Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1997, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 4. JÚLl 1997
* « « *
helgina______
Hátíðarvika
á Selfossi
Mikið verður um að vera á Sel-
fossi í næstu viku en um þessar
mundir er þess minnst að fimmtíu
ár eru liðin frá því að Selfosshrepp-
ur varð til. Á morgun hefst sérstök
hátíðarvika Selfossbyggðar og í til-
efni af henni verður ýmislegt á
seyði í bænum. í Tryggvagarði verð-
ur Brúðubíllinn með leiksýningar
og mikið verður um alls kyns uppá-
komur fyrir bömin, þar á meðal
leiktæki, andlitsmálun og
trampólín, auk þess sem rafmagns-
bílar verða á sundhallarsvæðinu.
Þá verður Listasafn Selfyssinga í
samstarfi við Listasafn íslands með
sýninguna í ljósi landsins þar sem
sýnd verða verk eftir einn helsta
meistara íslenskrar myndlistar, Ás-
grím Jónsson. Hátíðarvikan nær
hápunkti laugardaginn 12. júli en þá
heimsækir forseti íslands Selfoss.
Stykkishólmur:
JSýning á verkum
Islandsvinarins R.
Weissauers í Norska húsinu
DV, Vesturlandi:_________________________
„í Norska húsinu er nú sýning á
myndverkum þýska íslandsvinarins
R. Weissauers sem lést fyrir
nokkmm árum. Amtsbókasafnið í
Stykkishólmi á um tvö hundmð
verk eftir hann og hér er sýnt örlít-
ið brot sem Bragi Ásgeirsson list-
málari aðstoðaði okkur viö að velja
og setja upp. Aðrar sýningar í
Norska húsinu tengjast ýmsum af-
mælum, til dæmis fagnar Amts-
bókasafnið 150 ára afmæli sínu en
það hóf einmitt göngu sína í Norska
húsinu. Þá er sögusýning í tilefni 75
ára afmælis HSH (sem eru samtök
ungmennafélaganna hér á nesinu)
og Bamastúkan Björk heldur upp á
70 ára afmæli sitt seinna á árinu og
við höfum sett upp nokkra þætti
sem tengjast henni. Stóra afmælið
er þó eftir en það er 400 ára verslun-
arafmæli Stykkishólmsbæjar og
opnuðum við safnbúð á fyrstu hæð
af því tilefni,“ sagði Sigrún Ásta
Jónsdóttir, safnvörður hjá Byggða-
safni Snæfellinga og Hnappdæla, í
samtali við DV. -DVÓ
Hljómsveitin Taktmælar:
Ljúfir tónieikar
og létt stemning
I dag klukkan 16 verður hljóm-
sveitin Taktmælar með ljúfa tón-
leika í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, þar sem leikin verður
nýmóðins tónlist í léttari dúmum.
Hljómsveitina skipa Kristján Eld-
jám, Róbert Þórhallsson og Jóhann
Hjörleifsson. Á meðan á tónleikun-
um stendur verður boðið upp á lím-
onaði. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Sálin
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns hefur sumaryfirreið sína um
landið með tónleikum í Ýdölum í Að-
aldal annað kvöld. Lítið hefur farið
fyrir hljómsveitinni rnn skeið og
ættu þessar fréttir að vera aðdáend-
um hljómsveitarinnar nokkurt til-
hlökkunarefni. „Þetta er fyrsta tón-
leikaröð okkar í langan tíma,“ segir
Stefán Hilmarsson, söngvari hljóm-
sveitarinnar, um tónleikana þrettán
sem hljómsveitin hyggst koma fram
á i sumar. „Við vorum að vísu að
spila pínulítið í fyrrasumar og um
jólin en það var ekki nema í
mýflugumynd. Þannig er nefnilega
mál með vexti að tveir okkar, þeir
Guðmundur Jónsson og Atli Örvars-
son, búa í útlöndum og hefúr þannig
ekki verið hægt um vik að koma
saman til tónleikahalds. Tækifærin
til aö spila hafa helst gefist þegar
þessir menn vitja ættjarðarinnar og
þá höfum við slegið upp í tónleika.
Við enun því að spila í orlofum, ef
svo má að orði komast."
