Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1997, Side 36
>
44
MÁNUDAGUR 7. APRÍL 1997
aÞJMaonn
Eins og að
eignast börn
„Þetta er spennandi og
ögrandi- verkefni sem fram und-
an eru. Mér finnst þetta eins og
aö vera að eignast þrjú ný börn.“
Þórarinn Jón Magnússon í DV
um nýju tímaritin.
Met í nútíð
„Ég vildi slá metið því mér
finns það eiga heima í nútið en
ekki í þátíð.“
Þorbjörn Jensson í Mbl. um
nýtt markamet Gústafs Bjarna-
sonar i landsleik.
Djöfulgangur
„Svona djöfulgangur er nei-
kvæður og getur þýtt að félags-
stjórnin hætti að vinna svona
opið eins og við höfum gert.“
Halldór Björnsson í Degi-Tím-
anum.
Ummæli
Vinnubrögð til vansa
„Við styðjum ekki þessi
vinnubrögð og teljum þau vera
ráðherranum til vansa.“
Rannveig Gudmundsdóttir í Al-
þýðublaðinu um starfsleyfi
umhverfisráðherra til álversins.
Ekki aðgerðalausir
„Við ætlum ekki að sitja að-
gerðalausir, ætlumst til að tekið
verið mark á okkur varðandi
veiðiráðgjöf. Við reynum að fara
af stað á friðsamlegum nóturn."
Grétar Már Jónsson í DV
Sumir víla þaö ekki fyrir sér aö
bíöa í röö.
Löng biðröð
Fátt finnst mörgum leiðin-
legra en að bíða í biðröð. Kevin
Melish (f. 2. ágúst 1948) fór í bið-
röð vegna teppaútsölu þar sem
boðin var meira en 86% verð-
lækkun. Hann stóð í biðröð í 20
daga utan við Arding and Hobbs
í Clapham í London, frá 7. til 27.
desember 1986.
Blessuð veröldin
Stærsta gjaldþrot
Rahjendra Sethia (f. 1950) var
handtekinn í Nýju-Delih 2. mars
1985 og ákærður fyrir glæpsam-
legt samsæri og falsanir, auk
annars. Undirréttur í London
hafði lýst hann gjaldþrota 18.
janúar 1985 þegar ljóst var að
Esal Commodities skuldaði
hvorki meira né minna en 170
milljónum punda. Einkaskuldir
hans voru taldar nema 140 millj-
ónum punda. William G. Stem
(f. i Ungverjalandi 1936), sem bú-
settur er í Golders Green í norð-
urhluta London en hefur verið
bandarískur rikisborgari síðan
1957, stofnaði fésýslufyrirtækið
Wilstar Group Holding Co í
London 1971. Fyrirtækið var lýst
gjaldþrota í febrúar 1979 og
námu skuldir þess þá 104.390.248
pundum. Sú upphæð reyndist
vera hærri og var hún komin í
142.978.413 pund í febrúar 1983.
Stern var látinn laus 28. mars
1983 gegn 500.000 punda greiðslu
sem innt skyldi af hendi innan
tveggja og hálfs árs.
Kaldi eða stinningskaldi
990 mb lægð um 500 km vestur af
Reykjanesi þokast austnorðaustur.
Önnur lægð er nokkuð djúpt suð-
vestur af landinu, hreyfist í norð-
austurátt.
