Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Síða 19
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
19
Margir nota Netið til að sækja um skólavist
Pappírsumsóknin heyrir brátt sögunni til
Margir geta sótt um skólavist um Netiö.
Það hefur færst gríðarlega í vöxt
að þeir sem vilja fá inngöngu í
ákveðinn skóla í Bandaríkjunum
sendi umsóknina um Netið í stað
þess að eyða klukkustundavinnu í
að fá send eyðublöð.
Tækniskólinn í Virginíu er einn
þeirra skóla sem hafa verið hvað
duglegastir að tengjast Netinu. Þar
er meðal annars rafrænt umsóknar-
eyðublað þar sem hægt er að sækja
um inngöngu. Einn af þeim sem
komst inn á þennan hátt var Mark
Gameau, 18 ára. Hann gat sótt um
án þess að yfirgefa sæti sitt eða
draga út ritvél. Einnig þurfti hann
ekki að fara í kerfi þótt hann hefði
gert eina innsláttarvillu og þurfti
ekki að hugsa sérstaklega um að
frágangur blaðsins væri góður.
Háskólarnir vita að nú hefur heil
kynslóð alist upp við vefinn. Þeir
hafa reynt að bregðast við auknum
kröfum um rafræn umsóknareyðu-
blöð. Könnun sem gerð var um
vefnotkun framhaldsskólanema
sýnir aö hún hefur vaxið mjög og
nú vill þriðjungur þeirra sækja um
á þennan hátt. Pappírsumsóknin
mun því brátt heyra sögunni til.
Það að sækja um skólavist á
þennan hátt sparar ekki aðeins um-
Átak gegn áfengi í háskólum
Um 25.000 háskólanemar frá
yfir 45 háskólum i Bandaríkj-
unum munu i vetur taka þátt í
gagnvirku átaki sem verður að
hluta til gefið út á geisladisk-
um. Átakið snýr að misnotkun
á áfengi innan veggja háskóla
en vandamál af þess völdum
fer sífellt vaxandi. Nafn átaks-
ins er „Alchohol 101“.
Hugmyndina að átakinu má
rekja til háskólans í Illinois
sem stendur hvað fremst í
tæknimálum af háskólum í
Bandaríkjunum. Má meðal
annars rekja tilurð netvafra á
borð við Mosaic og Netscape til
þessa háskóla.
í þessu átaki er notast við
tækni eins og hún gerist best.
Þegar forritið er ræst er komið
inn í „sýndarpartí" þar sem
hægt er að taka ákvörðun fyr-
ir ýmsa sem eru í veislunni.
T.d. er hægt að ákveða hvort
viðkomandi fær sér i glas eða
ekki og sjá hver afleiðingin
verður af ákvörðun hans.
Einnig er hægt að fá innsýn í
líf heimavistar i háskólum og
sjá hvaða freistingar geta beð-
ið manns þar.
Áætlað er að nota sambæri-
lega tækni áfram í slíkum for-
vömum. Kostimir þykja ótví-
ræðir, sá helstur að tæknin er
mjög sveigjanleg og nánast
hægt að beita henni eins og
hver vill.
-HI/Business Wire
LeikjanriDJar
Nýr fótboltaleikur frá Sega
Sega Enterntainment hefur sent frá
sér nýjan fótboltaleik sem kallast
Worldwide Soccer. Leikur þessi býð-
ur upp á ýmsa skemmtilega mögu-
leika, m.a. geta allt aö fjórir spilaö
leikinn í einu um Netiö. Einnig er í
leiknum þrívíddargrafík, 360 gráöa
myndavél, lýsing á leiknum og hæg
endursýning. Hægt er aö spila meö
eöa á móti 48 bestu liöum heims
og einnig má velja um fimm erfiö-
leikaflokka. Ef skoruð eru sérstak-
lega falleg mörk er síöan hægt aö
geyma þau á haröa diskinum og
skoöa þau aftur og aftur. Coby Jo-
nes, bandarískur landsliösmaöur í
knattspyrnu, hefur aöstoöaö viö gerö
leiksins. Leikur þessi er fyrir PC-tölv-
ur og þarf lágmark 16 megabæt í
minni og 90 Mhz örgjörva.
Dark Forces II
kominn úr gæðamati
Tölvuleikurinn sem svo margir hafa
beðiö eftir, Jedi Knight: Dark Forces
II, hefur komist í gegnum gæöamat
og er því væntanlegur bráölega. Star
Wars aðdáendur geta því fariö aö
setja sig í stellingar. Óstaöfestar
fregnir herma einnig aö einhverjir
óprúttnir náungar hafi komist yfir ein-
tak af leiknum og sett þaö á Netiö.
Ekki er vitaö hver þaö geröi.
Final Fantasy VII kominn út
Leikurinn Final Fantasy VII er kom-
inn í búöir. Mikil spenna hefur veriö
eftir þessum leik meðal PlayStation-
eigenda en nú geta þeir loksins lát-
iö slag standa. Leikurinn var gefinn
út I gær en nokkrar verslanir voru
komnar meö hann nokkrum dögum
áöur.
Viðbót við QUAKE
Aödáendur tölvuleiksins QUAKE eiga
nú kost á skemmtilegri viöbót viö
leikinn. Sú viöbót kallast QMESS og
sér um aö skilaboöin komist rétt til
skila I leiknum. Þessi ritill mun vera
mjög þægilegur í útliti og notkun.
