Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Fréttir
Ályktun stjórnarfundar Þjóðvaka:
Ekki boðið fram sjálfstætt
í næstu kosningum
- þarf að taka ákvörðun um sameiginlegt framboð, segir Jóhanna Sigurðardóttir
Stjórnarfundur var haldinn í
Þjóðvaka í gær. Þar var samþykkt
einróma ályktun um stöðu Þjóðvaka
og sameiningarmál jafnaðarmanna
og félagshyggjufólks. Lagt verður til
á næsta aðalfundi flokksins, sem
verður haldinn í nóvember, að Þjóð-
vaki bjóði ekki fram sjálfstætt í
næstu kosningum heldur verði aðili
að nýju framboðsafli jafnaðar-
manna og félagshyggjufólks. Þannig
vill hreyfmgin sýna í verki að hún
vilji að samið verði um stofnun
slfks afls sem allra fyrst.
Jóhanna Sigurðardóttir, formað-
ur Þjóðvaka, sagði ástæðuna fyrir
þessari ályktun nú þá að stjórnin
teldi brýnt að flokkamir sem ætli
að standa að sameiginlegu framboði
fari að losa um flokksböndin. „Það
þarf að fara að taka þessa ákvörðun
um sameiginlegt framboð til að
hægt verði að hefja kosningaundir-
Þingflokkur Þjóðvaka á fundi skömmu eftir síðustu alþingiskosningar.
Stjórn Þjóðvaka leggur til að Þjóðvaki bjóði ekki fram sjálfstætt í næstu
kosningum. DV-mynd ÞÖK
búninginn. Ég held að krafan sé orð-
in svo sterk í þjóðfélaginu að kveðja
flokkakerfi gærdagsins að ekki
verði aftur snúið,“ sagði Jóhanna.
Hún segist bjartsýn á að gmnd-
völlur sé fyrir slíku samstcirfi. „Ég
tel að minni ágreiningur sé innan
stjómarandstöðunnar en til dæmis
innan Sjálfstæðisflokksins. Ef vilj-
inn er fyrir hendi þá tekst þetta,“
sagði Jóhanna.
í ályktuninni er frumkvæði sam-
ráðsfundar Kvennalistans frá 30.
ágúst um aö losa um flokksgirðing-
arnar fagnað þannig að konur inn-
an samtakanna geti tekið þátt í að
vinna að sameiginlegu framboði. Þá
er hvatt til að þeir flokkar og sam-
tök sem nú taka þátt í viðræðum
um sameiginlegt framboð lýsi yfir
að þeir muni bjóða sameiginlega
fram í næstu alþingiskosningum.
-HI
Vagnstjórar SVR:
Funda með
lögmanni
BSRBí dag
Trúnaðarmenn vagnstjóra
SVR funda í dag ásamt Sjöfn Ing-
ólfsdóttur, formanni Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborg-
ar, með Gesti Jónssyni, lögfræð-
ingi stéttarfélags síns, BSRB.
Fundarefnið er til hvaða að-
gerða vagnstjórar geta gripið tfl
að mótmæla þremur nýlegum
uppsögnum kollega sinna sem
þeir telja óréttmætar.
Einn trúnaðarmanna, Sigur-
björn Halldórsson, vfldi í sam-
tali við DV í gærkvöldi ekki
upplýsa hvaða aðgerðir væra til
umræðu. Það myndi skýrast eft-
ir fundinn í dag.
„Óánægja og óróleiki ríkir
enn á meðal vagnstjóra. Ég veit
ekki um fleiri uppsagnir en í
hvert sinn sem maður mætir tO
vinnu lítur maður í kringum sig
tfl að sjá hvort einhvem vantar
og athuga þá af hverju hann
vantar. Við getum gripið til ým-
issa aðgerða, þó ekki til verk-
fafls. Við munum væntanlega
fara löglegar en siölausar leið-
ir,“ sagði Sigurbjöm. -bjb
Furugrundarmál:
Rannsaka á hvernig
lögreglugögn týndust
- segir Margrét
„Það er auðvitað mjög alvarlegt
að rannsóknargögn týnist innan
lögreglunnar. Aö mínu mati krefst
það þess að fram fari rannsókn á
því hvernig gögnin gátu týnst.
Ábyrgðin er auðvitað hjá lögreglu-
stjóra sem er yfirmaður embættis-
ins,“ segir Margrét Frimannsdótt-
ir, þingmaður Alþýðubandalags-
ins, um Furagrundarmálið.
Málið snerist um 130 kg af hassi,
auk amfetamíns, sem Franklín
Steiner játaði fyrir lögreglu að
hafa átt. Málið var rannsakað hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar en
rannsóknargögnin týndust og hafa
Frímannsdóttir
aldrei fundist.
„Mér fmnst eðlilegt að skýrsla
Atla Gíslasonar um rannsókn hans
á samskiptum fikniefnalögreglunn-
ar og Franklíns Steiners verði birt,
a.m.k. þingnefnd sem fjallar um
málið til dómsmálaráðuneytis.
Mér finnst einnig mikilvægt að
dómsmálaráðuneytið og lögregluyf-
irvöld setji reglur um kaup á upp-
lýsingum ef á að heimOa það. Fyrr-
verandi yfirmaður fikniefnadeildar
fór ítrekað fram á að þessar reglur
yrðu settar tO að lögreglumenn
þyrftu ekki að vinna á gráu svæði,"
sagði Margrét. -RR
27 myndir Halldórs Péturssonar listmálara:
Aðhefst ekkert
frekar í málinu
- segir Fjóla Sigmundsdóttir, ekkja Halldórs
Prestaskólinn 150 ára
„Ég ætla ekki að aðhafast neitt frek-
ar varðandi þessar myndir," sagði
Fjóla Sigmundsdóttir, ekkja Halldórs
Péturssonar, við DV.
