Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1997, Side 40
Vinningstölur laugardaginn
8 18 21
31 37
Fjöldi
Vinningar vinninga Vinningsupphœð
I • SafS imr 0 3.867.284
2. 4 ats^ 2 346.280
3- 4 ofS 55 12.050
A- 3 a(s 2.197 700
Heildarvinningsupphœð
6.760.494
FRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
! hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
118550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MANUDAGUR 8. SEPTEMBER 1997
Bilun í Metró-vél:
Hætt við
flugtak
Flugmenn Metró-vélar í eigu Flugfé-
lags íslands hættu skyndilega við flug-
tak frá Reykjavíkurflugvelli í síðustu
viku vegna bilunar sem kom upp. Vél-
in, sem áður var í eigu Flugfélags
Norðurlands, var á leiðinni til Sauðár-
króks. Engan sakaði en farþegamir
urðu sumir hveijir skelkaðir.
Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags íslands, sagði við DV í gær-
kvöld að bilun heföi komið upp í svo-
nefndum bensíngjafarkapli. Flugmenn
hefðu ekki tekið neina áhættu, eins og
þeim bæri skylda til, og hætt við flug-
takið. Metró-vélin, sem orðin er fjórtán
ára gömul, komst að sögn Páls ekki
strax í notkun þar sem panta þurfti
varahluti erlendis frá. -bjb
tv
Veðurá
Faxaflóasvæði
næstu viku
- samkv. tölum frá Veöurstofu íslands -
Hitastig- á 12 tíma bill
14 c°
12
10
8
6
mán. þri. miö. fim. fós. |
Vindhraði
12stig
MACE A
ÚKRAÍNUBA-
6ÚSKURNAR!
L O K I
Ófremdarástand í grunnskólanum á Suðureyri:
Atta og níu ára
börn sitja heima
aldrei jafnslæmt ástand, segir skólastjóri
Slæm staða er nú í grunnskólan-
úm á Suðureyri. 12 böm I 3. og 4.
bekk, þ.e. átta og níu ára, eru ekki
enn byrjuð í skólanum vegna þess
að ekki fæst kennari til að kenna
þeim. Þau munu þó mæta í skólann
í fyrramálið.
Tekur soninn til Isafjaröar
Burkni Dómaldsson, trésmíða-
kennari á ísafirði, á níu ára dreng á
Suðureyri. „Það fást engir kennarar
til að kenna. Það era bara draumór-
ar hjá sveitarfélögunum að halda að
þau geti fengið kennara núna,“
sagði Burkni.
Hann er að ihuga að taka son sinn
með sér til ísafjarðar og láta hann
ganga í skóla þar vegna ástandsins á
Suðureyri. „Ég er reyndar þeirrar
skoðunar að gáfulegast sé að flytja
eitthvað af þessum krökkum til ísa-
Öarðar," sagði Burkni.
skólum á Vestfjöröum. Grunnskól-
inn í Hnífsdal verður lokaður í vet-
ur þar sem ekki fengust kennarar.
Sá skóli hefur verið rekinn sem úti-
bú frá grannskólanum á ísafirði og
hafa sex til níu ára böm í Hnífsdal
gengið í þann skóla. Þau eru nú
keyrð til ísafjarðar á hverjum degi í
skólann en þau era 18 talsins.
Grunnskólinn í Hnífsdal lok-
aöur
Þetta ástand er ekki einsdæmi í
Engin eftirspurn
Magnús Jónsson, skólastjóri
grunnskólans á Suðureyri, sagði í
samtali við DV að hann væri mjög
vel settur með fólk að öðra leyti en
því að það vantaði þennan eina
kennara. Hann viðurkenndi þó að
ástandið hefði aldrei verið eins
slæmt og nú. „Það var meira um
það áður að væri hringt og spurt
hvort stöður væra lausar fyrir leið-
beinendur. Nú er síminn bara dauð-
ur,“ sagði Magnús.
