Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
41
Myndasögur
Veiðivon
u
3
rH
r-H
2
s
HAFIÐ ÞAÐ HUGFAST, MENN: - VÍKINGAR ERU EINU FRJÁLSU
MENNIRNIR Á YFIRBORPI JAR0AR!
EKKI VERA OF LENGI,
HROLLUR! PÚ ÁTTAÐ
VERJA MEP MÉR NÝ
GLUGGATJÖLD í DAG!
int
i-U
Rangárflúðirnar í Rangánum:
Risafiskur slapp af
„Eg er búinn að sjá þá marga
væna í gegnum árin en þetta er sá
allra stærsti sem ég hef séð, þetta
var rígvænn fiskur. Ætli hann hafi
ekki verið vel yfir 30 pundin," sagði
Pétur R. Guðmundsson en hann var
að gæta Spánverja í Rangánum um
helgina þegar fískurinn slapp af á
Rangárflúðunum. Á fostudaginn
missti þessi sami veiðimaður stór-
lax í Árbæjarfossi eins og við sögð-
Veiðitoppurinn:
Þverá sækir
á Norðurá
- aflahæstu árnar
„Það gæti skeð á morgun eða
hinn að lax númer 2500 veiddist
hérna í Rangánum. Þetta er allt í
lagi núna og vænir laxar setja
spennu í veiðiskapinn," sagði Þröst-
ur Elliðason í gærkvöld. Við skulum
þá kíkja á tíu fengsælustu laxveiði-
ámar í gærkvöld en sjö þeirra fara
yfir 1000 laxa.
Norðurá í Borgarfirði endaði í
1867 löxum sem er aðeins slakara en
í fyrra en þá gaf áin 1964 laxa. Veiði-
skilyrði voru erfið á tímabili í ánni
og það hefur haft sitt að segja. Þverá
í Borgarfirði er komin í 1620 laxa, í
þriðja sætið, og sækir á Norðurá, en
veitt er í ánni enn þá. Grímsá, líka
ættuð úr Borgarfirði, er í fjórða sæti
með rétt um 1400 laxa. Langá á Mýr-
um er í fimmta sæti með 1200 laxa.
Laxá í Aðaldal er í sjötta sæti með
1150 laxa og má greinilega muna
sinn fífil fegri í veiðiskapnum. Laxá
i Kjós er í sjöunda sætinu og bætir
sig verulega frá fyrra ári en hún hef-
ur gefið 1050 laxa. Laxá á Ásum er í
áttunda sætinu og er komin yfir 700
laxa. Hún ætlar að bæta sig töluvert
frá fyrra ári. Vatnsdalsá er í níunda
sæti með um 700 laxa. Laxá í Dölum
og Selá í Vopnafmði em í tíunda
sætinu saman með 680 laxa hvor
veiðiá.
um frá fyrir helgi.
„Þessi Spánverji var að veiða á
Rangárflúðunum og allt var fast,
hann fór að toga og toga en þá var
hann komin vel út á flúðimar. Hon-
um tókst að losa eftir nokkur átök,
kastar aftur spúninum og allt er fast
aftur. Hann fer að toga aftur og af
enn meiri krafti en fyrr. Þá fer fær-
ið á fleygiferð upp eftir allri Rangár-
flúðinni og skömmu seinna kemur
laxinn niður aftur. Var þá fískurinn
búinn og ég náði í háfinn. Laxinn
var svo stór að hann komast ekki í
hann og þegar ég er að reyna það
tekur hann svo síðustu rokuna og
sleppur. Þetta var enginn smáfisk-
ur, hann var metra fyrir framan
mig þegar ég sá hann síðast. Við
veiddum 17 punda hæng í gær og
sporðblaðkan á honum var helmingi
minni en á þessum stórfiski. Það
var hængur sem slapp og hann var
leginn. Þetta er einn af þeim stærri
löxum sem ég hef séð í gegnum all-
an minn veiðiskap og hef þó séð þá
þónokkra," sagði Pétur í lokin.
Síðustu daga hafa veiðimenn sett
í fjóra stóra laxa i Rangánum en
þeir hafa allir sloppið. Þetta eru lík-
lega allt hængar sem virðast hópast
i veiðiárnar, eins og Selá í Vopna-
firði. Til eru líka veiðiár þar sem
aðeins hafa veiðst hængar og engin
hrygna. Má þar nefna Giljá í Húna-
vatnssýslu.
Lostafullt'
stefnumöí
IS
[5044
Eigin
ugarorar
0056
91 5372
Myndvarpar
•Fjölbreytt úrval
•Ljósmagn 2000 - 12000 ANSI lumen
•Fyrir glærur og rafeindaglærur
•Hágæða þríglerja linsur
•Mjög hljóðlátir
xonnco <*ni' S: 565 8305 F: 565 8306
Kirkjulundi 13 210 Garðabæ http://www.skima.is/nordco
Blaðbera vantar
í eftirtaldar götur.
Kjarrhólmi, Vallarhólmi, Starhólmi.
Upplýsingar í síma 550 5000