Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1997, Síða 6
2» jffri helgina
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997 T^V
FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1997
helgina
VEIHNGASIftDIR
A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1693. Opiö 11.30-22.30 alla daga.
Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
17.30- 23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
Á næstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
v.d., 18-22 sd. og lokað Id.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
Op. 18-22 md.- fid. og 18-23 fod.-sd.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
og sd. frá 16-21.
Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
Hótel Loftleiðir Reykjavikurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„
12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d.,
Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
11.30- 23.30.
Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Móvur
Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45
fd„ ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
17.30- 23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
11- 03 fd. og Id.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d., 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d.,
12- 14 og 18-03 fd. og ld.
Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
Op. 18-23.30 v.d., 18-24.30 fd. og ld.
Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
I. 00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d.,
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn bjá Eika Fákafeni 9,
s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
II. 30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
11.30- 23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Tbmplarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
562 1934. Opið fid.- sud., kaffist. kl.
14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
7200. Opið 15-23.30.v.d„ 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjó Úlfari Baldurs-
götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
Sumartónleikar í Skálholti:
Nýtt íslenskt verk frumflutt
Sönghópurinn Voces Thules. Myndin er tekin á æfingu í Háskólabíói.
Sönghópurinn Voces Thules frumflytur á morg-
un í Skálholtskirkju nýtt islenskt tónverk, Missa
temporum nostrorum (Messa vorra tíma) eftir Oli-
ver Kentish, fyrir raddir, slagverk og orgel.
„Það hefur verið að detta í mig í köflum síðustu
tvö ár,“ segir höfundurinn, Oliver Kentish, um
verkið. Oliver á ættir að rekja til Bretlands en
hann hefur verið búsettur á íslandi frá 1977 og er
íslenskur ríkisborgari. Um tildrög þess að hann
kom til íslands segir Oliver: ,Ég var ráðinn hingað
sem sellóleikari við Sinfóníuhljómsveit íslands.
Síðan hef ég starfað sem tónlistarkennari, fyrst á
Akureyri, en siðustu 11 árin hef ég búið í Reykja-
vík og kennt m.a. við Nýja tónlistarskólann og
skóla í Hafnarfirði og Keflavík."
En hvað fær tónskáld til að semja messu með lat-
neskum texta nú á dögum? „Latneska messuform-
ið hefur alltaf heillað mig, enda er þetta svo falleg-
ur texti. Þá fmnst mér ég hafa meira frelsi um efn-
istök með latnesku messuna heldur en með ís-
lenska sálma sem margir hafa mjög eindregnar
skoðanir á hvernig eigi að semja tónlist við. Auð-
vitað koma trúarskoðanir einnig inn í verkið en
það er meira um hvernig ég skynja trú almennt
heldur en persónulega uppiifun mína á henni.“ Oli-
ver hefur farið ótroðnar slóðir við tónsmíðarnar.
Hann fór til að mynda inn á Internetið og leitaði
þar fanga í texta fyrir einn kafla tónverksins. „Ég
nota efnið í Credo-kaflanum (trúarjátningunni) þar
sem trúarjátningin kemur fyrir á 70 tungumálum."
Frá Eystrasaltslöndunum
í Skálholt
Sönghópurinn Voces Thules er nýkominn úr
vel heppnaðri tónleikaferð um Eystrasaltslöndin.
„Við komum fram í öllum helstu borgum Eystra-
saltslandanna og okkur var í alla staði mjög vel
tekið,“ segir Sverrir Guðjónsson, einn liðsmanna
Voces Thules. Að sögn Sverris gerir verkið mikl-
ar kröfur til flytjenda og hefur hópurinn verið
stækkaður sérstaklega til að mæta þeim. „Við höf-
um kallað til liðs við okkur tvo drengjasóprana og
tvær ungar söngkonur með drengjalegan raddblæ
til að ná fram þeim áhrifum sem verkið krefst."
