Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Qupperneq 36
44
MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Guðhræddir
gráta
„Það hefur ekki farið fram
hjá neinum að kirkjan er í
deiglu erfiðrar reynslu. Erfið
mál hafa komið upp, svo mein-
fýsnir hafa skemmt sér konung-
lega en guðhrætt fólk grátið."
Inga Huld Hákonardóttir í
DV.
Ummæli
Afleiðing lé-
+ legrar stærð-
fræðikennslu?
„í hvaða þrönga hring þessi
æðsti stjórnmálamaður þjóðar-
innar hreyfir sig er mér hrein-
asta ráðgáta. Að það skuli fara
fram hjá honum að stór hluti
fólks lifir við hungurmörk er
vissulega athyglisvert. Getur
þetta verið afleiðing af lélegri
stæröfræðikennslu?"
Þorsteinn B. Sigurðsson í
Mbl.
Hræsni
„Auðvitað er merkilegast við
hið sviplega fráfall prinsess-
^ unnar hve rækilega hefur opin-
berast alls konar hræsni sem
viðgengst í voru nútímaþjóðfé-
lagi.“
Illugi Jökulsson í Degi-
Tímanum.
Matej Gaspar, fimm milljarðasti
jarðarbúinn.
Fimm milljarð-
asti jarðarbúinn
íbúum jarðarinnar fjölgar um
223.285 á dag eða 155 á mínútu.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna
tilnefndi Matej Gaspar, f. 11. júlí
1987 í Júgóslavíu, fimm milljarð-
asta íbúa hnattarins, var það
táknræn athöfn.
Blessuð veröldin
Lægsti her-
skyldualdur
Francisco Macias Nguema, for-
seti Miðbaugs-Gíneu, gaf í mars
1976 út lög um herskyldu allra
sveina á aldrinum 7 til 14 ára.
Þeir foreldrar sem neita að af-
henda syni sína „verða fangels-
aðir eða skotnir".
Mesti vaðall
Daddy Freddy hreytti út úr sér
346 atkvæðum á 60 sekúndum á
Capitol-útvarpsstöðinni í Covent
Garden í London 23. júní 1989.
Hjólreiðaleiðir í Reykjavík
Mest gaman að leika
við barnabarnið
„Ég hef unnið í 13 ár hjá Út-
varpinu, síðustu árin sem dag-
skrárstjóri rásar 1. Þetta er fyrst
og fremst skipulagningar- og
stjórnunarstarf, ekki ólíkt starf-
inu sem ég er að taka við,“ segir
Margrét Oddsdóttir, nýráðinn yf-
irmaður menningarmála í Ríkis-
útvarpinu.
„Ég þekki starfsemi Ríkisút-
varpsins afskaplega vel. Undir
menningarsviðið falla leikritin,
bókmenntir og ýmsir þættir og
umfjöllun innan þessa sviðs, sem
er náttúrlega stór hluti af dag-
skrá rásar 1. Starfið leggst af-
skaplega vel í mig og ég hlakka
til að takast það á hendur. Ég
þekki allt samstarfsfólkið og við
stefnum að því að búa til góða og
metnaðarfulla dagskrá. Það er
svo gott og skemmtilegt fólk hér
á Útvarpinu. Svo fáum við að
gera hluti sem aðrir fjölmiðlar eru
ekki að gera eins og að vinna list-
rænt efni.“
Margrét er með BA-próf frá Há-
skóla íslands, í latínu að aðalgrein
og ensku sem aukagrein. Auk þess
hefur hún bætt við sig i grískri og
rómverskri menningarsögu.
Margrét er alin upp í Vík í Mýr-
Margrét Oddsdóttir.
Maður dagsins
dal en fór 13 ára til Reykjavíkur í
skóla. Eiginmaður hennar er
Hörður Filippusson, lífefnafræð-
ingur og dósent við Háskóla Is-
lands. Þau eiga tvær uppkomnar
dætur, Helgu, sem er með BA-
próf í heimspeki, og Þórunni
sem er kennari.
