Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Framtíö breska konungdæmisins helsta umræöuefni Breta:
Vilja Vilhjálm prins í
hásætið á eftir ömmu
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, segir að dauði Díönu
prinsessu hafi sýnt fram á að
breska konungsfjölskyldan verði að
laga sig að nútímanum eða líða
hreinlega undir lok.
Blair ræddi einslega við Elísa-
betu Englandsdrottningu í sumar-
höU hennar i Skotlandi í gær um
framtíð konungsfjölskyldunnar og
hefur eflaust flutt henni þessi boð.
Blair steig fram fyrir skjöldu í
gær og hélt uppi vörnum fyrir kon-
ungsfjölskylduna og hvemig hún
brást við dauða Díönu. Þá sagði
hann að Karl ríkisarfi yrði góður
konungur.
Bretar virðast hins vegar ekki
sömu skoðunar, ef marka má skoð-
anakönnun sem blaðið Guardian
gerði í síðustu viku. Þar sögðu 72
prósent aðspurðra að þau vildu að
Vilhjálmur prins, eldri sonur Karls
og Díönu, tæki við konungdæminu
eftir ömmu sína. Aðeins 21 prósent
vildi að Karl yrði konungur eftir
móður sína. Þá töldu tveir þriðju að-
spurðra að dauði Díönu veikti kon-
ungdæmið.
„Konungsfjölskyldan hefur mátt
þola miklar raunir þessa viku og
mér finnst gagnrýnin hafa verið
mjög ósanngjörn," sagði Blair.
Fjölmiðlar og almenningur sök-
uðu konungsfjölskylduna um að
neita að láta af viðteknum siðaregl-
um og taka þátt í sorg almennings.
„Ég tel að konungdæmið sé hefð
sem við viljum halda í,“ sagði Blair
í gær. Hann staðfesti jafnframt að
hann hefði beðið Díönu um að verða
eins konar mannúðarsendiherra og
hún hefði failist á það.
Díana hafði sýnt því mikinn
áhuga að taka við nýju hlutverki
sem „drottning í hjörtum fólksins"
eða sendifulltrúi Bretlands.
Skömmu fyrir andlátið fór hún til
Bosníu til að berjast fyrir banni við
notkun jarðsprengna.
Prinsarnir Vilhjálmur og Harrý,
synir Karls og Díönu, eru nú komn-
ir til sveitaseturs fóður sins, High-
grove. Karl fór fram á það í gær að
drengimir fengju tímá og ráðrúm
til að syrgja móður sína í friði.
Milljónir manna, sem fylgdust
með útför Díönu á laugardag,
klökknuðu við að sjá prinsana
ganga á eftir kistu móður sinnar
síðasta spölinn til Westminster
Abbey.
„Ríkisarfmn vill að synir hans fái
frið til að jafna sig á þessum mikla
missi og til að búa sig undir fram-
tíðina," sagði talsmaður Karls. „Það
sem þeir þurfa síst af öllu eru leift-
urljós myndavélanna þegar þeir
fara aftur í skóla.“
Spencer jarl, bróðir Díönu, veitt-
ist harkalega að fjölmiðlum í minn-
ingarræðu sinni við útförina og sak-
aði þá um að hafa orðið systur sinni
að bana. Hann sagði aö hendur
ritstjóra dagblaðanna bresku væru
blóði drifnar. Margir leiðarahöfund-
ar og frammámenn í blaðaheimin-
um viðurkenndu i gær að lífið yrði
ekki samt og áður að Díönu látinni.
Reuter
L^gJJfív Æjk p- : .
Ww0!!$t ", í föv-’ .v^*' l liðL *
Sí \ j 1 aBI j Yf 1 ^ Wm 1 \ t £
Karl ríkisarfi, Harrý prins, Spencer jarl og Villhjálmur prins fylgjast með þegar kistan meö líki Díönu prinsessu er borin inn í Westminster Abbey í Lundúnum
þar sem útför prinsessunnar var gerð á laugardagsmorgun. Milljónir manna fylgdust meö þegar líkfylgdin fór um götur borgarinnar. Símamynd Reuter
Rússar halda
upp á 850 ára
afmæli Moskvu
Milljónir manna ílykktust út á
götur Moskvu um helgina til að
halda upp á 850 ára afmæli borg-
arinnar með dansi, söng og ærsl-
um af margvíslegu tagi.
Meðal skemmtiatriðanna á
Rauða torginu voru tónleikar
hins franska Jeans-Michels
Jarres. Meðan hann lék tónlist
sína á laugardagskvöld sprungu
flugeldar yfir höfðum áheyrenda
og myndum úr sögu borgarinnar
var varpað á veggi Moskvuhá-
skóla.
Leiðtogi á móti
fangaframsali
MartinMcGuinness, einn leið-
toga Sinn Fein, pólitísks arms
írska lýöveldishersins, hvatti
bandarísk stjómvöld um helgina
til aö framselja ekki þrjá flótta-
menn úr norður-írsku fangelsi.
Strokufangamir þrfr era í
haldi í fangelsi i nágrenni San
Francisco. Dómari hefur heimil-
að framsal þeirra. Reuter
Leiðtogar Palestínu, Egyptalands og Jórdaníu:
Hvetja ísraela til að
standa við friðarloforð
Leiðtogar Egyptalands, Jórdaníu
og Palestinu hvöttu ísraelsk stjórn-
völd í gær til að standa við loforð
sín um frið og láta af stefnu sem
þeir sögðu að samrýmdist ekki
„friðarandanum".