Sverrir segir það einstæða reynslu fyrir tónlistar-
menn að starfa 1 Skálholti og allar aðstæður þar
séu eins og best verður á kosið. „Það er hreinlega
stórkostlegt að geta verið á þessum stað, andrúms-
loftð þar er einstakt," segir Sverrir.
Löng og sterk hefð
Sumartónleikar í Skálholtskirkju verða nú
haldnir í tuttugasta og þriðja sinn í sumar. Tón-
leikaröðin hefur því gengið samfleytt síðan 1975
og er því löngu orðin fastur liður í íslensku tón-
listarlífi. Eitt af markmiðum Sumartónleikanna
er að gefa almenningi kost á úrvalstónlist á þess-
um fornhelga stað en óviða á landinu eru skilyrði
tO tónlistarflutnings betri en í Skálholtskirkju.
Þess má geta að aðgangur að tónleikunum hefur
ávallt verið ókeypis og aðsóknin hefur oft verið
slík að gestir hafa fundið sér sæti inni í kór eða
hlýtt á tónleikana standandi.
Auk Voces Thules kemur Rut Ingólfsdóttir
fiðluleikari fram á tónleikunum. Meðal þeirra
verka sem Rut leikur á tónleikunum eru einleiks-
verk eftir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinsson og
Tryggva M. Baldvinsson. Klukkan 14 á laugardag-
inn fyrir tónleikana flytur Kári Bjarnason erindi
í Skálholtsskóla um síra Einar Sigurðsson í
Eydölum, sálmaskáld, en hann er þekktastur fyr-
ir Kvæðið af stallinum Kristí („Nóttin var sú ágæt
ein“).
Boðið verður upp á tvenna tónleika í Skálholti
um helgina. Þeir fyrri verða á morgun, laugardag,
klukkan 17 en hinir síðari á sunnudaginn klukk-
an 15. -kbb
Nýlistasafnið:
Ævintýri, yngsta kyn-
slóðin og fleiri
Magnús Pálsson veröur meö raddskúlptúr í Nýlistasafninu á laugardags-
kvöld. Myndin er frá æfingu nú í vikunni.
Á morgun hefjast flmm nýjar
sýningar í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg. Magnús Pálsson hefur
komið sér fyrir í Gryfjunni og
verður þar með raddskúlptúrinn
„Ævintýr" sem verður frumflutt-
ur við opnun klukkan 20.30 á
morgun.
Áslaug Thorlacius sýnir ljós-
myndir og þrívíð verk í Bjarta og
Svarta sal. Þetta er fyrsta sýning
Áslaugar en hún útskrifaðist úr
MHÍ árið 1991 og lauk B.A.-prófl í
rússnesku 1993.
í Forsal kynna sýningarstjórar
Gallerí Gúlp og Undir Pari
„Yngstu kynslóðina“.
Á efstu hæð hússins eða i Súm-
sal verður haldið upp á 20 ára af-
mæli sýningarhússins Suðurgata
7. Fyrir tuttugu árum varð ákveð-
in vakning hérlendis sem fólst í
því að menn fóru að endurmeta
gildi gamalla húsa. Nokkrir lista-
menn lögðu sitt af mörkum til
þessarar hreyfingar með því að
sýna framúrstefnulist og standa
fyrir margþættri menningarstarf-
semi í látlausu timburhúsi við
Suðurgötu 7. Húsið er nú safn-
gripur á Árbæjarsafni. Verkin á
sýningunni eru eftir 30 listamenn
sem allir sýndu í Suðurgötunni
eða á hennar vegum á árunum
1977-81.
í Setustofu sýnir Jón Reykdal
nokkur ný málverk en hann á að
baki margar einkasýningar og
hefur tekið þátt í samsýningum
hér og erlendis.
Sýningamar eru opnar daglega
nema á mánudögum frá klukkan
14 til 18 og þeim lýkur 20.júlí. At-
hygli er vakin á því að sýningin
verður opnuð á óhefðbundnum
tíma á morgun, klukkan 20.