Veðrið í dag
í kvöld verður suðlæg átt á iand-
inu, víðast kaldi eða stinningskaldi
og hiti 2-6 stig. Um landið norðan
og norðaustanvert rofar til en gera
má ráð fyrir rigningu annað slagið
sunnanlands og vestan, einkum þó
seint í nótt og fyrramálið.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustankaldi eða stinningskaldi
og rigning annað slagið, einkum þó
í fyrramálið, hiti 3-6 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.37
Sólarupprás á morgun: 06.21
Síðdegisflóð 1 Reykjavík: 18.31
Árdegisflóð á morgun: 06.52
Veórið kl. 12 á hádegi í gœr:
Akureyri slydduél 0
Akurnes slydda 2
Bergstaöir úrkoma í grennd 0
Bolungarvík snjókoma 1
Egilsstaöir alskýjaó 1
Keflavíkurflugv. rigning og súld 4
Kirkjubkl. rigning 2
Raufarhöfn skafrenningur -1
Reykjavík skýjaó 2
Stórhöföi skýjað 4
Helsinki snjóél 0
Kaupmannah. léttskýjaö 5
Ósló léttskýjaö 6
Stokkhólmur snjóél á síó. klst. 2
Þórshöfn alskýjaó 3
Amsterdam léttskýjaö 9
Barcelona heiöskírt 20
Chicago léttskýjaö 13
Frankfurt léttskýjaó 4
Glasgow alskýjaö 10
Hamborg léttskýjaó 6
London skýjaó 12
Lúxemborg léttskýjaó 7
Malaga léttskýjað 20
Mallorca léttskýjaö 21
Paris léttskýjað 14
Róm þokumóöa 15
New York alskýjaö 12
Orlando heiöskírt 18
Nuuk snjókoma -10
Vín snjóél á síö. klst. 5
Washington alskýjaö 12
Formaður körfuknattleiksdeildar Grindavikur:
Stelpurnar sprungu út
DV, Suðurnesjum:
„Stelpunum hefur verið tekið
sem hetjum hér í bænum. Þær
komu stórkostlega á óvart og ekki
bara þeim sjálfum heldur allri þjóð-
inni. Þær áttu þetta svo sannarlega
skilið og þær hreinlega sprungu út
i úrslitakeppninni," sagöi Margeir
Guðmundsson, formaöur körfu-
knattleiksdeildar Grindavíkur, en
á skírdag varð kvennalið Grinda-
víkur í fyrsta skipti í sögu félagsins
íslandsmeistari í körfuknattleik.
Liðið lagði tvö stórlið af velli, fyrst
Keflavík og síðan KR í úr-
slitarimmu.
Maður dagsins
„Það voru flestir á því að þær
myndu ekki hafa það af að leggja
Keflavík að velli í undanúrslitum.
En þær sýndu hvers þær eru megn-
ugar og eftir sigur á Keflavík í
fyrsta leik fengu þær meira sjálfs-
traust. Það eru mjög ungar og góð-
ar stelpur í liðinu og ef þær halda
áfram eiga þær svo sannarlega
glæsilega framtíð fyrir sér. Þær
hafa fengið frábær viöbrögð og eft-
ir sigurinn er fullt af fyrirtækjum
sem vill auglýsa á búningum
Margeir Guömundsson.
DV-mynd ÆMK
þeirra. Þá margfaldaðist áhorf-
endafjöldinn hjá þeim og stemning-
in var eins og hjá strákunum í
fyrra í úrslitunum. Því er það eng-
in spurning að stúlkurnar eru á
hraðri uppleið."
En hvaða þýðingu hefur íslands-
meistaratitillinn á kvennakörfuna
í Grindavik? „Það verður miklu
meira vandað til kvennaboltans en
hefur verið. Því miður hefur hann
fengið að sitja á hakanum og það
vildu margir leggja kvennakörfuna
niður hér í Grindavík fyrir einum
3 árum.“
En það má segja að Margeir sé
lukkunnar pamfíll í kringum
körfuboltann. Hann var einnig for-
maður í fyrra en þá urðu Grindvík-
ingar íslandsmeistarar í fyrsta
skipti i sögu félagsins í karlaflokki.
„Þetta er búið að vera frábær tími
og skemmtilegur. Það er alveg ólýs-
anlegt hvað þetta er gaman og ekki
hægt að lýsa þvi í orðum. Þá er
stjómin orðin miklu virkari og við
höfum frábæran gjaldkera, Ottó
Hafliðason, og það er mikið starf
sem fer í gegnum hann".
