Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1997, Síða 5
24
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 1997
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 1997
25
íþróttir
Þorbjörn Jensson, landsliösþjálfari í handknattleik:
Tökum enga
áhættu í valinu
- ísland mætir Litháum í Kaunas á miðvikudag
„Við höfum ekki efni á neinni til-
raunastarfsemi í hinum mikilvæga
leik gegn Litháum. í okkar huga
kemur ekkert annað til greina en að
liðið fari í úrslitakeppnina á Ítalíu
næsta vor. Ég ákvað því að byggja
valið á þeim mönnum sem við eig-
um og hafa leikið hvað mest með
liðinu," sagði Þorbjöm Jensson eft-
ir að hann hafði tilkynnt landsliðið
sem mætir Litháum í riðlakeppni
Evrópumóts landsliða í Kaunas á
miðvikudaginn kemur.
Þorbjöm ákvað að fara út með 14
leikmenn en Valdimar Grimsson,
sem átti upphaflega að vera í hópn-
um, gefur ekki kost á sér vegna
anna í vinnu. I 14 manna hópnum
em átta leikmenn sem leika með er-
lendum félagsliðum. Það fóru því
aðeins sex leikmenn frá íslandi
Þessir fara til Litháen
Landsliðshópur Þorbjarnar Jenssonar fyrir leikinn gegn Litháen lítur
þannig út:
Markverðir era Guðmundur Hrafhkelsson, Val, og Bergsveinn Berg-
sveinsson, Aftureldingu.
Aðrir leikmenn: Bjarki Sigurðsson, Drammen, Gústaf Bjamason, Hauk-
um, Róbert Sighvatsson, Dormagen, Geir Sveinsson, Wuppertal, Björgvin
Þór Björgvinsson, KA, Ólafur Stefánsson, Wuppertal, Dagur Sigurðsson,
Wuppertal, Jason Ólafsson, Aftureldingu, Róbert Julian Duranona,
Eisenach, Patrekur Jóhannesson, Essen, Júlíus Jónason, St. Gallen.
Sú breyting er gerð frá síðasta leik gegn Sviss að Konráð Olavsson,
Niederwúrsbach, er ekki valinn núna en sæti hans í liðinu tekur Björgvin
Þór Björgvinsson.
Þegar Þorbjörn Jensson var inntur eftir þessari breytingu taldi hann
Björgvin henta betur en Konráð gegn liði eins og Litháum.
Valdimar á ekki heimangengt. 'JKS
’orbjörn Jensson landsliðsþjálfari.
snemma í morgun.
Þorbjöm sagði að sér hefði fund-
ist nokkuð vanta upp á spilaæfingu
í síðasta leik gegn Sviss. Það var því
þess vegna sem við ákváðum að
leika æfingaleik í Þýskalandi áður
en við héldum til Kaunas. Viö
þekkjum nokkuð vel til litháíska
liðsins frá HM í Japan á sl. vori.
Þeir leika pressuvörn og við eigum
ágætt svar við henni,“ sagði Þor-
björn.
Hann vildi enn fremur lýsa yflr
ánægju með íslandsmótið til þessa.
„Handboltinn er betri en oft áður
og það kemur landsliðinu til góða.
Fólk leggur meira leið sína á völl-
inn en áður. Þetta er ánægjuleg þró-
un fyrir handboltann," sagði Þor-
bjöm.
-JKS
íslenska landslidiö í
handknattleik leikur við þýska
liðið Bad Schwartau í Lúbeck í
kvöld. Um hádegið á morgun
heldur liðið síðan til Kaunas en
leikur þjóðanna verður á
miðvikudag og hefst klukkan 16
að íslenskum tíma.
Rúmenskir dómarar dæma leik
Litháens og íslands i Kaunas á
miðvikudag. Eftirlitsdómarinn
kemur frá Finnlandi
Undirritaður hefur verið
samstarfssamningur á milli HSÍ
og VÍS. Allir landsliðsmenn í
öllum flokkum era nú tryggðir í
bak og fyrir.
Theodór Guöfinnsson, landsliösþjálfari kvenna:
Á brattann að sækja
gegn Búlgörum í Sofiu
- báöir leikirnir fara fram á heimavelli Búlgara
íslenska kvennalandsliðið i hand-
knattleik, sem mætir Búlgöram tví-
vegis ytra um næstu helgi, hefur
verið valið. Eins og kom fram fyrir
helgina dró Aserbaídsjan þátttöku
sína til baka í forkeppninni af fjár-
hagsástæðum og fyrir vikið standa
tvær þjóðir eftir í riðlinum.
í kjölfarið ákvað evrópska hand-
boltasambandið að báðir leikir ís-
lands gegn Búlgöram færa fram i
Sofiu um næstu helgi. HSÍ fannst
eðlilegra að leikið yrði heima og
heiman, kom fram kvörtunum við
Evrópusambandið, en fyrri ákvörð-
unin stendur.
„Mér finnst þetta ósanngjörn af-
staða og finnst í raun að verið sé að
traðka á okkar rétti. Evrópusam-
bandið hefur ekki staðið sig sem
skildi í þessu máli. Það er verið að
verðlauna Búlgara fýrir að hafa
ekki efni á því að koma til íslands
og leika annan leikinn þar sem okk-
ur finnst réttlætismál," sagði Theo-
dór.
Hann sagði þó að komandi leikir
við Búlgari legðust bara vel í sig.
„Við verðum að taka því sem að
höndum ber. Það verður þó að við-
urkennast að það verður á brattann
að sækja í þessum leikjum en til að
eiga möguleika verðum við að leika
mjög vel. Það er annars góð stemn-
ing í hópnum og stelpumar eru
ákveðnar í að standa sig vel í þess-
um tveimur leikjum," sagði Theo-
dór Guðfinnsson landsliðsþjálfari
við DV. -JKS
Iþróttir
Sigmar tok
28 bolta
- þegar ÍBV skellti KA, 36-28
DV, Eyjum:
„Þetta var dæmigerður
bikarleikur, hörkubarátta og
jafn og spennandi leikur
lengst af. KA-liðið gaf eftir á
endasprettinum en ekki
hefði þurft mikið til að leik-
urinn hefði snúist þeim í vil.
Ég er ánægður með að út-
haldið hjá okkur er í lagi og
strákarnir hafa sigurviljann
og ætla sér langt í bikarnum.
En auðvitað þarf ýmislegt að
lagast hjá okkur,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson, þjálf-
ari ÍBV, eftir frábæran sigur
ÍBV á íslandsmeisturum KA
í Eyjutn, 36-28. Þar með
missti KA af möguleikcmum
að leika til úrslita í bilkarn-
um fjórða árið i röð.
Strax í upphafi var ljóst að
Sigmar Þröstur, hinn 36 ára
gamli markvörður Eyja-
manna, var í þrumustuði og
með kompásinn rétt stilltan.
Sóknarleikurinn var í háveg-
um hafður en varnarleikur-
inn slakur framan af. Björg-
vin Björgvinsson var eini
norðanmaðurinn sem kunni
lagið á Sigmari Þresti og fór
á kostum í horninu.
í síðari hálfleik kipptu
Eyjamenn fljótlega út einni
skyttu KA, Karin Yala, og
við það riðlaðist sóknarleik-
ur þeirra mjög. Sigmar
Þröstur, sem hafði varið 14
skot í fyrri háifleik, hélt upp-
teknum hætti. Rothöggið
kom þegar KA-maðurinn
Sævar Árnason, þá nýkom-
inn inn á í fyrsta skiptið í
leiknum, fékk að líta rauða
spjaldið fyrir ótrúlega fram-
komu. Eyjamenn vora vel að
sigrinum komnir og vex ás-
megin með hverjum leik.
Þætti Sigmars er áður lýst en
Litháinn Robertas er þrasu-
skytta og var duglegur við að
dæla boltanum inn á línuna
á Svavar. Björgvin var best-
ur norðanmanna og Sig-
tryggur varði vel.
„Ég vil ekki kenna dóm-
urunum um tapið. Þetta var
einfaldlega uppgjöf í mínu
liði. Við skoraðum 17 mörk í
fyrri hálfleik en fengum á
okkur 18 þannig að vömin
var ekki í lagi. Það vsir
einfaldlega okkar klúður að
klára ekki leikinn. Við get-
um sjálfum okkur um
kennt,“ sagði Atli Hilmars-
son, þjálfari KA, við DV eftir
leikinn.
Mörk fBV: Zoltan Belanýi
10/6, Svavar Vignisson 7, Robert-
as Panzuolis 5, Guðfinnur Krist-
mannsson 4, Hjörtur Hinriksson
3, Haraldur Hannesson 3, Erling-
ur Richardsson 3, Gottskálk
Ágústsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur
Óskarsson 28/3.
