
k.h., Kristólína Guð-
mundsdóttir Kragh, f.
27.6. 1883, d. 1973, hár-
greiðslumeistari Þjóðleik-
hússins og fyrsti hár-
greiðslumeistari hér á
landi.
Ætt
Hans M. Kragh var af dönskum
ættum.
Kristólína var dóttir Guðmundar,
verslunarmanns i Reykjavík, bróð-
m Auðbjargar, ömmu Gunnars
söngvara og Eggerts, forstjóra Mál-
arans Kristinssona. Guðmundur
var sonm Odds, b. í Hvammi í Holt-
um, Guðmundssonar.
Móðir Kristólínu var
Elín Árnadóttir, b. í Ár-
túnum, Magnússonar, b.
þar, bróður Guðríðar,
langömmu Eyjólfs lands-
höfðingja, langafa Guð-
laugs Tryggva KEirlsson-
ar hagfræðings. Magnús
var sonur Áma, prests í
Steinsholti, bróður Böðv-
ars, langafa Þorvalds,
föður Vigdísar forseta.
Annar bróðir Áma var
Stefán, langafi Árna,
langafa Björns Th. Björnssonar.
Þriðji bróðir Áma var Ögmundur,
afi Tómasar Sæmundssonar Fjölnis-
manns. Ámi var sonur Presta-
Högna, prests á Breiðabólsstað Sig-
urðssonar sem auk þess er forfaðir
Þorsteins Erlingssonar, Matthíasar
Johannessens og Gylfa Þ. Gíslason-
ar.
Agnes Kragh.
Til hamingju
með afmælið
7. apríl
Guðrún Pétursdóttir,
Snorrabraut 58, Reykjavík.
Esther Bjamadóttir,
Hvassaleiti 58, Reykjavik.
70 ára
Guörún Sigurðardóttir,
Sólvöllum 4 A, Stokkseyri.
Sigríðm Vilhjálmsdóttir,
Flyðragranda 16, Reykjavík.
Sólveig Guðmundsdóttir,
Lónabraut 11, Vopnafirði.
60 ára
Ásdis Berg Magnúsdóttir,
Sigtúni 15, Patreksfirði.
Kristinn Rafn Ragnarsson,
Garösenda 5, Reykjavík.
50 ára
Helga E. Gunnarsdóttir,
Fjarðarseli 14, Reykjavík.
Friðrik Ingvarsson,
Steinholti 2, Egilsstöðum.
Kristinn Benónýsson,
Hraunbæ 136, Reykjavík.
Jóhann Heiðar Guðjónsson,
Eiðsvallagötu 7 A, Akmeyri.
Kjartan Eðvarðsson,
Dvergholti 27, Hafiiarfirði.
40 ára
Guðfinna Steingrímsdóttir,
Litla-Hvammi II, Svalbarðs-
strandarhreppi.
Sigmðm Jón Björnsson,
Þingási 6, Reykjavík.
Jóhanna Lilja Einarsdóttir,
Jóruseli 11, Reykjavík.
Ásgeir Eiríksson,
Heimavöllum 13, Keflavík.
Hrefna Sigfúsdóttir,
Hlaðhömrum 42, Reykjavík.
Hjörleifur Þór Jakobsson,
Holtagerði 41, Kópavogi.
Anna Kristin Ólafsdóttir,
Aratúni 17, Garðabæ.
Hans Pétm Jónsson,
Þverási 11, Reykjavík.
Amheiðm E. Sigurðardóttir,
Hvassaleiti 95, Reykjavík.
Eiríkur Herlufsen,
Reykjavíkurvegi 22, Hafnar-
firði.
Vilhelm Þór Þórarinsson,
Bankastræti 9, Höfðahreppi.
Bryndis Guðrún Björgvins-
dóttir,
Nátthaga 3, Hólahreppi.
Erla Jóna Erlingsdóttir,
Smárarima 32, Reykjavík.
Eiríkur Guðmundsson,
Hofteigi 21, Reykjavík.
Fréttir
Hestaíþróttamót framhaldsskólanna:
Fjölbraut í Breið-
holti marði sigur
Hið árlega mót framhaldsskólanna var
haldið í Reiðhöllinni í Víðidal um helg-
ina. Fimmtán framhaldsskólar sendu
fulltrúa í keppni og var keppt í tölti, fjór-
gangi og fimmgangi. Hver skóli mátti
senda þrjá keppendur í hverja grein og
söfnuðu þeir stigum fyrir sinn skóla.
Auk þess að keppa að sameiginlegri
stigasöfnun skólanna kepptu stigahæstu
keppendumir í forkeppninni í sérstakri
úrslitakeppni sem fór fram það seint i
gærkveldi að ekki er mögulegt að til-
kynna úrslit í þesssiri frétt.
Keppni var jafnari en oft áður og mun-
aði ekki nema 0,8 stigi að lokum á sveit
Fjölbrautaskólans í Breiðholti, sem fékk
464,3 stig, og sveit Menntaskólans í
Hamrahlíð sem fékk 463,5 stig.
Sveit Fjölbrautaskólans á Suðumesj-
um var í þriðja sæti með 426,6 stig, sveit
Fjölbrautaskóla Suðurlands í fjórða sæti
með 422,8 stig og sveit Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki var í
fimmta sæti með 408,4 stig.
Sigursveit Fjölbrautaskólans í Breið-
holti var skipuð Guðmari Þ. Péturssyni,
Helgu S. Valgeirsdóttur, Elfu D. Jónsdótt-
ur og Sölva Sigurðarsyni. Auk þess að
sigra í samanlagðri stigasöfnun fékk
sveitin flest stig fyrir fimmgang, varð í
öðru sæti fyrir fjórgang og fjórða sæti
fyrir tölt.
Sveit Fjölbrautaskólans á Suðurlandi
fékk flest stig fyrir tölt og sveit Mennta-
skólans í Hamrahlíð flest stig fyrir fjór-
gang.
Ásta D. Bjamadóttir var stigahæsti
knapinn með 161,1 stig en hún keppti fyr-
ir Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Munur-
inn á henni og næststigahæsta keppand-
anum var einungis 0,1 stig en þar var á
ferðinni Sigríður Pjetursdóttir sem
keppti fyrir Menntaskólann í Hamrahlíð.
Guðmar Þ. Pétursson varð þriðji stiga-
hæsti keppandinn með 164,8 stig. E.J.
Ásta D. Bjarnadóttir var stigahæsti keppandinn í keppni fram-
haldsskólanna.