Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
29
^ J |_i
1/J£3JjJJjJ JJS
4C
Ny tækni sem eykur öryggi i flugi:
Rafrænt flugleiðakort
fyrir flugmenn
Bandaríska geimferðastofnunin
(NASA) hefur ásamt flugumferðar-
stjórn Bandaríkjanna verið að prófa
undanfarið nýja tækni sem gæti
sparað flugfarþegum drjúgan tíma
og flugfélögum töluvert fé.
Þessi tækni, sem kallast T-NASA,
er í raun rafrænt vegakort fyrir
flugstjóra. Þar er hægt að sjá stað-
setningu vélarinnar sem og annarra
véla. Kortið hjálpar flugmönnum að
fljúga í gegnum slæmt veður og
kanna flugvelli sem eru flugstjórum
ekki kunnugir eða eru stórir og
flóknir. Einnig er varað við hættum
sem steðja að vélinni, t.d. ef flugvél
er á sömu braut um vélina í mikilli
snjókomu. Flugmenn fá upplýsing-
amar á litlum skjá sem settur er á
framrúðu vélarinnar.
Vegur lagður fyrir vélina
Dave Graeber, vísindamaður hjá
NASA, skýrir tæknina þannig út.
„Þessi skjár samræmir það sem sést
á honum við það sem sést út um
gluggann i flugstjórnarklefanum.
Svo þetta er í raun eins og að vegur
sé lagður fyrir flugvélina sem leiðir
hana gegnum þokuna."
Það sem hér er talið upp snýr allt
að þvi að gera flugið öruggara og
draga þannig úr dauðaslysum sem
og að spara flugfélaginu peninga.
Það er einnig hægt að gera vegakort
af flugbrautinni með hjálp gervi-
hnatta. Flugmaðurinn er því mun
fljótari að stýra flugvélinni að rétt-
um stað í byggingunni og því getur
þetta verið mikill tímasparnaður
fyrir farþegana.
Mikill sparnaður
Áætlað er að þessi búnaður geti
sparað hverjum flugvelli 6-10 millj-
ónir Bandaríkjadala á ári þar sem
þetta dregur úr þrengslum á flug-
völlum og öll umferð mun því ganga
hraðar fyrir sig. Ekki er vanþörf á
þar sem búist er við að umferð um
bandaríska flugvelli aukist um
þriðjung á næsta áratug.
NASA vill ekki gefa upp hvað
búnaðurinn kostar. Það verður hins
vegar að teljast líklegt að ef þessar
spár um sparnað reynast réttar
verður hann fljótur að borga sig.
-HI/CNN
Leiðangri til
Satúrnusar seinkar
Mikil eftirvænting hefur ríkt
meðal visindamanna vegna fyrir-
hugaðrar ferðar til Satúrnusar. Ætl-
unin er að kanna plánetuna að inn-
an sem og hringi og tungl. Nú hafa
komið upp erfiðleikar sem geta
seinkað ferðinni um einhvern tíma
en upphaflega átti geimferjan, sem
ber nafnið Cassini, að fara í loftið 6.
október.
Einangrunarfrauð í aðalrými
geimferjunnar rifnaði vegna loft-
kælingar á skotpallinum fyrir
rúmri viku, að sögn talsmanns
bandarísku geimferðarstofnunar-
innar. Því þarf að flytja flaugina aft-
ur í flugskýli til að gera við
skemmdirnar. Talið er að sú við-
gerð taki að minnsta kosti viku.
Geimferðastofnunin er í nokkru
tímahraki því ef flauginni verður
skotið eftir 4. nóvember mun það
taka geimflaugina mánuði eða jafn
vel nokkurra ára lengri tíma að
komast að plánetunni vegna þess að
skotpallurinn mun snúa það langt
frá. Og ef þarf mikið eldsneyti til að
komast á staðinn verður þeim mun
minna eftir fyrir visindalegar rann-
sóknir. Samkvæmt upprunalegum
áætlunum átti flaugin að vera kom-
in til Satúrnusar í júlí árið 2004.
Geimferjan mun fljúga ríflega
þrjá milljarða kílómetra í forinni.
-HI/ ABCNEWS
Samsettar brýr endast betur
Brýr verða liklega smíðaðar á nokkuö annan hátt á næstu öld.
Tvær nýjar brýr hafa verið
byggðar í Bandaríkjunum, önnur í
Ohio og hin í Virginiu. Það sem
gerir þessar brýr sérstakar er að
þær eru samsettar úr margvísleg-
um einingum. Slíkar brýr eiga að
vera margfalt sterkari en þær hefð-
bundnu stál- og steypubrýr sem
menn þekkja í dag.