Mörk KA: Björgvin Þór Björg-
vinsson 8, Halldór Sigfússon 6/3,
Jóhann G. Jóhannsson 4, Sverrir
Björnsson 3, Leó Örn Þorleifsson
3, Heimir Ámason 1, Atli Þór
Samúelsson 1, Kári Jónsson 1,
Karin Yala 1. Varin skot: Sig-
tryggur Albertsson 18/1.
Dómarar: Bjarni Viggósson
og Valgeir Ómarsson. Engan veg-
inn starfi sinu vaxnir. -ÞoGu
32-liða úrslit í bikarkeppni karla í handknattleik:
- Framarar mættu mjög ákveðnir til leiks og sigruðu FH-inga örugglega, 21-31
FH-ingar, toppliðið á íslandsmótinu í handknattleik, töpuðu fyrsta
leik sínum á tímabilinu þegar þeir steinlágu gegn mjög frísku Fram-
liði í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar í Kaplakrika á laugardaginn.
Framarar léku við hvem sinn fingur og þegar upp var staðið var
munurinn 10 mörk á liðunum, 21-31, en í hálfleik var staðan 11-12
Fram i vil.
„Það má segja að þetta hafi verið fyrsti heilsteypti leikurinn hjá
okkur á tímabilinu. Við erum búnir að eiga mjög erfitt enda hafa
mikil meiðsli herjað á hópinn. Núna er þetta hins vegar að smella
saman og ég var virkilega ánægður og stoltur af frammistöðu
minna manna í þessum leik. Viö lögðum grunninn að sigrinum með
sterki vöm og góðri markvörslu og ég var mjög sáttur við sóknar-
leikinn. Þetta var ekki góður dagur hjá FH-liðinu en það er alltaf
erfitt að vera á toppnum," sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálf-
ari Fram, við DV eftir leikinn.
Framarar gerðu út um leikinn á fýrsta stundarfjórðungnum í síð-
ari hálfleik.
Eftir að FH-ingar höfðu skorað fyrsta markið í síðari hálfleik og
jafnað metin skoruðu Framarar fimm mörk i röð, flest úr hraðaupp-
hlaupum, og breyttu þannig stöðunni úr 12-12 í 12-17. Framarar
færðust allir í aukana eftir þennan góða leikkafla en að sama skapi
létu FH-ingar mótlætið og dómarana fara í taugamar á sér. Gestim-
ir úr Safamýrinni juku muninn jafnt og þétt enda gáfust FH-ingar
hreinlega upp löngu áður en leiktíminn var úti.
Framarar hreinlega slátruöu okkur á kafla í síöari
hálfleiknum
„Framaramir hreinlega slátraðu okkur á fyrstu 10-15 mínútunum
i siðari hálfleik. Við vorum þá að klára sóknir okkar illa og fengum
þá í bakið með hraðaupphlaupin. Við gáfumst upp allt of snemma
og voram að láta allt fara í taugamar á okkur. Ég veit ekki hvort
eitthvað vanmat hafi verið í gangi hjá okkur fyrir leikinn. En Fram-
arar era með mjög sterkt lið og þeir voru einfaldlega miklu betri en
við í þessum leik,“ sagði Guðmundur Pedersen, leikmaöur FH, við
DV eftir leikinn.
FH-ingar vora ekki sjálfum sér likir í þessum leik. Leikur þeirra
var á afar lágu plani og menn virtust hreinlega ekki verið tilbúnir
í leikinn. Sóknarleikurinn var í molum þar sem hvað eftir annað
var reynt að spila í gegnum hina hávöxnu varnarmenn Framara í
stað þess að teygja á vöminni og nýta hornaspilið.
Lee var ekki öfundsverður að standa á milli stanganna enda vöm-
in mjög götótt og Framarar fengu að auki fjöldann allan af hraða-
upphlaupum. Sem sagt, alls ekki dagur FH-inga en þeirra skástu
menn voru Hálfdán Þórðarson og Gunnar Narfi Gunnarsson.
Það verður ekki af Frömurum tekiö að þeir voru að leika mjög vel.
