Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Side 23
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Fréttir
31
DV
vi
a
t
i
i
í
i
«
j
i
►
Hvannaberg og Guðmundur Ólafur ÓF:
Fengu á sig brotsjó
DV, Ólafsfirði:
Tvö skip frá Ólafsfirði fengu á sig
brotsjó fyrir skömmu. Hvannaberg
ÓF fékk á sig brotsjó þar sem skip-
ið var að veiðum fyrir norðan land
og mátti litlu muna að einn skip-
verjinn færi fyrir borö. Hann var
nærri farinn í rennuna en marðist
illa við þessar hremmingar, svo
hann var fluttur í land.
Loðnuskipið Guðmundur Ólafur
ÓF 91 fékk líka á sig brotsjó í veru-
lega vondu veðri. Skipverjar voru
að taka inn trollið þegar stór alda
reið yfir skipið stjómborðsmegin og
kastaði því til meðan trolliö var enn
hálft úti. Enginn í áhöfn meiddist
en talsvert tjón varð á veiðarfærum.
Þetta gerðist um 100 mílur norður
af landinu.
-HJ
Guðmundur Ólafur ÓF við bryggju í Ólafsfiröi en skipiö fékk á sig brotsjó
fyrir skömmu. DV-mynd Helgi
SkagaQörður:
Heyskapur á lokastigi
DV, Fljótum:
Þrátt fyrir erfiða heyskaparveðr-
áttu er heyskap nánast lokið í Skaga-
firði. Dagana 10-14. ágúst kom mjög
góður þurrkur með um 20 stiga hita
og þá náðust gríðarlega mikil hey,
bæði fullþurrkuð og í rúllur og þá
náði þorri bænda að ljúka við hey-
skap að öðru leyti en að keyra heim.
Nokkrir hafa þegar hafið seinni siátt
og náð þannig umtals-
verðu magni af góðu
fóðri.
Ekki verður hægt að
segja að sumarið hafi
verið hagstætt til hey-
skapar. Mjög úrkomu-
samt hefur verið og
sjaldan komið nema
einn sólarhringur þurr
í einu ef frá er talinn
áðurnefndur kafli. Það
hefur verið mjög hlýtt
samfara vætunni og
því hefur verið af-
bragðs sprettutíð. Tals-
vert af túnum hefur sprottið of mik-
ið og fóðrið orðið lakara en ella auk
þess sem varla náðist tugga sem
ekki hafði rignt í fyrir 10. ágúst. Má
fullyrða aö hefði rúlluvæðingin
ekki verið komin til sögunnar væri
heyskapur í héraðinu almennt á
öðru og lakara stigi en raun er á.
Ljóst er að mikil hey verða í hérað-
inu í haust en hætt er við að fóður-
gildið veröi æði misjafnt. -ÖÞ
Víða eru miklar
setja í stæðu á
stæður af heyrúllum. Hér er veriö aö
Mið-Mói í Fjótum. DV-mynd Örn
Skógræktarfélag Stykkishólms:
Skógrækt í 50 ár
DV, Stykkishólmur:
Skógræktarfélag Stykkishólms
bauð til grillveislu og gönguferðar
um nýræktina í tilefhi skógræktar-
dagsins. Trausti Tryggvason, for-
maður félagsins, bauð gesti vel-
komna og Sigurður Ágústsson, fyrr-
verandi formaður, rakti sögu félags-
ins i stuttu máli. Gengið var um
svæðið undir leiðsögn Brynjólfs
Jónssonar, framkvæmdastjóra
Skógræktarfélags íslands.
Skógræktarfélag Stykkishólms
var stofhað þann 1. nóvember árið
1947 og á því fimmtíu ára afmæli nú
í haust. Það hefur nú um 100 hekt-
ara lands í sinni umsjón og nú í
sumar var kurlaður viður settur á
göngustiga víða á svæðinu. -BB
Efnt var til gönguferöar og grillveislu í tilefni skógræktardagsins.
DV-mynd BB
... skiptast á skm og skúrir.
Þegar á móti blæs reiðum við okkur
á traust fjölskyldubörid og
örugga tryggiugaverud.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
TrygglngamibstöMn hf. • Abalstrætf 6-8 • 101 Reykjavík • Sími 515 2000