Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 17
JLlV MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997
31
férðir
Isafjarðarhátíðin 25. til 27. júli:
Bryggjuball og furðufley
Ísafjarðarhátíðin hefur farið fram
í lok júlí undanfarin ár við fögnuð
heimamanna og ferðalanga. Núna í
sumar verður hátíðin haldin 25. til
27. júlí.
„AUan ársins hring tökum við á
móti gestum hér í þessum bæ, flest-
um þó yfir sumarmánuðina," segir
Þórunn Gestsdóttir, aðstoðarmaður
bæjarstjóra. „Ferðamenn leita hing-
að til að njóta útivistar og hér eru
sannarlega möguleikamir til þess.
Ferðaþjónustuna eflist með hverju
árinu.“
Gönguferðir, siglingar, skoðunar-
ferðir, sumarkvöld í Neðstakaup-
stað, sandkastalakeppni, veiði- og
hestaferðir eru meðal þess sem
ferðamenn geta skemmt sér við á
ísafirði, að sögn Þómnnar.
Dansað
um borð
í tilefni Ísafjarðarhátíðarinnar
verður margt gert til hátíðabrigða.
Siglt verður norður á Hesteyri,
haldinn markaður í Neðstakaup-
stað, farið í kvöldverðarferð í Vigur
og dansað á dekkinu við harmón-
íkutónlist. Þá verða dansleikir í
landi á öldurhúsum bæjarins.
Á Hótel Eddu, Núpi, Dýrafirði,
verður föstudagskvöldið 25. júlí
dúndrandi sveitatónlist og dansaður
línudans undir stjórn hótelsfjórans
Jóhanns Gunnars. Fjörið heldur
áfram á laugardeginum og þá fer
fram dorgkeppni og furðufleyja-
keppni. Einnig verður boðið upp á
siglingar með áætlunarbátmn og
ferju, skemmtitæki ýmiss konar,
götukeppni í körfubolta, ratleik,
kveðskap í kaffileikhúsi og fleira.
Isafjarðarhátiö hefur verið haldin nokkur undanfarin
ár. Hafa bæöi ungir sem aldnir skemmt sér konunglega
við ýmis skemmtiatriöi.
Lautarferð
og blysför
hingað í heimsókn
og mun skemmta
bæjarbúum á ísa-
fjarðarhátíðinni.
Þá verður bryggju-
ball í Sundahöfn á
laugardagskvöld-
inu og á Hótel ísa-
firði mun Rúnar
Þórisson leika á
gítar fyrir matar-
gesti.
Á sunnudaginn
eru siglingar í
boði, einnig lautar-
ferð inn í Tungu-
dal. Þá verða tón-
leikar Guðrúnar
Jónsdóttir söng-
konu og Margrét
Gunnarsdóttir pí-
anóleikara í Tjöru-
húsi.
Ísafjarðarhátíð
lýkur með blysför
frá Safnahúsinu á
Eyrartúni. Þaðan
verður haldið upp
í Stórurð kveiktur
varðeldur.
Eins og að fram-
an greinir verður
keppt í siglingum
á furðufleyjum á
Ísafjarðarhátíð-
inni. Áhugamenn
um slíka uppá-
komu eru hvattir
tii að koma með
fley sín til keppni. Nánari upplýs-
ingar um Ísafjarðarhátíðina eru
veittar í Upplýsingamiðstöð ferða-
mála ísafirði í síma 456 5121.
Þá má geta þess að sænsk lúðra-
sveit frá Linköping er væntanleg
flfl
iW
Snorrabraut 27
105 Reykjavík.
sími: 551 3060
• Sumartilboð með öllu, mat, drykk og
gistingu, verð frá kr. 4.900 á mann.
• Sælkerahlaðborð, 25 rétta, á sunnu-
dagskvöldum í júlí og ágúst,
verð kr. 1.800 á mann.
• Verslunarmannahelgarpakki, matur,
músík og mikið fjör.
• Gisting frá 2.325 kr. á mann.
• Happdrætti, tveir heppnir gestir fara
til Irlands í haust.
• Fyrsta flokks þjónusta.
• Ný og uppgerð herbergi, að auki
svefnpokapláss.
• Hvert sem tilefnið er þá mundu
Hótel Bifröst.
Lettlð upplýsinga og pantanlr á Hótel Blfröst, Norðurárdal, Borgarfirði, siml 435 0005, fax 435 0020.
<
Tjaldvagnar og fellihýsi njóta alltaf vinsælda. Það færist í vöxt að fólk taki
gripinn meö sér til útlanda. Hér sést Bogi Baldursson hjá Títan fyrir framan
laglegan tjaldvagn.
Fellihýsi og tjaldvagnar:
Fimmtán sekúndna verk
- segir Bogi Baldursson hjá Títan
Fellihýsi og tjaldvagnar njóta
alltaf vinsælda. Mörgum finnst
þægilegt að geta sofið í einhverju
sem er veigameira en tjald en jafn-
framt það meðfærilegt að gott sé að
ferðast með það um landið.
„Tjaldvagnar hafa verið vinsælir
frá því að þeir komu á markað árið
1971. Mesta salan er í júní og júlí.
Tjaldvagnamir eru fjögurra til sex
manna,“ segir Bogi Baldursson hjá
Títan.
„Það er fimmtán sekúndna verk
að setja þá upp. Um leið og menn
eru komnir á staðinn er þetta orðið
klárt og tilbúið.“
Það er sem sagt mjög einfalt að
setja upp tjaldvagnana:
„Þegar menn koma á tjaldstæöið
finna þeir sér þann blett sem þeir
vilja vera á. Síðan taka þeir yfir-
breiðsluna af og stilla vagninn af.
Þeir losa hespumar og velta vagnin-
um yfir.“
Fellihýsi einnig vinsæl
Fellihýsin seljast mest í maí og
júní,“ segir Bogi. „Þau eru sex til
átta manna og það tekur um fimm
mínútur að sefja þau upp. Þau em
skrúfuð upp með sveif og síðan
draga menn svefntjöldin út sitt
hvorum megin. Síðan þarf að ganga
frá hurð og ööm þess háttar.
Ungt fólk er farið að sækja meira
í tjaldvagnana en það gerði. Þetta
hefur verið fólk yfir fertugt sem hef-
ur verið stærsti hópurinn. Yngra
fólkið, sem greinilega hefúr kynnst
þessun vögnum sem krakkar, er að
veröa stór hópur núna. Það þekkir
ekki annað en þennan þægilega
feröamáta."
„Það sem er að aukast núna er að
menn fari með vagnana til útlanda.
Það er mjög þægilegt," segir Bogi.
Tjaldvagnamir hjá Titan kosta
frá ríflega 300 þúsundum króna en
fellihýsin frá 520 þúsundum.
‘JBP-•
Æ]
# ’ j * WljA
WU'
mtm
Nýju ostasneiðarnar eru
tilvaldar í ferðalagið!
Á ferðalagi getur veriö gott að
losna við óþarfa umstang. Með
nýju ostasneiðunum er tekið
tillit tilþessa, því sneiðunum er
einfaldlega rennt út á bakka
þar sem þœr eru tilbúnar beint
á brauðið. Að lokinni máltíð er
bakkinn settur aftur ípokann
og hann brotinn í endann.
ekkert vesen
/ nyju umbúöunutn eru
Gouda 26%, Gouda 17%,