Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Blaðsíða 11
amasmsanaBmsBKmM JjV FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1997 %>nlist ** * Lög Jóns Jónssonar frá Hvanná: Geislaplatan Töfrablik er komin út og inniheldur lög eftir tónskáld- ið Jón Jónsson frá Hvanná. Það er einvalalið söngvara sem túlkar lög tónskáldsins frá Hvanná, þ.e. Björgvin Halldórsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Ari Jónsson ásamt BH-kvartettinum. Geislaplatan geymir kunnustu lög Jóns frá Hvanná auk laga sem lítið hafa heyrst á undanfornum árum. Þá má einnig heyra fáein lög sem aldrei hafa birst áður á prenti eða verið leikin opinberlega. Það er því verulegur fengur að þessari útgáfu. Björgvin Halldórsson valdi lögin úr hinu mikla nótnasafni Jóns frá Hvanná og stýrði vinnslunni. Björgvin er enginn nýgræðingur á þessu sviði því hann hefur sótt töluvert í dægurlagasjóð eldri höf- unda okkar síðustu árin og dregið fram ýmis lög sem hafa verið aö falla í gleymsku. Hljómborðsleikar- inn Jon Kjell Seljeseth var Björg- vini til halds og trausts og annað- ist útsetningar í félagi við hann. Auk þeirra tveggja kemur íjöldi annarra tónlistarmanna við sögu á plötunni. Jón Jónsson fæddist að Hvanná í Jökuldal 9. júlí 1910 og lést um aldur fram árið 1963 eftir langvar- andi veikindi. Á unglingsárum sín- um stundaði Jón nám í Gagnfræðaskóla ísa- fjarðar og líkaði svo vel vestra að hann ílengd- ist á staðnum. Snemma bar á tónlistarhæfi- leikum Jóns og var hann í hópi þeirra dægur- lagasmiða sem stofhuðu Félag íslenskra dæg- urlagahöfunda um miðjan sjötta áratuginn. hans önnur verðlaun og í kjölfarið urðu lögin Selja litla og Capri Cat- arina ákaflega vinsæl og eru löngu orðin ein ást- sælustu lög þjóðarinnar frá upphafi, en auk þeirra nutu fleiri laga hans hylli er þau komu út í tveimur nótnaheft- um sem seldust fljótlega upp. Nú hafa lög Jóns frá Hvanná verið færð í nýj- an búning sem hæflr þeim ákaflega vel og ekkert hefur verið til sparað til að gera plöt- una sem veglegasta. ítar- legur formáli eftir Jónat- an Garðarsson birtist í plötubæklingi þar sem helstu æviatriði tónsmiðsins frá Hvanná eru rakin og þar má einnig finna texta allra laganna, en þeir eru eft- ir mörg helstu skáld þjóðarinnar eins og Dav- íð Stefánsson frá Fagraskógi, Tómas Guð- mundsson, Kristján frá Djúpalæk og fleiri. Þetta er sannkölluð sum- arperla sem allir unn- endur íslenskrar dægurlagatónlistar ættu að festa sér hið snarasta. Það er Sund ehf. sem gefur Töfrablik út en Skífan annast dreiflngu til hljómfangaversl- ana um land allt. ajörgvin Halldórsson valdi lögin úr hinu mikla nótnasafni Jóns frá Hvanná. Átti Jón drjúgan þátt í að ryðja brautina og móta nýjar hefðir í tónlistarmálum þjóðarinn- ar með verkum sínum. Á þessum árum kom fjöldi nýrra laga fram í danslagakeppni SKT og tók Jón þátt í þeirri keppni nokkrum sinnum. Þrisvar hlutu lög Allir sáttir Umboðsmaður Ian McCulloch hefur persónulega beðið Michael Eavis, framkvæmdastjóra Glastonbury-há- tíðarinnar, afsökunar á framferði Ians. Ian var eitthvað að „pirrast" út í forsvarsmenn hátíðarinnar þar sem hann stóð á sviðinu og átti að vera að skemmta gestum. Einnig lét hann ýmsar miður skemmtilegar athuga- semdir falla i blaða- og sjónvarpsvið- tölum að hátíðinni lokinni. Hann kvatti hátíðargesti til að krefjast end- urgreiðslu fyrir að koma á þetta skítapleis eins og hann orðaði það svo skemmtilega og einnig sagði hann að samtökin Greenpeace og Oxfam gætu gleymt því að fá einhverja peninga frá hátíðinni eins og þeim hafði verið lof- að. Michael Evis varð eðlilega öskuill- ur vegna þessara athugasemda og hót- aði að fara í mál við Ian. Umboðsmað- urinn dreif sig í að biðjast afsökunar