Tvennir tónleikar
í Hallgrímskirkju
um helgina
Á morgun klukkan 12 leikur Hed-
wig Bilgram, prófessor við tónlistar-
háskólann í Múnchen, á hádegistón-
leikum í Hallgrímskirkju. Leikin
verða orgelverk eftir nokkra meist-
ara barokktímabilsins. Hádegistón-
leikar eru í Hallgrímskirkju alla
laugardaga og fimmtudaga í júli og
ágúst. Hedwig leikur einnig á tón-
leikum tónleikaraðarinnar Sumar-
kvöld við orgelið klukkkan 20.30 á
sunnudaginn kemur.
Hedwig Bilgram leikur á tónleikum í Hallgrímskirkju um helgina.
Wulf Kirschner
sýnir í Hafnarborg
í kvöld klukkan 20.00 verður opnuð í
Hafnarborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, sýning á verkum þýska lista-
mannsins Wulfs Kirschners. Á sýningunni
eru skúlptúrar og verk sem unnin eru úr list-
um úr abaki-viði. Kirschner fæddist í Kiel
árið 1947. Hann nam við listaháskólann í
Hamborg 1970-1978 og lagði einnig stund á
heimspeki við háskólann þar í borg. Fyrstu
sýningu sína hélt hann 1979 og síðan hefur
hann haldið fjölmargar sýningar víðs vegar
um heim.
Sýningin er liður í menningarsamskiptum
vinabæjanna Cuxhaven í Þýskalandi og
Hafnarfjarðar. Cuxhaven er heimabær lista-
mannsins en hann hefur úndanfarin ár unn-
ið að list sinni í Berlín.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga frá kl. 12-18. Henni ilýkur 21. júlí.
Verk eftir þýska listamanninn
Wulf Kirschner eru á sýningu í
Hafnarborg þessa dagana.
Sumartónleikar
á Norðurlandi
Sumartónleikar á Norðurlandi
hafa verið fastur liður í tónlistarlífi
Norðlendinga undanfarin 10 ár. í
sumar verða tónleikarnir alls 12 og
verða þeir allir haldnir í kirkjum.
Fyrstu tónleikar starfsársins eru á
sunnudag. Þá munu Hafliði Hall-
grímsson, tónskáld og sellóleikari,
og Bjöm Steinar Sólbergsson orgel-
leikari leika verk eftir Bach og Haf-
liða í Akureyarkirkju. Tónleikamir
hefjast klukkan 17 og er aðgangur
ókeypis.
Sýning í Eden
Birgir Schiöth myndlistarkenn-
ari sýnir þessa dagana myndverk í
Eden í Hveragerði. Flestar mynd-
irnar em málaðar með pastellitum
en einnig eru til sýnis blýantsteikn-
ingar og svartkrítarmyndir. Sýning-
in stendur til 13. júlí.
Birgir Schiöth heldur sýningu í
Eden þessa dagana
Hljómsveitin Taktmælar:
Ljúfir tónleikar og létt stemning
í dag klukkan 16 verður hljóm-
sveitin Taktmælar með ljúfa tón-
leika í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, þar sem leikin verður
nýmóðins tónlist í léttari dúmum.
Hljómsveitina skipa Kristján Eld-
járn, Róbert Þórhallsson og Jóhann
Hjörleifsson. Á meðan á tónleikun-
um stendur verður boðið upp á lím-
onaði. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Málverkasýning í Þrastarlundi
Þessa dagana sýnir Edwin Kaaber
olíumálverk og vatnslitamyndir í
Þrastarlundi, veitingastaðnum við
Sog. Þetta er 13. einkasýning Ed-
wins og verður hún opin til 20. júlí.
Edwin Kaaber er meö málverkasýn-
ingu í Þrastarlundi.
