Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 23 GÓ5 þraut hiá Jóni íþróttir Hnefaleikar: Yfirhuröir hjá La Hoya Oscar De La Hoya varði um helgina heimsmeistaratitil sinn í veltivigt hnefaleika. La Hoya baröist gegn Hector Camacho, fyrrver- andi heimsmeistara og . Hoya dæmdur eftir tólf lotur. La Hoya hafði mikla 'firburði og hefur kki enn tapað í iringnum. -SK 'IU í - hlaut 8.246 stig og hafnaði í 5. sæti á sterku móti í Talence í Frakklandi cantabrian Jón Amar Magnússon náði mjög góðum árangri í tugþrautarkeppni í Talence í Frakklandi um helgina. Jón hafnaði í 5. sæti og hlaut 8.246 stig. Chris Huffins frá Bandaríkjunum sigraði og hlaut 8.425. Tomas Dovrak frá Tékklandi, heimsmeist- ari, varð annar með 8.380 stig og Eistlendingurinn Erki Nool þriðji með 8.363 stig. Tékklendingurinn Romar Sebrle varð fjórði með 8.301 stig, aðeins 55 stigum á undan Jóni Amari. Jón Amar hljóp 100 m hlaup á 10,65 sekúndum en íslandsmet hans í greininni er 10,56 sekúndur. í lang- stökki stökk hann 7,44 metra og kúl- unni varpaði hann 14,89 metra. Þá var komið að hástökki en þar stökk Jón Amar 2,01 metra. 400 metrana hljóp hann síðan á 47,93 sekúndum og var með 4.369 stig eft- ir fyrri daginn. Þurfti að gefa eftir í lok þrautarinnar Jón Amar hóf keppni í gær með þvi að hlaupa 110 metra grinda- hlaup á 14,21 sekúndu. Kringlunni kastaði hann 45,04 metra. Þegar hér var komið sögu vom þrjár greinar eftir. Jón Amar stökk 4,80 metra í stangarstökki, kastaði spjóti 59,98 metra og hijóp síðan 1500 metra hlaupið á 4:57,78 mínútum. Jón Amar meiddist á heimsmeistaramót- inu í Aþenu fyrr í sumar og með hlið- sjón af þeirri stað- reynd er árangur hans mjög góður um helg- ina. Ljóst er þó að hann var þreyttur í lok þrautarinnar enda hafði hann misst úr æfmgatima vegna meiðslanna. íslandsmet Jóns Amars er 8.470 stig en á síðustu ólympiuleik- um hlaut hann 8.274 stig, aðeins 28 stigum meira en í Talence um helgina, sem sýnir að hann er á réttri leið. -SK NM í goffi: Fjótba sætið varð hlutskipti íslands íslensku landsliðin í golfi, karla- og kvennalið, uröu í fjórða sæti á Noröurlandamótinu í golfi sem fram fór um helgina f Noregi. Svíar unnu tvöfaldan sigur. Þeir sigraðu í karlaflokki og léku samtals á 755 höggum. Finnar komu næstir á 770 höggum og bronsverðlaunin fóm til Norðmanna sem léku á 776 höggum. íslenska karlaliðið lék samtals á 778 höggum og var því aðeins tveimur höggum frá því að tryggja sér bronsið. Danir ráku lestina hjá körlunum og léku á 784 höggum. Sigurlið Svía í kvennaflokki lék á 483 höggum. Norðmenn náðu öðm sæti og léku á 487 höggum. Bronsverðlaunin fóra til Dana sem léku á 491 höggi. íslenska liðið varð fjórða eins og áður sagði og lék á 501 höggi. -SK Gott hjá O’Meara Mark O’Meara frá Bandaríkjunum vann sigur á stórmóti atvinnumanna í golfi sem lauk um helgina i Frakklandi. O’Meara lék á 271 höggi. Jarmo Sandelin, Sviþjóð, varð annar á 272 höggum og Greg Norman, Ástralíu, þriðji á 273 höggum. -SK Guðrún í fremstu röð í Japan Guðrún Amardóttir varð í sjötta sæti 1 400 metra grindahlaupi á síðasta Grand Prix-mótinu sem fram fór í Japan um helgina. Guðrún hljóp á 55,96 sekúndum. Það eitt að Guörún vann sér þátttökurétt á mótinu sýnir styrk hennar og sjötta sætið undirstrikaði að hún er í allra fremstu röð í heiminum í greininni. Á myndinni stormar Guðrún yfir eina grindina en á hæla hennar kemur Anne Knoroz frá Rússlandi. ReuterASK sigursælt á U.S. Open Daninn Poul-Erik Hoyer- Larsen og Kim Dong Moon frá Suöur-Kóreu unnu til þriggja gullverðlauna á opna bandariska meistaramótinu í badminton sem lauk um helgina. Þeir félagar unnu gullverð- laun í sömu greinum á síöustu ólympíuleikum í Atlanta. Hoyer-Larsen sigraði landa sinn, Peter Gade-Christensen, í úrslitum einliðaleiks, 15-6, 7-15 og 15-6. Dong Moon vann tvíliöaleik og tvenndarleik og sýndi að hann er með allra bestu badmintonleikurum heims í dag. Danskur sigurkvenna Danska stúlkan Camiila Mart- in sigraði í einliðaleik kvenna. Hún lék til úrslita gegn kín- versku stúlkunni Dai Yun og sigraði í hörkuleik, 11-4, 6-11 og 12-10. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.