Þeir Hosni Mubarak Egyptalands-
forseti, Hussein Jórdaníukóngur og
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hittust í Kaíró í Egyptalandi
til að samræma stefnu sína fyrir
fyrstu heimsókn Madeleine Al-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til landanna fyrir botni
Miðjarðarhafsins síðar í vikunni.
Fundur leiðtoganna fylgdi í kjöl-
far sjálfsmorðsárásar á fjölfarinni
göngugötu í Jerúsalem á fimmtudag
in þar sem sjö týndu lífí, þar á með-
al þrír sprengjuvargar, og nærri tvö
hundrað særðust. Daginn eftir fóra
ísraelar svo í misheppnaða herför
til suðurhluta Líbanons og misstu
tólf menn. Það var mesta mannfall
Miklar vonir eru bundnar við för
Madeleine Albright, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna, til Miö-Austur-
landa í vikunni. Símamynd Reuter
þeirra þar í mörg herrans ár.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, átti í vök að verj-
ast í gær vegna ófara þessara og
reyndi að kæfa vaxandi umræður
um hvort ísraelsmenn ættu að
hverfa brott frá sjálfskipuðu örygg-
issvæði slnu í suðurhluta Líbanons.
Netanyahu sagði að ef Albright
legðist á Palestímunenn með öllum
þunga Bandarikjanna færi að miða
áleiðis í friðarviðræðunum í Mið-
Austurlöndum.
„Það er kominn tími til að hefjast
handa,“ sagði Netanyahu í viðtcdi
við bandarisku Fox-sjónvarpsstöð-
ina.
Hann sagði að Albright yrði að
gera það ljóst að Bandaríkjastjóm
ætlaðist til þess af Palestínumönn-
um að þeir stæðu við friðarsamn-
ingana við ísrael en þeir voru voru
undirritaðir árið 1993. Reuter
Synd að kjósa ekki
Háttsettur biskup kaþólsku
kirkjunnar í Póllandi hvatti
landsmenn í gær til að mæta á
kjörstað eftir hálfan mánuð og
sagði það synd að neyta ekki
kosningaréttarins.
Óbreytt
Helmut
Kohl Þýska-
landskanslari
ætlar ekki að
breyta neinu,
hvorki stjóm
sinni né stefnu
hennar, þegar
stjórnmálalífið
vaknar aftur til lífsins eftir sum-
arhlé. Hann gerir sér vonir um
að með því að berja sömu bumb-
una hærra en áður muni likum-
ar á endurkjöri hans á næsta ári
aukast.
Svefnlausir af ótta
Sífellt fleiri ibúum höfuðborg-
ar Alsírs verður ekki svefnsamt
um þessar mundir eftir síðustu
tjöldamorð bókstafstrúarmanna.
Um fimmtíu vora drepnir innan
borgarmarkanna um helgina.
Óvíst um krossfestingu
Óvíst er hvort tveir glæpa-
menn í Sameinuðu arabísku
fúrstadæmunum verði krossfest-
ir áður en þeir verða teknir af
lífi, eins og tilkynnt var um helg-
ina.
Mannfall á Kómoreyjum
Meira en 30 hafa fallið í átök-
um aðskilnaðarsinna og stjórn-
arhermanna á Anjouaneyju í
Kómoreyjaklasanum.
Æst til
Harðlinu-
menn úr röð-
um Bosníu-
Serba hvöttu
stuðnings-
menn sína í
gær til þess að
hafa að engu
bann lögregl-
unnar við fyrirhugðum fjölda-
fundi gegn Biljönu Plavsic, for-
seta Bosníu-Serba, sem nýtm-
stuðnings Vesturlanda.
Hamasliði tekinn
Jórdönsk yfirvöld hafa hand-
tekið talsmann Hamashreyfmg-
arinnar sem segist hafa staðið
fyrir morðtilræðinu í Jerúsalem
fýrir helgi.
Ræða Ei Nino
Veðurfræðingar úr sunnan-
verðri Afriku koma saman til
fimm daga fundar í dag til að
ræða ótta manna við gífurlega
þurrka af völdum hafstraumsins
E1 Nino í Kyrrahafí.
Reyndu að sókkva skipi
Herstjórar Afríkuríkisins Si-
erra Leone sökuðu nígeríska
flugherinn um að reyna að
sökkva skipi sem var að koma
með hrísgrjón til landsins.
Solti látinn
Sir Georg Solti, einn virtasti
hljómsveitarstjóri í heimi, er lát-.
inn, 84 ára að aldri. Á löngum
ferli hefur hann m.a. stjómað
hljóðritunum á 40 óperum. Solti
stjórnaði sinfóníuhljómsveit
Chicago um langt árabil og fræg-
ar eru óperuuppfærslur hans í
Covent Garden.
Enga sérmeðferð
Tony Blair,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, varaði
foringja
breskra verka-
lýösfélaga við
því í gær að
þeir mundu
ekki fá neina
sérmeðferð hjá ríkisstjóm sinni,
þrátt fyrir áframhaldandi tengsl
verkalýðshreyfingarinnar við
Verkamannaflokkinn.
Reuter
ohlýðni
hjá Kohl