Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 4
18
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
Þrfr léttir
og liprir
ESím M-Com 506
• 215g • 60 kist. rafhiaða í biðstöðu
og (180 mín. ístöðugu tali
• 100 númera minni i símanum
• Skyndihringing 9 númer
• CLI númerabirting 10 númer
• SMS skilaboö • 12 mismunandi
hringingar
• Tölvu og
faxteng-
ingar
9600bps
Smáauglýslngar
BOSCH
Esrm M-Com 906
«135g • 55 klst. rafhlaða í biðstöðu og
í 180 mfn. í stöðugu tali
> Grafískur skjár • Innbyggð klukka
> 100 númera minni með nafni f
símanum • Skyndihringing
9 númer* CLI Númerabirting
10 númer • SMS skilaboð
>12 mismunandi hringingar
• Tölvu og faxtengingar 9600bps
• Hraðhleðslu-
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
ESnDTQ-G700Y
185g • 70 klst. rafhlaða íbiðstöðu
og í 170 mín. ístöðugu tali
• Innbyagt: klukka, vekjari og reiknivél
• Grafískur skjár • Titrings hringing
• 100 númera minni I símanum
• SMS skilaboð
10 númer
Endur-
númer
tférðir___________________________________________
Þjóðhátíð í Eyjum:
Dansað undir flugeldadýrð
Hundrað tuttugu og þrjú ár eru
liðin síðan þjóðhátíðin var fyrst
haldin í Eyjum. Hún hefur alla tíð
síðan verið haldin í Herjólfsdal ef
undan eru skilin þrjú fyrstu árin
eftir gosið í Heimaey.
Iþróttafélögin Týr og Þór hafa
skipst á um að halda þjóðhátíðina
frá árinu 1920. Að næstu þjóðhátíð
mun hins vegar standa ÍBV, nýtt
sameiginlegt íþróttafélag þeirra
Eyjamanna.
Húkkaraball
Þjóðhátíðin um næstu verslunar-
mannahelgi hefst með húkkaraballi
flmmtudaginn 31. júlí. Þar munu
peyjar og pæjur leitast við að ná sér
í félaga yfir helgina. Þeim til aðstoð-
ar verða hljómsveitirnar Sálin hans
Jóns míns og Skítamórall.
Þjóðhátíðin verður formlega sett
klukkan 15 föstudaginn 1. ágúst.
Síðan hefst samfelld skemmtidag-
Þaö er alltaf fjör fyrir alla fjölskylduna á þjóöhátíð í Eyjum.
skrá. Á Brekkusviðinu leika Sálin
hans Jóns míns og Skítamórall en
Papar leika á Tjamarsviðinu. Fjöldi
annarra skemmtikrafta kemur
fram. Þar á meðal eru Emilíana
Torrini, Jón Ólafsson, KK, D-7,
Land og synir, Gos, Johnny on the
North Pole og Á móti sól.
Barnadansleikir
Mjög vönduð barnadagskrá verð-
ur alla dagana fyrir yngstu kynslóð-
ina. Haldnir verða þrír barnadans-
leikir og söngvakeppni fyrir börn.
Svo má ekki gleyma brennunni á
föstudagskvöld, flugeldasýningunni
á laugardagskvöld og brekkusöngn-
um á sunnudagskvöld. Árni John-
sen er kynnir á þjóðhátíð og sér um
brekkusönginn.
Vopnafjarðardagar:
Greifar og fjársjóðsleit
Vopnafjarðardagar hefjast þann
26. júlí næstkomandi og ná há-
marki um verslunarmannahelg-
ina.
Fjölbreytt dagskrá hátíðarhald-
anna hefst með hagyrðingakvöldi
í íþróttahúsinu laugardaginn 26.
júlí. Meðal atburða næstu daga
má nefna brigdemót í Miklagarði,
gönguferð, sagnakvöld og golfmót.
Föstudaginn 1. ágúst fer svo
fjör að færast í leikinn. Þá er fyrst
farið í skrúðgöngu niður á kaupfé-
lagsplan þar sem boðið verður
upp á fjölbreytta skemmtidagskrá.
Um kvöldið munu svo Greifarnir
spila í Miklagarði og stendur ball-
ið fram undir morgun.
Laugardaginn 2. ágúst verður
sjóstangaveiðimót og dorgkeppni.
Þá veröur farið í fjársjóðsleit og
um kvöldið heldur Todmobile
uppi íjörinu langt fram á nótt.
Sunnudaginn 3. ágúst er svo
efnt til sundlaugarhátíðar og um
kvöldið spilar hljómsveitin SSSól
í Miklagarði.
Engan aðgangseyri þarf að
greiða að dagskrárliðunum nema
dansleikjunum í Miklagarði og
sagna- og hagyrðingakvöldunum.
Tjalda má ókeypis á tjaldstæðinu.
Einnig er frítt inn á unglingatón-
leika, sem hljómsveitirnar þrjár
sem áður voru nefndar, munu
halda áður en dansleikimir hefj-
ast.
Hér sést sýning á
fornum vinnubrögö-
um á Vopnafjaröar-
dögum.
,
I
Mjög fallegt útsýni er til allra átta úr vitanum í Papey en hann var byggöur
áriö 1922.
Papey við Hamarsfjörð:
Stórkostleg fuglabjörg
Papey úti fyrir Hamarsfirði var
lengi vel eina byggða eyjan við aust-
urströnd íslands. Sagnir herma að
írskir munkar, svokallaðir papar,
hcifi verið í eynni á sama tíma og
norrænir menn fundu ísland. Fyrsti
ábúandi eyjunnar sem vitað er um
meö vissu var hins vegar Eiríkur
Höskuldsson, prestur á 17. öld.
„Það er farið út í Papey á bát sem
heitir Gísli í Papey,“ segir Már
Karlsson, framkvæmdastjóri
Papeyjarferða. „Þetta er 16 tonna yf-
irbyggður stálbátur. Mjög skemmti-
legur bátur. Siglingin tekur 45 til 50
mínútur."
Göngustígar
Papey er um tveir ferkílómetrar
að stærð og því mjög hæflleg ganga
umhverfis eyjuna. Margar smærri
eyjar umkringja Papey. Þeirra
stærst er Amarey sem er talin fög-
ur mjög. Fuglabjörg eru stórkostleg
í Papey og hefur þar um aldir verið
sigið eftir eggjum.
„Þegar út í Papey er komið eru
fuglar i björgunum skoðaðir. Það er
mikið af fugli í eynni núna. Síðan er
gengið um eyna eftir merktum
göngustígum. Einnig er farið upp á
Hellisbjarg sem er hæsti punktur-
inn á eyjunni," segir Már.
Elsta og
minnsta kirkjan
„Kirkjan í Papey er elsta og
minnsta timburkirkja á íslandi.
Hún er frá 1807. Þar er líka alda-
mótahús sem Gísli í Papey byggði -
sá sem báturinn heitir eftir,“ segir
Már.
„Hún kom þarna út með okkur í
fyrra hún Rósa B. Blöndal. Þá skrif-
aði hún þessa vísu í gestabókina:“
Gísla í Papey gleymum ei,
gamla Eyjajarlinum
Gísli heitir fagurt fley,
fékk það nafn af karlinum.
Papeyjarferðir eru famar frá
Djúpavogi og er vel þess virði fyrir
ferðamenn að koma við í þessari
sögufrægu eyju eigi þeir leið um
sunnanverða Austfirði. Ferðin tek-
ur fjóra tíma og kostar 2500 krónur
á mann. Böm að sjö ára aldri fá frítt
en fyrir 7 til 13 ára kostar 1000 krón-
ur.