Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Side 11
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Neytendur
11
Mengun í salatbar
■
Nýlega hafði kona samband við
DV vegna atviks er átti sér stað við
opinn salatbar í matvöruverslun á
höfuðborgarsvæðinu. Utangarðs-
maður, illa þrifinn, kom að bamum,
hrærði í bakka á salatbamum og át
upp úr bakkanum með berum lúk-
unum. Konan vildi vita hvaða regl-
ur giltu i umgengni við salatbari
sem þessa.
DV hafði samband við verslunina
sem staðfesti atvikið. Þar hefur
utangarðsfólki margoft verið visað
á dyr því að sögn staðgengils versl-
unarstjóra vilja þeir ekki fá það inn
í búðina. Hins vegar benti sami að-
ili á að atvik sem þessi snúist ekki
eingöngu um utangarðsmenn. Hitt
væri mun algengara að vel klætt og
snyrtilegt fólk gangi að salatbarn-
um og tekur með lúkunum eitthvað
úr skálunum sem því þykir fýsilegt.
Þetta telst mengun á sama hátt og
utangarðsmaðurinn mengaði bar-
inn. Skálunum, sem vel klædda
fólkið borðar upp úr, þarf lika að
skipta út og henda innihaldinu.
Rögnvaldur Ingólfsson, sviðs-
stjóri matvælasviðs Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur, sagði að sam-
kvæmt reglunum ætti að vera gæsla
við salatbarina en það væri vitað
mál að ekki er mögulegt að koma
því við samfellt. Hreinlæti skiptir
miklu máli og öll efni og áhöld eiga
að vera auðþrífanleg. Það á að vera
ein skeið eða töng við hverja salat-
skál til að forðast krossmengun og
gott eftirlit þarf að vera með hrein-
læti viðskiptavinanna. Ef matvæli
mengast verður verslunin að skipta
innihaldinu út, henda mengaða
matnum og setja inn ferskt í stað-
inn. -ST
Löggilding
mælitækja
í nýjar
hendur
Samkvæmt nýjum reglum um
löggildingu mælitækja hættir
Löggildingarstofa að annast
framkvæmdaþáttinn sem hefur
tilheyrt hennar verksviði í tæp
80 ár. Þess í stað sinnir hún yf-
irumsjón og stjómsýsluhlut-
verki á þessu sviði. Framkvæmd
löggildinga verður falin faggilt-
um prófunarstofum sem full-
nægja ströngum skilyrðum um
tækjabúnað, hæfni og hlutleysi,
eins og segir í fréttatilkynningu
sem Löggildingarstofa hefur
sentíjölmiðlum.
Ein skoðunarstofa hefur feng-
ið starfsleyfí til löggildinga, Bif-
reiðaskoðun hf.
Taktu
snná
nspu
sikkens
Viö lögum lltinn þinn og þú lagar smá
lakkskemmdir á einfaldan og ódýran
hátt þegar þér hentar,- meö Sikkens á
úéabrúsa. Ráðgjöf og þjónusta.
GÍSU JÓNSSON ehf
Bildshölði 14 112 R■y kia vik
Mengun af mannavöldum í opnum salatbörum er nokkuö algeng. Um leið og einhver fer meö lúkurnar ofan í salat-
skál og nær sér í smakk með berum höndunum er hann aö menga innihald skálanna.
líún víaldi
skartgripi
frá Silfurbúðinni
fö) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þarfcerðu gjöfina -
Pc - leikir
Mac - leikir
Frœðsluefni
PlayStation
Fylgihlutir
Aukahlutir
Landsins mesta úrval tölvuleikja?
- kannaðu málið
ÍTIEGn -
uö
—
Laugaveg 96
megabud@centrum.is • 525 5066