Brúin í Ohio er tvær akreinar og
byggð algjörlega úr einingum. Hún
var opnuð í síðasta mánuði í
Butler-sýslu norðvestur af Cin-
cinnatti. Þessi brú er afrakstur
tveggja ára tilrauna í flugherstöð-
inni í Dayton og þær þóttu sanna
að slíkar brýr entust í a.m.k öld
lengur en stálbrýr. Sett var tvöfalt
lag af venjulegum borða sem er
álíka þunnur og pappír á botn stál-
og steypubita og það síðan beitt
umtalsverðum þrýstingi. Bitinn
þurfti 17 tonna þrýsting til að
brotna sem er tæplega sex tonnum
meira en sams konar biti án sam-
setninga.
Það sem setur þessar einingar
saman er skrýtið efni. Það er mjög
auðvelt að rifa það í sundur en
þegar það er togað er ekki eins
auðvelt að ná því í sundur.
Annarri samsettri brú hefur ver-
ið komið fyrir í Virginíuríki. Þar
var brú sem farin var að láta á sjá
endurbætt algjörlega með þessari
samsetningartækni. Fylgst verður
með henni á næstunni til að sjá
hvernig hún stenst áhrif tima og
umferðar.
Þar sem þessi tækni er frekar
nýtilkomin er ekki fullkomlega
ljóst hvort þessar brýr eru betri
þegar til lengri tíma er litið. Ef
þetta tekst hins vegar eins og til er
ætlast verður þetta sú tækni sem
notuð verður í brúarsmíði á næstu
öld.
-m/CNN
KVÖLD^OLI ri
KOPAVOGS#
Námskeiö á haustönn 1997
TUNGUMÁL Kennt er í byrjenda- KÖRFUGERÐ II ÚTSKURÐUR 4 vikna námskeið 20 kennslustundir
framhalds- og talæf- Eplakarfa 9 vikna námskeið
ingaflokkum. 3 vikna námskeið 36 kennslustundir WORD II og
ENSKA 12 kennslustundir VIDEOTAKA POWER POINT 4 vikna námskeið
DANSKA LEIRMÓTUN á eigin vélar I 20 kennslustundir
NORSKA 6 vikna námskeið 1 viku námskeið
SÆNSKA 25 kennslustundir 14 kennslustundir EXCEL
FRANSKA ÍTALSKA SKRAUTRITUN FATASAUMUR fyrir byrjendur 4 vikna námskeið
SPÆNSKA 8 vikna námskeið 6 vikna námskeið 20 kennslustundir
ÞÝSKA 16 kennslustundir 24 kennslustundir
KATALÓNSKA 10 vikna námskeið LJÓSMYNDUNI BÚTASAUMUR BRAUÐBAKSTUR 2 vikna námskeið
20 kennslustundir 3 vikna námskeið 6 vikna námskeið 10 kennslustundir
ÍSLENSKA fyrir útlendinga 9 kennslustundir LJÓSMYNDUN II 24 kennslustundir JÓLABÚTASAUMUR GÓMSÆTIR bauna-, pasta- og
10 vikna námskeið 7 vikna námskeið 3 vikna námskeið grænmetisréttir
20 kennslustundir 24 kennslustundir 12 kennslustundir 3 vikna námskeið
BÓKBAND SILFURSMÍÐI \ KÁNTRÝ-FÖNDUR 12 kennslustundir
10 vikna námskeið 9 vikna námskeið 6 vikna námskeið EIGIN ATVINNU-
40 kennslustundir 36 kennslustundir 24 kennslustundir REKSTUR
GLERLIST TRÉSMÍÐI BÓKHALD 2 vikna námskeið 20 kennslustundir
10 vikna námskeið 9 vikna námskeið Smærri fyrirtækja GÖNGUFERÐIR
40 kennslustundir 36 kennslustundir 4 vikna námskeið
VATNSLITAMÁLUN TRÖLLADEIG 24 kennslustundir Undirstöðuatriði fyrir göngufólk tekin fyrir
8 vikna námskeið 4 vikna námskeið VÉLRITUN *Kennt á áttavita
32 kennslustundir 16 kennslustundir 7 vikna námskeið 1 vikna námskeið
KÖRFUGERÐI 3 vikna námskeið TRÖLLADEIG -JÓLAFÖNDUR 21 kennslustund TÖLVUNÁMSKEIÐ: 4 kennslustundir
12 kennslustundir 2 vikna námskeið WORD og WINDOWS
8 kennslustundir fyrir byrjendur
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína til náms í Kvöldskóla
Kópavogs, t.d. BSRB, BHMR, SÓKN, VR og Starfsmannafélag Kópavogs.-
Kennsla hefst 22. september
Innritun og upplýsingar um námskeiðin 8.-18. september kl. 17 - 21 í símum 564 1507,
564 1527 og 554 4391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandskóla.