Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1997, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1997 27 x>v Iþróttir Kristinn Björnsson kominn í mark og fagnar innilega. Reuter-mynd íþróttamaður af lífi og sál - segir framkvæmdastjóri SKÍ „Árangur Kristins er ekki bara auglýsing fyrir skiðaiþróttina hér á landi heldur einnig um alian heim. Þetta er líka hvatn- ing til allra ungra skíða- manna. Árangur Kristins í Park City í Utah er í raun ólýsanlegur og setti aUt á annan endann. Ég held ég geti sagt að ég hafi svarað á milli 50-60 sím- hringingumá laugardags- kvöldið. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta er bara byrjunin hjá Kristni," sagði Kristinn Svanbergsson, fram- kvæmdastjóri Skíðasam- bands íslands, í samtali við DV. „Þrotlausar æfingar og rétt hugarfar skilar Kristni þessum frábæra árangri. Hann er einstak- ur eljumaður og er fljótur að læra. Hann er liðtækur í öllum íþróttum en hann ákvað aö leggja rækt við skíðin á sínum tima. Við getum sagt fullum fetum að Kristinn er íþróttamað- ur af lífi og sál.“ -JKS Kristinn Bjömsson vann það frábæra afrek að verða fyrstur íslenskra skíða- manna til að komast á verðlaimapall í svigkeppni heimsbikarmótsins sem fram fór í Park City i Bandaríkjunum á laugar- dagskvöldið var. Kristinn var í 17.-18. sæti eftir fyrri umferðina. Síðari umferð- ina fór hann frábærlega og útkoman var sú að hann fór brautina hraðast allra og hlaut hann siifur- verðlaun. Afrek Kristins er einstakt og er tvímæla- laust eitt besta íþrótta- afrek íslendings. Kristinn var tíu hundruðustu úr sekúndu á eftir Austurrík- ismanninum Thomasi Stangassinger en í þriðja sæti varð Norðmaðurinn Finn Christian Jagge. „Það er varla að maður trúi þessu enn. Þetta er mesta upplifun í minu lífi. Ég hafði aldrei gert mér í hugarlund hvað svona árangur hefði í för með sér. Ég var umsetinn fréttamönnum eftir að úrslit lágu fyrir. Þetta er ógleymanleg lífreynsla. Mér gekk ágætlega í fyrri umferðinni en í þeirri síðari hafði ég mikið sjálfstraust sem hjálpaði mér mikið. Það verður örugglega erfitt að fylgja þessum árangri eftir. Ég er samt ákveðinn í að halda áfram á sömu braut. Nú veit ég að þetta er hægt og þaö skiptir öllu máli. Ég hef lengi stefnt að þessu en ég átti ekki von á því að það gerðist svona hratt. Þrotlausar æfingar eru famar að skila árangri," sagði Kristinn Bjömsson, í samtali við DV, skömmu eftir keppnina í Park City. Kristinn sagði að það hefði verið sérkennileg til- finning að vera innan um allar stórstjömumar á blaðamannafimdi eftir keppnina. „Ég verð að viðurkenna að ég naut þess vel og var spurður margra spum- inga. Það kom flatt upp á alla að íslendingur hreppti annað sætið. Það þekkti mig enginn og Stang- assinger, sem vann gullið, þekkti mig ekkert og haföi aldrei séð mig áður. Fréttamenn héldu i fyrstu að ég væri frá ísrael en ég var fljótur að leiðrétta þá. Þessi árangur minn gefur mér betra rásnúmer fyrir næstu keppni sem haldin verðm- á Ítalíu um miðjan næsta mánuð,“ sagði Kristinn Bjömsson við DV. -JKS Austurríkismaöurinn Thomas Stangassinger, sigurvegarinn í sviginu, óskar Kristni Björnssyni til hamingju meö annaö sætiö. Reuter-mynd Trúi þessu ekki enn þá - sagði Kristinn Björnsson, skíðakappi frá Ólafsfirði Efstu menn í svigkeppninni Tíu efstu skíðamenn í sviginu í Park City urðu eftirtaldir. 1. Thomas Stangassing., Aust. 1:39,21 2. Kristinn Bjömsson, ísl . . 1:39,31 3. Finn C. Jagge, Noregi .... 1:39,34 4. Kjetil A. Aamodt, Noregi . . 1:39,42 5. Michael Gruningen, Sviss . 1:39,63 6. -Hans P. Buraas, Noregi . .. 1:39,81 7. -8. Siegfried Voglreit, Aust. .1:40,11 7.-8. Sebastian Amiez, Frakkl. 1:40,11 9. Tom Stiansen, Noregi .... 1:40,20 10. Fabrizio Tescari, Ítalíu . . 1:40,30 Kristinn hlaut 80 stig Kristinn Bjömsson hlaut 80 stig fyrir annað sætið I sviginu í Park City sl. laugardagskvöld. Staða efstu tíu manna eftir fyrsta mót vetrarins í sviginu er þessi: 1. Thomas Stangass., Aust.....100 2. Kristinn Bjömsson, ísl.......80 3. Christian Jagge, Noregi......60 4. KjetU Aamodt, Noregi ........50 5. Von Gruningen, Sviss.........45 6. Hans Petter Burass, Noregi . . 40 7. -8. Siegfried Voglreiter, Aust. . 36 7.-8. Sebastien Amiez, Frakkl. .. 36 9. Tom Stiansen, Noregi .......29 10. Fabrizio Tescari, Ítalíu...26

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.