Vörnin með turnana þrjá í miðjunni, Oleg Titov, Gunnar Berg Vikt-
orsson og Daða Hafþórsson í broddi fylkingar, var FH-ingum mjög
svo erfið og Reynir Reynisson átti góðan leik í markinu.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson fór á kostum í vinstra hominu og
Oleg Titov var hrikalega öflugur á línunni. Eftir þennan leik er ljóst
að Framarar era að vakna til lífsins og þeir hafa burði til ná langt
í deild og bikar með þennan mannskap.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 5, Guðjón Árnason 3, Gunnar N.
Gunnarsson 3, Láras Long 3, Sigurjón Sigurðsson 3/2, Knútur Sig-
urðsson 2, Stefán Freyr Guðmundsson 1, Guðmundur Pedersen 1.
Varin skot: Lee 10/1.
Mörk Fram: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 10/1, Oleg Titov 8/3,
Magnús A. Amgrímsson 4, Daði Hafþórsson 3, Njörður Árnason 3,
Gunnar Berg Viktorsson 2, Kristján Þórsteinsson 1.
Varin skot: Reynir Þ. Reynisson 16/1.
Brottvísanir: FH 18 mín., Fram 10 mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson, sæmilegir.
-GH
Halla María Helgadóttir á fleygiferð með knöttinn á landsliðsæfingu hjá kvennalandsliöinu um
helgina. DV-mynd Hilmar Þór
Estergal í hópinn
- og leikur fyrsta landsleik sinn fyrir ísland í Sofíu
Landslið kvenna í handknattleik, sem mætir
Búlgörum um næstu helgi, var endanlega valið
um helgina. 18 leikmenn hafa æft að undanfómu
en á laugardaginn fækkaði landsliðsþjálfarinn
leikmönnum um þrjá.
Þær sem duttu út voru Hugrún Þorsteinsdóttir,
Fram, Dagný Skúladóttir, FH, og Gerður Beta Jó-
hannsdóttir, Val.
Þrjár sterkar stúlkur gáfu ekki kost á sér í
þessa leiki. Auður Hermannsdóttir og Hulda
Bjamadóttir vegna anna í námi og Heiða Erlings-
dóttir, Víkingi, sem átti ekki heimangengt.
Judith Estergal úr Haukum, sem fékk eigi alls
fyrir löngu ríkisborgararétt, er valin í liðið. Theo-
dór Guðfinnsson sagði að hún myndi styrkja liðið
mikið.
Eftirtaldar stúlkur skipa landsliðið að þessu
sinni:
Markverðir: Fanney Rúnarsdóttir, Tertnes,
Helga Torfadóttir, Eslövs, og Vigdís Sigurðardótt-
ir, Haukum.
Aðrir leikmenn: Björk Ægisdóttir, FH, Brynja
Steinsen, Val, Halla María Helgadóttir, Víkingi,
Harpa Melsteð, Haukum, Herdis Sigurbergsdóttir,
Stjörnunni, Hrafnhildur Skúladóttir, FH, Inga
Friða Tryggvadóttir, Stjömunni, Ingibjörg Jóns-
dóttir, ÍBV, Judith Estergal, Haukum, Ragnheiður
Stephensen, Stjömunni, Svava Sigurðardóttir, Es-
lövs, og Thelma Ámadóttir, Haukum.
-JKS
Bikarkeppni, 32-liða úrslitin:
Önnur úrslit voru
nánast eftir bókinni
Úrslit í öðram leikjum i 32-liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ:
Breiðablik-Haukar.........25-35
Örvar Arngrímsson 6, Darek Brown 5,
Ragnar Kristjánsson , Darik Heath 3 -
Jón Freyr Egilsson 8, Aron
Kristjánsson 7, Einar Gunnarsson 3,
Einar Jónsson 3, Sigurður Þórðarson 3.
Stjarnan-ÍH ..............45-15
Valdimar Grímsson 10, Sigurður
Viðarsson 7, Heiðmar Felixson 7,
Hilmar Þórlindsson 7, Magnús A.
Magnússon 5.
Fylkir-Þór Ak. . . 34-33 2. framl.
Andri Már Jóhannsson 9, Ágúst
Guðmundsson 8 - Páll V. Gíslson 10,
Þorvaldur Sigurðsson 6, Geir
Aöalsteinsson 6.
Víkingur-Valur b............35-16
Valur-ögri..................41-16
HM-ÍR ......................22-27
Síðasti leikurinn í 32-liða
úrslitunum fer fram á fóstudaginn
en þá leika KS og Grótta KR.
Liðin sem sátu hjá voru HK,
Hörður, Fjölnir, Selfoss og
Austri/Valur.
-JKS/-SK