Hann sagði að ákveðið hefði ver-
ið að leysa málið með því að kenna
þremur bekkjum saman í einu. í fá-
mennum skólum úti á landsbyggð-
inni er algengt að tveir árgangar
séu saman í kennslustundum en yf-
irleitt aldrei þrír. Magnús sagði að
þetta væri neyðarúrræði en hann
ætti von á því að það gengi upp.
Bömin mundu mæta í skólann í
fyrramálið og þeim yrði kennt á
þennan hátt.
Magnús telur aö framhaldið ráð-
ist aö miklu leyti af því hvemig kjör
nást fram handa kennurum í deil-
unni sem nú stendur yfir. „Ég held
að kjörin séu að svæla fólk út úr
þessu,“ sagði Magnús.
20 segja upp á Isafirði
Þess má geta að um 20 kennarar
hafa nú sagt upp störfúm í grunn-
skólanum á ísafirði vegna óánægju
með launakjör. Burkni Dómaldsson
telur að ef bæjaryfirvöld ræði ekki
við þá kennara fljótlega komi þeir
ekki aftur til starfa eftir verkfall.
Hann segist jafhvel vita til þess að
sumir þeirra hafi þegar fengið starf
annars staðar. -HI
Ragna Lóa Stefánsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, borin af velli eftir að hafa fótbrotnað illa í landsleik gegn Úkraínu í
gærkvöld. Hermann Hreiðarsson, unnusti hennar og landsliðsmaöur, gengur viö hliö hennar. Sjá bls. 27. DV-mynd BG
Veðrið á morgun.
Kaldast
norðaustan-
lands
A morgun, þriðjudag, er gert
ráð fyrir norðvestankalda, skúr-
um eða slydduéljum og hita á bil-
inu 1 til 5 stig norðaustan til.
Annars verður fremur hæg
breytileg átt, skýjað með köflum
og 7 til 12 stiga hiti.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Lögreglumenn beittu mace-úöa til
að róa hóp ungmenna á landsleik Is-
lands og írlands á laugardag.
DV-mynd www Bolti.
Island - Irland:
Beittu
mace-úða
Lögreglumenn beittu mace-úða
gegn hópi ungmenna á landsleik ís-
lands og írlands á Laugardalsvelli á
laugardag.
Um 20 ungmenni höfðu látíð
nokkuð illa meðan á leiknum stóð.
Hópurinn æstist enn frekar þegar
tveir lögreglumenn komu upp í
stúkuna undir lok leiksins. Lög-
reglumennimir tveir tóku fram
brúsa af mace-úða og úðuðu á ung-
mennin og fengu nokkur þeirra úða
í andlitið.
Urðu þá enn meiri læti meðal
ungmennanna og varð að kalla á
aukalið lögreglu til að skakka leik-
inn. Engin var handtekinn eftir has-
arinn.
„Mace-úði er með öllu hættulaus.
Úðinn skapar óþægindi smástund
en engin eftirköst. Það er margbúið
að rannsaka það. Það era margir
sem ragla þessu saman við táragas
sem er hins vegar allt annað og get-
ur valdið eftirköstum fyrir þá sem
viðkvæmir era,“ sagði aðalvarð-
stjóri lögreglunnar í Reykjavík, að-
spurður um málið. -RR
Ráðist á konu
Ráðist var á konu inni á skemmti-
stað við Laugaveg í fyrrinótt.
Konan var flutt á slysadeild en
meiðsl hennar reyndust minni hátt-
ar. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
-RR
Harður
árekstur
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Grensásvegar og Miklubrautar
á laugardagskvöld.
Slökkvilið þurfti að beita klippum
til að ná einum farþega út úr ann-
arri bifreiðinni. Farþeginn var flutt-
ur á slysadeild en meiðsli hans
reyndust minni háttar. Báðar bif-
reiðamar vora mjög illa famar eftir
áreksturinn. -RR
•JýaJ Cot3-i
-Þýskt e&almerki
iílheimar e
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
evarhöfba 2a Sími:52S 9000