Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Page 3
JD"\T FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1997
Con Air
Con Air er ein af þessum pottþéttu hasar-
myndum, þéttpökkuð hamagangi og
testosteroni frá upphafi til enda. Formúlan
er á sínum stað og ekkert kemur á óvart
og að hætti Arnies og Die Hard-myndanna
er þetta formúla með húmor þar sem ýkj-
urnar eru yfirgengilegar. Hraðar klippingar
og hrátt yfirbragö gerir þaö aö verkum að
Con Air virkar bæöi alvarleg og hákómísk í
senn og fer yfir um á hvorugu.
-úd
í nafni móöurinnar
i nafni föðurins var dæmigerð óskarsfram-
leiðsla og langt I frá gallalaus mynd. Some
Mother's Son er mun vandaðra verk og
ætti enginn sem ann vönduðum kvikmynd-
um að láta hana fram hjá sér fara. Leik-
stjórnin er afbragösgóð, tónlistin áhrifamik-
il, kvikmyndatakan lævíslega látlaus i
áhrifamætti sínum og handritið yfirvegaðra
en ég hefði búist viö i mynd sem í raun er
pólitísk málsvörn IRA. -GE
Scream
Ein alflottasta og skemmtilegasta hryll-
ingsmynd sem komið héfur fram lengi og
sýnir vel þá möguleika sem búa i hrollvekj-
unni. Craven sýnir fullkomna þekkingu og
næmi á hrollvekjuna og tekst að skapa úr
þessum kunnuglegu formúlum hressandi
og hrellandi hryllingsmynd. -úd
Enski sjúklingurinn
Stórbrotin, epísk kvikmynd sem minnir um
margt á best heppnuðu stórmyndirfyrri tíma.
Anthony Mingella á hrós skiliö, bæði fyrir inni-
haldsrikt handrit og leiksfiðrn þar sem skipt-
ingar i tíma eru mjðg vel útfærðar. Útgeislun
leikaranna er mikil. -HK
Fimmta frumefnið
Ómissandi og án hiks ein alfallegasta og
smartasta framtiðarmynd sem rataö hefur
á sýningartjald. Samspil hljóðs og myndar
er með eindæmum elegant og til að njóta
þessa alls sem best er vænlegast aö búta
heilann upp og stýra allri orku á augu og
eyru. -úd
Anaconda
Anaconda er ein af jtessum gölluðu mynd-
um sem ná að heilla með ákveönum ein-
faldleik eða jafnvel einfeldni. í heild vega
kostirnir upp galiana og útkoman er
hressileg og skemmtileg mynd sem heldur
áhorfandanum föngnum þessar klassísku
90 mínútur. -úd
Men in Black
i MIB er eins og yfirfærslan úr teikni-
myndasögu í kvlkmynd sé aidrei fullfrá-
gengin og kemur jietta sérstaklega niður á
plottinu. Áherslan er slik á húmor og stíi
að sjálfur hasarinn veröur út undan og I
raun virkar MIB meira sem grinmynd en
hasar. En þrátt fyrir alla galla er þessi
mynd ómlssandi fyrir alla þá sem láta sér
ekkert ómannlegt óviðkomandi. -úd
The Relic
Á heildina litið er The Relic ágætis afþrey-
ing. Ámátlegt sköpulag óvættarins er
lengst af hulið og þegar hann loksins birt-
ist í öllu sinu veldi stendur hann vel undir
væntingum.
-GE
Rrst Strike
Rrst Strike (1996) er sff fjóröa i Police-
Story-syrpunni. I henni á Jacki Chan i
höggi við hættulega vopnasmyglara sem
eru, eins og svo oft I spennumyndum slö-
ustu ára, útsendarar rússnesku mafiunn-
ar. Viðureignin færist land úr landi, frá
Hong Kong til Rússlands og þaöan til Ásb-
aliu. Frekari lýsing á söguþræöinum er
vonlaus, enda er plottið veikasti hlekkur-
inn í annars ágætri mynd. Ofangreind lýs-
ing veit kannski ekki á gott en töfrar
Jackies bjarga myndinni frá þeirri meðal-
mennsku sem hún myndi annars falla í.
Þessi bráðskemmtilegi og hæfileikariki
bardagaleikari gæöir flestar senur lífi.
