Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1997, Blaðsíða 11
33^"* FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
«#n//sf25
Ný plata The Prodigy, The Fat of the Land, kom út á mánudaginn.
1. sæti í l.skipti
Firestarter kom út snemma á síð-
asta ári og fór beint á toppinn á
breska vinsældalistanum þar sem
hún trónaði í þrjár vikur. Það var í
fyrsta skipti sem The Prodigy komst
með lag á topp breska vinsældalist-
ans. Af smáskifunni hafa selst rúm-
lega 1500 eintök hér á landi.
I nóvember kom lagið Breathe
síðan út á smáskífu og fór einnig
beint í fyrsta sæti í Bretlandi. Smá-
skífan varð fyrsta platínusmáskífa
Prodigy-manna og hefur selst i rúm-
lega 600.000 eintökum i Bretlandi,
en um 3000 eintökum hérlendis sem
þykir nánast ótrúleg sala á smá-
skífu.
Meðal aðstoðarmanna á nýju plöt-
unni eru Jim Davies, SafEron, söng-
konan Skin og Crispian Mills úr
Kula Shaker. Lögin á nýju plötunni
eru 10 talsins og heita: Smack My
Bitch up, Breathe, Diesel Power,
Funky Shit, Serial Thriila, Mind-
fields, Narayan (samið með C.Mills),
Firestarter, Climbatze og Fuel My
Fire. Titlar laganna gefa vonandi
einhverja innsýn í umfjöllunarefni
plötunnar, þó textarnir séu hvorki
ýkja langir né flóknir.
Geggjaðir
Pönkaraímynd þessarar dans-
hljómsveitar nær ekki aðeins í
gegnum myndbönd hennar og tón-
list heldur hefur sviðsframkoman
vakið heimsathygli, jafnvel
hræðslu, stundum undrun en aðal-
atriðið er að tónleikagestir fá aldrei
tækifæri til að slaka á, adrenalínið
sem pumpast út í líkamann er á við
„kikkið“ sem viðavangshlauparinn
fær úr fjöri sinna fótleggja.
Ef við leggjum alla þessa þætti
saman má vel búast við að The Fat
of the Land verði ein söluhæsta er-
lendan platan hérlendis á þessu ári.
Ef hljómsveitin síðan lætur sjá sig
(þ.e. heldur héma tónleika) er það
hreint út sagt öruggt mál - og hér
talar undirritaður af reynslu.
-GBG
Almenningur hefur nú beðið eftir
væntanlegri plötu The Prodigy í
heilt ár eða allt frá því að hljóm-
sveitin tróð upp í Laugardalshöll-
inni í fyrra. í viðtali sem undirritað-
ur tók við þessa vinsælu danshljóm-
sveit fyrir tónleikana i fyrra var
nýrri plötu lofað í júni á síðasta ári,
loforð sem er efnt fyrst núna.
Fita landsins
Nýja platan með þessari gífurlega
vinsælu danshljómsveit kom í versl-
anir á mánudaginn og ber nafnið
The Fat of the Land. Sérstaða nýju
plötunnar er sú mikla eftirvænting
sem hefur byggst upp meðal al-
mennings og hef ég það eftir áreið-
anlegum heimildum að 6000 eintök-
um af plötunni hafi verið dreift
strax á mánudaginn. Miðað við upp-
byggða spennu er ekki ólíklegt að
þessi 6000 eintök klárist á mjög
skömmum tíma.
The Prodigy em Liam Howlett,
aðallagasmiður sveitarinnar, rapp-
arinn Maxim Reality, dans£U-inn
Leeroy Thornhill og dansarinn
geggjaði sem varð nýlega söngvari
Keith Flint en út á við er hann
nokkurs konar andlit hljómsveitar-
innar. The Prodigy hefur aðeins gef-
ið út 3 plötur að þessari meðtalinni
og hafa tvær fyrri plötur sveitarinn-
ar hlotið lof gagnrýnenda hvaðaæva
úr heiminum. Fyrri plöturnar tvær
heita The Experience og Music for
the Jilted Generation.
Pönkímynd
Ein helsta breytingin frá fyrri
plötum The Prodigy er söngurinn
sem kemur nú fram í fleiri lögum
en áður enda er það pönkímynd
þessarar danssveitar sem hefur fært
hana talsvert frá öðrum í þessum
geira og gert hljómsveitin að stærra
númeri meðal almennings. The
Prodigy hefur víkkað út sjóndeild-
arhring dansunnenda og laðað að
rokkunnendur með síðustu tveim
smáskífum sínum.
«
iWMMiMiMMiimMiiiiiitiiiiiiiaaoii8i8ttaffl888Mm<»!KWítaasaMa88m38888í8iaaaffli88iMia8^jwmmM^m>MMW88a8a8amiinM|Wi|i^^>BiB^^
Um helgina
Reggae on lce
Fyrsta helgin í júlí er fram und-
an. Fólk flykkist út úr bænum og
vonandi mun sólin miskunna sig
i yfir okkur og rigningin bíða betri
tíma. Þeir sem treysta ekki á mis-
kunn „íslensku" sólarinnar geta
brugöið sér til Mallorca en þar
| mun Reggae on Ice halda uppi
geðveiku stuði alla helgina.
Hljómsveitin spUar á nýjasta
sveitaballastað íslendinga, hótel-
inu Palma Nova. Ekkert aldurs-
takmark og frítt inn fyrir alla.
Sóldögg í Sjallanum
Það er aUtaf stuð á Akureyri og
í kvöld verður jafnvel meira stuð
en „alltai'*. Hljómsveitin Sóldögg
spUar í SjaUanum á Akureyri og
hef ég loforð hljómsveitarmeð-
lima fyrir því að þeir ætli að
frumflytja nýtt frumsamið lag.
SÍN á Pollinum
Hljómsveitin SlN leikur á veit-
ingahúsinu „Við Pollinn" á Akur-
eyri um helgina. Ljúfur matur og
góð tónlist, væri ekki tUvalið að
skeUa sér norður?
Hunang á Selfossi
Annað kvöld verður stórdans-
leikur í veitingahúsinu Inghóli á
Selfossi þar sem hin bráðhressa
hljómsveit, Hunang, heldur uppi
stuðinu. Hápunktur kvöldsins
verður kynning á þeim 12 stúlk-
um sem bítast um titilinn sumar-
stúlka Suðurlands.
Kolrassa krókríðandi
Kolrassa krókríðandi er með
rótgrónari hljómsveitum í ís-
lensku tónlistarlífi. Á föstudaginn
heldur hljómsveitin síðdegistón-
leika á Ingólfstorgi og hefjast þeir
klukkan fimm.
Tónleikarnir eru liður í síðdeg-
istónleikaröð Hins hússins og
verða tónleikar á dagskrá á hverj-
um föstudegi út júlí.
Hunang, heldur uppi stuöinu
á Selfossi annaö kvöld
t
r
í
i
t