Gallerí Ingólfsstræti 8:
Sýning á verkum
Tuma Magnússonar
I gær opnaði Tumi Magnússon
sýningu á málverkum í listhúsinu
Ingólfsstræti 8. Tumi er meðal
fremstu nútímamálara hérlendis af
yngri kynslóðinni og hefur haldið
fjölmargar sýningar, bæði hér
heima og erlendis. Eru verk eftir
hann í Listasafni íslands, Listasafni
Reykjavíkurborgar og víðar. Tumi
tók þátt fyrir hönd íslands í alþjóð-
lega tvíæringnum 1994, þar sem
hann hlaut sérstaka viðurkenningu
fyrir framlag sitt. Sýningin er 11.
einkasýning Tuma.
Tumi Magnússon ásamt nokkrum verkum sínum.
SÝNINGAR
I Gallerí Handverks & hönnunar,
j Amtmannsstíg 1. Gullsmiðjan Stubb-
ur er með sýningu á leikfdngum. Til
j sýnis eru leikföng, hönnuð og smíðuð
! af Georg Hollanders. Sýningin stendur
til 12. júlí og er opin virka daga kl.
| 11-17 og á laugardögum 12-16.
j Gallerí Ingólfsstræti 8. Sýning með
| nýjum málverkum eftir 'I'uma Magnús-
j son. Stendur til 31. júlí.
IGallerí Nema hvað, Þingholts-
stræti 6. Laugardaginn 5. júlí opnar
Kolbrún Sigurðardóttir fyrstu einka-
sýngu sína. Sýningin er opin frá 5.-17.
júlí, frá kl. 15-18 þrid. til fód. og kl.
I 14-18 lau og sun.
> Gallerí Regnbogans, Hverfisgötu
S 54. Sýning á verkum Sigurðar Orlygs-
j sonar er opin virka daga frá kl. 16-24
j og frá kl. 14-24 um helgar.
i> GaUerí Sýnirými: Sýningar í júlí.
j Gallerí Sýnibox: Liþa B., Egilsdóttir,.
| GaUerí Barmur: Hulda Ágústsdóttir,
j berendur eru Bruce Concle og Hildur
| Bjarnadóttir.
j GaUerí Hlust: (551-4348): Kristberg-
'i ur Ó. Pétursson.
f GaUerí 20 m2: Oliver Kochta.
Gallerí Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6.
! Síðasta sýningarhelgi á textílsýningu
Philippe Ricart. Opið daglega kl.
14-18 til 7. júlí.
>! GaUerí Sævars Karls, Bankastræti
9, 2. hæð. Ragna St. Ingadóttir er með
j sýningu sem samanstendur af innsetn-
, ingum. Opið frá kl. 10-18 virka daga
| og stendur sýningin til 9. júlí.
j Gerðuberg. Jón Jónsson er með mál-
I verkasýningu. Opið fimmtud. til
S sunnud. frá kl. 14-18.
(i Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafn-
arfirði. f dag, fóstudaginn 4. júlí, kl.
20, verður opnuð sýning á verkum
; þýska listamannsins Wulfe Kirschners.
Sýningin er opin alla daga nema þrid.
5 frá kl. 12-18 fram til 21. júlí.
( ísafoldarhúsið, Þingholtsstræti 5.
1 Heidi Kristiansen sýnir myndteppi.
í Opið alla virka daga frá kl, 12-18.
> Kjarvalsstaðir Sýningin íslensk
5 myndlist til 31. ágúst. Opið alla daga
frá kl. 10-18. ,
j Listasafn ASÍ, Ásmundarsalur,
| Freyjugötu 41. Sýning á verkum eftir
j Þórdísi Óldu Sigurðardóttur sem ber
heitið Spjöld sögunnar. Sýningin
stendur til 6. júlí og er opin alla daga
j frá kl. 14-18 nema laugardaga.
