Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Síða 16
FUJIFILM trðir MIÐVIKUDAGUR 23. JULÍ 1997 3 fyrir 2 FUJIFILM sumartilboð Frábært sumartilboð á FUJI Super G Plus filmum, þrjár FUJI filmur á verði tveggja. Sölustaðir: m.a. FUJIFRAMKÖLLUN, í Reykjavík, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi, 10-11 búðirnar. DníasEcniíraaiE Skipholti 31- Sími 568 0450 Komdu vestur í frið og ró um verslunarmannahelgina Ótrúleg gisti- og ferðatilboð á ísafirði Gisting á Hótel ísafirði sími 456 4111 Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. 3 nætur fös. - mán. kr. 9.000 á mann með morgunverði. Börn að 16 ára aldri gista frítt með foreldrum. Gisting á Hótel ísafirði - sumarhótel sími 456 4485 Öll herbergi með handlaug. 3 nætur, fös. - mán. kr. 6.000 á mann með morgunverði. Börn að 16 ára aldri gista frítt með foreldrum. 15-30% afsláttur af skoðunarferðum ★ Sigling og veitingar (Vigur. ★ Sigling og veitingar á Hesteyri. ★ Dagsgönguferð frá Aðalvík til Hesteyrar. ★ Útsýnisflug í Reykjafjörð Barna- og fjölskylduafslættir. Sandkastalakeppni, sjóstangaveiði, gönguferðir og úrval skoðunarferða í kyrrð og ró á ísafirði um verslunarmannahelgina. Vesturferðir ehf. Sími 456 5111 Hótel ísafjörður hf. Sími 456 4111 Mikilvægt að undirbúningur sá í góðu lagi: Göngufólk þarf léttan og sterkan útbúnað Það er að mörgu að huga áður en lagt er af stað í ferðalag um mis- viðrasamt landið. Það er rétt að gæta þess í tíma að allur útbúnaður sé til reiðu og í góðu lagi. Verslunin Útilíf býður upp á mik- ið úrval göngu- og útilegubúnaðar. Við litum þar inn til að fá góð ráð fyrir þá sem ætla í gönguferðir um verslunarmannahelgina. Gefa sár nægan tíma „Fyrir göngufólk skiptir ákaflega miklu máli að vera rétt útbúið. Það mikilvægasta þegar fólk er að fara í göngur er að fara ekki í búð daginn áður. Fólk verður til dæmis að gefa sér tíma til að ganga gönguskó til og venjast þeim,“ segir Ólafur Vigfús- son hjá Útilifi. „Fólk þarf að hafa léttan og sterk- an útbúnað. Þegar sett er í bakpoka þarf þyngdarpunkturinn aö vera á réttum stað. Þú setur svefnpokann kannski neðst, siðan kemur fatnað- urinn og maturinn efst. Það er einnig mjög mikilvægt að klæða sig rétt, helst í lög, þannig að hægt sé í vindi og regni að bregða yfir sig skelinni og svo fara úr henni aftur þegar styttir upp.“ Einangrunarlag næst líkamanum Til eru margar gerðir af hlífðar- fatnaði fyrir ferðalanga, allt frá und- irfötum og sokkum til þykkra kuldayfirhafna. Enda er ekki sama í hverju er gengið. „Það er ekki gott að klæða sig í segir Ólafur Vigfússon hjá Útilífi Minnsta eldavél í heimi bómull innst því göngumað- urinn svitnar í hana og hún verður köld,“ segir Ólafur og bendir á að margir noti núna sérhannaðan undirfatnað sem hleypir svita í gegnum sig. „í gamla daga var bara verið í úlpu og lopa- peysu. Núna er fólk farið að klæða sig miklu meira í lög. Þá er einangrunarlag haft næst líkaman um. Síðan kemur svokallaður „fleece“ fatnaður og loks utan yfir það sem göngu- menn kalla skel.