Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1997, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1997, Side 1
Lottó: 10 17 19 24 32 B: 34 Enski boltinn: 12x 2xx 122 xllx Eiður aftur í uppskurð? óvíst hvort PSV vilji endurnýja samninginn sem rennur út 1. desember Svo getur farið að Eiður Smári Guðjohnsen, knatt- spyrnumaður hjá PSV í Hollandi, þurfi að gangast undir annan uppskurð á fæti en í ljós kom þegar hann fór í myndatöku á fóstudaginn að bem hefur myndast í ökklanum sem getur leitt til þess að hann þurfi að fara aftur undir hnifmn. Eiður Smári hefur ver- ið frá æfmgurn og keppni síðan i maí 1996 þegar hann var tæklaður illa í landsleik með unglingalandsliðinu gegn írum og 1 kjölfarið þurfti hann að fara í upp- skurð. Hann missti því al- veg af keppnistímabilinu á síðustu leiktíð með PSV og það horfir ekki vel hjá þess- um snjalla leikmanni fyrir þetta timabil Eiður Smári hitti lækni í Belgíu í dag, Dr. Martins, og það kemur í hans hlut að ákveða hvort Eiður verður skorinn eða ekki. Læknir PSV liðsins vill ekki skera heldur láta beinið vaxa saman viö sköflung og kálfabein. Samningur Eiðs við PSV rennur út 1. desember næst- komandi og það er óvíst hvort félagið vilji endur- nýja hann vegna þessa meiðsla. -GH Sampras bestur Bandarlkjamaðurinn Pete Sampras tryggði sér í gær heimsmeistaratitilinn í einliða- leik karla í tennis þegar hann lagði Rússann Jevgeny Kafel- nikov í úrslitaleik, 6-3, 6-2 og 6-2 á heimsmeistaramóti at- vinnumanna sem fram fór í Hanover í Þýskalandi. Sampras hafði mikla yfirburði í úrslitaleiknum og gerði út um hann á 88 mínútum. Rússinn átti ekkert svar við góðum leik Sampras og var hann i nauðvöm nær allan tímann. Þetta var fiórði heimsmeistaratitiU Samp- ras en hann vann einnig sigur á þessu móti í fyrra og hann und- irstrikaði enn og aftur að hann er besti tennisleikari heims. í undanúrslitunum sigraði Sampras Svíann Jonas Björk- man, 6-3 og 6-4 og Kafelnikov lagði Spánverjann Carols Moya í hörkuleik, 7-6 og 7-6. -GH MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 1997 Sigurgang- an heldur áfram Keflvíkingar unnu öll mót á vegum Körfuknattleikssambands íslands í fyrra og þeir halda uppteknum hætti í ár þrátt fyrir rólega byrjun í úrvalsdeildinni. Þeir urðu meistarar meistaranna í haust og á laugardag unnu þeir deildabikarinn annað árið í röð þegar þeir unnu stórsigur á Tindastóli í úrslitaleik í Laugardalshöllinni. „Við ætluðum að ná í an bikar og vorum ekkert að verja neinn titil í þessum leik. Við vorum afslappaðir i leiknum, gerðum það sem við lögðum upp fyrir leik enda vitum við vel hvað þarf í svona úrslitaleiki," sagði fyr- irliði Keflvíkinga, Guðjón Skúlason, við DV eftir úrslita- leikinn. Guðjón, sem lyftir bikarn- um hér til hliðar, átti góðan leik og með því að hitta úr öll- um 4 vítaskotum sínum í leiknum hefur hann nýtt öll 42 vítin sín sem hann hefur fengið í fyrirtækjabikar KKÍ, bæði í ár og í fyrra. Sjá nánar um leikinn á bls. 28 -ÓÓJ Gústaf í speglun Gústaf Bjamason, landsliðsmaður i handknattleik og leikmaður Hauka, verður frá keppni og æfingum næstu 4-6 vikumar. Hné- meiðsli hafa verið að angra Gústaf í nokkum tima og í æfingaleik landsliðsins í gegn þýska liðinu Bad Schwartau fyrir landsleikinn gegn Litháum í Kaunas ágerðust meiðslin. „Ég fór i speglun á föstudaginn og það kom í ljós að þetta hefði ekki mátt bíða lengur. Það er auðvitað hundfúlt að lenda í þessu en maður verður bara að taka því og maður kemur vonandi frískari til leiks á nýju ári,“ sagði Gústaf í samtali við DV. Gústaf missir af þremur deildarleikjum með Haukunum og bik- arleik auk þess sem íslenska landsliðið verður án hans í leikjunum gegn Júgóslövum í undankeppni EM siðar í þessum mánuöi. -GH Stjarnan í efsta sætið - Bls. 23 Valur til Noregs? Talsverðar líkur em á því að Valur Fannar Gíslason, knatt- spymumaður hjá Arsenal, sé á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Strömsgodset. Valur sagði við DV i gær að „þreifingar væru í gangi“ en vildi ekki taka dýpra í árinni en það. DV hefur hins veg- ar heimildir fyrir því að málið sé nokkuð langt komið. Valur á hálft annað ár eftir af samningi sínum við Arsenal en virðist ekki eiga möguleika á að spila þar með aðalliðinu. „Bmce Rioch keypti mig á sínum tima en síðan tók Arsene Wenger við, keypti mikið af mönnum og þeir hafa forgang hjá honum," sagði Valur Fannar við -VS Stórleikur Konráðs Konráð Olavsson átti stórleik í gær þegar lið hans, Niederwúrz- bach, sigraði Minden, 26-20, í sextán liða úrslitum þýsku bikar- keppninnar í handknattleik í gær. Konráð var markahæstur i sínu liði ásamt Dittert en þeir gerðu 7 mörk hvor. Hetja Niederwúrs- bach var þó hinn frægi rússneski landsliðsmarkvörður, Andrei Lavrov, sem varði fiögur vítaköst gestanna. Fyrir Minden skoraði Farkas mest, 8 mörk. -VS - Keflavík bu ur - Bls. 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.