en Evis bíður enn þá eftir að heyra í Ian sjálfum. Hreingemingar eftir hátíðina eru í fullum gangi og segir Evis að það muni taka fjórar vikur að taka allt til. Annars er Evis ánægður með hátíð- ina og segist fá um 50 bréf á hverjum degi frá fólki sem er að lýsa yfir ánægju sinni. Saman á ný Hljómsveitin Jane’s Addiction hef- ur komið saman á ný eftir sex ára hlé (lengra hlé en hjá Sálinni). Allir fjór- ir aðilarnir hafa að undanförnu dval- ið í stúdíói í Los Angeles að hljóðrita aðra af tveimur væntanlegum plötum hljómsveitarinnar. Talsmaður sveit- arinnar sagöi að á plötunni væri blanda af gömlum og nýjum lögum. Hljómsveitin lagði upp laupana 1991 eftir að hafa gefið út þrjár vin- sælar plötur en hittist aftur fyrr á þessu ári er hún endurhljóðblandaði lagið Charger fyrir kvikmynd How- ards Sterns, Private Parts. mmmm Sniglabandið hefur um árabil skemmt landsmönnum, ungum I sem öldnum, og um helgina verður engin breyting þar á. Bandið mun j halda uppi góðu fjöri í Galtalækj- j arskógi en þar er SÁÁ að halda fjölskylduvæna hátíð sem kallast Úlfaldinn ’97. Sixties „She loves you yeah, yeah, j yeah,“ syngja „hinir fjóru frá- | bæru“ úr Bítlahljómsveitinni | Sixties. í kvöld leikur hljómsveitin : fyrir dansi á Langasandi á Akra- nesi og annað kvöld verður hún : stödd í Gjánni á Selfossi. Bítlaað- I dáendur, látið ykkur ekki vanta. Draumaland Annað kvöld skemmtir hljóm- ' sveitin Draumalandið á stað j elskenda í Hreðavatnsskála. Ald- j urstakmark er 18 ár og það kostar j aðeins flmm hundruð krónur fyrir j þá sem mæta fyrir miðnætti. Sóldögg í kvöld heldur hljómsveitin Sól- dögg stórdansleik í Stapanum í Njarðvík. Hljómsveitin Danmód- ann hitar upp fyrir ballið en hún vann einmitt Rokk stokk hljóm- sveitakeppnina sem haldin var um síðustu helgi. Sniglabandið í Galtalækjarskógi Annað kvöld spilar Sóldögg á sumarstúlkuballi á skemmtistaðn- um Inghóli á Selfossi. Brier Folk Group írska hljómsveitin Brier Folk Group endar hljómleikaferð sina á íslandi eftir að hafa spilað bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. í kvöld og annað kvöld spilar hljómsveitin á Odd-vitanum á Akureyri. Papar Hljómsveitin Papar spilar á Café Amsterdam í kvöld og annað kvöld. Paparnir verða á Café Amsterdam. mmmKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmtmimm Reggae on ice endanlega gengnir af göflunum. Bylting Bylting er kom- in á fullt eftir sumarfri og ætlar að trylla landann í Kántrýbæ á Skagaströnd ann- að kvöld. 8-villt í kvöld leikur hljómsveitin 8- villt í Gjánni, Sel- fossi. Annað kvöld leikur hún á Jóni Bakan í Bolungarvík þar sem mikið verður um að vera. Kúrekaball Annað kvöld verður kúrekaball í Réttinni í Úthlíð þar sem Hanna Mjöll sér um að kenna fólki línu- dansa. Það er því um að gera að drífa sig í kúrekagallann og bruna í Úthlíð. Næg tjaldstæði. Afmæli á L.A. Café Um helgina verður mikið um að vera á L.A. Café en staðurinn held- ur upp á 8 ára afmæli. Annað kvöld verður glæsileg veislumáltíð á boðstólum og svo taumlaus gleði langt fram eftir kvöldi. Reggae on lce Nú eru strákamir í Reggae on j Ice endanlega gengnir af göflunum i en þeir ætla að keyra hringinn í ; kringum landið á einni helgi. í | kvöld verður brjálað sveitaball i i Egilsbúð í Neskaupstað og eru ■ rútuferðir á ballið frá Egilsstöðum, j Eskifirði og Reyðarfirði. Annað í kvöld verða þeir með maraþonball ; á Sjallanum á ísafirði og verður i þar væntanlega stanslaus gleði langt fram eftir nóttu. Hljómsveit Birgis Gunn- laugssonar í kvöld og annað kvöld spilar hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar í danshúsinu í Glæsibæ. Þetta er síðasta helgin fyrir sumarfrí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.