Hægt er að ná í þennan ritil á heima-
síðu Quake.
Claw
Ævintýraleikurinn Claw er kominn út.
Þetta er ævintýraleikur í anda gömlu
góöu Super Mario Brothers og Don-
key Kong leikjanna. aöalpersónan í
þessum leik er kötturinn Captain
Claw. Þessi leikur er fyrir PC en í
anda tölvuspilanna sem voru hvaö
vinsælust á síöasta áratug.
nsssi
Playstation:
20 milljónir
seldar
Sony Computer Entertainment,
framleiðandi PlayStation leikjatölv-
unnar, hefur tilkynnt að 20 milljón-
ir leikjatölva hafi verið seldar um
heim allan frá því hún var fyrst
kynnt í Japan fyrir tæpum þremur
árum. Sony framleiðir nú tvær
milljónir slíkra tölva á mánuði.
Flestar tölvur hafa selst í Japan,
8,5 milljónir. 6,4 milljónir tölva hafa
selst í Bandaríkjunum og 5,1 milljón
í Evrópu.
Einnig kemur fram að yfír 135
milljónir leikja hafa selst fyrir
þessa tölvu um allan heim. -HI
sækjandanum vinnu. Það lækkar
líka pappírskostnað fyrir skólann.
Þar að auki fær skólinn umsóknir
frá breiðari hópi fólks og þar að
auki hlýtur sá sem sækir um á
þennan hátt að vera kominn aðeins
lengra í tækninni en sá sem skilar
henni á pappír. Það er allavega viss
plús þegar sótt er um í tækniskóla.
En þessi nýi netheimur hefur líka
komið háskólum í viss vandræði.
Þeir sem eru mjög vel að sér í vefn-
um (jafnvel of vel að sér) geta feng-
ið aðgang að upplýsingum á borð
við glæpaskýrslur úr heimavistinni,
einkunnir eða annað þess háttar eft-
ir óopinberum leiðum. Þar að auki
kemur stundum fyrir að margir
senda tölvupóst í einu með ýmsum
spumingum um háskólann og net-
kerfi skólans er ekki tilbúið til að
taka á móti þessum flaumi.
Háskólar hafa hins vegar verið
duglegir við að kenna nemendum
að leita upplýsinga um aðra háskóla
með vefnum, sækja um í nokkrum
háskólum og jafnvel borga fyrir
skólavistina gegnum Netið. Einnig
geta nemendur leitað upplýsinga
um alls konar námsstyrki sem hægt
er að fá.
Tölvufyrirtæki hafa einnig brugð-
ist við og reynt að koma sinni þjón-
ustu á framfæri. Meðal þeirra er
IBM. Það er með sérstaka þjónustu
sem heitir CollegeNet sem er sér-
staklega gert fyrir netvædda há-
skóla. Fleiri tölvufyrirtæki eru að
koma með svipað kerfi.
Það sem jafnvel er vonast til að
þetta netkerfi muni gera fyrir há-
skólana er að táningar úr grunn-
skóla geti fengið leiðbeiningar til að
komast í gegnum þau námskeið sem
þeir þurfa að ljúka áður en þeir geta
fengiö inngöngu í háskóla. Háskólar
hafa oft lent í vandræðum vegna
nemenda sem eru illa búnir undir
háskólann og er vonast til að þetta
muni bæta úr því.
-HI/CNN
IBM-tölvur lesa kínversku
IBM hefur gefið út nýtt tölvu-
kerfi sem getur „lesið“ kínversku.
Það sem átt er við er að tölvan get-
ur lesið úr kínverskum táknum og
framkallað hljóð, sem sagt talað
kínversku eins og sumar geta tal-
að ensku.
Þetta er fyrsti búnaðurinn sem
getur framkallað kínversk hljóð.
Talsmenn fyrirtækisins spá því að
þessi búnaður muni njóta gríðar-
legra vinsælda á kínverskum
tölvumarkaði en tölvur eiga sífellt
meira upp á pallborðið i Kína.
Þeir búast jafnvel við að 100 þús-
und eintök seljist af þessum bún-
aði fyrsta árið og síðan eigi sú tala
eftir að þrefaldast á næstu árum.
Það sem helst þykir há sölu for-
ritsins er að það krefst góðs hug-
búnaðar, þ.e. 32 Mb minni og 166
Mhz. Pentium MMX örgjörva hið
minnsta. Talsmenn IBM eiga þó
von á því að þar sem minni og ör-
gjörvar lækka sífellt verði þetta
vandamál ekki til staðar í nánustu
framtíð.
-HI/Reuter
Þið œttuð að íhuga kosti rekstrarleigu okkarl
Dæmi: Rekstrarleiga í 2 ár miðað við 40.000 km akstur
kr. 28.400,- á mánuði (án vsk.)
OPELe
COMBO - Sendiblll '98
□pel.^ Bílheimar ehf.
Þýskt eðaimerki Sævarhöfða 2a • 112 Reykjavík
Sími 525 9000 • Fax 567 4650
♦ Burðargeta 550 kg
♦ Ótrúlega stórt farangursrými
♦ Þægileg hleðsluhæð
♦ Framhjóladrifinn - 5 gíra með vökvastýri
Verð kr. 1.075.000,- (ánvsk.)