} Listasafn íslands. Sýning á myndlist
og miðaldabókum íslands. Á sýning-
j unni eru málverk, grafik og högg-
j myndir sem byggðar eru á íslenskum
j fomritum.
j Listasafn Kópavogs. Ása Ólafedóttir
j myndlistarkona er með sýningu sem
( ber heitið Brot af fornum arfi. Sýning-
jj unni lýkur sunnudaginn 6. júlí. Hún
er opin alla daga nema mánudaga frá
kl. 12-18. Einnig sýnir fris Elfa Frið-
riksdóttir. Opið daglega frá kl. 12-16,
lýkur 6. júlí.
j Enn fremur er sýning á málverkum
eftir Sigurbjöm Jónsson og stendur
( hún einnig til 6. júlí.
i Listhúsið í Laugardal. Gallerí Sjöfn
Har. Myndlistarsýning á verkum eftir
I Sjöfn Har. Opið virka daga kl. 13-18
og laugardaga kl. 11-14.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
( Laugarnesi. Sumarsýning á 27 völd-
| um verkum eftir Siguijón. Opið alla
j daga nema mánudaga frá kl. 14-17.
j Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5.
Finninn Harri Syijanen er með sýn-
ingu á verkum sínum. Opið mán.- fós.
frá kl. 10-18 og lau. frá kl. 11-14.
j Mokka, Skólavörðustíg 3A. Hljóðir
j hælar Sigurdísar. Sýning á verkum
j Sigurdísar Amardóttur myndlistar-
j konu.
I Norræna húsið. Sýningin Sögn í sjón
- myndlýsingar í fslenskum fomritaút-
S gáfum á 20. öld. Sýningin verður opin
j daglega kl. 13-19 og henni lýkur
f sunnudaginn 6. júlí.
( Nýlistasafnið, Vatnasig 3B. 5. júlí
j kl. 20 verða opnaðar fimm sýningar.
| Raddskúlptúr eftir Magnús Pálsson. í
j Forsal kynna Særún Stefánsdóttir,
Jóní Jónsdóttir, Hlín Gylfadóttir, Dóra
fsleifedóttir og Sigrún Hrólfedóttir
I „Yngstu kynslóðina". Áslaug Thorlaci-
j us sýnir (jósmyndir og,þrívíð verk í
j Bjarta og Svarta sal. Á efetu hæð
hússins, eða í Súm-sal, verður haldið
j upp á 20 ára afmæli sýningarhússins
1 Suðurgötu 7. Umsjónarmenn em Hall-
: dór Ásgeirsson og Steingrímur Eyfjörð.
f setustofu Jón Reykdat. Sýningamar
! em opnar daglega nema á mán. frá kl.
í 14—18 og þeim lýkur 20. júlí.
Sjóminjasafn Islands, Hafiiarfirði.
| Sýning á 20 olíumálverkum eftir
j Bjama Jónsson listmálara. Sýningin
stendur yfir sumartímann. Frá 1. júní
| til 30. september er Sjóminjasafhið
opið alla daga frá kl. 13-17.
Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Laugar-
j daginn 5. júlí kl. 14 opnar Helgi Hjal-
í talín sýningu á Sjónarhóli. Sýningunni
j lýkur þann 27. júlí. Sjónarhóll er op-
inn fim-sun kl. 14—18.
! Snegla, listhús, Grettisgötu 7.
Kynning á verkum Sigríðar Erlu úr
j jarðleir. Opið virka daga kl. 12-18 og
kl. 10-14 laugard.
; SPRON, Álfabakka 14, Mjódd. Sýn-
ing á verkiun Aðalheiðar Valgeirsdótt-
ur til 8. ágúst.
j Stofnun Ama Magnússonar, Áma-
( garði. Sumarsýning handrita 1997.
Opið daglega kl. 13-17 til ágústloka.
j Vorhugur, sýning á skúlptúrverkum
j Þorgerðar Jömndardóttur og Mimi
B Stallborn í húsnæði Kvennalistans að
Pósthússtræti 7, 3. hæð. Opið kl.
(> 13-17 alla virka daga.
8 Skálholt. Sýningin Kristnitaka sem
jj er samvinnuverkefni Myndhöggvarafé-
lagsins f Reykjavík, Skálholtsstaðar og
|j Skálholtsskóla. Stendur til 14. október.