Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1997, Blaðsíða 12
» myndbönd FOSTUDAGUR 18. JULI 1997 Snobbmoli ★ Hér segir frá Chabert ofursta sem talinn var hafa látist i orrustu árið 1807. Tíu árum síðar birtist á skrifstofu lögmanns nokkurs maður sem segist vera Chabert ofursti og vill fá auðæfi sín, landareignir og eiginkonu aftur. Hún hefur hins vegar eignast nýjan eiginmann og tvö böm. Hún fellst á að greiða hon- mn dágóða íjárhæð gegn því að hann skjaifesti að hann sé svikahrappur og Chabert þarf að velja á milli peninganna og heiðurs síns. Söguþráður myndarinnar er áhugaverður en fetað er þann veg sem Frakkar eru sérfræðingar í og úr verður innihaldslaus og sjálf- birgingsleg listasnobbsþvæla. Mestu púðri er eytt í að láta leikarana stara ábúðarmikla út í loftið eða hver á annan og þylja einhverja speki í atriðum sem eiga að vera örlagaþrungin en eru bara bjánaleg. Nokkuð falleg umgjörð og sæmilegir leikarar bjarga myndinni um eina stjömu. Le Coionel Chabert. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Yves Angelo. Aðalhlut- verk: Gérard Depardieu, Fanny Ardant, Fabrice Luchini og Andre Dussoli- er. Frönsk, 1994. Lengd: 107 mín. Bönnuð innan 12 ára. PJ Draugagangur ***★ © Frank Bannister hefur þá náðargáfu að geta séð og talað við drauga og nýtir hana til að hagnast á auðtrúa fólki. Hann hefur þrjá drauga í þjón- ustu sinni sem hann sendir út af örkinni til að hræða líftóruna úr fólki. Síðan mætir hann á svæðið og kveður niður draugana gegn hæfílegri þóknun. Líf hans tekur öllu alvarlegri stefnu þegar yfimáttúrulegur raðmorðingi fer að herja á bæinn. Morðinginn virðist einhvern veginn tengjast fortíð hans og Frank er grunaður. Með kolgeggjaðan alrík- islögreglumann á hælunum reynir Frank því að elt- ast við draugsa og stöðva morðin. Peter Jackson er frægur fyrir Heavenly Creatures en sumir kannast þó betur við meistarastykkin Bad Taste og Braindead, ódýrar en vel gerðar og drepfyndnar splattermyndir. The Frighteners heggur í sama knérunn en er gerð fyrir miklu meiri peninga, eins og sjá má á kostulegum tæknibrellunum. Hún er jafnframt mun hóflegri í hryllingnum. Þar með er nokkur broddur farinn úr gríninu og mynd- in nær því aldrei þeim hæðum sem Bad Taste og Braindead náðu. Hún er þó fyrirtaksskemmtun fyrir þá sem hafa heilbrigða kímnigáfu og býð- ur upp á mörg fyndin atriði. Michael J. Fox túlkar vel vesaiinginn Frank Bannister en Trini Alvarado er síðri í aðalkvenhlutverkinu. Jeffrey Combs fer á kostum í hlutverki FBI-brjálæðingsins og Jake Busey er góð- ur i morðingjahlutverkinu. The Frighteners. Útgefandi: CIC- myndbönd. Leikstjóri: Peter Jackson. Að- alhlutverk: Michael J. Fox. Bandarísk, 1996. Lengd: 105 mín. Bönnuð inn- an 16 ára. -PJ Vegir ástarinnar rannsakaðir ★*★★ Gregory Larkin er stærðfræðikennari sem hefur átt erfitt með að fóta sig í samböndum og ákveður að kynlífið sé að þvælast fyrir. Hann ákveður því að finna sér konu sem geti verið sálufélagi hans en hreyfi ekki of mikið við kynhvötinni hjá honum. í bókmenntakennaranum Rose flnnur hann slíka konu og giftist henni. Þrátt fyrir góðan ásetning reynist erfitt að forðast tilfinningar og ástríður. Meðfram þvi að segja þessa einkennilegu ástarsögu er í myndinni verið að velta fyrir sér muninum á raunveruleikanum og glansímyndinni í afþreyingarmenningu á vitræn- an hátt. Myndin veltir upp mjög áhugaverðum spumingum en er jafn- framt mjög fyndin og létt yfír henni. Hún lendir aldrei niður í volæði og nær einnig að mestu að forðast ofboðslega hamingju (nema rétt í blárestina). Ástarsagan er falleg án þess að vera væmin. Barbra Streisand og Jeff Bridges eru öryggið uppmálað í aðalhlutverkunum og færir leikarar í aukahlutverkum fylla upp í myndina. Myndin er afar vönduð og í raun er hvergi veikleika að finna. The Mirror Has Two Faces. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Barbra Strei- sand. Aðalhlutverk: Barbra Streisand og Jeff Bridges. Bandarísk, 1996. Lengd: 122 mín. Öllum leyfð. -PJ Endurútgáfa ★★★★ Háskólabió hefur hafið endurútgáfu á eldri mynd- um og eru Terminator og Blow Out fyrstar í röðinni. Terminator var myndin sem skaut Amold Schwarzenegger og leikstjóranum James Cameron upp á stjömuhimininn en þeir eru í dag meðal áhrifamestu manna í kvikmyndaiðnaðinum í Hollywood. Schwarzenegger er í hlutverki illvígs drápsvélmennis (cyborg) sem sendur er úr framtíð- inni til að drepa konu sem á eftir að fæða i heiminn uppreisnarleiðtoga framtíðarinnar. Uppreisnar- mennirnir senda hins vegar mennskan vemdarengil til að koma í veg fyrir voðaverkið. Ef vel er að gáð má finna hnökra í handritinu en þeir fyrirgefast auðveldlega vegna hugmyndaauðginnar sem einkennir handritið. Þrátt fyrir að vera gerð fyrir (tiltölulega) litið fé er útlit myndarinnar afar flott og tæknibrellur vel gerðar, svo vel að myndin stendur vel fyrir sínu í dag og í raun mun betur en t.d. Stjörnu- Sjríðsmyndirnar. Þýski risinn er alveg sérstaklega ógnvekjandi í hlut- verki hins nær ódrepandi vélmennis og hefur aldrei verið betri, hvorki fyrr né síðar. Linda Hamilton og Michael Biehn skila sínu einnig þokka- lega en Linda var nú samt flottari í T2. Þessi mynd er einn af frumkvöðl- um vísindatryllanna og klassískt verk. Terminator. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: James Cameron. Aðalhlut- verk: Arnold Schwarzenegger, Michael Biehn og Linda Hamilton. Banda- rísk, 1985. Lengd: 103 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Myndbandalisti vikunnar SÆTI { i FYRRI VIKA ! VIKUR ; Á LISTAj 1 ) TITILL ] ÚTGEF. ) ' • i i ' ] TEG. J i ; 1 i 3 i Sleepers ] Háskólabíó ] Spenna 2 ; j 2 i 3 i j J Glimmer Man J J Warner myndir j J J Spenna BHH 3 ; 3 J c J j 5 J First Wives Club ] ClC-myndbönd ] Gaman j 4 J j 8 j J J 2 J j J Maximum Risk j J Skffan J J ] Spenna 5 ; 7 i TT Secrets and Lies J j Háskólabíó J j Drama j 6 í | 4 i j i 4 i j | Djöflaeyjan ■ 1' ] Skífan | 1 WBíF' Gaman i i 7 i 1 Ný r 1 j i i Turbulence 1 J Sam-myndbönd J J Spenna 8 1 HHHn 5 i i J. r j J 5 J J J Craft j Skrfan -..; j iliS - & ‘ J i Spenna j. . 5 . 9 ‘ J j 6 i 8 i Long Kiss Goodnight ] Hyndform ] Spenna io; j Ný Í 1 Í J J Evita J J Myndform ) J Drama J ii; 10 J ? J j 4 J Matilda ] Skífan j Gaman 12 í 9 j J i J : Rich Mans Wife J ] Sammyndbönd ) 1 Spenna 13 ; 12 i 4 i First Kid J J j Sam-myndhönd j Gaman 14 1 .... .. i» n J ‘ J J 4 1 j * J 4 •• • - m i hé Unforgettable j ] Sam-myndbönd | J j Spenna I 15 i „1 j 18 J 2 J . t Crucible i J Skífan i 1 J Drama J • j Gaman 99091 15 ) 1 J o J J 8 J j j Jack J j Sanwnyndbönd J 17 i 14 : i : í 6 i j J Fear ] ClC-myndbönd ] Spenna j 18 J j 20 Pest J J Skrfan J J J Gaman EB00 19 i Ai 1 9 1 J 9 J Courage Under Fire i Skrfan j Spenna » ! 