Eitthvað verður af nýju efni á tón-
leikunum en hljómsveitin er einmitt
nýkomin úr hljóðveri. „Okkur fannst
eiginlega ekki stætt á því að vera
spila mikið án þess að vera með eitt-
hvað nýtt. Upphaflega ætluðum við
okkur að gera breiðskífu en þvi mið-
Laugardagskvöld í
saman
ur vannst ekki tími til þess þannig
að við létum okkur nægja að taka
upp 3 ný lög á safhplötu sem kemur
út innan skamms. Við verðum því
ekki bara að spila gömlu hundana á
þessum tónleikum okkar í sumar."
Stefán segir nýju lögin sverja sig í
ætt við fyrri lög Sálarinnar, tónlistin
sé sem fyrr poppuð og melódísk og
hljómsveitin haldi nokkurn veginn
sinu striki. Aðspurður um það hvort
ný plata sé á leiðinni segir Stefán:
„Svo vill nú til að hljómsveitin held-
ur upp á 10 ára starfsafmæli sitt á
næsta ári og við höfum hugsað okk-
áný
ur að taka orlof þá, hvort sem það
verður til þess að taka upp nýja
breiðskífu eða ný lög á safnplötu. En
við blásum að minnsta kosti í ein-
hverja lúðra á næsta ári.“
Sem fyrr sagði hefjast tónleikar
Sálarinnar í Ýdölum á miðnætti ann-
að kvöld. Hljómsveitin Innvortis frá
Húsavík hitar upp fyrir tónleikana
en sú hljómsveit var nýlega kosin
eftirtektirverðasta hljómsveit Mús-
iktilrauna 1997. Sætaferðir verða á
tónleikana frá Umferðarmiðstöðinni
á Akureyri. -kbb
Gallerí Listakot:
Síðasta sýningarhelgi
Nú um helgina er síðasta sýning-
arhelgi á verkum 12 listakvenna í
Gallerí Listakoti. Sýningin ber yfir-
skriftina Menjar og er minjagripa-
sýning. Listakonumar 12 hafa unn-
ið að þróun þessa verkefnis í eitt ár
og nú eru fyrstu eintökin af grip-
unum komin á markað. Á sýning-
unni eru verk unnin í leir, textíl,
grafik, gler, bein og pappír. Lista-
konumar fást við hinar ýmsu grein-
ar myndlistar.
Á sýningunni ber fyrir augu alls
kyns íslensk dýr, vikinga, landslag,
myndir unnar upp úr gömlum
mynstrum og fleira. Gripimir em
flestir smáir og í hentugum umbúð-
um fyrir ferðalanga.
Sýningunni lýkur þriðjudaginn 8.
júlí. Þangað til verður hún opin frá
klukkan 10 til 16 á laugardaginn og
frá 14-16 á sunnudaginn. Á mánu-
dag verður sýningin opin frá 10 til
18.
©
Kryddolía á nautakjöt
2 1/2 dl sojaolía
2 1/2 dl olífuolía
2 msk. þurrkaöur McCormlck
chlll plpar
1 msk. McCormlck papiikuduft
2 stk. lárvlðariauf, grófmullö
1 stk. ferskur engifer
2 stk. hvítlauksgelrar,
grófsaxaölr
Það var kátt á hjalla hjá „Kanarí-
eyjaflökkurum" í fyrra.
Kanaríeyjaflakk
arar hittast
„Kanaríeyjaflakkarar" standa
fyrir sumargleði helgina 4 - 6.júlí í
og við félagsheimilið og bændagist-
inguna hjá Lýsuhóli á Snæfellsnesi.
„Flakkaramir" vom með sams kon-
ar mannfagnaö í fyrra og sökum
þess hversu vel tókst til hefur verið
ákveðið að endurtaka leikinn. Farið
verður í skoðunarferð í rútu undir
leiðsögn Skúla Alexanderssonar. Þá
ætla menn að grilla saman og dansa
við undirleik harmóniku.
Óperukjallarinn:
Raggi Bjama og
Milljónamæringarnir
Milljónamæringamir verða með dansleik í Óperukjallaranum í helgina.
Sérstakur gestur Milljónamæringanna verður hinn góðkunni söngvari,
Ragnar Bjamason.