Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1997, Page 1
14. MAÍ 1997 i / \ áflfeik Eins og jafnan meö vori ríkir mikil eftirvænting meðal knattspyrnuáhugamanna varöandi þá leiktíö sem senn hefst. Undanfarna mánuði hafa íslenskir knatt- spyrnumenn undirbúið sig af kostgæfni fyrír komandi átök og vonandi verður boðið upp á skemmtilega knattspyrnu í sumar. Eins og áður kynnir DV liðin sem leika í efstu deildum á íslandsmóti karla, tíu talsins. Birtar eru myndir af öllum leikmönnum liöanna, grelnt frá leikjaQölda þeirra í l.deildinni og skoruðum mörkum á sama vettvangi. Þá geta knatt- spyrnuáhugamenn séð breytingar sem orðið hafa á skipan liðanna frá í fyrra. Þjálfarar lið- anna eru kynntlr og spáð er í gengi liöanna í sumar. Þá fylgir leikjatafla með umsögn um hvert lið og árangur hvers liðs á íslandsmótinu frá 1985 fylgir með á línuriti. Þá er einnig í þessu auka- blaðl spáð í spilin fyrír komandl vertíð í knatt- spyrnu kvenna og leikmenn kynntir. Kynninguna að þessu sinni unnu íþróttafrétta- menn DV, Guðmundur Hilmarsson, Jón Kristján Sigurðsson, Stefán Kristjánsson og Víðir Sig- urðsson. Ingibjörg Hinriksdóttir vann kynning- una varöandi kvennaknattspyrnuna. Myndirnar tóku þelr Brynjar Gautl Sveinsson, Hllmar Þór Guðmundsson, Þorvaldur Örn Kristmundsson, Einar Pálsson, Einar Ólason, Þorsteinn Gunnars- son og Ægir Már Kárason. ,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.