Margeir segir að skiðin hafi átt
hug hans fyrir körfuboltann og
hann hafi áhuga á öllum iþróttum
og útiveru sem tengist fjölskyld-
unni. Á sumrin segir hann fjöl-
skylduna fara saman í útilegu.
Margeir vinnur hjá trésmíðafyr-
irtækinu Grindinni í Grindavík.
Eiginkona hans er Marisa Sigrún
Sicat og eiga þau tvö börn saman,
Dínu Maríu, 8 ára, og Stefaníu Ósk,
5 ára. Marisa átti 19 ára tví-
burastelpur fyrir, önnur býr í
Keflavík en hin er í skóla í Banda-
ríkjunum. -ÆMK
Myndgátan
Fær greinagóðar upplýsingar
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi.
Portmynd-
ir á Lauga-
vegi.
Á laugardaginn hófst mynd-
listarsýningin Portmyndir við
Laugaveg og Bankastræti. Mark-
mið sýningarinnar er að fara út
úr hefðbundnum sýningarsölum
og tengja listina annríki dagsins.
Tólf myndlistarmenn taka þátt í
sýningunni. Uppistaðan í hópn-
um eru myndlistarmenn sem
hafa verið virkir á þessum vett-
vangi sl. tíu ár. Margir hverjir
hafa hlotið viðurkenningu fyrir
Sýningar
verk sín, notið styrkja frá ríki og
borg og eiga verk á opinberum
söfnum. Þátttakendur eru: Alda
Sigurðardóttir, Arnfinnur Ein-
arsson, Ásta Ólafsdóttir, Elsa D.
Gísladóttir, Eygló Harðardóttir,
Hlynur Helgason, Kristbergur Ó.
Pétursson, Kristín Reynisdóttir,
Magnús S. Guðmundsson, Pétur
Örn Friðriksson, Ragnhildur
Stefánsdóttir og Þóra Sigurð-
ardóttir. Fólk fær leiðarkort um
sýninguna í verslunum við
Laugaveginn.
Bridge
Síðasta umferðin í Landsbanka-
mótinu var æsispennandi og athygli
allra áhorfenda beindist að viður-
eign Antons Haraldssonar og Lands-
bréfa, tveggja efstu sveitanna. Fyrir
lokaumferðina hafði sveit Antons
152 stig en sveit Landsbréfa 150 stig.
Ljóst var því að jafntefli nægði sveit
Antons en 16-14 sigur hefði nægt
sveit Landsbréfa. Reglugerð mótsins
kvað svo um að ef sveitir enduðu
jafnar að stigum myndi innbyrðis
viðureign ráða um sætaskipan á
milli þeirra. Sveit Antons hafði
frumkvæðið í leik sveitanna og náði
á tímabili 21 impa forystu. En sveit
Landsbréfa saxaði jafnt og þétt á
þann mun í lokin og þegar 2 spil
voru eftir í samanburðinum munaði
aðeins einum impa, Antoni í hag.
Bæði spilin, sem eftir voru, virtust
vænleg fyrir Anton. Annað spilið
var 3 grönd, sögð og unnin á 24
punkta. Sveit Landsbréfa spilaði
hins vegar 4 spaða og vann þá og
græddi því 1 impa á því spili. í síð-
asta spilinu höfðu Steinar Jónsson
og Jónas P. Erlingsson látið staðar
numið í 3 hjörtum.
♦ KD97
» 983
G843
* K8
é Á432
» KG105
♦ Á6
* 742
é G106
» 74
♦ 975
* ÁDG65
Vörnin tók 4 slagi í þessum samn-
ingi. í lok leiksins bárust þau tíð-
indi að spiluð hefðu verið 4 hjörtu í
lokuðum sal og vörnin gaf ekki færi
á sér. Spilið fór 1 niður, sveit Ant-
ons græddi 5 impa á spilinu og þar
með leikinn 16-14.
ísak Örn Sigurðsson
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752