Búið er að taka niður sýninguna á 27
myndum Halldórs Péturssonar listmál-
ara í Gallerí Fold. Myndimar 27 eru
írummyndir að myndum sem á sínum
tíma voru gefhar út á jólakortum og
Fjólu og eiganda kortaútgáfúfyrirtæk-
isins Edda Fótó greinir á um eignar-
hald á frummyndunum. Frá þessu var
sagt í forsíðufrétt DV sl. fimmtudag.
Knútur Bruun hæstaréttarlögmað-
ur, sem er sérfróður um höfundarrétt-
armál myndlistarmanna, segir að dóm-
ur í hugsanlegum málaferlum vegna
eignarhalds á myndunum gæti fallið
hvorum aðila sem er í vfl nema að
annar hvor aðfli geti framvísað skýr-
um gögnum tfl stuðnings máli sínu.
Styttu stolið
Stytta, grá úr steini, 120 sm á hæð
og um 60 kfló að þyngd, hvarf úr
garði Vífilfells, að Stuðlahálsi 1.
Styttan er af konu sem ber hendur
við höfuð.
Talið er að styttan hafi horfið 24.
ágúst síðastliðinn. Ef einhver hefur
orðið styttunnar var þá er hann
beðinn að láta lögregluna í Reykja-
vik vita. -RR
Hins vegar sé höfundarréttur Fjólu
skýlaus. Fjóla hefúr gagnrýnt að ekk-
ert samband hafi verið haft við hana
sem höfundarrétthafa áður en sýning-
in var sett upp. -SÁ
Viö setningu guðfræöideildar Háskóla íslands í Dómkirkjunni í gær var þess minnst aö 150 ár voru liöin frá því að
Prestaskólinn í Reykjavík tók til starfa. Prestaskólinn var undanfari Háskóla íslands og starfaði sem slíkur í 50 ár. í
hátíöarguöþjónustu flutti forseti deildarinnar, Pétur Pétursson prófessor, predikun sem og herra Ólafur Skúlason
biskup. Meöal viöstaddra voru forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Guörún Katrín Þorbergsdóttir, sem hér eru
á fremsta bekk. Fyrir aftan þau má sjá Sigurbjörn Einarsson biskup. DV-mynd Guölaugur Tryggvi
Fornleifarnar að Neðra-Ási í Hjaltadal:
Frásögn Kristni-
sögu virðist rétt
- segir Þór Magnússon þjóðminjavörður
„Við teljum að það sé nokkuð
merkilegt sem er að koma í ljós og
staðfesti það sem menn grunaði að
þarna væri að finna,“ segir Þór
Magnússon þjóðminjavöröur um
fomminjarnar að Neðra-Ási i
Hjaltadal i Skagafirði sem sagt var
frá í forsíðufrétt DV í fyrradag.
Þjóðminjavörður skoðaði sjálfur
staðhætti að Neðra-Ási árið 1987 og
gróf lítillega á þeim stað þar sem
fomar heimildir greina frá að
kirkja hafi verið. Uppgröfturinn nú
í sumar er frekari staðfesting þess
sem þá fannst og þess að ritaðar
heimildir, t.d. í Kristnisögu, eru
réttar hvað varðar kirkju að Neðra-
Ási.
„Menn vissu ekki nákvæmlega
hversu áreiðanlegar heimOdimar
kynnu að vera en það var ljóst þeg-
ar staðhættir vora skoðaðir árið
1987 að þarna gæti verið kirkju-
garður. Þegar við síðan gerðum
smákönnun komu í ljós grafir sem
staðfestu að þama hefur verið bæði
kirkja og kirkjugarður," sagði Þór
Magnússon í samtali við DV.
Þór Magnússon segir að ekkert
hafi enn komið í ljós sem veikir þá
tilgátu að um sé að ræða mannvirki
frá því fyrir kristnitöku. Öskulag
úr Heklugosi 1104 sé yfir öllum
mannvirkjum og allur umbúnaður
þeirra sýni að þau séu talsvert
eldri.
í Kristnisögu er talað um íjórar
kirkjur í landinu fyrir kristnitök-
una árið 1000. Þær voru auk Áss, í
Hjaltadal, eða Neðra-Áss að Esju-
bergi á Kjalamesi, að Holti í Ásmn
og í Vestmannaeyjum. -SÁ
Golfvöllurinn í Tungudal:
Þrisvar
holaí
höggi
Þau merkilegu tíðindi gerðust á
golfvellinum í Tungudal við Skuls-
fiörð um og eftir síðustu helgi að
þrír golfleikarar fóra holu í höggi
á aðeins fiórum dögum. Er það
einsdæmi á þessum velli og þykir
gott ef slíkt gerist einu sinni á ári.
Hófst þessi fágæta skorhrina
laugardaginn 23. ágúst en þá setti
Daníel Karl Egilsson kúlu niður í
einu höggi á 6. braut. Mánudaginn
25. ágúst var það Baldur Geir-
mundsson (BG og Ingibjörg) sem
átti slíkt meistaraskot á 7. braut og
Kristín Karlsdóttir, sem er nýliði í
greininni, lék það eftir þriðjudag-
inn 26. ágúst og þá á 6. braut.
-HKr.