„í tómstundum mínum þykir
mér mest gaman að leika við
barnabarnið sem heitir Una og
er fjögurra ára. Ég hef mjög
gaman af matargerð. Svo sæki
ég reglulega tónleika, fer í leik-
hús og oft á málverkasýningar.
Ég er mikill listunnandi. Heima
hlusta ég mikið á klassíska tón-
list. í seinni tíð er ég auk þess
farin að hlusta meira á djass. Ég
lærði það hérna á Útvarpinu. Þá
hef ég ógurlega gaman af að ferð-
ast og hef haft tækifæri til þess,
einkum á siðustu árum. Mér
finnst sérstaklega gaman að
drekka í mig andrúmsloftið í
gömlum menningarborgum í
Evrópu. Ég er nýkomin frá
Búdapest og svo er tiltölulega stutt
síðan ég fór til Rómar. Göngutúrar
um þessar gömlu borgir þykja mér
mjög skemmtilegir. Ég dvaldi í
Cambridge fyrstu sex mánuði
þessa árs. Maðurinn minn var að
vinna þar og ég sótti námskeið,
meðal annars í grískri listasögu."
-VÁ
„...með und-
arlegum
vindmgum
og flæktum
setníngum"
Á 95. aldursári Halldórs Lax-
ness hefur verið efnt til marg-
víslegrar umfjöllunar um skáld-
ið og verk hans á vegum Vöku-
Menning
Helgafells og Laxnessklúbbsins.
Þar á meðal er röð fyrirlestra í
Norræna húsinu. Fimmtudag-
inn 11. september halda Guðrún
Ingólfsdóttir bókmenntafræð-
ingur og Margrét Guðmunds-
dóttir málfræðingur fyrirlestur
sem þær nefna: „...með undar-
legum vindíngum og flæktum
setníngum" þar sem þær ræða
um ýmis atriði í orðanotkun
Halldórs Laxness. Erindið hefst
klukkan 17.15 og er öllum opið
og aðgangur er ókeypis. Þetta
er fimmti fyrirlesturinn sem
efnt er til í tilefni af afmælisári
skáldsins og hefur verið hús-
fyllir í öll skiptin.
Bridge
Bandaríkjamaðurinn Paul
Soloway var skynsamur þegar hann
ákvað að dobla ekki fjögurra spaða
samning NS, þrátt fyrir að tromplit-
urinn lægi í hel. Ef hann hefði gert
það er líklegt að sagnhafi hefði get-
að landað heim 10 slögum. Sagnir
gengu þannig, vestur gjafari og NS á
hættu:
4 Á64
«4 62
♦ Á7543
♦ G94
4 KG853
4» 109
♦ KD62
* D6
4 D10972
«4 ÁK75
♦ 10
* ÁK3
vestur norður austur suður
2 4» pass pass 2 4
pass 3 4 pass 4 4
p/h
Félagi Soloways, Bobby Goldman,
sem sat í vestur, opnaði á tartan-
sagnvenjunni 2 hjörtu (veikt með
sagðan hálit og annan láglitanna til
hliðar). Útspil vesturs var
lauffimma. Nía blinds kostaði
drottningu hjá Soloway og sagnhafi
drap á ás. Sagnhafí hafði enga hug-
mynd um hina slæmu tromplegu,
spilaði strax spaða á ásinn og gat
eftir það ekki fengið nema 9 slagi.
Ef Soloway hefði doblað hefði sagn-
hafi getað fundið vinningsleiðina:
trompa tígul heima og trompa
þriðja hjartað með spaðaásnum. Þá
hefði sagnhafi fengið slagi á laufás
og gosa, ÁK í hjarta, spaðaás,
tígulás, þrjár tígultrompanir og
spaðadrottninguna í lokin. Það eina
sem sagnhafi þarf að passa er að
taka fljótlega annan slag sinn á lauf-
ið áður en austur fær tækifæri til að
handa laufi.
ísak Örn Sigurðsson
4 -
44 DG843
4 G98
* 108752