-GE
í blíðu og striðu
Richard Attenborough hentar vel að gera
myndir um þekktar persónur. í slíkum
myndum eru höfundarelnkenni hans sterk
og 1 blíðu og stríðu eru þau vel sjáanleg.
Hann hefur þó gert betri myndir og er
skemmst að minnast Shadowlands.
Sandra Bullock og Chris O'Donnel hafa
bæöi þá útgeislun sem þarf en ekki að
sama skapi góðan texta. -HK
%vikmyndir
**
Horfinn heimur: Júragarðurinn II:
Eitthvað hefur komist af
Júragarðs-
j ins. Hann til-
kynnir Malcolm að
nokkra kílómetra frá
eyjunni þar sem ^
Júragarður-
inn var sé
k önnur eyja a
sem
einnig sé stútfull
af risaeðlum.
Þangað ætl-
Steven Spielberg:
Horfinn heimur, framhald Júra-
garðsins, verður frumsýndur í dag í
Borgarbíói á Akureyri, Háskólabíói,
Laugarásbíói og Sambíóunum við
Álfabakka. Kvikmyndin gerist fjór-
um árum eftir að þeirri fyrri lauk.
Ian Malcolm, kaoskenningavísinda-
maðurinn, sem leikinn er af Jeff
Goldblum, er boðaður á fúnd
hjá John Hammond (Ric-
hard Attenborough),
eiganda InGen
ar Hammond nú að senda rannsókn-
arleiðangur til að skoða risaeðlurn-
ar og komast að þvi af hveiju þær
tóra enn þrátt fyrir að svo heföi ver-
ið búið um hnútana þegar þær voru
skapaðar að þær gætu ekki lifað af
án manna. Dr. Sarah Harding (Juli-
anne Moore),
inn og umhverfisvemdarskærulið-
inn Nick Van Owen (Vince Voug-
hn). Auk þess laumar dóttir Ians,
Kelly (Vanessa
Lee Chester)
sér með
í for.
kærasta
Nyr garöur
Ianls,
fyrirtæk
ísms
og
stofn-
anda
er í
hópnum og
er þegar lögð
af stað. Ian
leggur því upp
í ferðina til að
bjarga Söru
sem hann er
viss um að sé
í stórhættu
fyrst hún er að
þvælast á risa-
eðluslóðum.
Með honum í for
eru tækjafyrinn
Eddie Carr (Richard
Schiff) og ljósmyndar-
Raunveruleg ástæða þess að
Hammond er að senda þennan leið-
angur er sú að frændi hans, Peter
Ludlow (Arliss Howard), hefur tekið
yfir InGen fyrirtækið. Hann hefur í
hyggju aö stofna nýjan skemmti-
garð með risaeðlum. Stóri munur-
inn er sá að hann hefur valið hon-
um stað í miðborg San Diego.
Þegaf svo Malcolm og félagar
koma til eyjarinnar hefur Ludlow
sent stóran hóp manna til eyjarinn-
ar undir forystu atvinnuveiði-
mannsins Rolands Tembo (Pete
Postlethwaite). Þeir fanga risaeðl-
umar og koma þeim fyrir í búrum.
Veiðimannahópurinn kemst yfir
einn unga Tyrannosaurus Rex
hjóna sem þarna búa, fótbrjóta
hann og nota sem agn. Þegar
mamma og pabbi heyra öskrin
glymja um eyjuna tekur foreldraeð-
lið völdin og þá er betra fyrir mann-
fólkið að vera ekki að þvælast fyrir.
Crichton enn á ný
Það sem gerði útslagið með það
að Spielberg réðst í framhald Júra-
garðsins var að Michael Chrichton
hóf að skrifa framhald af skáldsögu
sinni. Nauðsynlegt var að vinna
hana í samvinnu við Spielberg og
handritshöfúndinn David Koepp því
að búið var að ráða Jeff Goldblum
til að leika Ian Malcolm aftur. Þar
sem sú persóna deyr í bók
Crichtons Jurassic Park þurfti að
skrifa hann aftur inn í bókina.
Þannig þurfti hann að skrifa bók
sem var framhald af sinni eigin en
var jafnframt framhald af bíómynd
sem byggði á þeirri bók og breytti
söguþræðinum þar töluvert. Þetta
reyndist snúið en blessaðist þó að
lokum.
Handritshöfundurinn Koepp er sá
hinn sami og skrifaði Jurassic Park
í samvinnu við Crichton. Hann hef-
ur jafhframt unnið handritið að
Mission: Impossible, Death Becomes
Her, Bad Influence og hinni mögn-
uðu The Paper.
