Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Síða 2
2
MANUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Fréttir
DV við útför Díönu prinsessu í London:
Hjartadrottningin
Milljónir manna komu saman í Lundúnum til aö fylgja Díönu prinsessu til grafar á laugardaginn. Líkfylgdin fór um 6 kílómetra
leiö gegnum miöborgina og mikil örtröö var á leiö hennar. Hér sést líkfylgdin fara um Kensingtonstræti. DV-mynd kbb
Milljónir manna söfnuðust saman
í miðborg Lundúna á laugardag og
syrgðu prinsessuna sem átti sér þá
ósk heitasta að rikja sem drottning
í hjörtum fólksins þegar ljóst var að
hún yrði aldrei drottning í augum
bresku hirðarinnar. Prinsessuna
óraði hins vegar aldrei fyrir því á
hve dapurlegan hátt ósk hennar átti
eftir að rætast. Skyndilegur dauði
hennar opinberaði í liðinni viku
hvílík drottning hún var sannarlega
í hjörtum manna og í hugum þeirra
milljóna sem fylgdu henni til grafar,
ýmist á götum Lundúna eða annars
staðar i heiminum, lifir hún í minn-
ingunni sem slík drottning um ald-
ur og ævi.
Fjölmenni í morgunsáriö
Þegar blaðamaður DV kom að
Kensingtonhöll, klukkan fjögur að-
faranótt útfarardagsins var þar mikill
mannfjöldi saman kominn. Sterk
blómaangan mettaði loftið við höllina
þar sem um milljón blómvendir
höfðu verið lagðir til minningar um
prinsessuna, ásamt skeytum, kortum
og ljóðum sem fólk hvaðanæva úr
heiminum hafði komið með. í morg-
unkyrrðinni sat fólk, spjallaði saman
og drakk kaffi en veitingasalar í Hyde
Park. Um fimmtíu þúsund manns
höfðu þegar komið sér fyrir við leið
líkfylgdarinnar og settu það ekki fyr-
ir sig að sofa á harðri gangstéttinni í
svefnpokum. Upp úr klukkan sex fór
fólk að streyma að úr öllum áttum og
fljótlega var orðið þröngt með fram
vegi líkfylgdar Díönu.
Fáninn í hálfa stöng
Það var síðan klukkan 9.08 stund-
víslega að líkfylgdin kom út úr
Kensingtonhöll með kistu Díönu.
Morgunkyrrðin var skyndilega rof-
in af snökti og ekkasogum. „Guð
geymi þig, Diana, Guð geymi þig,“
hvíslaði fólk úr öllum áttum. Ein
kona gat ekki hamið tilfinningar
sínar og hljóðaði upp yfir sig:
„Hvers vegna ertu farin, Díana?“ og
féll í yflrlið. Fyrir utan þetta eina
tOvik sýndi fólk furðumikla still-
ingu og mikill virðuleiki var yfir
líkfylgdinni.
Likfylgdin hélt siðan áfram að Al-
bertsminnismerkinu og að horni
Hyde Park. Þvi næst kom hún að
Buckinghamhöll þar sem konungs-
fjölskyldan vottaði virðingu sína.
Þegar drottningarfáninn var dreg-
inn niður á Buckinghamhöll og fána
Bretlands flaggað í hálfa stöng brut-
ust út gríðarleg fagnaðarlæti meðal
mannfjöldans - einna líkast því að
mark hefði verið skorað í fótbolta-
leik. Margir virtust hafa tekið
drottinguna í sátt við þetta en hún
hafði hikað við að leyfa að fáninn
yrði hafður í hálfa stöng þar sem
það væri brot á hirðsiðum. „Ég
vissi að hún ætti til hjarta," sagði
gamall maður sigrihrósandi.
Rafmagnað andrúmsloft
í Hyde Park voru vel á annað
hundrað þúsund manns saman
komin til að fylgjast með guösþjón-
ustunni á tveimur risastórum sjón-
varpsskjám. Töluvert fát kom á fólk
þegar þjóðsöngurinn var leikinn.
Örfáir stóðu strax upp en flestir
horfðust augnablik í augu og virtust
tvistígandi um hvort þeir ættu að
standa upp fyrir drottningunni.
Smám saman tóku menn þó við sér
og fyrr en varði stóðu um 160 þús-
und manns og kyrjuðu þjóðsönginn.
Eftir það voru sungnir sálmar, syst-
ur Diönu fluttu ljóð og Tony Blair
las óðinn til kærleikans.