“ Þaö skiptir miklu máli að undir- búa göngu- feröir vel. Ráölegt er aö athuga tím- anlega hvort aliur búnaöur sé fyrir hendi og í lagi. Hér sést fullbúinn göngugarpur tilbúinn í góöa útilegu. Fátt er betra eftir langa göngu en tjalda á fallegum stað og hita sér ljúffeng- an mat. En það er leið- inlegt og erfitt að þurfa að burðast með mik- inn mat og þung eldun- artæki. „Við erum með að því er ég held minnstu elda- vél í heimi héma. Það fer ekkert fyrir þessu,“ segir Ólafúr og bend- ir á prímuselda- vél sem er svo lítil að hægt er að stinga henni í vasann. Síðan þarf auðvitað eitthvað til að elda. „Núna er hægt að fá frostþurrkaðan amerískan mat,“ segir Ólafur. „Þetta er matur sem Nasa notar í geimferjunni. Eftir langan erfiðan göngudag er þetta veisla." Varúðar er þörf á útihátíðum: Allir geta orðið fyrir nauðgun - segir Sigríður Marteinsdóttir hjá Stígamótum „Það sem við gerum fyrst og fremst fyrir verslunarmannahelg- ina núna er að vera með forvamir. Við dreifum litlum bæklingi sem kemst í vasa og þar er að finna varnaðarorð þar sem lýst er hættun- um þegar farið er á útihátíð. Við hvetjum til dæmis til þess að krakk- ar haldi hópinn og drekki í hófi,“ segir Sigriður Marteinsdóttir hjá I 'I /7,. ÍM t mw. j j WBL umnmmr 1mmi WillfllM 145 ár hafa flatkökurnar frá Ömmubakstri verið grunnurinn að góðum bita fyrir landsmenn, á öllum aldri. Nú á sérstöku afmœlistilboði g í nœstu matvöruverslun. 1 Stígamótum. „Allir geta orðið fyrir nauðgun, eins og kemur fram í bæklingnum. Þú getur orðið fyrir nauðgun. Al- gengustu nauðganimar eru einmitt svokallaðar kunningjanauðganir." í bæklingnum er þeim sem lenda í því að einhver gerir sig líklegan til að nauðga þeim bent á að æpa á hjálp eins hátt og lungun leyfa. Það hræðir stundum nauðgarann og vekur athygli þeirra sem era í ná- grenninu þannig að þeir geti komið til aðstoðar. Þá er bent á hversu alvarlegar af- leiðingar nauðgana eru. Þolendur nauðgunar lýsa henni sem því versta sem fyrir þá hefur komið. Það er nauðgun ef einhver hefur við þig samfarir þótt þú viljir það ekki og hafir sagt nei. Það er einnig nauðgim ef einhver hefur við þig samfarir og þú hef- ur drukkið það mikið að þú getur ekki gefið sam- þykki þitt. Naugðun er glæpur sem refsað er fyrir með fangels- isvist. Nauðgun aldrei réttlætanleg „Stígamót hafa alltaf minnt á sig fyrir verslunar- mannahelgar. Við teljum forvamir bestu leiðina. Til- gangur okkar er að spoma við öllu kynferðislegu of- beldi, jafnt sifjaspelli sem nauðgunum. Það hefur sýnt sig að á svona útihá- tíðum þar sem margir koma saman er meira um kynferðisglæpi. Stúlkur láta oft ekki vita þótt þeim sé nauðgað. Þær hafa kannski verið drukknar og þeim hefur verið nauðgað en þær láta ekki vita. Þær kenna sér um glæpinn sem við bendum þeim á að er ekki rétt. Nauðgun er aldrei réttlætanleg. Ef eitthvað er er hún enn skelfilegri þegar stúlkan er dmkkin eða ósjálf- bjarga," segir Sigríður. Þeim sem verða fyrir nauðgun er bent á hafa strax samband við lög- regluna eða mótshaldara. Neyðarm- óttökur fyrir þolendur nauðgana era á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Fjórðimgssjúkrahúsinu á Akureyri. Síminn hjá Stigamótum er 562-6868. Hjá Kvennaathvarfmu er síminn 800-6205. Sigríöur Marteinsdóttir hjá Stígamótum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.