17 J J j io ; Associate 1 | Háskólabíó J J Gaman Spennumyndin The Sleepers situr sem fastast í toppsæti mynd- bandalistans þriðju vikuna i röð. Litlar breytingar hafa orðið á myndbandalistanum frá því í síðustu viku. íslenska myndin Djöflaeyjan hefur fallið úr fjórða sætinu í það sjötta og myndin Craft úr því fimmta í það áttunda. Spennumyndin Maximum Risk er komin í fjórða sæti úr því áttunda og myndin Secrets and Lies er komin í það fimmta úr því sjöunda. Spennumyndir virðast vin- sælastar þessa vikuna en þær eru þrjár á listanum. Auk þeirra er á listanum ein gamanmynd og eitt drama. Á myndinni hér til hiiðar sést Van Damme í hlutverki sínu í spennumyndinni Max- imum Risk. 1* ^ i 1 ðfc $ ■<»' S í. i I I l’ I KS Sleepers Kevin Bacon, Robert De Niro, Dustin Hoffman og Brad Pitt. Sleepers er saga fjög- urra manna sem ólust saman upp í hverfi í New York sem nefnt var Vít- iseldhúsið vegna þess hversu illræmt þaö var fyrir glæpi. Drengimir fjórir bindast sterkum vináttuböndum og bralla ýmislegt saman. Einn daginn fer eitt prakkara- strik þeirra úr bönd- unum og drengimir era handteknir fyrir vikið. Þen- era síðan sendir á heimili fyrir afbrotaung- linga. Sú dvöl á eftir að reynast þeim dýrkeypt því yfirfangavörðurinn er ofbeldisfullur og vægö- arlaus hrotti sem misnot- ar drengina. Mörgum áram síðar ákveða drengimir að leita hefttda. Sf \<i\l U \V\\s || ~ Ttt*; -'LJMMER MAN ____________Ifl ■ The Glimmer Man Steven Seagal og Keenan Ivory Wayans. Steven Seagal leikur fyrrverandi leyniþjón- ustumanninn Jack Cole. Hann reynir nú að upp- lýsa dularfúll og sérstak- lega hrottaleg morð í Los Angeles. Honum reynist erfitt að hafa hendur í hári morðingjans og neyðist til að hefja sam- starf við lögreglumann- inn Jim Campell. Þeir Cole og Campell komast að þvi að málið er flókn- ara en þá gat órað fyrir. Svo virðist sem morðing- inn tengist einhveijum valdamiklum aðilum sem vilja ekki aö málið upplýsist Ekki líður á löngu þar til Cole áttar sig á því að málið virðist einnig teygja anga sína inn í fortíð hans. First Wives Club Goldie Hawn, Bette Midler og Diane Keaton. Þær Elisa, Annie og Brenda hafa verið vin- konur lengi. Þær eiga það sameiginlegt að hafa allar fómað eigin frama í þágu eigin- manna sinna og svo einnig það að eigin- mennimir hafa fómað im fyrir yngri konur. fyrstu brotna þær saman undan þessu reiðarslagi en smám saman fer reiðin og í kjölfarið segir hefnigimin til sín. Eft- ir að hafa ráðið ráðum sínum setja þær í gang eitursnjalla og alveg sprenghlægilega áætl- un ... Maximum Risk Van Damme og Natasha Henstridge. Alan er lögreglumaður i Frakklandi sem dag einn uppgötvar að hann á tví- burabróður í New York. Jafnframt kemst hann að því að bróðir hans, Mik- hail Suverov, hefúr verið myrtur. Mikhail var tengdur rússnesku mafi- unni í New York og virð- ist hafa gert eitthvað á hennar hlut. Alan getur ekki á sér setið að komast til botns í málinu og ákveður að fljúga vestur um haf. Þar setur hann allt á annan endann því allir halda aö þar sé Mik- hail lifandi kominn. Sú eina sem Alan getur treyst er unnusta Mik- hails og með mafíuna og FBI-menn á hælunum reyna þau að hafa upp á morðingjanum. sécrets and lie Ini'dirmál Og lyg, Secrets and Lies Brenda Blethyn, Tlmothy Spall og Mari- Hme Jean-Baptiste. ortense er ung blökkukona sem býr í London. Hún er tökubam og þegar móðir hennar deyr ákveður hún að reyna að hafa uppi á móðurinni. Hún kemst að því hvar móðirin, Cyntiiia, býr og hringir í hana. Cynthiu bregður en samþykkir að hitta hana. Þegar þær hittast og Cynthia sér að Horten- se er svört segir hún þetta mistök. Hortense hefur hins vegar sannan- ir í höndunum og að lok- um fellst Cynthia á að þær séu í raun mæðgur. Þar með hefst kostuleg at- burðarás sem nær há- marki þegar Cynthia ákveður að taka Hortense með sér í garðveislu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.