Kerti í vindinum
Þá var komið að þætti Eltons
Johns sem flutti lag sitt, Candle in
the Wind. Það er ekki til orð til að
lýsa þeim viðbrögðum sem flutning-
ur hans á laginu vakti meðal þeirra
hundruð þúsunda sem samankomin
voru í Hyde Park þennan dag.
Mannfjöldinn reis á fætur, allir sem
einn, alls staðar féllst fólk í faðma
og enginn gat haldið lengur aftur af
tárunum. „Ég gat ekki grátið þegar
móðir mín dó fyrir 12 árum en gerði
það nú,“ sagði Ben Lydon, 40 ára
smiður frá Leicester. „Líklega er ég
fyrst núna að gera mér grein fyrir
því sem ég upplifði fyrir öllum þess-
um árum.“ Dominic Robinson há-
skólanemi átti ekki bágt með að
dylja tilfinningar sinar: „Þessi
mikla þjóðarsorg og samúð sem við
höfum tekið þátt í hefur sýnt mönn-
um einkasorgir sínar í nýju ljósi.
Þess vegna hafa flestir grátið í dag.“
Bróðir Díönu fann réttu orðin
Næst var komið að þætti Spencers
jarls, bróður Díönu. Óhætt er að full-
yrða að ræða hans hafi veriö sá hluti
athafnarinnar sem snerti fólk dýpst.
Spencer var opinskár í ræðu sinni
og fór ekki leynt með reiði sína í
garð fjölmiðla. í Hyde Park var þrí-
vegis klappað sérstaklega fyrir orð-
um hans. Mestur var þó fögnuðurinn
þegar hann sagði Díönu ekki hafa
þurft konunglegan titil til að halda
hinni sérstöku tegund útgeislunar
sinnar. Allt ætlaði bókstaflega um
koll að keyra, allir stóðu á fætur og
hrópuðu ákaft húrra. „Hann sagði
nákvæmlega þau orð sem við höfð-
um öll árangurslaust leitað eftir,“
sagði Jessica Thompson, sextug
kennslukona. í lok guðsþjónustunn-
ar í Westminster var mínútu þögn
um alla Lundúnaborg. Var það mál
manna að aldrei hefði önnur eins
þögn ríkt í heimsborginni. Mikil ör-
tröð myndaðist við austurenda Hyde
Park þar sem kista Díönu fór fram
hjá á leiðinni til Althorp þar sem
Díana var lögð til hinstu hvílu.
Margir köstuðu blómum fyrir bílinn
og notuðu síðasta tækifærið til að
votta prinsessunni virðingu sína á
þessum einstaka degi í Lundúnum
þar sem einstök kona hafði fengið
einstaka útför. -kbb
Framtíð konungdæmis í Bretlandi:
Vonir allra bundnar við Vilhjálm
Miklar vonir eru bundnar við Vilhjálm prins í
Bretlandi þessa dagana. Margir telja hann þann
eina sem bjargað geti konungdæminu. Reuter
DV, Lundúnum:
Sviplegt fráfall Díönu prinsessu
hefur ekki aðeins vakið sorg meðal
bresku þjóðarinnar heldur einnig
reiði í garð konungsfjölskyldunnar.
Konungsfjölskyldan þótti ekki hafa
brugðist rétt við í því að láta form-
festu og venjur aftra sér frá því að
taka opinberlega þátt í sorgum þjóð-
arinnar framan af vikunni. Og jafn-
vel þótt Elisabet Bretadrottning hafi
á fostudag loksins látið tilleiðast að
tjá sig opinberlega um andlát Díönu
voru flestir á því að ávarp hennar
hefði komið of seint. „Almenningur
stillti henni upp við vegg og hún
hefur líklega talið þetta bestu leið-
ina til að bjarga andliti konungsfjöl-
skyldunnar," sagði ung kona frá
Newcastle sem var að koma fyrir
blómsveig við Kensingtonhöll.
Dauði Díönu ýfði einnig upp gömul
sár. Margir Bretar eru konungsfjöl-
skyldunni reiðir vegna framkomu
hennar í garð Díönu og sú reiði
blossaði aftur upp í vikunni. „Þau
notuðu hana til undaneldis. Um leið
og hún hafði átt strákana fleygðu
þau henni á dyr,“ sagði fullorðin
verkakona frá Sheffield.
