Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1997, Page 1
21
FH-ingar höföu ærna ástæöu til að gleðjast á Laugardalsvellinum um
helgina. DV-myndir Hilmar Pór
Vésteinn Hafsteinsson sýndi gamalkunna takta í kringlukastinu. Hann
sigraöi og færöi ÍR dýrmæt stig. DV-myndir Hilmar Pór
Siglfirðingurinn sló í
gegn með Skagamönnum
Bls. 24-25
Gísli stefnir á tvöfaldan
sigur í torfærunni
Bls. 28
GR og Keilir unnu
sveitakeppnina í golfi
Bls. 22
Noröurlandamót öldunga í frjálsum:
Besti árangur ís-
lendinga til þessa
- aldrei áður jafnmörg verölaun
NM öldunga í frjálsum fór fram
í Lillehammer í Noregi um helg-
ina. íslenska keppnisliðið hefur
aldrei verið jafnfjölmennt og nú, 19
keppendur og þeim gekk líka mjög
vel í veðurblíðunni úti þar sem
þeir náðu 27 verðlaunum en ís-
lenskt lið hafði mest náð 18 verð-
launum áður.
Af þessum 27 verðlaunum voru
sex gullverðlaun. I flokki karla
35-39 ára náði Jón Oddsson gull-
inu bæði í langstökki, stökk 6,99
m, og í þrístökki þar sem hann
stökk 14,44 m. í flokki 65-69 ára
fékk Karl Torfason gull í lang-
stökki fyrir stökk upp á 4,57 m.
Helga Bjömsdóttir fékk gullverð-
laun í 800 m hlaupi í flokki 45-49
ára, hljóp á tímanum 2.33,71. í
flokki 50-54 ára náði Anna Magn-
úsdóttir tvennum gullverðlaunum.
Hún sigraði með nýjum íslands-
metum bæði í spjótkasti og kúlu-
varpi. Hún kastaði spjótinu 25,11
m og kúlunni 10,57 m. -ÖB
Guðrún fimmta
í Mónakó
Guðrún
Arnardóttir
hafnaði í
fimmta sæti
í 400 m
grinda-
hlaupi á
Grand-Prix
móti í
Mónakó í
fyrrakvöld. Hún hljóp á 55,22
sekúndum og var þvi nokkuð frá
íslandsmetinu, 54,79 sekúndur,
sem hún setti í Zúrich á mið-
vikudaginn.
Kim Batten frá Bandaríkjun-
um sigraði á 53,06 sekúndum,
Deon Hemmings frá Jamaíka
varð önnur á 53,22, Tatjana Ter-
eshcuk frá Úkraínu þriðja á 53,64
og Debbie-Anne Parris frá
Jamaíka fjórða á 55,06 sekúnd-
um. Rétt á eftir Guörúnu voru
Andrea Blackett frá Barbados,
Anna Knoroz frá Rússlandi og
Susan Smith frá írlandi.
Önnur helstu úrslit á mótinu
eru á bls. 27.
-vs
Þórður skoraði
og Genk er efst
Þórður Guðjónsson skoraði
fyrsta mark Genk þegar liðið
vann góðan útisigur á Lokeren,
1-5, í belgísku 1. deildinni í
knattspymu í fyrrakvöld. Genk
hefur byrjað mjög vel og er á
toppnum eftir tvær fyrstu
umferðimar. Úrslitin og staðan í
Belgíu eru á bls. 27.
-VS
Eyjólfur frískur
í bikarnum
Eyjólfur Sverrisson lék mjög
vel á laugardag þegar Hertha
Berlín sigraði Stahl Eisenhútt-
enstadt, 4-0, á útivelli í fyrstu
umferð þýsku bikarkeppninnar í
knattspymu.
Eyjólfur skoraði fýrsta mark
Herthu strax á 5. mínútu og á 55.
mínútu komst Hertha í 2-0 þegar
boltinn fór af vamarmanni
heimaliðsins í netið eftir fyrir-
gjöf Eyjólfs. Rheinische Post
sagði að Eyjólfur hefði verið
annar tveggja bestu leikmanna
Herthu.
-VS
Cantona í mál
við Man. Utd?
Eric Cantona, fyrrum fyrirliði
enska knattpspymuliðsins Man-
chester United sem lagði skóna á
hilluna í vor, íhugar að fara í
mál við félagið.
Cantona á í deilum við United
um hagnað af treyjum sem bera
nafn hans og hefur lagt málið í
hendur lögfræðings síns.
-VS
Ásthildur
ekki meira með
Ásthildur Helgadóttir leikur
ekki meira með íslandsmeistur-
um Breiðabliks í knattspymu
kvenna í úrvalsdeildinni í sum-
ar. Hún fór til náms i Bandaríkj-
um strax eftir lokaleik Blika-
stúlknanna á Norðurlandamót-
inu á laugardag.
Ásthildur kemur þó heim til
að spila bikarúrslitaleikinn með
Breiðabliki gegn Vai. Hún mun
stunda nám í verkfræði viö
Vanderbilt-háskólann í Tenn-
essee og leika knattspymu með
skólaliðinu.
-ih/VS
Lottó:
6 7 19 31 35 - 2
Ensk/sænski boltinn:
212 X21 X21 11X2