Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1997, Síða 2
22
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 1997
íþróttir
Marel Guölaugsson skoraöi 15 stig í leiknum viö ÍA. Hér brýst hann í gegnum vörn Akur-
nesinga án þess aö þeir fái rönd viö reist. DV-mynd Hilmar Pór
Sterk vörn skóp
sigur hjá Njarðvík
DV, Suöurnesjum:
Njarðvikingar efndu
ófaranna í Hafnarfirði með
77-64 sigri á Haukum í
gærkvöldi í Njarövík. í
hálfleik var staðan 40-35.
„Við verðum að skora
fleiri stig ætlum við okkur
að vinna Njarðvík. Það fór
ekkert ofan í og Njarðvík
vara bara sterkara," sagði
Pétur Ingvarsson eftir
leikinn i Njarðvík.
„Það var liðsheildin og
vamarleikurinn sem lagði
grunninn að sigrinum,“
sagöi Njarðvíkingurinn
Friðrik Rúnarsson.
Viðureignin var
spennandi en bæði liðin
áttu í erfiðleikum með
sóknina framan af en hún
batnaði hjá Njarðvíkingum
eftir því sem á leiö. Sigfús
og Jón Amar lentu í
villuvandræðum í fyrrir
hálfleik. í síöari háífleik
snem Njarövíkingar
leiknum sér í hag og var
það vamarleiknum að
þakka sem á stundum var
mjög sterkur.
Hjá þeim skoraði Teitur
Örlygsson 23 stig og Örvar
Kristjánsson 17.
Sherrick Simpson skoraði
21 stig fyrir Hauka og Jón
Amar Ingvarsson 16 stig.
Fyrri leikurinn
Haukar virtust vera að
innbyrða stórsigur í fyrri
leik liöanna í Hafnarfirði á
fóstudagskvöldið. Þeir gáfu
eftir á lokasprettinum og
Njarðvíkingar minnkuðu
muninn í fiögur stig, 74-70,
áður en leiktíminn rann út.
Sherrick Simpson var
stigahæstur Hauka, skoraði
alls 22 stig, og Sigfús
Gizurarson kom næstur
meö 18 stig.
Dalon Bylnum skoraði 29
stig fyrir Njarðvíkinga og
Friðrik Ragnarsson 19 stig.
JKS/ÆMK
- er KR-ingar slógu Skagamenn út á Nesinu
Jafntefli, 68-68, varð í síðari leik KR og ÍA í
Eggjabikarnum, sem fór fram á Seltjarnarnesi á
laugardagskvöld. í fyrri leiknum, sem fór fram
á Akranesi, sigraði KR með 16 stiga mun og
nægði því jafntefli en slík úrslit í körfubolta
sjást annars aldrei.
Það var loks á síðustu mínútu leiksins að KR-
ingum tókst að komast yfir, 67-66.
„Ég get ekki sagt að ég sé ánægður með leik-
inn í heild. Við þurftum að vinna upp 16 stiga
forskot og gekk nokkuð vel í fyrri hálfleik en ég
á bara enga haldbæra skýringu á hinum slæma
leik okkar í þeim síðari. KR-ingar sýndu að vísu
styrk í síðari hlutanum. Við munum fai-a yfir
leikinn og reyna að lagfæra þetta og mætum
sterkir í næsta leik,“ sagði Ermolinski, þjálfari
ÍA.
ÍA-liðið byrjaði mjög vel og fór Damon John-
son á kostum, hirti helling af fráköstum og skor-
aði grimmt og Dagur Þórisson og Sigurður Þór-
ólfsson voru í miklum ham og sýndu bestu hlið-
ar sínar. Ermolinski var einnig drjúgur fyrir lið-
ið, sterkur í vöminni og hirti aragrúa frákasta.
„Ég er mjög ósáttur með leik manna mina í
fyrri hálfleik, enda léku þeir flestir undir getu.
En við getum líka tekið okkur á eins og kom í
ljós í síðari hálfleik. Okkur tókst að komast inn
í leikinn og ná jöfnu og er ég mjög ánægður með
að vera kominn áfram í keppninni og hlakka til
næsta leiks,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari KR.
Það var ljóst að þjálfari KR hafði lesið hraust-
lega yfir sínum mönnum í hálfleik því KR-liðið
átti oft mjög góða kafla í síðari hálfleik og sýndi
hvers það er megnugt. Það bókstaflega kviknaði
í Nökkva Má Jónssyni sem átti frábæran kafla í
seinni hlutanum, skoraði dýrmæt stig, vann
marga bolta og barðist eins og ljón.
Marel var einnig mjög virkur ásamt Kevin
Tuckson. Ingimar Ómarsson átti nokkuö köflótt-
an leik að þessu sinni. í heild er KR-liðið nokk-
uð vel skipað og á alla möguleika á að bæta leik
sinn.
Stig KR: Nökkvi Már Jónsson 20, Kevin
Tuckson 18, Marel Guðlaugsson 15, Ingimar
Ómarsson 11, Hermann Hauksson 2, Sigurður
Jónsson 1 stig og Atli Einarsson 1 stig. Fráköst
KR: Sókn: 11. Vöm: 18.
Stig ÍA: Dagur Bjömsson 19, Sigurður Þór-
ólfsson 18, Damon Johnson 16, Brynjar Sigurðs-
son 6, Trausti F. Jónsson 5, Björgvin K. Gunn-
arsson 2, Guðjón Jónsson 1 og Ermolinski 1 stig.
Fráköst ÍA: Sókn: 9. Vöm: 20.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Eggert Aðal-
steinsson og Rúnar Gíslason. Áttu góðan dag.
-Hson
Framlenging
- þegar Tindastóll sló Grindavík út úr Eggjabikarnum
DV, Suðnrnesjum:
Það gekk mikið á í Grindavík í gærkvöldi er
heimamenn börðust fyrir lífi sínu í Eggjabikam-
um gegn frísku liði Tindastóls frá Sauðárkróki.
Á brattann var að sækja fyrir heimamenn sem
töpuðu fyrri leiknum á Sauðárkróki með tuttugu
stiga mun. Þegar leiktíminn var úti var staðan
97-77, Grindavik í vil, og því þurfti að fram-
lengja leikinn enda samanlögð stigatala jöfn.
Grindavík hafði sigur að lokum, 106-100, en það
dugði skammt og Tindastóll vann samanlagt
meö 14 stiga mun.
Torrey John skoraði 38 stig fyrir Tindastól en
Arnar Kárason var með 17 stig. Hjá Grindavík
var Darrel Wilson með 40 stig en Helgi Jónas
Guðftnnsson skoraði 25 stig.
Tindastóll vann fyrri leikinn á Sauðárkróki á
föstudagskvöldið með tuttugu stiga mun, 88-68.
Stólamir léku við hvem sinn fingur í leiknum
og komu Grindvíkingum í opna skjöldu strax í
upphafi.
Torrey John átti stjömuleik fyrir Tindastól og
skoraði 33 stig. Jose Maria skoraði 18 stig og þeir
Sverrir Sverrisson og Amar Kárason gerðu 13
stig hvor.
Darryl Wilson skoraði 25 stig fyrir Grindvík-
inga og Unndór Sigurðsson 13.
-SK/-ST
Hamagangur í Keflavík
DV, Suöurnesjum:
Keflvíkingar em komnir áfram í bikamum
eftir sigur á KFÍ í Keflavík, 84-72, í gærkvöldi. í
hálfleik var staðan 46-38. Leikurinn var spenn-
andi og skemmtilegur. Þegar sex mínútur voru
eftir var David Bevis vikið af leikvelli hjá KFÍ
eftir að hafa hrint leikmanni Keflvíkinga og þá
var staðan 69-67. Dana Dingol kom inn á til að
skakka leikinn en fékk að fara sömu leið og Bev-
is. Þeir eiga yfir höfði sér leikbann.
Stuttu síðar lenti Birgir Örn Birgisson í
samstuði og var fluttur á sjúkrahús með heila-
hristing
Falur Harðarson skoraði 25 stig fyrir Keflavík
og Gunnar Einarsson 15. Hjá KFÍ skoraði David
Bevis 24 stig og Ólafur Ormsson 18.
Keflvíkingar gerðu góða ferð í fyrri leiknum
vestur á ísafjörð. Þeir unnu leikinn með þriggja
stiga mun, 81-84, eftir að staðan í hálfleik hafði
verið jöfn, 42-42. Leikurinn var lengst af i jafn-
vægi en gestimir reyndust sterkari á lokakafl-
anum en þá skoraði Falur Harðarson síðustu
fjögur stigin í leiknum.
Ólafur J. Ormsson skoraði 29 stig fyrir Isfirð-
inga og David Bevis 21.
Falur Harðarson skoraði 31 stig fyrir Keflvík-
inga og Guðjón Skúlason 19 stig.
-JKS/ÓA
Fáheyrðir yfirburðir
Fáheyrðir yfirburðir voru í Grindavik
þegar heimastúlkur sigmðu Breiðablik,
124-24, i 1. deild kvenna í körfuknattleik sl.
laugardag. í hálfleik var staðan 60-14.
Penny Peppas skoraði 27 stig fyrir
Grindavík og Birna Valgarðsdóttir 20 stig.
Steinunn Dúa Jónsdóttir var stigahæst í
Breiðabliki með 7 stig og Margrét
Harðardóttir kom næst með 4 stig.
Þá sigmðu KR-stúlkur lið ÍR með 52 stigum
gegn 66 í Seljaskóla á laugardaginn var. KR
hafði leikinn í hendi sér allan tímann. KR
trónir á toppnum meö fullt hú stiga.
-JKS