Karl hefur samúð
Þótt undarlegt sé virðist Karl
Bretaprins vera sá eini í konungs-
fjölskyldunni - fyrir utan syni Díönu
- sem hlotið hefur samúð almenn-
ings. „Ég vorkenni Karli. Hann getur
ekkert gert í stöðunni án þess að það
verði lagt út á versta veg,“ sögðu
flestir sem DV ræddi við aðfaranótt
laugardags. Karl þótti einnig standa
sig með miklum sóma á útfarardag-
inn þar sem hann gekk
við hlið sona sinna á eftir
kistu fyrrverandi eigin-
konu sinnar. „Hann hlýt-
ur að vera afskaplega
óhamingjusamur maður,"
sagði fólk sem sá þá feðga
ganga á eftir kistunni.
„Það var gula pressan
sem eyðUagði hjónaband
Díönu og Karls. - Hún gaf
þeim aldrei frið tU leysa
ágreining sinn með eðli-
legum hætti,“ sagði WiUi-
am Tanner, fyrrverandi
hermaður, sem horfði á
líkfylgdina. Fólk sem
varð vitni að því þegar
Karl og synir hans
heUsuðu upp á syrgjend-
ur og tóku við blómum
fyrir utan KensingtonhöU
á fóstudag var djúpt
snortið. „Hann er aftur
orðinn gamli, góði KaUi
sem öUum viU vel,“ sagði
miðaldra kona frá Exeter
og þerrði tár af auga.
Allra augu á prinsunum
Flestra augu hafa þó beinst að
prinsunum ungu, sonum Díönu,
þeim Vilhjálmi og Harry. Liklega
hafa engir tveir drengir í heiminum
nokkru sinni átt samúð jafnmargra
og þeir eiga þessa daga. „Guð blessi
ykkur, VUhjálmur og Harry,“ hróp-
aði mannfjöldinn þegar prinsarnir
hófu gönguna á eftir kistu móður
sinnar fyrir utan St. JakobshöU.
Ekki hafði verið tilkynnt um það
fyrir fram að prinsarnir myndu
slást í fór með líkfylgdinni. Vil-
hjálmur prins drúpti höfði aUan
tímann sem hann gekk á eftir kistu
móður sinnar. Þegar líkfylgdin
nálgaðist Westminster Abbey köU-
uðu margir hvatningarorð tU VU-
hjálms. „Hertu upp hugann, VU-
hjálmur!“ „Við stöndum öU með
þér, Vilhjálmur!“ „Þið gangið aldrei
einir, strákar!“
Breskir fjölmiölar voru almennt
sammála um að láta vangaveltur
um hugsanlegt konungshlutverk
hins unga VUhjálms bíöa betri tíma
og ýmsir vegfarendur létu sömu
skoðun í ljós. Ekki þurfti þó að leita
langt tU þess að finna það sem flest-
um bjó í brjósti. Sjötugur maður
sem ekki vUdi láta nafns síns getið
sagði: „Nú skiptir mestu máli að
hann fyUist ekki reiði eöa biturð í
kjölfar þess sem hann er ganga í
gegnum. Ef hann stenst þessa þol-
raun og heldur áfram að líkjast
móður sinni - þá er ég ekki í
nokkrum vafa um að hann verður
besti konungur sem Bretland hefur
nokkru sinni átt.“ -kbb
Stuttar fréttir
Sameining á Héraði
Fimm sveitarfélög á Héraði
verða sameinuð á næsta ári.
Sameiningin var samþykkt með
yfmgnæfandi meirihluta atkvæða
í öUum sveitarfélögum í atkvæða-
greiðslu sem lauk í fyrrakvöld.
Kjörsókn var á bUinu 70-90%
nema í EgUsstaðabæ þar sem
hún var tæp 42%.
Barnabætur óháðar
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, telur að
bamabætur eigi að vera óháðár
tekjum. Það sé ranglátt að bama-
fólk búi við verri kjör en bamlaust
fólk í sömu tekjuhópum. Afnám
tekjutengingar bamabóta yrði stórt
skref tU lækkunar jaðarskatta.
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Stofnfjáraðilum Sparisjóðs
Ólafsfjarðar var fjölgað á sfjórnar-
fimdi i gær en fram tU þessa hefur
Ólafsfjarðarbær verið eini stofn-
fjáraðili sparisjóðsins. Sparisjóð-
urinn tapaði nær 250 mUljónum
fyrstu sex mánuði ársins. Stofnfé
hefur verið aukið um 200 mUljónir.
Óteljandi skór
Stórum skósöfnunargámi hef-
ur verið komið fyrir bak viö
Þjóðleikhúsið. Ástæðan er sú að í
leikmynd að Grandavegi 7 eftir
Vigdísi Grímsdóttur, sem frum-
sýnt verður í lok október, er gert
ráð fyrir óteljandi skóm. -VÁ