Að slá í gegn
Það er 11. desember 1996 og
Steven Spielberg sér ástæðu til að
opna nokkrar kampavínsflöskur.
Ástæðan er sú að hann hefur lokið
tökum á The Lost World: Jurassic
Park, fyrstu mynd sinni í þijú ár.
Spielberg, sem löngu er orðinn
heimsfrægur leikstjóri, átti erfitt
verkefiii fyrir höndum þegar komið
var að gerð framhalds Júragarðsins.
Hvemig er hægt að gera ffamhald á
aðsóknarmestu bíómynd allra tíma
og valda engum vonbrigðum? Er
það mögulegt?
Geimpúkar og ann-
ar lýður
Ef einhver getur
það
þá er það Steven Spielberg. Hann á
nú þegar að baki Indiana Jones ser-
íuna sem var gríðarlega vinsæl en
þökk sé þeim myndum mun nafn
Spielbergs alltaf verða óaðskiljan-
legt frá ævintýra- og hasarmyndum.
Close Encounters of the Third Kind
með Richard Dreyfuss frábærum í
aðalhlutverki var einn af fyrstu
smellum meistarans. Jaws átti líka
sinn þátt í að gera Spielberg heims-
frægan. Hímn hefur verið leikstjóri
eða framleiðandi 6 af 20 mest sóttu
kvikmyndum
allra tíma.
Þó má
með
sanni
segja
að
það
sé ein
nynd
fram-
ar
Steven Spielberg aö gera þaö sem hann gerir best.
aftur og aftur
„Hvaö ert þú aö vilja upp á dekk, skrápiausa og flattennta spendýriö þitt?“
Jeff Goldblum í návígi viö eina illskeytta.
öllum öðrum sem gert hefur Steven
Spielberg að ástsælasta kvilunynda-
gerðarmanni samtímans. Árið 1984
var kvikmyndin E.T. frumsýnd og
enn er hún þriðja tekjuhæsta mynd
sögunnar í heiminum öllum og sú
næsttekjuhæsta í Bandaríkjunum
og Kanada. Mikið var lagt að Spiel-
berg að gera framhald af E.T. en
hann neitaði því alltaf og taldi að
framhaldsmyndin yrði aldrei neitt í
líkingu við upphaflegu myndina og
að sú mynd kynni að líða fyrir af-
leita framhaldsmynd. Sjálfur hefur
Spielberg sagt að framhald Júra-
garðsins sé tilraun til að reyna að
bæta aðdáendum sínum upp fram-
haldsmyndina sem hann vildi aldrei
gera.
„Alvöru'myndir
Þó svo nafn Spielbergs sé alltaf
tengt við geimverur og risaeðlur og
ævintýri hefur hann þó gert alvar-
legri og dramatískari myndir með
mjög góðum árangri. Skemmst er að
minnast Schindlers List sem var
óhugnanleg kvikmynd um helfór
gyðinga i heimsstyijöldinni síðari.
Fyrir þá mynd hlaut Spielberg ósk-
arsverðlaun í fyrsta sinn. Myndin
fékk alls sjö óskarsverðlaun, þ. á m.
sem besta myndin.
Hann hlaut verðlaun samtaka
leikstjóra i Bandaríkjunum fyrir
The Color Purple sem var með
Whoopie Goldberg, þá tiltölulega
óþekktri, í aðalhlutverki. Að lokum
má svo nefna The Empire of the Sun
en fyrir þá mynd hlaut hann útnefn-
ingu leikstjórasamtakanna.
Þriggja ára frí
Spielberg sat ekki auðum hönd-
um þessi þijú ár sem hann var í fríi
frá kvikmyndagerð. Fyrir utan að
eiga eitt bam eða svo með konunni
sinni stofnaði hann nýtt kvik-
myndaver. Dreamworks skal bamið
heita, margmiðlunar-tækniundur og
er í samvinnu við Jeffrey Katzen-
berg og David Geffen. Fyrstu mynd-
ir Spielberg fyrir Dreamworks er
Amistad sem fjallar um uppreisn á
þrælaskipi. Strax á eftir henni kem-
ur Saving Private Ryan sem gerist í
heimsstyrjöldinni síðari og er með
Tom Hanks í aðalhlutverki.