Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1997, Page 8
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 1997
£3
íþróttir
0
Þýski handboltinn:
Wuppertal heldur
enn sínu stríki
Wuppertal sigraði Gummersbach, 32-29, í þýska handboltanum um helgina.
Ólafxu- Stefánsson átti mjög góðan leik og skoraði átta mörk.
Geir Sveinsson var einnig mjög áberandi á línunni og skoraði fimm mörk.
Þriðji íslendingurinn í liðinu, Dagur Sigurðsson, var
enginn eftirbátur og skoraði fimm mörk. íslendingarnir þrir hafa verið að
leika mjög vel með Wuppertal undanfarið undir stjóm Viggós Sigurðssonar.
Patrekur er allur aö koma til
Patrekur Jóhannesson er ailur að koma til og skoraði átta
mörk fyrir Essen gegn Nettelstedt. Þau dugðu skammt því
Essen laut í lægra haldi, 29-24, gegn hinu stjömuprýdda
liði Nettelstedt.
Róbert Sighvatsson og félagar í Bayer Dormagen /
gerðu jafntefli við Grosswaldstadt, 22-22.
-JKS
DV
Lokeren
láfyrir
Udinese
DV, Belgía:
Ekkert var leikið í Belgíu um
helgina vegna leiks Belga gegn
írum í aukakeppni um sæti á
heimsmeistaramótinu i
Frakklandi, Sömuleiðis léku
ítalir ekki vegna leiks þeirra við
Rússa. Udinese og Lokeren
notuðu tækifærið og léku
æfingaleik eins og reyndar mörg
lið um Evrópu um helgina.
Udinese sigraði Lokeren, 2-0,
og lék Amar Þór Viðarsson
síðustu fimm mínútur leiksins
með Lokeren. Liðið fór illa með
þrjú dauðafæri í leiknum.
-JKS/KB
Genk tapaði fyrir
B-liði Belga
DV, Belgía:
Genk, liö Þórðar Guðjóns-
sonar, tapaði fyrir B-landsliði
Belga, 3-4. Þórður kom inn á í
stööunni, 2-1.
Hann hefur verið í svolitlum
öldudal aö undanfómu.
-JKS/KB
Uppskeruhátið
í Safamýrinni
Uppskeruhátið verður haldin
hjá Knattspyrnufélaginu Fram í
dag og hefst hún klukkan 18 í
Safamýri. Allar foreldrar eru
hvattir til að mæta svo og allir
velunnarar félagsins.
Skvassmót hjá
Veggsporti:
Kim Magnús
sigurvegari
Kim Magnús Nielsen varð sigurvegari á Veggsport-
skvassmótinu sem lauk í Veggsporti í gær.
Kim Magnús lék til úrslita í meistaraflokki karla gegn
Albert Guðmundssyni og sigraði, 3-0. Ragnheiður Vík-
ingsdóttir vann írisi Ragnarsdóttur í úrslitum í kvenna-
flokki, 3-0. -SK
Petr Korda frú Tékklandi ,. st „ , ,
*' varð 1 gær sigurvegari a opna Stuttgart-motmu í
tennis. Korda lék til úrslita gegn Richard Krajicek frá Hollandi og vann 7-6, 6-2 og 6-4. Eins og tölumar bera með sér var
sigur Tékklendingsins nokkuð öruggur. Sigur Korda kom nokkuð á óvart enda hefúr hann ekki sigrað á móti atvinnumanna
síðustu tvö árin þrátt fyrir að hafa oft verið í allra fremstu röð. „Ég lék vel alla þessa viku og draumurinn rættist. Ég hafði
sett mér ákveðin markmið en það var að komast aftur í hóp 10 bestu tennisleikara heimsins á næsta ári. Það er ekki verra
þegar maður er á undan áætlun og þessi sigur er mér afar kærkominn," sagði Korda í gærkvöldi þegar sigurinn gegn
Krajicek var í höfn. „Ég hef lagt mjög hart að mér við æfingar undanfarið en átti samt ekki von á þessum árangri svona
snemma,“ sagði Korda enn fremur. Margir þekktir tennisleikarar féllu úr mótinu í Stuttgart að þessu sinni. Nægir þar að
nefna þá Pete Sampras frá Bandaríkjunum, Boris Becker frá Þýskalandi og Króatann Goran Ivanisevic.
-SK
Sund:
Frá-
bært
met
hjá
Emi
Öm Amarson setti
í gær glæsilegt ís-
landsmet í 200 metra
baksundi á unglinga-
móti hjá Ármanni.
Öm synti vega-
lengdina á 1:59,06
mín. og varð þar með
fyrsti íslenski sund-
maðurinn til að
synda á skemmri
tíma en tveimur mín-
útum. Gamla metið
átti Logi Jes Krist-
jánsson og setti hann
það í Eyjum fyrir
tveimur árum.
Árangur Arnar er
einnig nýtt piltamet.
Þess má geta aö nýja
metið skipæ- Emi í
39. sætið á heims-
afrekalistanum í 200
metra baksundi í 25
metra braut.
-SK
Essen sagði
nei við Patta
kemur samt til móts viö íslenska landsliðiö í dag
Aðalfundur
Forráðamenn Essen, liðs Patreks Jóhannesson-
ar í þýska handboltanum, tilkynntu honum um
helgina að þeir væm ekki hrifnir af því að hann
léki með
íslenska
landslið-
inu gegn
Litháen í
Evrópu-
keppninni
á mið-
vikudag.
Þeir raun-
ar lögðust
gegn því
að hann
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar verður haldinn
í Þróttheimum, mánudaginn 3. nóvember og hefst kl. 20.00.
Stjórnin
færi. Liðinu hefur gengið illa í úrvalsdeildinni og
er í neðsta sætinu. Patrekur hefur lengst af verið
meiddur en hefur náð sér að fúllu. Forráðamenn
Essen telja í lagi að hann leiki með Essen en ekki
íslenska landsliðinu.
Komin upp örvænting
„Ég skil afstöðu þeirra að sumu leyti. Fimm
leikmenn era meiddir og ég er nýstiginn upp úr
þeim. Svo er staða liðsins ekki beysin þannig að
upp er komin viss örvænting. Það er af þeim sök-
um sem þeir leggjast gegn því að ég fari með
landsliðinu til Litháen.
í aðra höndina finnst mér þeim ekki stætt á að
gefa mér ekki leyfi. Núna fer í hönd tveggja vikna
pása í deildinni og hana vilja þeir nýta til hins
ýtrasta. Ég ætla að koma til móts við strákana í
landsliðinu í Lúbeck í kvöld. Ég trúi ekki öðra en
að Essen gefi mér á endanum leyfi til að leika
með landsliðinu. í samningi mínum við félagið
segir meðal annars að mér sé heimilt að leika
með landsliðinu sé þess óskað og það stangist
ekki á við leiki með Essen,“ sagði Patrekur Jó-
hannesson í samtali við DV í gær.
Mikil meiösli
Patrekur sagði gengið á liðinu langt fyrir neö-
an það sen menn gerðu sér vonir um fyrir tíma-
bilið. Meiðsli hafa sett stórt strik í reikninginn.
Núna era menn að stíga upp úr þeim og ég er að
vona að eftir fríið forum við að sýna hvað virki-
lega býr í liðinu," sagði Patrekur. -JKS